Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 02.12.1980, Qupperneq 6

Dagblaðið - 02.12.1980, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980 [f Erlent Erlent « Erlent Erlent )] - * —— Miðstjómarfundur pólska kcmmúnistaflokksins hófst ígær: OGNUN VIÐ FRIBSANILEGA SKIPAN MÁLA í EVRÓPU —sagði Kania flokksleiðtogi um f rekari kröfur verkamanna I ræðu sinni á fundi miðstjórnar pólska kommúnistaflokksins sem hófst í gær lagði flokksleiðtoginn Stanislaw Kania áherzlu á nauðsyn þess, að stjórnvöld i landinu fengju nú tíma og frið til að koma á þeim umbótum sem heitið hefði verið. Sagði Kania, að frekari kröfur verka- manna væru „ógnun við friðsamlega skipan mála í Evrópu.” Þótti augljóst, að Kania væri að vara við hugsanlegri innrás Sovétmanna í Pól- land þó ekki skýrði hann það nánar. Kania sagði, að hin sjálfstæðu verkalýðssamtök yrðu nú að láta af kröfum sínum og koma í veg fyrir að öfgamenn réðu ferðinni. Hann sagði, að stjórnvöld gætu ekki þolað það, að verkfallsvopninu væri beitt í póli- tísku skyni. Janframt lýsti Kania yfir vilja sínum til að vinna með hinum sjálfstæðu verkalýðsfélögum en lagði áherzlu á, að verkföll af pólitískum toga spunnin ”yrðu ekki réttlætt”. Hann sagði, að Pólland fengi því aðeins leyst vandamál þau sem þjóð- in stæði frammi fyrir ef verkalýðs-' félögin, flokkurinn og aðrar stofn- anir legðust á eitt. „Við viljum heiðarlegt samstarf við Einingu. Við virðum sjálfstæði hennar og við munum ráðast gegn tregðu gagnvart samstarfinu sem til er i okkar röðum.” Kania og Brésnef heilsast. T Höfum kaupendur að 5 ára fasteignatryggðum skuidabréfum. Húsbyggjendur, verktakar! Eigum í dag ódýra og góða EINANGRUN 6 tommu m/ál 3 1/2 tommu m/ál Útvegum einnig alls konar aðra einangrun Hagstætt verð SUMARHÚS JÚNS Sími 71819 electnic water heaters Ihermor Hofum tyriniggjandi raf- magnshrtavatnskúta frá THERMORFrakklandi, i stærðunum 15—450fítra. 10 ára ábyrgð á kútnum. Einnig forhitarar, 100—150 og 200 fítra. Höfum nýlega hafið innfíutning á rafmagns- hiturum ítúpum) fyrir miðstöðvarhitun og fjar- varmakerfi frá 1 kw og upp í þá stærð sem óskað er eftir. KJÖLUR S/F KJÖLUR S/F Víkurbraut 13 Keflavík Sími 2121. Borgartúni 33 Reykjavík Símar: 21490 og 21846. Víða í borgum erlendis er orðið mjög jólalegt um að litast og setja jólaskreytingar mikinn svip á borgar lifið. Myndin hér aö ofan er tekin i Niirnberg. wm W* ’i HK npffYlll m @2 &> X. ’.A mm E|1 * í; nr Auknu lýð- ræði lofað Noregur: Meirihluti fyrir Nató- hergögnunum Nú er ljóst orðið að öruggur þing- meirihluti er í Noregi fyrir samningi við Bandaríkin um að hergögn Atlants- hafsbandalagsins verði geymd í Noregi. í gær samþykkti landsstjórn norska Verkamannaflokksins með 30 atkvæð- um gegn 6 að ganga til samninga við Bandaríkin um að Atlantshafsbanda- lagið geymi hergögn i Þrændalögum í Noregi, sem hægt væri að gripa til ef styrjöld skylli skyndilega á. Þar með hefur landstjórn Verkamannaflokksins tekið sömu afstöðu í málinu og ríkis- stjórnin. Ríkisstjórn Uruguay hefur heitið því að leita nýrra leiða til að endurreisa lýðræði smám saman í landinu eftir að kjósendur höfðu hafnað nýrri stjórnar- skrá þar sem herinn átti að fá varan- legan sess í stjórn landsins. Danmörk: THE BODY SHOP Laugavegi 66 Sími 11499 Sendum ípóstkröfu um allt land. (Hringið og biðjið um vörulista) Nœrandi sjampó og nærandi krem. lotions, hreinsikrem o. fl., allt unnið úr náttúrulegum efnum. Þeir sem leitað hafa að slíkum snyrtivörum geta nú snúið sér til Nauðguní snjónum Um helgina var tuttugu ára gamalli konu frá Fredericia í Danmörku nauðgað úti í snjónum er hún var á leið heim frá dansleik. Nauðgarinn, sem var um tvitugt, tók hálstaki á stúlk- unni, þvingaði hana inn í garð og nauðgaði henni þar í snjónum. rýnir kapí- talismann Jóhannes Páll II. páfi gagnrýndi kapítalisma á óbeinan hátt í gær. Hann sagði að sum kaptalisk ríki létu oft fólk deyja úr hungri. Jafnframt gagnrýndi hann ríki sósía- lismans fyrir „illgirni, hatur og jafnvel grimmd”. Er páfi ræddi um hin kapítalisku ríki sagði hann meðal annars: „Við hlið hinna ríku sem hafa nægtir eru þeir sem lifa við skort, þjást af fátækt og oft hreinlega deyja úr hungri.”

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.