Dagblaðið - 02.12.1980, Page 8

Dagblaðið - 02.12.1980, Page 8
8 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980. d Erlent Erl^nt Erlent Erlent i Vonlítil barátta spænskra yf irvalda gegn klámöldunni — Talíð að 400 þusund skyndikonur sinni starfi sínu á Spáni Spænsk stjórnvöld virðast nú berjast vonlitilli baráttu gegn þvi aukna frjálsræði í kynferðismálum, sem orðið hefur í landinu eftir dauða einvaldsins Francisco Franco árið 1975. f þriðja skiptið á jafnmörgum árum er nú hafin opinber barátta fyrir þvi að klámmyndir séu fjar- lægðar af almannafæri og að þeim sé komið fyrir í sínum réttu heim- kynnum, hvar sem þau nú eru. Einu sinni hefði þetta ekki reynzt vandamál. Fyrir aðeins sex árum gat lögregluforingi upp á eigin spýtur skipað verzlunareiganda að fjarlægja hið þekkta málverk Goya, Nöktu Maju, úr glugga verzlunarinnar, þar sem myndin særði siðgæðisvitund almennings. En núna á innanrikisráðherra landsins, sem stjórnar baráttunni, mjög undir högg að sækja. Hann hefur gefið skipun um að klám verði fjarlægt af opinberum vettvangi hvort heldur það er á prenti, á leik- sviði eða í kvikmyndum. Skipun hans nær einnig til skyndikvenna. Þær skulu hverfa af götunum svo og klámmyndauglýsingar kvikmynda- húsanna. Ekkert þessára atriða mun reynast auðvelt í framkvæmd i landinu, sem kynnzt hefur vestrænu frjálsræði á sviðum kynlífsins eftir næstum fjörutiu ára púrítanska alræðis- stjórn. Í Madrid sýna tugir kvikmynda- húsa klámmyndir og blaðsöluturnar eru þaktir af blöðum sem birta myndir af nöktu kvenfólki á út- síðum. Blöðin birta auglýsingar þar sem lesandanum er boðið til dæmis ,,að fá sér Copa-drykk og síðan sitthvað fleira með Raquel og Lucia, sími: 237. . . ,” og vikublað eitt greindi frá því nýlega, að nú séu um 400 þúsund skyndikonur á Spáni. Fyrir tveimur árum var sérstakur lögregluflokkur gerður út af örkinni ekki i þeim tilgangi að leita uppi drukkna ökumenn heldur naktar stúlkur. Flokkurirm var í daglegu tali kallaður „klámflokkurinn” og hlut- verk hans var að koma í veg fyrir að blaðsölustaðir hefðu klámblöð til sýnis. Ekki þarf þó að ganga lengi um Puerta del Sol í miðjum gantla hluta' Madrid til að sjá að ,,klám- flokknum" hefur gjörsamlega mis- tekizt í starfi sínu. Er spurzt var fyrir um árangurinn af baráttunni gegn kláminu tveimur mánuðum eftir að hún hófst fengust hikandi svör hjá innanríkis- ráðuneytinu: ,,Ég veit það ekki. . . . Það er ekki langur tími liðinn. . . . Við verðum að bíða og sjá til.” En þar sem frjálsræðið virðist hafa náð tökum á fólkinu, þó ýmsum finnist það af hinu illa, þá kann svo að fara, að innanríkisráðuneytið verði að bíða lengi. (Reuter) Vændið lifir nú góðu lífi á Spáni eins og víða annars staðar. Talið er að um 400 þúsund vændiskonur séu i iandinu. Gennadi Sjiíravlev vararáðherra utanríkisviðskipta Sovétríkjanna: „Vöruskipti Sovétríkjanna og íslands munu aukast” Viðtal við Gennadi Sjúravlev, vararáðherra utanríkisviðskipta Sovétrí kjanna. „Hvað viljið þér segja um efna- hags- og verzlunarviðskipti Sovétríkj- anna og fslands.” ,,Ég held að ég megi segja að þau megi meta á jákvæðan hátt. Upphaf verzlunarsamskipta íslands og Sovét- ríkjanna má rekja til ársins 1927. Á þeim tíma sem síðan er liðinn hafa báðir aðilar haft tækifæri til að sannfærast um hagkvæmni sam- starfsins, sem er báðum aðilum í hag. Þann 10. september sl. var undirrit- aður viðskiptasamningur milli íslands og Sovétríkjanna fyrir tima- bilið 1980—1985 og er undirritun hans staðfesting-á hinni jákvæðu þróun sem hefur átt sér stað í viðskiptum landanna og viðleitni þeirra til að stuðla að áframhaldi hennar.” „Vilduð þér segja frá helztu atriðunum í samningnum?” „í þessum samningi kemur fram ósk Sovétrikjunna og íslands að efla langtíma samstarf, sem er báðum aðilum I hag á tryggum grundvelli í samræmi við ákvæði Helsinkisátt- málans, sem undirritaður var í Helsinki þann 1. ágúst 1975. í samningnum er rætt um jákvæða1 þýðingu langtíma verzlunarsam- skipta fyrir þróun sovézk-íslenzkra viðskiptatengsla og lögð áherzla á að báðir aðilar muni gera sitt til að auka þau sem mest og leitast við að halda þeim í jafnvægi. Vöruskipti Islands og Sovétríkjanna munu aukast mikið á næstu fimm árum og verður sú aukning aðallega 1 því formi að Sovétríkin muni kaupa meira af íslandi en áður og þá einkum vörur sem eru mjög mikilvægar fyrir íslenzkt efnahagslíf, s.s. saltsíld, lag- meti og ullarvörur.” „Eru einhver vandamál á þessu sviði og ef svo er, hvJernig er þá bezt aðvinna bugáþeim?” „Jú, við eigum við vandamál að stríða og helzta vandamálið er það að útflutningur frá Sovétríkjunum til íslands nemur miklu hærri upphæð heldur en það sem Sovétmenn kaupa af íslendingum. 90% af útflutningi Sovétríkjanna til íslands eru oliuvörur og þær verð- hækkanir sem orðið hafa á heims- markaðnum á þeim vörum frá árinu 1974 hafa orðið til þess að vöru- skiptajöfnuður landanna er Sovét- ríkjunum mjög í hag. Aftur á móti hefur útflutningur frá Islandi til Sovétríkjanna ekki aukizt mikið. I júní sl. áttu sér stað undirbúningsvið- Frá heimsókn Geirs Hallgrímssonar til Moskvu í september 1977. ræður í tilefni af undirritun samningsins, þar sem þessu atriði var gefinn mjög mikill gaumur. Sovétrík- in hafa ætið litið með skilningi á þau vandamál sem íslendingar eiga við að etja og við höfum reynt að leysa þau í sameiningu. Þessi afstaða kemur einnig skýrt fram í hinum nýja samn- ingi. Einnig var samþykkt að halda áfram að kanna markaðinn í leit að vörum sem gætu orðið til þess að auka viðskiptin milli landanna og stuðlað að betra jafnvægi á því sviði. (APN) „Eiginlega er ég mjög leiður yfir því sem ég gerði. John F. Kennedy var mitt uppáhald,” segir Shiran Shiran. „Mér finnst ég vera póli- tískur fangi” — segir Shiran Bishara Shiran sem myrti Robert Kennedy árið 1968. Hann losnar úr fangelsi 1984 „5. júni 1968 er og verður versti dagur lífs míns. Það byrjaði strax um morguninn þegar ég sá alla banda- rísku gyðingana fagna því að eitt ár var liðið frá sigri þeirra í sex daga striðinu. Sem araba fannst mér ég auðmýktur og mér misboðið.” Síðar þennan sama dag horfði Shiran á sjónvarpsþátt þar sem Róbert Kennedy sagði að Bandaríkin ættu að senda ísrael fimmtiu nýjar Phantom-orrustuþotur. Þá var það sem Palestínumaðurinn Shiran Bishara Shiran ákvað að lífláta for- setaframbjóðandann Robert Kennedy. Ég var viti mínu fjær yfir því að maður sem kvaðst standa með þeim sem væru minnimáttar skyldu vilja gefa ísrael orrustuþotur til að eyði- leggja hina arabísku þjóð með,” segir Shiran. Framhald þeirrar sögu þekkja allir. Nú hefur Shiran þetta að segja um morðið. „Eiginlega er ég mjög leiður yfir þvi sem ég gerði. John F. Kennedy var mitt uppáhald. Það var Robert líka þar til hann sveik allt það sem ég hélt að hann stæði fyrir. En ég var Iíka drukkinn þegar ég drap hann. Það má ekki gleyma því,” segir Shiran. Morðið telur hann hins vegar ekki hafa verið þýðingarlaust. „Þetta afbrot mitt kom Palestínu i sviðsljósið og Bandaríkjamenn kynntust dálítið hörmungum þjóðar minnar.” Þegar Shiran sleppur út ætlar hann sér til Miðausturlanda. „Fyrst ætla ég að taka mér gott fri. Síðan verð ég reiðubúinn til þjónustu fyrir hina arabísku þjóð,” segir hann. Oft snemmt er að spá nokkru um hvert verður hlutskipti Shirans í Mið- austurlöndum. Hann ætti að minnsta kosti að geta minnt á að að Yasser Arafat leiðtögi Palestínuskæruliða hefur lengi verið honum mikil fyrir- mynd. Dagbladet) „Kæru arabísku bræður. Hjálpið mér út úr fangelsinu.” Hjálparbeiðni þessi kemur frá Palestínumanninum Shiran Bishara Shiran, manninum sem myrti Robert Kennedy árið 1968. Shiran þykir sem hann hafi nú setið nógu lengi í bandarískum fang- elsum. Tímaritið Monday Morning, sem gefið er út í Beirut, átti nýlega viðtal við Shiran í Soledad-fangelsinu í Kaliforníu. Morðingi Kennedys hefur fram til þessa ekki verið fús á að Æ ræða opinskátt við blaðamenn en i þessu viðtali opnar hann sig enda var blaðamaðurinn sem ræddi við hann sjálfur arabi. „Ég slepp ekki út fyrr en 1984 og þá hef ég setið inni fjórum árum lengur en flestir morðingjar í Banda- ríkjunum,” segir Shiran. Ástæðan til þess að mér er ekki hleypt út fyrr er sú að ég er fátækur og ég er Palestinumaður. Mér finnst ég vera pólitískur fangi,” segir Shiran. Hann er þegar tekinn að horfa fram til þess tíma er hann verður látinn laus. „Ég kem til með að halda beint út á vinnumarkaðinn. Ég er engin ógnun lengur við hið -bandaríska samfélag,” segir hann. í viðtalinu horfir Shiran einnig til baka og segir frá því hvers vegna hann skaut Robert Kennedy.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.