Dagblaðið - 02.12.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Galla-
buxumar
þrengj-
ast á ný
Þröngt skal það vera á því herrans
ári 1981, að minnsta kosti í galla-
buxnatízkunni. Tízkufrömuðir úti i
hinum stóra heimi boðuðu fyrir
stuttu að í desember myndu þeir
draga saman framleiðsluna á
„baggy” eða pokabuxum og einbeita
sér að þeim þröngu aftur. Þeir' sem
hafa verið hvað angraðastir vegna
víðu tízkunnar geta því farið að
renna björtum augum til framtíðar-
innár og kvenlegra fótleggja á ný. —
Myndirnar hér með eru af frönskum
gallabuxum af gerðinni Le Crabe.
Franskir leik-
arar styðja
Brigitte Bardot
Eftir að Brigitte Bardot
hætti kvikmyndaleik hefur
hún helgað sig vernd villidýra
og hefur vakið mikla athygli
fyrir baráttu sína. Nú á
dögunum barst henni
myndarlegur liðsauki í barátt-
unni. Hundrað þekktustu
kvikmyndaleikarar Frakk-
lands lýstu yfir stuðningi við
Bardot. Þeir ætla ekki að láta
sitja við orðin tóm, heldur
hætta að leika í kvikmyndum
þar sem dýr eru drepin eða
þeim misþyrmt.
Brigitte Bardot með einum vina sinna.
Hún hefur nú fengið gððan liðsauka frá
töndum sínum I leikarastétt.
Ný teppi í bíla tií að
hlúa að slösuðum
Eitt af sorglegustu atriðunum í
stöðugri fjölgun bifreiða í heiminum
er fjölgun umferðarslysa. Seint
verður fyllilega komið í veg fyrir þau,
en enn má finna upp betri búnað til
að hlúa að fólki á slysstað.
Eitt það nýjasta, sem kynnt hefur
verið í þessu augnamiði er óvenjulegt
teppi. Það kom á markaðinn á
réttum tíma, skömmu áður en kólna
fór verulega í veðri. Á meðan slasað
fólk bíður eftir sjúkrabíl lækkar
líkamshiti þess talsvert. Með nýja
teppinu á að vera hægt að koma í veg
fyrirþað.
Teppi þetta er 1.60 sentimetrar á
breidd og 2.20 sentimetrar á lengd.
Framleiðendurnir mæla með því að
sem flestir ökumenn komi því fyrir í
bílunum sínum. Það rúmast
samanbrotið í hanzkahólfi bifreiða
og vegur aðeins um sextíu grömm.
Þegar komið er að umferðarslysi á að
vefja sjúklingana þegar inn í teppi, svo
að líkanishiti þeirra lækki sem minnst.
Þetta nýja teppi er svo fyrirferðarlítið
að auðveldlega má koma þvi saman-
brotnu í hanzkahóif bifreiða.
Dione Warwick þoldi ekki
loftslagsbreytinguna
Söngkonan Dione Warwick var
orðin þreytt á óhreinu stórborgar-
loftinu í Los Angeles og langaði til að
anda að sér einhverju ferskara. Hún
ákvað því að flytja til Aspen í
Colorado um tíma. Þar á hálendinu
er skíðaland gott og loftslagið hið
heilnæmasta.
Warwick hafði ekki dvalið marga
daga i Aspen þegar hún byrjaði að fá
miklar höfuðkvalir. Söngkonan, sem
er 38 ára gömul, óttaðist að hún færi
fullsnemma á breytingaskeiðið og
hafði því samband við lækni í flýti.
Sjúkdómsgreiningin varð þó allt
önnur; Dione Warwick þoldi ekki
að fara úr mengunarloftinu í heima-
borg sinni. Loftslagið í Aspen var
einfaldlegaofgott fyrirhana.
Og lyfseðillinn? Læknirinn
ráðlagði söngkonunni að reyna að
þrauka í Aspen. Mannskepnan
aðlagar sig flestu — meira að segja
hreinulofti.
Dione Warwick — Hélt sig vera
komna á breytingaaldurinn, þegar hún
fór aö fá ógurlegar höfuðkvalir.