Dagblaðið - 02.12.1980, Page 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980.
11
Jön L. Ámason skrifar frá Möltu:
SVIPTINGARITIMA-
HRAKIHJÁ KARPOV
OG FRMDRIKI
9. umferð á ólympiuskákmótinu
var tefld á laugardag og unnu íslend-
ingar stórsigur á Indverjum, 3 1/2 -
1/2. Úrslit á einstökum borðum:
Friðrik—Sekhar 1/2 - 1/2, Kahn—
Jón 0-1, Margeir—Meetei 1 - 0,
Hassan—Jóhann 0 - 1. Friðrik fékk
rýmra tafl gegn Sekhar en það nægði
ekki til vinnings. Skákin fór i bið og
leystist fljótlega upp í jafntefli. And-
stæðingur Jóns lenti snemma í krögg-
um. Eftir uppskipti á drottningum
féllu peð hans eitt af öðru. Margeir
virtist fá verra tafl út úr byrjuninni en
■sneri skemmtilega á Indverjann sem
gafst upp er skákin átti að fara í bið,
enda var hann óverjandi mát. Jóhann
og Hassan tefldu af miklu fjöri og
var lengi tvísýnt um úrslitin. í tíma-
. hrakinn hitti Jóhann hvað eftir annað
á bezta icikinn og Indverjinn gafst
upp er mikið mannfall var sjáanlegt.
Þessi sigur íslenzku sveitarinnar
fleytti henni upp í 4. sæti á eftir Ung-
verjum, Sovétmönnum og Júgóslöv-
um. Ljóst var að nú færi róðurinn að
þyngjast og svo fór að Sovétmenn
urðu andstæðingarnir í 10. umferð.
Mikla athýgli vakti viðureign Frið-
riks og Karpovs á 1. borði. Friðrik
hafði hvítt og tefldi enska leikinn.
Karpov kom homum á óvart í byrj-
uninni og notaði Friðrik mikinn
tíma. Engu að síður náði Karpov
betri stöðu og hafnaði jafnteflisboði
Friðriks. Friðrik átti aðeins 5
minútur á síðustu 20 leikina og var
útlitið svo sannarlega dökkt. Þá fór
Karpov einnig að tefla hratt og
glataði niður ýfirburðunum. í tíma-
hrakinu missti Friðrik hins vegar
þráðinn og varð að gefast upp er
drottningunni varð ekki bjargað.
Karpov náði því fram hefndum frá
því í Buenos Aires í haust.
Á 2. borði tefldi Helgi við sovét-
meistarann Efim Geller og hafði
svart, fékk Geller betra tafl og virtist
ætla að gera út um það með skjótum
hætti. Helgi þvældist þó fyrir
kappanum og kom skákinni í bið.
Biðstaðan er erfið.
Geller hefur drottningu og tvo
biskupa gegn drottningu og tveim
riddurum.
Jón tefldi kóngsbragð gegn
Baiashov á 3. borði. Balashov tefldi
mjög varlega og náði að jafna taflið
eftir 23 leiki. Hafði hvor um sig hrók
og riddara og var samið um jafntefli.
Margeir tefldi við undrabamið
Kasparov sem fórnaði peði í slav-
neskri vörn og lét öllum illum látum.
Margeir þekkti byrjunina ekki vei og
Kasparov tókst að notfæra sér óná-
kvæmni hans til sigurs. Var þetta vel
útfærð skák hjá Kasparov sem hefur
langbesta árangur sovésku keppend-
anna, 6 1/2 vinning af 8.
Staðan eftir 10 umferðir: 1. Ung-
verjaland, 28 vinningar og lakari bið-
skák. 2. USSR, 26 vinningar og bið-
skák við ísland. 3. Júgóslavía, 26
vinningar. 4.—5. Búlgaría og Tékkó-
slóvakía, 24 1/2 v. 6. USA, 24 vinn-
ingar og 1 biðskák. 7.-8. ísrael og
Rúmenía, 24 vinningar. 9. Filipps-
eyjar, 23 1/2 vinningur. 10. ísland,
23 vinningar og biðskák.
1 kvennaflokki hafa íslendingar 14
1/2 vinning af 30 mögulegum. í 9.
umferð var jafnt gegn Wales, Ólöf
vann, Bima gerði jafntefli en Áslaug
tapaði. í 10. umferð tapaði sveitin
fyrir Brasilíu, 1-2. Áslaug og Sigur-
laug gerðu jafntefli en Ólöf tapaði.
Rússar eru efstir með 20 vinninga og
biðskák.
< m.
Biðstaðan 1 skák Gellers og Helga
Ólafssonar. Geller hefur hvitt og á
leik.
LAX FYRIR120 MIUJÓNIR
Bændur sem búa við Ölfusá virðast
margir maka krókinn hressilega með
laxveiði. Þannig kom fram í máli eins
ræðumanna á aðalfundi Stanga-
veiðifélags Rvíkur 23. nóv. að
einn bændanna hefði veitt lax fyrir
120 milljónir króna. Lagleg búbót
það. Á sama tíma reiknaði hann út
að veiðimenn hefðu tapað um 160
milljónum króna með því að kaupa
veiðileyfi í ám, sem ekkert veiddist í
vegna netaveiði. - DS
John Paul James með Amour, þaö er stúlkunum Michellc og Lorraine. Þau skemmta hér á landi i tæpar þrjár vikur.
Hótel Saga og Hollywood sam-
einast um erlenda skemmtikrafta
Veitingahúsin Hótel Saga og Holly-
wood hafa tekið höndum saman um að
fá erlenda skemmtikrafta, John Paul
James With Amour, til landsins. Þarna
eru á ferðinni söngvarinn John Paul
James ásamt tveimur dönsurum,
Michelle og Lorraine. Þau dveljast hér
á landi í tæpar þrjár vikur og koma ein-
ungis fram á veitingastöðunum tveim-
ur.
JohnPaul James og Amour koma
hingað til lands frá Hollandi þar sem
þau hafa skemmt við feikilegar vin-
sældir. Hollendingar vildu framlengja
við þau samninginn um tvo mánuði en
þau kusu heldur að standa við gerða
samninga við íslendinga.
Tríóið kemur fyrst fram á fimmtu-
dagskvöldið í Hollywood. Þau verða
föstudaga og laugardaga á Sögu, á
báðum stöðunum á sunnudagskvöldum
og í Hollywood þriðjudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga.
John Paul James hóf feril sinn sem
söngvari í hljómsveitinni Destiny frá
Birmingham. Fyrir nokkrum árum
ákvað hann að reyna fyrir sér einn.
Síðan hefur hann ferðazt víða um
Evrópu. Nú í ár hefur hann einnig
haslað sér völl í sjónvarpi, bæði í Eng-
landi og Hollandi. Stúlkurnar tvær
hafa starfað með honum síðan árið
1978. - ÁT
TALSKIR
í samkvæmis
p* kjólar
Þetta er aöeins
einn af ótal
mörgum kjólum
sem til eru.
Einnig úrval af
peysum og
buxum.
Líttu viö og
skoðaðu úrvaliö
Hárgreióslustí tískuverslun
Alítamyri 7 simi 31-r
PÓSTSENDUM
LAUGAVEG113.
SÍIVI113508.
HJÓLA-
SKAUTAR
Verð kr. 57.820.-
Stærðir 35—43.