Dagblaðið - 02.12.1980, Side 7

Dagblaðið - 02.12.1980, Side 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980. I Erlent Erlent Erlent Erlent 1 REUTER Italía Líkklsturá svörtum markaði ítölsk yfirvöld hafa heitið skjótum réttarhöldum og harðri refsingu ræningjum og öðrum þeim sem reynt hafa að hagnast á hörmungum fólks á jarðskjálftasvæðunum á Suður-Ítalíu. Þegar hafa fjölmargir slíkir aðilar verið handteknir af lögreglunni. Þannig hefur það borið við, að líkkistur hafa verið boðnar á svörtum markaði fyrir svimandi háar upphæðir. Stjórnandi björgunarstarfsins á ítaiiu, Giuseppe Zamberletti sagði í gær: „Hér ríkir neyðarástand. . . Það má segja, að við eigum nú í styrjöld. Jarðskjálfti sem varð í gær og mældist 4,5 gráður á Richterskvarða varð til að ýta á eftir fólki með að fara eftir tilmælum yfir- valda og koma sér úr fjallahéruðunum niður á ströndina þar sem ríkisstjórnin hefur tekið á leigu fjölmörg hótel til að fá inni til bráðabirgða fyrir hina heimilislausu. Deilur Sýrlands ogJórdaníu: Saudi-Arabar miðla málum Háttsettur embættismaður frá Saudi-Arabíu, Abdullah Ibn Abdul- aziz, er væntanlegur til Jórdaníu í dag í þeim tilgangi að miðla málum í deilum Jórdaníu og Sýrlands, sem eru komnar á það stig að til styrjaldar kann að draga hvenær sem er. Áður hafði Abdulaziz heimsótt Damaskus í sama tilgangi. Frá Washington bárust þær fréttir, að bandarísk stjórnvöld íhugi nú að senda Jórdönum skotfæri og varahluti í bandarísk vopn vegna hernaðarviðbúnaðar Sýrlendinga. Full- trúi sovézku stjórnarinnar var kominn til Damaskus tit að undirrita vináttu- samning þjóðanna, þar sem meðal annars er kveðið á um gagnkvæman varnarsamning. Oxe I Kaupmannahöfn þar sem ráðherrarnir voru skreyttir blómakrönsum. Þeir eru frá vinstri Mauno Koivisti, Finnlandi, Odvar Nordli, Noregi, Thor- björn Fálldin, Sviþjóð, Gunnar Thoroddsen og Anker Jörgensen, Danmörku. Forsætisráðherrar Norðurlanda hittust á tveggja daga fundi i Kaupmanna- höfn í siðustu viku. Ráðherrarnir urðu sammála um að láta skipa nefnd, sem kanna skal með hvaða hætti Færcyjar, Grænland og Álandseyjar geti átt aöild að Norðurlandaráði. Myndin var tekin fyrir utan veitingastaðinn Peder .Termel OLÍUFYLLTIR RAFMAGNSOFNAR TERMEL — hitar eins og venjuleg vatnsmiðstöð. TERMEL — brennir ekki loftrykið. TERMEL — gefur þægilegan (ekki þurran) lofthita. TERMEL — erframleiddurí stærðunum 500—800—1250 og 2000 vött. TERMEL — heldur herbergishitanum mjög jöfnum eða +1/— 1°C. Þörfin er um 35—40 vött á hvern rúmmetra í herberginu. TERMEL — er með langa reynslu hérlendis og notendur eru mjög ánægðir með ofnana. KJÖLUR SF. Víkurbraut 13. Keflavík. Simi2121. KJÖLUR SF. Borgartúni 33. Reykjavík. Sími: 21490,21846. Islensk tónlist um allan heim Við bjóðum nýja þjónustu, pökkum og sendum vinum þínum eða vandamönnum erlendis íslenska hljómplötu í gjafapappír. Frábær jólakveðja. Gleðjið vini og vandamenn með stórskemmtilegri jólagjöf sem minnir á ísland. Við bjóðum yður að velja tónlist í hljómplötuúrvali okkar, skrifa nokkur orð á jólakort sem við leggjum til. Við pökkum hljómplötunni í traustan pakka, þér skrifið utan á hann og við póstleggjum. Pakkinn kemst til réttra aðila á jólunum og allir eru ánægðir. SUÐURLANDSBRAUT LAUGAVEGI AUSTURVERI FÁLKINN í jólapakka út

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.