Dagblaðið - 21.11.1980, Qupperneq 24
«k
Hjólin byrjuð að snúast við Hrauneyjaf oss eftir að samningar tókust og verkfall
varafboðað: BB
„ERUM MJOG HRESS-
IR MEB ÚTKOMUNA”
segir Sigurður Óskarsson f ramkvæmdastjóri Rangæings
Hjólin eru byrjuð að snúast við
Hrauneyjafossvirkjun. Nýir Tungna-
ársamningar um kaup og kjör voru
undirritaðir um kl. 10 í gærkvöldi og
verkfall afboðað. f morgun streymdu
menn til vinnu sinnar á virkjunar-
svæðinu.
„Við erum mjög hressir með út-
komuna,” sagði SigurðurÓskarsson,
framkvæmdastjóri verkalýðsfélags-
ins Rangæings, í morgun.
,Ég tel að við höfum fengið viðun-
andi lausn á sérvandamálum varð-
andi okurverð á orku með yfirlýsingu
sem barst okkur frá Gunnari Thor-
oddsen forsætisráðherra. Þar heitir
ríkisstjórnin þvi að „stuðla að fram-
kvæmd hitaveitu fyrir Rauðalæk,
Helhi, Hvolsvöll og nágrenni svo
fljótt sem verða má og mun taka fjár-
magn í þvi skyni upp i lánsfjáráætlun
fyrir 1981”. Þetta er svar sem við get-
um sætt okkur við,” sagði Sigurður
Óskarsson.
Nýi samningurinn gildir frá undir-
ritunardegi en jafnframt gaf Lands-
virkjun út yfirlýsingu, undirritaða af
Páli Ólafssyni og Guðjóni Tómas-
syni, um að fyrirtækið tæki að sér að
greiða hækkun kaups vegna samn-
ingsins frá 27. október til 20. nóvem-
ber. Ein aðalkrafa verkalýðsfélag-
anna var að samningurinn væri aftur-
virkur, þ.e. tæki gildi frá undir-
skriftardegi aðalkjarasamnings
ASÍ/VSÍ, 27. október. Náði sú krafa
fram að ganga.
Allir kauptaxtar hækka um 11,2%
í Tunganársamningnum og að sögn
Sigurðar Óskarssonar fengust í gegn
„verulegar tilfærslur varðandi eld-
hússtarfsfólk og líka leiðrétting á
ferðalaunum verkamanna til og frá
vinnustað.” -ARH
Halló — halló! Þau voru með á nótunum, þéssi skólasystkini í Armúlaskóla, Ólafur hann/hún hefur ekki séð áður. Vitlaust? Ja, ekki vitlausara en að segja upp með
og Hrafnhildur. Takmark dagsins er að hver maður segi halló við tíu manns sem hendur eða ég skýt! DB-mynd: SÞS.
IDAG SEGJA ALUR HALLO!
í dag, 21. nóvember, er hinn alþjóð-
legi Halló-dagur.Og það sem meira er,
þetta er sjöunda árið sem Hallódag-
urinn er. Það voru upphaflega tveir
amerískir bræður, Michael og Brian
McCormack sem ákváðu að 21. nóv-
ember skyldi verða hinn alþjóðlegi
Hallódagur. Það er lítill vandi að vera
með, þú segir aðeins halló við tíu
manns sem þú hefur aldrei áður talað
við og þar með hefur þú eflt friðinn í
heiminum, segja bræðurnir.
Árið 1973 skrifaði Michael 1.360
bréf á sjö tungumálum og sendi út um
allan heim til að biðja fólk að vera með
í Hallódeginum. í fyrra sendubræð-
urnir 4000 bréf á 40 tungumáium og
þátttakan hefur aldrei verið meiri.
Margir hafa sent þeim bræðrum bréf til
að þakka fyrir þessa góðu hugmynd
þeirra.
Núna er fyrsta árið sem þeir senda
íslendingum bréf til að biðja þá að taka
þátt í Hallódeginum og að sjálfsögðu
vænta þeir góðrar þátttöku. Með þessu
vilja bræðurnir að allir verði vinir,
aðeins með því að segja eitt orð,
HALLÓ. -ELA
Hlutaf járaukningin hjá Flugleiðum:
EIMSKIP HELDUR FAST
í SÍN 20% HLUTAFJÁR
—eins og fleiri hluthafar munu gera, segir Sigurður Helgason forstjóri
„Eimskip ætlar að fullu að nota
forkaupsrétt sinn að auknu hlutafé í
Flugleiðum, og það munu ýmsir aðrir
hluthafar gera eins og þeir hafa rétt
til,” sagði Sigurður Helgason for-
stjóri Flugleiða við blaðamann DB í
morgun. „Þetta er allt í fullu sam-
ræmi við þær'viðræður sem Flug-
leiðir hafa átt við samgönguráðherra
og fleiri ráðamenn í sumar. Ráðherr-
ann taldi í upphafi eðlilegt að hlut-
hafar legðu fram viðbótarfé.”
Sigurður sagði að hann teldi þetta
góða þróun, sýndi styrk hjá félaginu
og bjartsýni manna um það að
félagið myndi yfirstiga alla
erfiðleika.
„Starfsmönnum hefur verið
boðið að kaupa hlutabréf samtals
fyrir 200 milljónir. Þar sem starfs-'
menn eru um þúsund að tölu var í
upphafi gert ráð fyrir að hver og einn
gæti skrifað sig fyrir 200 þúsund kr.
hlut. Margir nota ekki þann rétt og
þá geta aðrir starfsmenn keypt þá
hluti,” sagði Sigurður.
Til viðbótar má geta þess að
hlutur Eimskips í Flugleiðum er nú
milli 500 og 600 milljónir króna af
2,9 milljarða króna hlutafé.
Jafngildir það um 20% eignarhluta.
-A.St.
frjélst, áháð dagblnð
FÖSTUDAGUR 21. NÓV. 1980.
Varaformaður
Alþýðubandalagsins:
Þröstur gegn
Kjartani
Talið er víst að Þröstur Ólafsson
hagfræðingur, aðstoðarmaður Ragnars
Arnalds fjármálaráðherra, verði mót-
frambjóðandi Kjartans Ólafssonar rit-
stjóra Þjóðviljans í embætti varafor-
manns Alþýðubandalagsins. Kosið
verður um formann og varafor-
mann flokksins á landsfundinum á
morgun.
Að framboði Þrastar standa einkum
stjórnarmenn í Alþýðubandalaginu i
Reykjavík og fara þeir Guðmundur J.
Guðmundsson og Ingólfur Ingólfsson,
fremstir í þeim flokki. Það var á
þriðjudagskvöldið, á fámennum undir-
búningsfundi, að nafn Þrastar kom
fyrst upp og hafa áðurnefndir menn
unnið stíft að því síðan að fá þingfull-
trúa til liðs við framboð gegn Kjartani,
skv. upplýsingum DB. - ÓV
Laumuspil
á landsf undi
— Landsfundur
Alþýðubandaiagsins
lokaður á morgun
ogsunnudag
Athygli vakti á Landsfundi
Alþýðubandalagsins sem hófst í gær,
að fram kom tillaga frá Lúðvík Jóseps-
syni um fundarsköp. Þar var meðal
annars kveðið á um að fundurinn
skyldi vera lokaður á morgun, laug-
ardag, og sunnudag. Landsfundurinn
var hins vegar opinn fréttamönnum i
gærkvöldi og verður opinn í dag.
Minna má á að flokksþing
Alþýðuflokksins, sem haldið var
nýlega, var opið fréttamönnum allan
tímann.
Aðstaða fréttamanna er þvi stórlega
skert til fréttaöflunar af landsfundi
stjórnmálaflokksins. Þau málefni sem
fjalla á um með leynd á morgun eru
tillögur um stjórn flokksins og fulltrúa
á miðstjórn og síðan kosningar í stjórn
og miðstjórn. Á sunnudag kemur
síðan fram álit nefnda og afgreiðsla
mála. -JH.
BLAÐAMENN
SAMÞYKKTU
Blaðamenn samþykktu í gær nýgerð-
an kjarasamning við útgefendur með
43 atkvæðum gegn 27. Þrír seðlar voru
auðir og einn ógildur.
Samþykktin var gerð á tveggja tíma
löngum félagsfundi. Fóru fram ítar-
legar umræður um samningana og
sýndist sitt hverjum, eins og sjá má af
úrslitum atkvæðagreiðslunnar. Hefur
því verið aflýst verkfalli sem Blaða-
mannafélag íslands hafði boðað á
þremur dagblöðum, Vikunni og Úrvali.
-ÓV
LUKKUDAGAR:
21. NÓVFMBER 2933
Sharp vasatölva CL 8145.
Vinningshafar hringi
í sima 33622.