Dagblaðið - 02.12.1980, Page 12

Dagblaðið - 02.12.1980, Page 12
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980. Framkvœmdas^óri: Sveinn R. Eyjótfason. Ritstjóri: Jónas KristJÁnsson. Aðstoflarritstjóri: Haukur Halgason. Fréttastjóri: ómar Valdimarsfton. Skríf stofustjóri ritstjómar: Jóhannes Rflykdal. (þróttir: Hollur Sfmonarson. Menning: AÖalsteinn Higótfsson. Aflstoflarfróttastjóri: Jónás Haraídsson. HandrK: Ásgrimur Pálsson. Hönnun: Hflmar Karissón. Blaflámenn: Anna Bjamason, Atll Rúnar HaHdórsson, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson,;Bragi Sig- urflsson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Huld Hókonardóttir, ólafur Geirsson, Sigurflur Sverrisson. Ljósmyndir: BJarnleHur Bjamleifsson, Einar Óiason, RagnarTh. Stgurflsson, Slgurflur Þorri Sigurflsson og Svoinn Þormóflsson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjótfsson. Gjaldkeri: Próinn Þoriehrsson. Auglýsingastjóri: Már E.M. Haftdórs- son. Droifingarstjóri: Valgerflur H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Sfflumúia 12. Afgreiflsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverhohi 11. Aflalsfmi blaflsins er 27022 (10 Ifnur). Einstefnuakstur frétta í fjölmiðlun er ísland í eins konar þriðja heims aðstöðu einstefnuaksturs gagnvart Norðurlöndum og umheimin- um yfirleitt. Fréttir og skoðanir berast hingað í stríðum straumum. Sáralítið berst hins vegar héðan til umheimsins, þar á meðal til Norðurlanda. íslenzkir fjölmiðlar leggja meiri áherzlu á erlendar fréttir en gerist og gengur í öðrum löndum. Auk þess er mikið keypt af erlendum fréttablöðum, einkum nor- rænum.íslendingar eru því sæmilega upplýstir um gang mála utan landsteina. Hins vegar væri synd að segja, að umheimurinn viti um gang íslenzkra þjóðmála. Þar er sýnu verstur hlutur hinna norrænu fréttastofa, sem ættu vegna sögulegrar og menningarlegrar nálægðar að sýna íslandsmálum einhvern snefil af áhuga. í sparnaðarskyni hafa allar norrænu fréttastofurnar sameinazt um einn fréttamann í hlutastarfi á íslandi. Þær greiða lítið sem ekkert fyrir þessa bjónustu. Og samkeppnin milli þeirra um fréttir frá íslandi er auðvitað engin. Árangurinn Iætur ekki á sér standa. í norrænum dagblöðum verður að leita með logandi ljósi að frétta- stofufregnum frá íslandi. Þá sjaldan eitthvað birtist frá íslandi, eru það sérstakir sendimenn blaðanna, sem verkið hafa unnið. Við þessu afskiptaleysi er af okkar hálfu ekkert að segja. Ef norrænu fréttastofurnar telja, að viðskipta- vinir beirra á Norðurlöndum vilji ekkert af íslandi vita, þá er það þeirra markaðsmat, sem við verðum hreinlega að sætta okkur við. Afskiptaleysið nær þó ekki lengra en svo, að norrænu fréttastofumar hafa aflað sér áhyggna af því, að íslendingar viti of lítið um Norðurlönd. Þær hafa óskað fjár úr norrænum menningarsjóðum til að ráða bót áþessu. Nú skal það ekki lastað, að komið verði á fót dag- legri fjarritun norrænna frétta til íslands. Við getum alltaf þegið betri og skjótari fréttir frá umheiminum. En norrænu menningarfé væri þó betur varið til frétta- sendinga í hina áttina. Einstefnuaksturinn hefur rótfest þá grillu á Norður- löndum.að ísland sé eins konar fyrrverandi norrænn Árbær, sem sé á hraðri siglingu í faðm bandarísks menningarheims. Virðast þó Norðurlönd sigla hraðar þann sjó. Við þurfum að reyna að hlaupa í skarðið fyrir norrænu fréttastofurnar og aðrar stofnanir, sem fást ekki til að segja fréttir af íslandi. Og svo vel vill til, að kostur er á mjög góðri þjónustu á því sviði, en því miður of lítið notaðri. íslenzkt einkaframtak gefur út Iceland Review og News From Iceland, hvort tveggja rit, sem sóma sér vel í samanburði við hliðstæða útgáfu í nágranna- löndunum. Iceland Review er raunar svo vandað og listrænt, að athygli hefur vakið víða um heim. í News From Iceland er þjappað saman öllum helztu fréttum af íslandi í handhægu formi fyrir erlenda fjölmiðla. Það blað á erindi til fréttastjóra fjölmiðla um allan heim, svo að ein og ein frétt frá íslandi slæðist með á fréttamarkaðinn. Utanríkisráðuneytið sýnir lit og kaupir 1500—2000 eintök af hvoru blaði. Sú kynning lands og þjóðar þyrfti þó að vera margföld, ef vel ætti að vera. Þeirri á- bendingu er hér með komið á framfæri við ráðuneyti og fjárveitingarvald. Hugsanlega mætti spyrja norræna menningarsjóði, hvort ekki kæmi til greina að stuðla að örlítilli lækjar- sytru íslenzkra frétta til Norðurlanda, úr því að til greina er talið koma að bera í bakkafullan læk norrænna frétta til íslands. t ...... l,"IMI Athugasemd með meiru: Skrifað stórt hugsað smátt hefði ég ládð nánari skýringar fylgja með. En þar sem ég var aðeins að vekja athygli á hversu fjarstæðu- kennd umrædd lög eru að minu mati, lét ég nægja að taka fram, að „Fyrir þessum launum þyrfti vissu- lega að vinna og sveiflukennd væru þau”. Varðandi loðnusjómenn var skýrt tekið fram að þau væru þessi „þann tima sem verifl er afl veiflum.” Fyrir- sögnin i DB „Meðal mánaðarlaun loðnuskipstjóra 6.8 milljónir” og „Háseti hefur að meðaltali 2.4 milljónir” hljóma eins óg þetta séu laun þessara manna árið um kring. Það sem vegur þyngst, virðist enga athygli hafa vakið, þ.e. þegar fáir eru á, eins og gjarnan er á minni bátum. Þar nefndi ég að hlutur eins manns gæti verið 20% af afla. Reyndar má finna ófá dæmi um 30% t.d. á litlu rækjubátunum. Skylda til þess að greiða slíkan hlut í allt að tvo mánuði hlýtur að þýða, að betra sé að leggja bátnum. Ég get fullyrt að auðvelt hefði verið að nefna mikið hrikalegri dæmi en gert var um greiðslur, sem umrædd iagabreyting ÞEGARALLA- BALLAR 0G ÍHALD SKIPTU MEÐ SÉR STJÓRNASÍ Þegar ég sá DB þann 25. nóvember sl. brá mér heldur i brún. Blaða- maður, sem ég hafði fengið í hendur ræðu er ég flutti í efri deild Alþingis deginum áður og í mesta grandaleysi sagt að hann mætti nota úr hvað hann vildi, reyndist hafa notað hana eins og honum sýndist. Fyrirsögn með stríðsletri á forsíðu höfðar engan veginn til þess er um var fjallað í ræðu minni. { umræðu um olíugjald utan skipta á fiskiskip- um hafði komið fram að olíu ætti að greiöa niður af almannafé. Ég benti hins vegar á að nær lagi væri að fella niður eitthvað af sköttum og pinklum sem á útgerð og fiskvinnslu eru lagðar í dag. Slíkt gæti gefið svigrúm til að hækka fiskverð. 1 þessu sam- bandi ræddi ég sérstaklega lög sem þingmenn samþykktu í flaustri i lok síðasta þings um slysa- og veikinda- bætur sjómanna. Ég tók dæmi um hve gífurlegum greiðslum lögin geta valdið og lagði höfuðáherzlu á að slíkar greiðslur fást alls ekki tryggðar hjá tryggingarfélögum og gætu þvi orðið haldlitlar. í frétt blaðsins kemur að vísu flest Kjallarinn ÓlafurBjömsson fram sem ég sagði varðandi þær upp- hæðir sem um getur verið að ræða, en sundurslitið. Hefði mál mitt átt að vekja athygli á Iaunum sjómanna, Sögulegu ASÍ-þingi er lokið. Í fyrsta skipti i sögu islenskrar verka- lýðshreyfingar hafa sjálfstæðismenn og alþýðubandalagsmenn tekið höndum saman um að mynda forystu stærstu og voldugustu launþega- samtaka landsins. Þar var mynstur núverandi ríkisstjórnar tekið til fyrir- myndar, og Framsókn lufsaðist með. Það er mikill atburður, sem mun draga dilk á eftir sér, þegar sósíalískur flokkur gerir hernaðar- bandalag við íhaldsflokk um stjórn málefna launþega. Varla hefur þessi niðurstaða glatt geð Einars Olgeirs- sonar, né annarra fyrrverandi forystumanna Kommúnistaflokks- ins, Sósialistaflokksins og Alþýðu- bandalagsins. Eða hvað skyldi Lúð- !vik Jósefsson hafa um málið að segja? Tveir fulltrúar Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur, háskólaborgarar, voru kjörnir í æðstu stöður ASÍ, en formanni verkalýðsfélagsins á Bolungarvík og formanni Einingar á Akureyri var hafnað. Víða þarf að leita meðal frjálsra verkalýðssamtaka í heiminum til að finna svipaða „uppákomu”. Thomas Nilsen, for- seti danska Alþýðusambandsins, sem fylgdist með ASÍ-þinginu, var ekki bara undrandi, heldur nánast hneykslaður. Makkið Baktjaldamakkið á þessu þingi ASÍ var með eindæmum: Forystu- mennirnir höfðu lítinn tíma til að fjalla um þá málaflokka, sem þó skipta samtökin hvað mestu. Þing- fulltrúar létu í ljós reiði og van- þóknun á vinnubrögðunum. Það sem upp úr stóð var ræða fulltrúa Sjálfsbjargar á þinginu, og segir það sina sögu. — Staðreyndin er auðvitað sú að það er til skammar hvernig stjórnmálaflokkunum tekst að hand- járna svo fulltrúa sina, að þeir sitja og standa eftir skipunum að ofan. Frá upphafi var Alþýðubanda- lagið ákveðið í því að koma alþýðuflokksmönnum úr öllum trúnaðarstörfum innan ASÍ. Þetta tókst að visu ekki við miðstjórnar- kjörið, þrátt fyrir rika viðleitni. Og menn skyldu hafa hugfast, að bæði Karvel Pálmason og Jón Helgason nutu stuðnings um þriðjungs þing- fulltrúa. Framhjá þeim verður ekki gengið í störfum ASÍ. Á þinginu kom berlega í Ijós, að Sjálfstæðisflokkurinn er svo klofinn, að á hann verður varla treyst sem stjómmálaafl fyrr en honum hefur tekist að leysa forystuvanda sinn. Vera má að þáð takist með því að sækja Ingólf Hellujarl og gera hann að formanni. Framsókn taldi sig þurfa að hefna harma sinna frá siðasta ASÍ-þingi og kom það ljós- lega fram við kosningar á þinginu. Því verður ekki lengur á móti mælt, að skipulag og starf ASÍ-þinga þarf að endurskoða frá grunni. Hin faglegu sjónarmið verða að sitja i fyrirrúmi, og hin stórpólitisku af- skipti flokkanna af ASÍ verða að vikja. Ríkisstjórnarmynstrið var notað við kjör forystunnar, og getur launafólk í landinu dregið af því ýmsar ályktanir hvemig ætlunin er að nota samtökin i náinni framtíð. Þá skal þvi ekki gleymt hvemig hlutur kvenna á þinginu var gjörsamlega fyrir borð borinn. Það sem eftir stendur er það, að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn studdu alþýðubandalagsmann til „Þaö sem eftir stendur er þaö, aö Sjálf- stæðisflokkurinn og Framsókn studdu alþýðubandalagsmann til valda í voldugustu launþegasamtökum landsins og Alþýðubanda- lagiö leiddi sjálfstæöismann til hásætis.”

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.