Dagblaðið - 02.12.1980, Síða 2
2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980.
Sýnum heiminum
viðbjóð okkar
á stríðsbrölti
—leyf um Gervasoni að lifa á meðal vor
Ágúsl Pelersen hringdi:
íslenzkir stjórnmálamenn hafa
löngum lýst andúð sinni á hvers
konar vopnabrölti, styrjöldum og of-
beldi gegn þeim mönnum sem hafa
þorað að andæfa gegn sliku, sbr. t.d.
andófsmenn i Rússlandi. Og oft við
hátíðleg taskifæri er gumað af því að
viðséum vopnlaus þjóð o.s.frv.
Því segi ég: Sýnið þið og sannið
hver hugur fylgir máli.
Islendingar! Nú er tækifærið að
sýna og sanna heiminum viðbjóö
okkar og hatur á hvers konar striðs-
brölti, skoðanaófrelsi og kúgun, með
því að leyfa Gervasoni að lifa meðal
vor.
Franskir hermenn hafa, eftir að seinni heimsstyrjöldinni lauk, m.a. þurft að berjasl
i Víetnam og Alsir.
SLÆPINGJAR OG RAG-
GEITUR VILIA EKKI
GEGNA HERÞJÓNUSTU
engum ofraun að vera eitt ár í her
3969-8455 hringdi:
Ég verð hissa ef Gervasoni fær
landvistarleyfi hér á landi. Ég óttast
það fordæmi sem slíkt veitir. Gerva-
soni er sjálfsagt sjálfur prýðismaður
en það er stórhættulegt að leyfa
honum að vera hér á landi. Kanada-
menn lentu í miklum vandræðum
þegar þúsundir bandarískra ung-
menna flúðu frá Bandaríkjunum yfir
landamærin til að losna við að þurfa
að fara í herinn. Urðu Kanadamenn
að ioka sínum landamærum.
Það eru slæpingjar og raggeitur
sem ekki vilja gegna herþjónustu. í
Frakklandi þurfa menn aðeins að
vera eitt ár í hernum og ætli það
engum manni að vera ofraun.
Ef Friðjón dómsmálaráðherra
ætlar að láta einhverja smáþrýsti-
hópa stjórna sér tel ég hann ekki
hæfan til að gegna ráðherrastarfi.
Orðum á að rigna
— en ekki byssukúlum
Öll viljum við að kærleikurinn ráði
gerðum okkar, þó það sé erfitt að
vega og meta. Sitt sýnist hverjum,
eins og ávallt í stórum málum.
Sumum finnst Gervasoni-málið
ekki stórt en það vitum við sem eitt-
hvað nennum að hugsa að þetta er
stórt mál, ekki bara fyrir Gervasoni
heldur fyrir okkur öll.
Af hverju neitar hann að gegna
herþjónustu? Jú, hann og fleiri neita
að bera vopn og drepa. Það er mikil
sýking í þeim þjóðfélögum sem
byssukúlan fær að ráða. Það er þess
vegna sem einstaklingar standa upp
og neita að gegna herþjónustu og eru
á móti hernaðarbrölti. Hugsum
okkur, sem er mjög liklegt að áliti
fróðra manna, að þriðja heimsstyrj-
öldin skelli á. Okur finnst það öllum
skelfilegt þó svo að víkingaeðlið kalli
stundum á okkur. Þó höfum við
íslendingar lært að nota orð en ekki
exi okkur til hjálpar í pólitískum
styTjöldum.
Það er það sem þetta fólk hrópar
á. Það er orðum sem á að rigna en
ekki byssukúlum. Friðarsinnar vilja
berjast með orðum en ekki gjör-
eyðingarvopnum.
Það er réttlætisskylda okkar að
bjóða Patrick Gervasoni velkominn
til okkar. En það er ekki þar með sagt
að við opnum úpp á gátt. Við sýnum
bara öðrum þjóðum gott fordæmi.
Ath. blöðin eru keyrð heim og uppgjör sótt í næstu viku.
Minnum á að bíóið er í BORGARBÍÖ.
SÍMI 27022 - VIKAN AFGREIÐSLA
ITMV
e
hkuv
stuðnings Gervasoni fyrir nokkrum
vikum.
DB-mynd: Sig. Þorri.
Það eru siæpingjar og raggeitur sem ekki vilja gegna herþjónustu, segir einn les-
andi blaðsins.
2159-0878 hringdi: halelúja-tal á ekki heima á örtölvu-
Ég býst við að ég skrifi yfir hönd öldinni, segja kannski margir, en
allra sannkristinna manna. Svona stöldrum aðeins við.
BLAÐSÖLUBÖRN - REYKJAVfK
BMtfiluböm óakMt
til að selja Vikuna
í eftirtöldum hverfum f Reykjavík:
Hlíöar; Fossvogur, Kleppsholt, Heimar;
Vogar, Skjólin, Hagarog Seljahveifi.