Dagblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 14.10.1980, Blaðsíða 12
MSBUUUB frjálst, áháð dagblað lítgafandi: Dagblaöifl hf. FravnkvaBmdaatJóri: Sveinn R. EyJóKaaon. Ritstjóri: Jónaa KrÍBtJánssón. Aflatoflarritstjóri: Haukur Helgason. Fréttastjórí: Ómar Valdknarsson. Skrifstofustjórí ritstjórnar: Jóhannes Raykdal. íþróttk: HaJlur Sfmonarson. Manning: Aðaistelnn IngóKsaon. Aflstoflarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrít: Asgrknur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karísson. Blaflamann: Anna BJamason, AtJi Rúnar HalkJórsson, AtJi Steinarsson, Asgeir Tómasson, Bragi Sig- urflason, Dóra Stafánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gunnlaugúr A. Jónsson, Inga Huld Hókonardóttir, • ólafur Geirsson, Sigurflur Sverrisson. LJÓsmyndir: BJarnleifur Bjamleifsson, Einar ólason, Ragnar Th. Sigurflsson, Sigurflur Þorri Sigurflsson og Sveinn Þormóflason. Skrifstofustjóri: Ólafur EyJóHsson. GJaldkerí: Þráin'n Þoríeifsson. Auglýsingastjórí: Már E.M. HaNdórs- son. Draifingarstjórí: Valgarflur H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Sfflumúla 12. Afgraiflsia, áskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þverhoiti 11. Aflalsfmi blaflsins er 27022 (10 linur). Satning og umbrot: Dagblaflifl hf., Síðumúla 12. Mynda- og plötugerfl: Hilmlr hf., Sfflumúla 12. Prantun Arvakur hf., SkeHunni 10. Askríftarvarfl á mánufli kr. 5.500. Varfl í lausasöiu 300 kr. aintakifl. Fríðarverðlaun handa Reuter? Stjórnarfar í Mexikó þykir ekki í frá- sögur færandi hér á slóðum. Við höld- um, að þar ráði sæmilega hæfir menn, sem séu að leiða þjóðina úr myrkri fá- tæktar inn í birtu olíuauðs og Iáta reisa falleg hús í leiðinni. Þess vegna kemur okkur á óvart brezk heimildarmynd í sjónvarpi um raunveruleikann í Mexikó. Við trúum því varla, að lögregla ríkisstjórnar- innar láti ræna tveggja ára barni til að þagga niður í verkalýðsleiðtoga. Sannleikurinn er sá, að glæpamenn ráða ferðinni í Mexikó eins og í velflestum ríkjum þriðja heimsins. Þeir hafa látið hundruð manna hverfa á kvalafullan hátt til varnar völdum sínum, græðgi og spillingu. Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og sérstofnana þeirra mæta hámenntaðir og snyrtilega klæddir menn frá þriðja heiminum, kvartandi um vestræna heims- valdastefnu, menningarlegan, pólitískan og efnahags- legan yfírgang Vesturlanda. Að baki þessara fínu herra eru harðstjórar þriðja heimsins, grimmir og gráðugir. Þeir arðræna þjóðir sínar sem mest þeir mega og safna fé á bankareikning- um í Sviss. Jafnframt kenna þeir Vesturlöndum um ástandið. Einstaka sérvitringar lesa um framferði harðstjóra þriðja heimsins í ársskýrslum frá Amnesty og hliðstæð- um stofnunum. Einu dagbundnu upplýsingarnar koma frá fréttariturum hinna alþjóðlegu fréttastofnana. Það er mönnunum frá Ássociated Press og Reuter að þakka, að við getum, ef við viljum, séð raunveruleik- ann í löndum þriðja heimsins. Þeir sjá skuggahliðarnar og segja frá þeim, eins og þeir segja frá andófínu í Austur-Evrópu. Ef einhverjir menn eiga skilið friðarverðlaun Nóbels, þá eru það ekki valdshyggjumaðurinn Kissing- er eða skæruliðinn Begin, heldur hinir nafnlausu full- trúar alþjóðlegra fréttastofnana, sem starfa við hin erfiðustu skilyrði. Hatrið á hinum alþjóðlegu fréttastofnunum sam- einar valdhafa þriðja heimsins og Austur-Evrópu. Þeir sjá, að þar hafa þjóðir þeirra tvinnaþráð, ef ekki hald- reipi, í átt til siðmenningar þeirra 20—30 ríkja, sem mega kallast vestræn. Baráttan gegn Associated Press og Reuter fer nú einkum fram á vettvangi Menningarstofnunar Samein- uðu þjóðanna, UNESCO. Þessa dagana er fundað í Belgrað, þar sem fínu herrarnir kvarta um menningar- yfirgang Vesturlanda. Undir forustu M’Bow, framkvæmdastjóra UNESCO, vilja þeir koma á skráningu blaðamanna og takmörkunum á rétti alþjóðlegra fréttastofnana til að segja frá skuggahliðum lífs almennings í löndum þriðja heimsins. Þeir segja, að vestrænar leikreglur gildi ekki í þriðja heiminum. Hlutverk fjölmiðla sé að stuðla að upp- byggingu, friði og vináttu, en ekki að segja fréttir. Fjölmiðla eigi að virkja, en ekki láta þá ganga lausa. Þetta kjaftæði hefur haft nokkur áhrif á grunn- hyggna menn í menntamálaráðuneytum og UNESCO- nefndum á Vesturlöndum, mennina, sem sjá ekki grimma og gráðuga valdhafana að baki hinna slétt- greiddu umboðsmanna í Belgrað. í UNESCO. eiga íslendingar að nota atkvæði sitt til að stuðla að því, að^euter og Associated Press fái áfram tækifæri til að segja okkur frá því, þegar vald- hafar í Mexikó ræna smábörnum til að þagga niður í almenningi. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 1980. Alltaf sömu blekkingamar Leiðarar Jónasar Kristjánssonar nm landbúnaðarmál eru nær allir eins ef vel er skoðað. Allt sem hann hefur að segja um landbúnað byggist á sömu fullyrðingunum og þær eru i raun ekki svo margar. • Elja ritstjórans við að raða þeim saman á nýjan hátt er hinsvegar svo mikil að hann getur endurtekið þetta dag eftir dag í árlegum rispum sinum og rispurnaráreftirár. Ein uppáhalds fullyrðing hans er á þá leið að landið sé vont og illa fallið til búskapar — freðmýrakenningin — hana fann hann upp i rökþrotum þegar gengið var á hann með það af hverju hann teldi íslenskan land- búnað svona vanhæfan. Önnur er sú sem felst í þvi að telja saman alla fjármuni sem nálægt landbúnaði og landbúnaðarfram- leiðslu koma, leggja þá saman með mátulegum ýkjum og kalla alla summuna úthaldskostnað ríkis eða skattgreiðenda vegna landbúnaðar- ins. Venjulega er engin skýring gefin á þvi hvernig þessar samtölur eru fengnar en þeim er gjarnan hampað fram og aftur um leiðaraskrifin eins, og þær væru alþekktar staðreyndir. Þetta er sennilega nokkuð lævísleg aðferð til áróðurs þar sem fólk fer fljótlega að kannast við tölurnar og tortryggir þær þar með síður. Á þennan hátt hefur Jónas Kristjánsson hvað eftir annað í síðustu leiðaralotu notað 16 millj- arðana sem hann telur fjárfestingu vegna búvöruframleiðslunnar í ár. Þó að auðvitað sé ekki hægt að full- yrða fyrr en upp er staðið hverja fjár- festingu bændur leggja í á þess.u ári, má leiða að þvi gild rök að hún verði ekki nema um helmingur þessa. Hin hrikalega tala En Jónas Kristjánsson á aðra tölu i fórum sínum enn hrikalegri eða 37 milljarða. í leiðara sínum „Dýrir þrælar”, þ. 9. siðasta mánaðar er hann fyrst búinn að fjargvið'rast yfir því að reynt skuli að hafa nokkuð skipulag á sölum jarða, harma það stórlega að jörðum skuli ekki hafa fækkað hér jafn hratt og á hinum Norðurlöndun- um, þvi miður hefur það þó gersTrog óskapast siðan yfir þvi að ekki skuli vera styrkjakerfi, sem hjálpi bændum til að komast á mölina, og hætta við „hokrið”. Þá kemur hann að herkostnaðin- um til að halda þessu öllu við og segir: „Þetta hrikalega úthald kostar ríkissjóð og skattgreiðendur rúma 37 milljarða króna á þessu ári aðeins í styrkjum, uppbótum og niður- greiðslum. Eru þá ótalin jöfnunar- gjöldin, samgöngurnar og raf- magnið.” Hér er enn sem svo oft áður öllu slegið saman. Styrkir, uppbætur og niðurgreiðslur. Lítum fyrst í fjárlögin fyrir I980og athugum hvaða liði þarna getur verið um að ræða. a) Styrkir. Hér er sennilega átt við jarðræktarframlög og framlög samkvæmt búfjárræktarlögum, en samanlagt nema þau 2,36 millj- örðum. Þetta er stuðningur við framkvæmdir, en ódýrari fram- kvæmdir leiða til lækkaðs fram- leiðslukostnaðar. Slikur fram- kvæmdastuðningur tíðkast víðast og víða meiri en hér. . ^ „Hvaða niðurgreiðslur eru ákveðnar vegná bænda? Hvenær hafa bændur eða þeirra forsvarsmenn beðið um auknar niður- greiðslur á landbúnaðarvörur?” VIDBÓTAR0RD UM USTINA í tilefni af gagnrýni sem skrif mín um list og listamenn hafa hlotið og misskilningi í því sambandi, er mér skylt að gera frekari grein fyrir hug- myndum þeim er ég hef þegar sett fram. Smáatriði og pex þar um er ekki til umræðu hér, enda eðlilegra að eiga slíkt við gagnrýnendur per- sónulega. Aðalatriði umræðunnar um list eru að mínum dómi þessi: I) Lisl er það sem á að vera. Því fjölbreyttari form sem fyrir- brigði taka á sig í veruleikanum, því víðari verða skilgreiningar á þeim. Svo er um listina. Nákvæm skilgrein- ing á list er ekki til. List er eitthvað sem maðurinn fæst við. En hún er af- markaðri en svo. Sameiginleg er allri list markviss eða ómarkviss tjáning á hugsun (hugmynd eða hughrifum). List styðst ávallt við ákveðna formgerð og er því tjáningarform. En með því að list er tjáning er hún um leið túlkun. Ekki er unnt að tjá öðru- vísi en að túlka um leið. Listaheim- spekin orðar þetta svo: Veruleikinn er það sem er, en listin það sem á að vera. Sumir álitá að ekki sé unnt að skil- greina list öðruvisi en hún sé eitthvað sem listamenn geri. Aðspurðir um hvað sé listamaður, myndu þessir sömu menn segja: Listamaður er maður sem býr til list. Á íslensku heita svona skilgreiningar hringavit- leysa (á dönsku „cirkelslutning") enda er skýringargildi þeirra ekkert. Nátengd hringavitleysunni er sú hug- mynd að listin sé til fyrir sjálfa sig,. eða eins og einn gagnrýnandi minn orðaði það: List um list er list. Þessi hugmynd er ekki til umræðu enda af- neitar hún útskýringum og skilningi á listhugtakinu. 2) Mælikvarðinn á góða og vonda list er ekki bundinn i listaverkinu. Spurningin um gott listaverk er ekki listfræðileg. Góður listamaður þarf ekki endilega að uppfylla til hins ýtrasta skilyrði ákveðinnar lista- stefnu, tileinka sér möguleika hennar og takmörk. Listfræðin greinir list i sundur en kveður ekki upp gildis- dóma. Til þess hefur hún ekki um- boð. Ef á að meta góða og vonda list þarf að setja hana í félagslegt sam- hengi. Þannig verður spurningin um góða og vonda list háð stund og stað. Mælikvarðinn er sá hvernig listin sinnir hlutverki sínu að miðla hugsun. í þessu sambandi skiptir máli hugsunin sem miðlað er ekki síður en miðlunin sjálf. Ekki er unnt að leggja almennan mælikvarða á list með öðrum hætti öðruvísi en i ógöngur horfi. Um formúlu fyrir góðri list, eða uppskrift, er ekki að tala. 3) Listin er félagsleg. Listin er ekki eintalsform iista- manns við sjálfan sig, heldur samtals- form listamanns og þess sem listar nýtur. Gildi listar felst í möguleikum hennar sem samtalsforms. Einangrun (istamanns stríðir gegn listinni sem hann skapar. Til að stemma stigu við slíkri einangrun þaf listamaðurinn að gera sér grein fyrir möguleikum sinum til að tjá hugsun í listaverki. Hann þarf að yfirgefa filabeinsturn sinn. Þar þjóna almennar umræður í fjölmiðlum, samskipti manna á meðal og jafnvel listsýningar, því markmiði að breyta listinni úr ein- talsformi þegar best lætur, í samtals- form. ^ „Þannig veröur listin skálkaskjól klaufa og athvarf sérvitringa. Og skilji al- menningur ekki listamanninn verður þaö al- menningsins sök.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.