Dagblaðið - 02.12.1980, Side 10
10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980.
Lifandi og dautt jólaskraut:
KRANSAR, BLOM, KERTI, TRE,
GREINAR OG ALLT GUNGRIÐ
Þeir sem hafa tímann fyrir sér í
einu og öllu eru núna búnir að
kveikja hjá sér fyrsta aðventuljósið.
En ennþá finnst víst fólk sem vaknar
upp við vondan draum fyrsta
sunnudag í aðventu við það að
kransinú stendur strípaður niðri í
geymslu, ekkert greni er á honum og
engin kerti til. Að sögn eins blóma-
sala sem við DB-menn hittum gerist
það iðulega að fólk byrjar ekki að
kaupa greni til kransagerðar fyrr en
síðasta sunnudag í aðventu.
„Fólk hefur svo kannski logandi á
aðventukransinum öll jólin. En
erlendis, þaðan sem siðurinn er
upprunninn, er aðventukransinn
aðventuskraut og honum er pakkað
niður eftir að síðasta Ijósið hefur
logað seinasta sunnudag í aðventu.
Þar eru líka notuð fjólublá kerti og
borðar, fjólublátt er Iitur að-
ventunnar. Hér nota menn mikið
rautt, sem minnir á jólin og hvítt sem
mikið er í tizku um þessar mundir,”
sagði þessi blómasali.
Aðventukransinn er eins og hann
sagði erlendur siður sem hefur náð
geysilegri útbreiðslu hin síðari ár.
Þegar ég var að alast upp sá ég aldrei
aðventukrans en núna kem ég varla á
heimili að ekki - sé þar krans.
Grenikransar eru greinilega
vinsælastir og fólk hefur gaman af að
sitja saman og búa þá til. Köngla-
krönsum hefur farið fjölgandi og
núna eru komnir í tízku kransar úr
þurrkuðum blómum. Þeir eru
nokkuð dýrir, en á móti kcmur að
þeir haldast eins ár eftir ár.
Jólastjarna
Annað heimilisskraut hefur náð
mikilli útbreiðslu: fyrir og í kringum
jól. Þar er pottablómið jólastjarna
sem margir kalla reyndar jólarós þó
ekki sé hún af rósaætt. Jóla-
stjörnurnar eru algengastar í rauðum
lit en hvíti liturinn vinnur á í þessum
efnum sem öðrum. Jólastjarna í potti
kostar núna á milli 5 og 8 þúsund
krónur. Yfirleitt gefast eigendur
þeirra upp á því að halda í þeim lífi á
milli jóla. Þess vegna kaupa flestir
nýtt blóm fyrir hver jól. Samkvæmt
ráðleggingum blómamanna ætti það
þó að vera óþarfi því með því að
klippa jólastjörnuna vel til að vori og
geyma hana i myrkri fram undir jól á
að vera hægt að halda í henni lífinu
og hafa hana alltaf fallegri og fallegri
um hver jól.
Skreytingar úr
greni og kertum
Enn einn útlendur siður, sem
margir hafa tekið upp, er að skreyta
diska eða skálar með kertum, greni,
slaufuborðum, kúlum og öðru jóla-
legu. Þá er settur leir á disk éða
skálarbotn og kertið og skrautið
fest í hann. Hægt er að nota leirinn
ár eftir ár með því að hreinsa hann
eftir jól. Margir nota alltaf sömu
skálarnar og byggja skreytinguna
upp á líkan máta ár eftir ár. Aðrir
breyta meira til. Nú þegar eru menn
farnir að kaupa kerti í svona
skreytingar. Úrvalið er líka nægt
núna. Þegar keypt er greni til þess að
búa til aðventukransinn nægir það
lika í 1—2 skreytingar í viðbót. Greni
kostar núna 2.300 krónur búntið og
er um það bil hálft kíló í hverju
búnti. Verð á kertum og skrauti er
hins vegar það misjafnt að ekki er
hægt að gera neina grein fyrir því.
Margir eiga líka sama skrautið ár
eftir ár, það gengur í arf innan
fjölskyldunnar og ekki þarf að fjár-
festa fyrir hver jól.
Hýasyntur njóta ekki siður en
grenið mikilla vinsælda í jóla-
skreytingar. Þær fást ekki ennþá í
búðum, byrja líklega að sjást þegar
l.itill jólasveinn, gyllt stjarna og rauð jólaepli. Að ógleymdri jólastjornu, lifandi
og fallegu skrauti. Myndin er tekin i Alaska.
Aðventukransar og skreyttar leiðisgreinar i Garðshorni. Einnig eru þar seldir aöventubakkar, það er að segja bastbakkar
með fjórum kertum og skreytingu.
Kötturinn I Alaska lúrir þarna hinn rólegasti undir jólaskrauti úr könglum, greni
og rauðum silkiborðum.
líða fer nær helginni. Ef að vanda
lætur verða þær dýrar, en ef fólk
kaupir þær alveg grænar standa þær
lengi.
Hinir látnu fá
líkasitt skraut
Menn hugsa sérlega mikið til
látinna ættingja í kringum jólin. Þá
má sjá í kirkjugörðum víða um land
skreyttar grenigreinar eða krossa úr
greni og jafnvel blaktandi kertaljós.
Eftir að Kirkjugarðar Reykjavíkur
hættu að vera upplýstir af rafmagns-
Ijósum má sjá hver jól lítinn kerta-
loga við nær hvert leiði. Hinir látnu
hafa án efa ekki minni ánægju af
kertaljósum en rafmagnsljósum,
fylgist þeir með sínum jarðneska
bústað. Grenigreinar með jólaskrauti
eru örlítið farnar að sjást i búðum, en
krossarnir eru ekki komnir. Verðið á
greinunum er um 6 þúsund krónur.
Krossarnir verða hins vegar dýrari.
Jólatrén
Aðalskraut jólanna, jólatrén, fara
að koma á markaðinn núna fyrir
helgina. Ekki er vitað hvað þau kosta
ennþá því þó þau séu að mestu komin
til landsins eru menn á sölustöðum
ekki farnir að reikna út verðið. -DS.
Síðustu forvöð fyrir
bögglana til útlanda
Nú fer hver að verða síðastur að
koma í póst glaðningi handa vinum
og vandamönnum erlendis. Núna um
helgina rennur til dæmis út frestur til
þess að koma bögglum til Bandaríkj-
anna og fljótlega eftir helgina frestur
til að koma bögglum til Norðurlanda
og Bretlands. Margir senda út
íslenzkan mat og eru að minnsta
kosti þrjár verzlanir í Reykjavík
farnar að bjóða þjónustu við að
koma matnum á milli. Þær eru Kjöt-
verzlun Tómasar, Sláturfélag Suður-
lands og Jónsval. Líklega eru búð-
irnar miklu fleiri og eitthvað um slíka
þjónustu úti á landi. Hangikjötið
okkar er þannig að ekki ætti neítt að
saka þó það sé sent vel fyrir jól,
þannig að menn ættu nú að fara að
drífa sig að pakka niður. -DS.
Þessar þrumuhressu stúlkur sjá um að koma jólahangikjötinu okkar á borð vina
okkar i útlandinu. DB-mynd HV.