Dagblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980.
Fjölmennasta Helgar-
skákmótið á Akureyri
—alþjóðlegt
Helgarskákmót
áHúsavíkeftir
áramótin
Elías I. Elíasson, nýlegur
sýslumaður Eyfirðinga og bæjarfógeti’
á Akureyri, lék fyrsta leikinn i fjöl-
mennasta Helgarskákmótinu sem
haldið hefur verið til þessa. Fór það
fram á Hótel KEA og hófst kl. 14 á
föstudaginn var.
Sigurvegarar á þessu móti urðu þein
Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson
með 5 1/2 vinning. í 3. sæti varð Ásgeir
Þ. Árnason með 5 vinninga. Sex
umferðir voru tefldar.
Um sextíu þátttakendur voru 1
mótinu sem Freyr Ófeigsson, forseti
bæjarstjórnar, setti eftir að þeir dr.
Ingimar Jónsson, forsetí Skáksam-
bandsins, og Jóhann Þórir Jónsson,
ritstjóri Skákar, höfðu flutt stutt á-
vörp.
í athugun er hjá tímaritinu Skák og
Flugleiðum hf. að halda alþjóðleg
Helgarskákmót hér á landi eftir áramót
með þátttöku nokkurs fjölda erlendra
skákmanna. Er þá helzt rætt um Húsa-
vík sem keppnistað þar sem reynsla er
fengin fyrir ágætri aðstöðu til skák-
mótahalds á hótelinu og félags-
heimilinu sem er sambyggt við það.
Raunar hafa Helgarskákmótin öll
verið 1 góðri samvinnu við Flugleiðir
hf. Hefur verulegur afsláttur verið
veittur af fargjöldum og flugferðir
tímasettar með hliðsjón af móts-
haldinu.
Elias I. Eliasson sýslumaður leikur fyrsta leikinn I skák Helga Ólafssonar og Birgis
Sigurðssonar. Birgir hafði hvitt. DB-mynd: GM.
Dr. Ingimar Jónsson, forseti Skáksambands tslands, og Jóhann Þórir, ritstjóri tima-
-BS/GM, Akureyri.a ritsins Skákar, ræðast við.
BIAÐIB
Yngsti keppandinn á mótinu, Bogi Pálsson, 9 ára, fékk 2 vinninga.
DB-mynd GM.
Blómlegt atvinnulíf í Bolungarvík:
MIKIÐ BYGGT -
EN VANTAR FÓLK
Blómlegt atvinnulíf hefur verið í
Bolungarvík í sumar. Meðal annars
hafa verið malbikaðir tveir km í
bænum og þrír km út úr honum.
Einnig hefur verið unnið við lagningu
fjarvarmaveitu 1 bænum. Verktaki er
örnólfur Guðmundsson.
Mikið er byggt í Bolungarvík og á
ísafirði á vegum Framkvæmdanefnd
ar um leigu- og söluibúðir. Jón
Friðgeir Einarsson byggingaverktaki
i Bolungarvik skilaði um síðustu helgi
fullfrágengnu 8 íbúða fjölbýlishúsi í
Hnífsdal. Hefur það hús verið byggt
á hálfum fimmtánda mánuði, því
framkvæmdir hófust í júlí í fyrra.
Jón Friðgeir hefur einnig nýlega
hafið byggingu ellefu raðhúsa við
Árvelli í Hnífsdal og jafnframt samið
um byggingu fimm raðhúsa við Stiga-
hlíð í Bolungarvík.
Ánægjulegt er til þess að vita að
verktakar á Vestfjörðum virðast í
auknum mæli taka að sér verk, sem
boðin eru út hér heima. Það sem
ótvírætt háir byggingastarfsemi hér
mest er skortur á vinnuafli. Spenna á
vinnumarkaði og vinnuaflsskortur
eru sameiginlega vandamál alls at-
vinnurekstrar við ísafjarðardjúp.
Fiskvinnsla og útgerð virðast standa
sig bezt í samkeppninni um
vinnuaflið en i öðrum greinum, s.s.
iðnaði og verzlun horfir oft til stór-
vandræða vegna skorts á vinnuafli.
-KF, Boiungarvik.
ÍRL.
Þrir kilómetrar hafa verió malbikaðir út úr Bolungarvik i sumar og tveir innan
bæjarmarkanna. DB-mynd: Kristján Friðþjófsson.
Alltaf stjórnar Guð
almáttugur öllu bezt
Slátrun byrjaði á Eskifirði fyrir tólf
dögum og voru engin slátur keypt
fyrstu dagana. 9. október versnaði
veðráttan og ekki var hægt að veiða
síld, en þess má geta að stanzlaus sild-
arsöltun var hér á þriðju viku. Eftir að
veður versnaði fóru eskfirzkar
húsmæður, sem flestar vinna við síldar-
söltunina, að kaupa sér slátur en
slátrun lauk sl. föstudag. Má segja að
óveður hafi tryggt heimilismönnum á
Eskifirði sitt árlega slátur á borðin.
Þess vegna segir ég alltaf: Alltaf
stjórnar Guð almáttugur öllu bezt.
Söltun hófst á ný á laugardagirm.
í morgun hafa skipin streymt inn með
fullfermi af síld og verður sennilega sett
nýtt söltunarmet á Eskifirði. Út um
’gluggann sé ég níu síldveiðiskip.
I gær, sunnudag, varð Eskifjarðar-
kirkja 80 ára og predikaði prófastur
Austurlands, Trausti Pétursson, en
séra Davíð Baldursson sóknarprestur
þjónaði fyrir altari. Eftir messu var
öUum kirkjugestum, talsvert á þriðja
hundrað manns, boðið 1 kaffidrykkju 1
ValhöU. Var semfeUd dagskrá frá tvö
til sjö um kvöldið. Arnór Jensen, sem
kominn er á áttræðisaldur, sagði frá
kirkjubyggingunni í greinargóðri ræðu.
Tónleikar voru í kirkjunni kl. níu á
sunnudagskvöld og mættu þar 50—60
manns, enda hófst síldarsöltun aftur í
gær klukkan fimm og átta á plönunum
þremur.
Einn drengur var skírður í messunni
og hlaut hann nafnið ÞórhaUur Hjalta-
son. Sjö prestar komu hingað 1 tílefni af
afmæli kirkjunnar og get ég ekki fengið
nöfnin þeirra í bili, því hér eru allir
komnir í síld. Það er síldin sem mestu
hefur ráðið á Eskifirði undanfarnar
þrjárvikur.
-Regína, Eskifirði.