Dagblaðið - 02.12.1980, Side 1
6. ÁRG. - ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980 - 273. TBL.
RITSTJÓRN SIÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALStMI 27022.
Sýður upp úr hjá stuðningsmönnum Gervasonis:
GRJÓTINN TIL FRIÐJÓNS
— hópur fólks setttlst að í dómsmálaráðuneytinu í morgun
Þegar starfsmenn dómsmálaráðu-
neytisins komu til vinnu í morgun
kom i ljós að brotnar höfðu verið
rúður á skrifstofum Friðjóns Þórðar-
sonar ráðherra, Baldurs Möllers
ráðuneytisstjóra og Ólafar Péturs-
dóttur fulltrúa. Hnefastórir steinar
lágu inni á gólfum og glerbrot á víð
og dreif. Á götunni úti fyrir voru
liggjandi steinar, þannig að auðséð
var að skemmdarvargarnir höfðu
borið með sér skotfæri til að herja á
ráðuneytið.-
Þegar DB-menn komu á staðinn á
níunda tímanum í morgun voru þar
fyrir menn frá lögreglu og rann-
sóknarlögreglu að kanna vegsum-
merki. Var DB neitað um að taka
myndir inni i skrifstofum ráðuneytis-
manna fyrr en rannsókn væri iokið
og dómsmálaráðherra sjálfur gæfi til
þess leyfi. Hann var hins vegar
ókominn og óljóst hvort hann léti sjá
sig á staðnum fyrir ríkisstjórnarfund
sem hefjast átti í morgun.
Það gerðist svo á tíunda tímanum
að fjöldi fólks kom í ráðuneytið og
fyllti biðstofuna.
Kvaðst það vilja tala við
ráðherrann og var svo að skilja að
umræðuefnið væri mál Frakkans
Patricks Gervasonis. Ragnar
Benediktsson á biðstofu ráðu-
neytisins tjáði komumönnum að
viðtalstimi ráðherrans væri ekki fyrr
en í fyrramálið Sögðust menn þá
hafa góðan tíma og geta vel beðið
þarna til morguns.
Lögreglan hafði talsverðan við-
búnað í morgun ef fyrirskipað yrði
að fjarlægja fólkið úr dómsmála-
ráðuneytinu. Voru lögreglumenn
innandyra og fullmannaðir bílar frá
lögreglunni í næriiggjandi götum.
Eftir því sem Dagblaðið hefur
fregnað voru þessar aðgerðir undir-
búnar í gær í mótmælaskyni við þá
ákvörðun Friðjóns Þórðarsonar ráð-
herra að senda Gervasoni úr landi.
Mun ætlun forsvarsmanna hópsins
sú að neita að yfirgefa staðinn með
góðu fyrr en fyrir liggur yfirlýsing
Bjarki EUasson yfiriögregluþjónn mœtti i dómsmáiaráðuneytið i morgun til að farandverkamanna.
fylgjast með þvt sem þarfórfram. Lengst til hcegri situr Ragnar Benediktsson starfs- Á innfelldu myndinni er rannsóknarlögreglumaður að skoða steina á götunni
maður ráðuneytisins og á góljinu nœst Bjarka má kenna Þoriák Kristinsson. foringja framan við ráðuneytið. DB-myndir: Einar Úlason.
t I Wk f\
Æá ■:: >
1 í ■ ' mm m
% Æi*" '
lk Æn t W Æ* r
B tf
1
Aftakaveður gekk yf ir Austf irði í gær:
LÖGREGLUSTÖDIN FAUK í
HEILU LAGIÁ HAF ÚT
óbætanlegt tjón fyrir okkur, segir lögregiuþjónn á Seyðisf irði
,,Það urðu nokkrir hér fyrir tug-
milljóna tjóni í ofsaveðrinu og ég
gæti trúað að 6—8 rúður væru
brotnar í öðru hvoru húsi i bænum,”
sagði Bjami Magnússon lögreglu-
maður á Seyðisfirði í samtali við DBI
morgun.
„Lögreglustöðin fauk á haf út og
er mesta mildi að enginn var þar
inni. Þetta var bráðabirgðastðö
sem sett var upp við höfnina vegna
Smyrils. Stöðin fauk um 100 m á
landi áður en hún fór út í sjó. Á lög-
reglustöðinni vorum við með 50 kg
lóð sem fauk með og hefur ekki
fundizt ennþá, svo þaö sýnir hversu
rokið var mikið,” sagði Bjarni.
„Þetta er óbætanlegt tjón fyrir
lögrcgluna, þarna voru geymd öll
skjöl og ýmislegt sem ekki verður
bætt. Við vonum þó að þetta verði
til þess að flýta fyrir nýju lögreglu-
stöðinni.”
Þá eyðilagðist söluskáli Skeljungs
á Seyðisfirði, nýtt einbýlishús
skemmdist mikið og pyisuvagn, sem
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson á
Seyðisfirði hafði nýlega keypt,
eyðilagðist. Guömundur er einnig
eigandi einbýlishússins. Veðrið var
verst milli kl. 8.30 og 9 I gærmorgun
og fór þáallt upp 114—15 vindstig.
Þá urðu einnig miklar skemmdir á
öðrum stööum á Austfjörðum cn
engin slys urðu á mönnum. Á
Reyðarfirði sukku bátar í höfninni,
reykháfur síldarverksmiðjunnar
brotnaði, rúður brotnuðu og þak-
plötur fuku. Á Neskaupstaö fór þak
af fjölbýlishúsi og á Eskifirðu urðu
mestar skemmdir á hraðfrystistöð-
inni.
-ELA.
iWTWWTHaaa
stjórnvalda um að Gervasoni fái
landvist hér á landi.
Annað var ekki að heyra á starfs-
mönnum í ráðuneytinu i morgun en
að þeir tengdu rúðubrotin i nótt líka
mótmælum vegna Gervasonimálsins.
-ARH.
SvavarGestsson
ráðherra:
Gervasoni
" fái land-
vistarleyfi
- hætti ríkisstjórnar-
stuðningi, segir
Guðrún Helgadóttir
,,Ég reikna heldur með því að
mál Gervsonis verði rætt á ríkis-
stjórnarfundi í dag,” sagði
Svavar Gestsson félagsmálaráð-
herra í viðtali við DB í morgun.
Svavar sagði að nú gæfist tóm
til að finna lausn málsins. Hann
teldi ekki að yfirvöld dómsmála
mundu beita valdi í málinu. Sín
skoðun væri að Gervasoni ætti að
fá landvistarleyfi hér.
,,Ég á eftir að heyra dómsmála-
ráðherra segja sjálfan að hann
hyggist senda manninn úr landi
og trúi því reyndar ekki að svo
verði. Ég hef fyrir löngu gert ráð-
herrum ljóst að stuðningi mínum
við stjórnina verði hætt ef mála-
lokin verða þessi og þau orð
standa að sjálfsögðu,” sagði
Guðrún Helgadóttir.
-HH/ARH
ViibrSgi ASÍf
Gervasoni-málinu:
„Ræðum við
ráðherra”
— sagði Ásmundur
Stefánsson
„Ég tel eðlilegt að við ræðum
við ráðherra, ég reiknaTneð því
að það verði okkar næstu við-
brögð,” sagði Ásmundur
Stefánsson, forseti ASÍ, er DB
spurði hann hvort ASÍ hygðist
beita sér frekar í Gervasonimál-
inu. „Annars tel ég ekki rétt að
gefa neinar yfirlýsingar i dagblöð,
það er ljóst hver afstaða okkar
er,” sagði Ásmundur. -KMU