Dagblaðið - 02.12.1980, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980.
á grímuball
Jón E. Guðmundsson leikbrúðumaður:
Sýndifyrst í Alþýöuhúsinu fyrir
26 árum
og alltaf eykst áhuginn
fyrir leikbrúðusýningum
ELÍN
ALBERTSDÓTTIR
Óli Tynes framkvæmdarltstjóri
Frjáls framtaks.
DB-mynd R. Th. Sig.
Bréffrá Óla Tynes:
Smámis-
skilningur
Kæra Elín.
Það varð smámisskilningur í sam-
tali okkar um Fólk og mitt nýja starf,
sem birtist í DB á mánudaginn i
síðustu viku, sjálfsagt vegna þess að
ég hef ekki skýrt þetta nógu vel. í
greinarkorninu segir að ein ástæðan
fyrir að Fólk hætti að koma út hafi
verið sú að blaðið hafi stundum tafizt
í prentun og erfiðlega gengið að
konia því út á réttum tíma.
Hið rétta er að Fólk kom undan-
tekningarlaust út á réttum tíma, en
hins vegar hafa stundum orðið tafir,
af ýrnsunt orsökum, hjá hinum álta
blöðunum sem Frjálst framtak gefur
úl. Eitt af mínum verkefnum er að
reyna að konta á samræmingu til að
laga þetta.
Þetta er svo sem ekkert stórmál en
hins vegar er leiðinlegt fyrir vini
okkar hjá ísafoldarprentsmiðju að
liggja undir því að hafa orðið Fólki
að fjörtjóni, því þeir stóð sig alltaf
mjög vel. Kær ^veðja
1 ÓIiTynes.
„ Fœrum okkur
niður Lauga-
veginn nœst”
„Ætli við færum okkm ekki upp
og niður Laugaveginn .il 'kintis l(Sn
nágranni okkar i Hljómp >iuu..af-
unni má fara að vara sig,” sagöi Sig-
urður Steinþórsson, sem rekur fyrir-
tækið Gull & Silfur með Magnúsi
bróður sínum og foreldrum þeirra.
Bræðurnir keyptu nú nýverið snyrti-
vöruverzlunina Bonny, næstu búð
fyrir ofan Gull & Silfur.
Það eru eiginkonur Sigurðar og
Magnúsar, Gloria Steinþórsson og
Kristjana Ólafsdótlir sem sjá um dag-
legan rekstur Bonnyar. Ætlunin er að
verzlunin sérhæfi sig í ilmvötnum í
framtíðinni. Sigurður sagði að
einmitt væri verið að fylla hana af
ilmvötnum þessa dagana. ,,Að sjálf-
sögðu verður einnig boðið upp á
aðrar vörur eins og fyrr,” bætti hann
við.
iDagblaöinu
Þessi unga stúlka, MníiS Ifetrin
n~tursdóttir, sem býr i Kefiavik,
grimubúning er
fékk dálagieyx.. .. hl-á da„s.
hún arkaði á grimubali ,.j_
skóla Heiðars Ástvaidssonar fyrir
skömmu. Meiningin var að
nemendurnir kæmu i sem frumleg-
ustu búningum og þá gjarnan
heimatilbúnum. 74 ára gömul kefl-
visk kona gerði sór litið fyrir,
safnaði nokkrum Dagblöðum og
sjá úr þeim gat hún gert þennan
fina kjói og hatt við handa Önnu
Katrinu. Já, Dagblaðið er hægt að
nota til fleira en lesturs og undir
fisk. .. -ELA.
Eysteinn
endur-
sendi
boðskortið
i
Eins og Dagblaðið hefur skýrt frá
var Moskvu-ólympíuförunum ásamt
forystumönnum ÍSÍ boðið I sovézka
sendiráðið sl. fimmtudagskvöld.
Fengu þeir að sjá þar kvikmynd af
hinni glæsilegu opnunarathöfn
ólympíuleikanna. Síðan var boðið
upp á hressingu.
Meðal þeirra sem fengu boðskort
var Eysteinn Þorvaldsson, formaður
Júdósambands íslands. En Eysteinn
kærði sig ekki um að þiggja boð
sendiráðsins og endursendi því
boðskortið.
Eysteinn fékk eins og mörgum er
kunnugt nokkuð hranalegar móttök-
ur i keppnisferð júdólandsliðsins til
Sovétríkjanna fyrir nokkrum árum,
Var hann tekinn hraustlegum tökum
af varðmönnum austantjalds.
— Hermann Gunnars-
son syngur
og segir œvintýrin
Ævintýrin um Rauðhettu og Hans
og Grétu eru viðfangsefnið á nýjustu
plötu Gylfa Ægissonar. Hermann
Gunnarsson les ævintýrin og siðan
syngja ýmsir söngvarar lög Gylfa,
þar á meða) syngur Hermann eitt.
Aðrir sem koma fram á þessari
barnaplötu eru Margrét Ragna
Jónasdóttir, sem syngur hlutverk
Rauðhettu. Margrét er dóttir hins
kunna Jónasar R. Jónssonar. I hlut-
verki Grétu er Anna Lísa Sigurjóns-
dóttir og Páll Óskar Hjálmtýsson
syngur Hans. Þórhallur Sigurðsson,
Laddi, leikur úlfinn í Rauðhettu af
stakri innlifun og Áróra Halldórs-
dóttir leikur ömmuna. Hlutverk
nornarinnar tók Gylfi Ægisson að sér
sjálfur.
Hljóðfæraleikarar á ævintýraplöt-
unni eru Sigurður Karlsson, Þor-
steinn Magnusson, Engilbert'Jensen,
Rúnar Júlíusson og Gylfi Ægisson.
Bakraddir syngja Engilbert, Rúnar
og María Baldursdóttir.
Einn af boðsgestunum í sovézka
sendiráðinu var dr. Ingimar Jónsson,
forseti Skáksambandsins. Skák-
sambandið er nú reyndar ekki í ÍSÍ en
engu að síöur var honum boðið.
Þetta er reyndar ekki fyrsta boðið
sem dr. Ingimar fær frá Rússunum.
í sumar spókaði hann sig um í
Moskvuborg meðan á ólympíuleik-
unum stóð í boði Sovétstjórnar.
Aðrir íslendingar undruðust þá mjög
hvílíkar móttökur íþróttadoktorinn
fékk því undir hann var lagður m.a.
mikill glæsivagn ásamt einkabíl-
stjóra. Svo mjög var fyrir honum
haft að saklausir Sovétborgarar
héldu að þar færi þjóðhöfðingi.
Flugkappinn á
listflugunni
„Sýningin hjá mér gekk mjög vel.
Nemendur I Leiklistarskóla rikisins
sýndu brúðuleikhús, Skugga-Svein,
og það vakti mikla athygli enda frá-
bærlega vel gert hjá krökkunum.
Þetta er í fyrsta skipti sem nemendur
I Leiklistarskólanum stjórna
brúðuleikhúsi. Pétur Einarsson
skólastjóri Leiklistarskólans var
mjög jákvæður gagnvart því að
krakkarnir fengju að kynnast þessari
hlið á leiklistinni,” sagði Jón E.
Guðmundsson brúðuleikhússnilling-
ur, en hann hefur undanfarið sýnt
leikbrúður, málverk, teikningar og
tréskurðarmyndir við góðan orðstír á
Kjarvalsstöðum.
Jón E. Guðmundsson hefur lika
langa reynslu I gerð leikbrúða. Fyrsta
sýning hans var árið 1954 í
Alþýðuhúskjallaranum. Þá sýndi
hann Rauðhettu og Hans og Grétu.
Síöar sýndi hann í Iðnó og I einn
vetur í Tjarnarbíói. Þá ferðaðist
hann kringum landið með leik-
brúðurnar sínar.
,,Nei, ekki get ég sagt að ég sé
orðinn leiður. Að vísu var þetta erfitt
til að byrja með en núna er
kynningin orðin góð og mikill áhugi
fyrir leikbrúðusýníngum,” sagði
Jón. Á milli þess sem hann býr til
leikbrúður kennir hann myndlist í
Austurbæjarskólanum.
Jón E. Guðmundsson er sennilega
hvað þekktastur hjá , yngri
kynslóðinni fyrir Pétur páfagauk.
Pétur hefur heimsótt gæzluvelli
Jón E. Guómundssnn hefur skapað maritarpersónurnar. meðalannarspessur- ku
hefur hann skapað hinn vinstela Péfur páfapauk sem flestöll hörn þekkja vel op
lusa Jlukkara. sem lenpi varpestur i Slundinni okkar.
Vitið þið af hverju Hafnfirðingar
brosa alltaf í átt til Straumsvikur?
Til þess að fá flúor i tennurnar.
Magnús og Sigurður Steinþórssynir á tröppunum við Gull ft Silfur.
Konur þeirra, Kristjana Ólafsdóttir og Gloria Steinþórsson, sjá nú um
höndlunina við hliðina. DB-mynd: Gunnar Örn.
Nýlega var einn af blaðamönnum
blaðsins staddur við gamla flugturn-
inn á Reykjavíkurflugvelli. Sá hann
þá hvar lítil flugvél var að leika listir
sínar í háloftunum yfir Álftanesinu.
Fór flugvélin margar veltur, flaug á
hvolfi, spann lóðrétt niður og gerði
ýmislegt fleira sem kitlaði í ntagann.
Loks lenti flugvélin og flugmaðurinn
ók í hlað. Hvaða kappi skyldi þetta
hafa verið? spurði blaðamaðurinn
sjálfan sig. Hann þurfti ekki að bíða
lengi eftir svarinu. Agnar Kofoed
Hansen flugmálastjóri sté frá borði.
Álverm*kki
svo slæmt
* lt.% ? tri
:
Reykjavíkur undanfarin sumur með
hinum vinsæla brúðubíl. „Ég verð
ekki með brúðubílinn næsta sumar, í
staðinn verða með hann þær Helga
Steffensen, Bryndís Gunnarsdóttir og
Sigríður Hannesdóttir.”
Jón hefur hug á að bæta við
brúðum I Skugga-Svein og þjóðleik-
hússtjóri hefur sýnt áhuga á verkinu.
„Ég er með 9 brúður núna i Skugga-
Sveini og ætla að bæta við 9,” sagði
Jón. „Ég hef auk þess fengið tilboð
frá Finnlandi um að koma með
sýninguna þangað en ég veit ekki
hvað verður úr. Það tekur mjög lang-
an tíma að búa til brúðurnar, ætli
það taki mig ekki 4—5 mánuði,”
sagði Jón E, Guðmundsson. -ELA,
FÓLK
Ævintýra-
plata
frá Gylfa
... en
dr. Ingi-
mar mœtti