Dagblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTOBER 1
Erlendar
fréttir
REUTER
Aftur rætt um
sjálfstæði
Palestínuaraba
Fulltrúar ísræls og Egyptalands munu í
dag taka aftur upp viðræður sín á milli um
sjálfstæði til handa Palestínuaröbum á
hernumdu svæðunum sem ísraelar
ráða. Bandaríkjastjórn er sögð gera sér
vonir um að nýjar tillögur sem ísraelar
leggja fram muni valda þáttaskilum i
málinu.
Stórsvindlarinn
áttiþrjáreigin-
konuroglangan
svikahala umflest
lönd Evrópu
Fimmtugur maður ættaður frá Líbanon
hefur verið handtekinn í Kaupmannahöfn
fyrir að stinga af frá ógreiddum hótel-
reikningum og innistæðulausum tékkum.
Er upphæðin samtals talin nema 135 þús-
und dönskum krónum, eða jafnvirði
nærri fjórtán milljóna íslenzkra króna.
Þegar farið var að kanna feril manns-
ins kom í ljós að hann hafði lagt ýmislegt
fyrir sig sér til lífsframfæris og fæst af því
réttu megin við línu laga og réttar.
Ekki verður annað séð en hinn fimm-
tugi Líbanonmaður hafi gengið vað eiga
þrjár konur um ævina og alveg látíð undir
höfuð leggjast að skilja við þær með lög-
Iegum hætti áður en hann gekk að eiga þá
næstu.
Rétt er að byrja söguna þar sem maður-
inri hittir belgiska konu á hótel í Lissabon í
Portúgal. Skömmu síðar gengu þau í
hjónaband og fluttu til Belgíu. Þar sagðist
Líbanonmaðurinn eiga von á arfi frá
heimalandi sínu og falaðist eftir láni á
meðan til að koma af stað innflutnings-
fyrirtæki. Gömul frænka eiginkonunnar,
87 ára að aldri, lánaði manninum jafnvirði
rúmlega fimmtíu milljóna íslenzkra
króna.
Þar með hvarf Libanonmaðurinn frá
Belgiu með peningana, sem hin 87 ára
gamla frænka hefur ekki séð síðan, og
eiginkonan hefur reyndar ekld séð eigin-
manninn heldur.
Við handtökuna í Kaupmannahöfn gaf
Líbanonmaðurinn upp að eiginkona hans
væri ungversk. Siðan er komið í ljós að
hann gekk einnig að eiga franska konu
fyrr á árum. Þar með em ektakvinnumar
orðnar þrjár.
Samkvæmt þeim gögnum sem danska
lögreglan hefur aflað sér er umræddur
maður talinn eiga ýmislegt vantalað við
lögregluna í Ungvetjalandi, Austurríki,
Frakklandi, Belgíu og Vestur-Þýzkalandi.
Argentínu-
maðurinn Esquivel
færfriðarverðlaun
Nóbels
Argentínumaðurinn Adolfo Perez
Esquivel hlaut í gær friðarverðlaun
Nóbels. Að sögn John Sannes, for-
manns nóbelsverðlaunanefndar norska
Stórþingsins, hlýtur hann þau fyrir
störf að mannréttindamálum síðan árið
1974. Esquivel hefur margsinnis setið í
fangelsi fyrir baráttu sína en hann er
formaður samtaka sem hafa aðal-
stöðvar í Buenos Aires og berjast fyrir
mannréttindum í Suður-Ameriku.
Adolfo Perez Esquivel er arkitekt og
myndhöggvari að mennt. Hann er 48
ára að aldri. Var hann ekki í þeirra
hópi er mest voru nefndir sem líklegir
nóbelsverðlaunahafar. Esquivel var tif-
néfndur til verðlauna af Betty Williams
og Mairead Corrigan, sem barízt haf*a
fyrír mannréttindum á Norðut>írlandi
og hlutu báðar friðarverðlauh Nóbds
árið'1976.
Alsfr:
AFTUR SKJALFTI
ÍELASHAMBORG
— rúmlega 250 þúsund manns taldir vera heimilislausir í borginni og næsta
nágrenni—fólks enn leitað í húsarústunum
Enn einn harður jarðskjálfta-
kippurinn gekk yftr borgina El
Asham í Alsir í gær. Þar eru
björgunarmenn í óðaönn við að leita
lifandi fólks í rústum húsa í borginni,
sem hrundu til grunna í tveimur
miklum skjálftum á föstudaginn var.
Símasambandslaust er við E1 Asham
og er því ekki vitað hvort einhverjir
hafi týnt lífi við skjálftana í gær.
Tala þeirra sem farizt hafa í hamför-
unum er enn óviss en ekki talið ólík-
legt að hún verði nálægt tuttugu
þúsundum þegar öll kurl verða
komin til grafar. Töluvert hefur verið
um að fólk hafi fundizt lifandi í rúst-
unum.
Óttazt er að tala látinna muni enn
hækka þegar björgunarmenn komast
til nærliggjandi þorpa sem enn eru al-
gjörlega einangruð þar sem vegir fóru
í sundur í náttúruhamförunum. Talið
er að á milli 250 og 350 þúsund
manns hafi misst heimili sín í jarð-
skjálftunum. í borginni Bordj Boun-
aama hrundu og skemmdust fimmtíu
byggingar i gær. Ekki er talið að
neinirhaftfarizteða slasaztþar.
Heildarupplýsingar um tölu lát-
inna munu ekki liggja fyrir fyrr en
eftir nokkra daga. Mikið jarðrask
hefur orðið. Spi ungur hafa mvndazt
i jarðskorpuna sem éruallj aó 50 km á
lengd og fjórir metrar á breidd. Á
jarðskjálftasvæðunum býr um ein
milljón manna. Ekki er talið að
hætta sé á taugaveiki eða öðrum
sjúkdómum en farið er að grafa hús-
dýr sem fórust í skjálftunum. Fólk
hefur ennfremur verið hvatt til að
slátra dýrum sem mikið hafa meiðzt.
Mikið af hjálpargögnum hefur
borizt frá öðrum þjóðum og frá al-
þjóðlegum hjálparstofnunum. Að
sögn fulltrúa Rauða krossins verður
algjörlega að endurbyggja El Asham
frá grunni. Hann sagði að það væri i
höndum Alsirstjórnar að ákveða
hvort hún yrði byggð á sama stað og
áður. Þar hafa orðið tveir miklir og
mannskæðir jarðskjálftar á 26 árum.
Árið 1954 léturst eitt þúsund og fimm
hundruð manns í skjálfta þar. Borgin
var þá kölluð Orleansville en þá tald-
ist Alsír hluti Frakklands og gerði til
ársins 1960.
Rekinn
af
þingi
John Jenrette fulltrúadeildarþing-
maður i Washington fyrir Repú-
blikanaflokkinn er annar maðurinn
í sögunni sem visað hefur verið úr
deildinni fyrir að þiggja mútur.
Upp komst um þingmanninn i sér-
stökum aðgerðum FBI alríkis-
lögreglunnar bandarisku sem
nefndar hafa verið Abscam.
Myndin sýnir John Jenrette og
eiginkonu hans Ritu eftir að dómur
um brottvisun hans hefur verið til-
kynntur.
VRDKA
Toppurinn
Sími 82922
SKIÐASKORNIR
Barnaskór
Sprint
Herraskór
Gemini
Unglinga
skór
Slalcm
'N Kr. 37.200
StMrðir 27—38
Verð 1S.S00-24.400
Dömu-
keppnisskór
Lady
CompetMon
Stœrðir 36-41
Dömuskór
Lady Zephyr
Kr. 60.800
Unglingaskór
keppnisskór
Junior
competition
Kr. 47.600
Stnrðir: 38—41
Dömuskór
Lady Venus
Kr. 32.800
Kr. 37.800
Stterðir 41—46
Herraskór
(í Cosmos
Kr. 42.400
Kr. 29.400
Stssrðir: 37-44
Stsarðir 37-41
Kr. 82.800
Stssrðir 37-41
Starðir 38-41
Stssrðir 41-47
Herraskór
Force
Kr. 62.100
Herraskór
Stratue-Air
Kr. 80.200
StssrSlr 41-48
Stssrðir 42-48
Herraskór
Polar
Kr. 77.700
Keppnisskór
CompetMon
Kr. 88.300
StúsrBir 41 —#2
tmjfl
j-', *ðý’' ’ &
V' .'
8t»rdir 41—46
■■ f i\ij\iii iii ’itim' ■ 1