Dagblaðið - 02.12.1980, Síða 17

Dagblaðið - 02.12.1980, Síða 17
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980. I 17 Menning Menning Menning Menning SPILLTIR SPILLA SPILLTUM — Um nýja bók Grahams Greene, Sprengjuveislan Graham Groone — Sprangjuvetslan eða Dr. Ftscher f Genf, 162 bls. Þýðandi: Bjöm Jónsson, Útg.: Almenna bókafólagið, 1980. íslenskir bókaútgefandur eru ekki vanir að bregðast fljótt við bókum er- lendra höfunda, jafnvel þeirra sem þekktastir eru. Nú virðist þetta standa til bóta og meðal „betri höf- unda” hefur Graham Greene sérstak- lega notið góðs af þessum nýja viðbragðsflýti. The Human Factor kom hér út hjá Bókaklúbbi AB tæpu ári eftir frumútgáfu, ef ég man rétt, þá sem Hinn mannlegi þáttur. Og nú er komin út á íslensku alveg splunku- ný bók eftir Greene, The Bomb Party or Dr. Fischer of Geneva, útgefin siðastliðið vor. Bjöm Jónsson þýðir. Kannski hefur forlagið veðjað á Nóbel til handa Greene í þetta sinn og ætlað sér að njóta góðs af þvi, og lái þvi hver sem vill. En þótt veðjað hafi verið á rangan hest í þessum árlegu veðreiðum bókmenntanna, þá er áhættan virðingarverð og enginn í raun svikinn því Greene hefur ávallt lagáaðhreyfa við lesandanum. Meðaljón dettur ílukkupott Að svo mæltu verður það einnig að segjast að Sprengjuveislan er með undarlegri bókum sem hann hefur skrifað, í raun afar beinaber dæmisaga sem mundi sóma sér vel meðal sagna Dostoyevskis, nema hvað persónur Greenes em tæpast eins margbrotnar. Hér á ég t.d. við þann fræga kafla í Fávitanum þegar Natasja Filippovna fleygir peninga- fúlgu í bál og manar Ivolgin til að taka þá berum höndum. Og eins og i mörgum dæmisögum, gerast atburðir í Sprengjuveislunni á einkar ósennilegan hátt, því sú teg- und bókmennta þarf ekki á ýtrasta raunsæi að halda. Sögumaður heitir þvi hversdagslega nafni Alfred Jones, er á sextugsaldri og vinnur við þýð- ingar i súkkulaðiverksmiðju i Vevey í Svisslandi. Við fáum einnig að vita að hann gengur með gervihönd, missti báða foreldra i loftárásunum á London i síðara striði og konu sína af barnsförum. Jones rekst á önnu- Luise, tvítuga og gullfallega, verður ástfanginn af henni og ást hans er endurgoldin. Anna-Luiseer reyndar einkadóttir milljónamæringsins dr. Fischer, upp- finningamanns tannkremsins Dentophil Bouquet, sem verndar tennurnar gegn því tjóni sem súkku- laði kann að valda. Lítillækkun hinna rlku Ekki er nema von að Jones spyrji sjálfan sig sem svo, hvort Anna- Luise sé staðgengill þeirrar dóttur sem hann missti í fæðingu eða hvort hann sé staðgengill dr. Fischers sem engan áhuga virðist hafa á dóttur sinni og hafði áður valdið dauða móður hennar. Nú, nú, dr. Fischer er frægur fyrir sérkennileg matarboð. Sama fólkið sækir alltaf þessi boð og Anna Luise kallar það Eðlurnar. AUt er það for- rikt, en lætur lítUlækka sig til að hljóta gjafir dr. Fischers, þolir móðg- anir og kynleg uppátæki hans án þess að malda í móinn. Þátttakendur eru kroppinbakurinn Kips, sem er lög- fræðingur, skattasérfræðingurinn Belmont, leikarinn og drykkju- maðurinn Richard Deane, miðaldra amerisk ekkja, frú Montgomery og herforinginn Krueger. Anna-Lusie hefur andstyggð á þessum matarboð- um og viU ekkert með föður sinn hafa. Hún og Jones gifta sig í kyrr- þey, án nokkurrar viðhafnar til þess að vera ekki upp á nokkurn hátt upp á dr. Fischer komin. Gullúr f yrir hafragraut ,Við þurfum ekki á honum að halda. Við erum frjáls,” segir Anna Lusie við mann sinn. „Við erum of litilmótleg til að hægt sé að lítillækka okkur.” En síðan fær Jones boð í eitt slikt matarsamkvæmi og finnur sig knúinn til að mæta. Þá er mönnum borinn kaldur hafragrautur í tvígang og þeir sem ljúka honum öllum fá 18 karata guUúr að launum. Jones tekur ekki þátt í þessum ijóta leik. Nokkru síðar, eftir að Anna-Luise deyr í slysi á skiðu'm, heldur dr. Fischer sitt siðasta boð, Sprengjuveisluna sem er sérstök útgáfa af rússneskri rúUettu. Þar vill hann láta reyna á græðgi hinna ríku gesta sinna fyrir alvöru og lætur koma fyrir sex knöllum í potti. Fimm þeirra innihalda tékka upp á tvær mUljónir svissneskra franka, hið sjötta hefur að geyma litla en Ufs- hættulega sprengju. Jones er eini maðurinn þama sem ekki hræðist dauðann, hefur jafnvel hugleitt að fyrirfara sér eftir lát Önnu-Luise. En þótt rétt sé að rekja söguþráð til að Graham Greene Bók menntir sýna fram á hið dæmisögulega andrúmsloft bókarinnar er er.gin nauðsyn að skýra frá sögulokum. Tilfinningalegur vanmáttur Hvað er svo Graham Greene að fara? Nú liggur beinast við að álíta r KLj * , 3 .. AOALSTEINN INGÓLFSSON k. að hér sé til umræðu sú spilling sem auður og völd hafa í för með sér og þar hefur Greene áður lagt sitthvað til málanna. í skáldsögunni Loser takes all er t.d. milljónamæringur sem líkist dr. Fischer um margt og þar virðist höfundur segja sem svo: pen- 'ingar kaupa ekki hamingju, en með þeim er hægt að lítillækka aðra. En sé spilling valds umræðuefnið, þá virðist dr. Fischer nota sitt mikla vald á heldur ómerkilegan hátt — til að þröngva köldum hafragraut ofan í fólk. Er hann með þeirri valdníðslu að bæta sér upp sálarlega og til- finningalega ivangetu, eins og annar auðmaður í bók eftir Greene, hinn gamli Sir Marcus i This Gun for Hire? Auk þess lætur Jones að þvi liggja að hugsanlega sé sál dr. Fischers bölvuð og kannski verðum við að leita svara við helstu gátum bókarinnar í guðfræði. Ágirnd guðs og manns Allt um það þarf doktorinn að hefna sín á heiminum, máski á sjálf- um sér líka, fyrir að kona hans gekk honum úr greipum, dirfðist að njóta tónlistar með fátækum manni, þótt ekki lægi hún með honum. Og dr. Fischer er nógu efnaður til að geta fyrirlitið mannkyn, þarf ekki að hata það og hann fær útrás með því að opinbera græðgi þeirra sem ríkir eru. Sjálfur girnist hann aðeins lítillækk- un þeirra og segir jafnvel: „Ég vil gjarnan imynda mér að græðgi minni svipi svolítið. . . til ágirndar Guðs”. Nú er sterkan siðferðilegan burðar ás að finna í öllum bestu skáldverk- um Greenes, en par er einnig verið að segja spennandi sögur. Brighton Rock er t.d'. um sálarháska og for- dæmingu andans en þar er líka verið að segja glæpasögu. T.S. Eliot hefur einmitt sagt að réttast sé að skrifa skáldverk sem hafi tvenns konar skír- skotun, annars vegar raunsæja, hins ,vegar táknræna og þannig byggir hann sjálfur upp Morðið í dómkirkj- unni. Of mörg ólíkindi Kannski getum við alltént sæst á það að raunsæi hverrar bókar af því tagi sem Greene skrifar verði að ganga upp, vera virkt, áður en les- andinn er reiðubúinn að gútera tákn- ræna byggingu hennar. Ólíkindi í Sprengjuveislunni eru of mörg og táknin of uppáþrengjandi til að sagan fangi hugann á þann hátt sem æskilegt væri. En þrátt fyrir það nýtur hinn knappi stíll Greenes sín til fulls, ekki orði ofaukið. Þýðing Björns Jónssonar er ekki slæm, svolítið sérviskuleg (. . . það var enginn obbi, bls. 9) og próförk hefur ekki verið lesin vandlega (frosmán.hinkarði). -Al GLÆSILEGT DEBUT Tónleikar Péturs Jónassonar gftarieikara ( Bú- staðaklrkju 26. nóvambar. Efnisskrá: Luys de Narvaéz: Tlbrigði við Guár- damo las vacas Baxa da Contrapunto; Manual M. Ponce: THbrigót vlð Foifa da Espana og fúga; Joharm Sahastian Bach: Lútusvfta nr. 1; Wflliam Wahon: Pvjár bagateliur; Hactor Villa Lobos: Etýður nr. 8 og 7; Menn greinir á um hvað valdi þeim mikla gitaráhuga, sem sprottið hefur upp á siðustu árum. Ekki er bylgja þessi bundin við tsland eitt, en við verðum hennar kannski meira varir hér i fámenninu. Víða er leitað fanga Á innan við áratug höfum við eignast vaska svdt góðra gitarleikara. Það sem meira er, þessir ungu menn (þvi miður hefur kvenfólkið látið sinn hlut eftir liggja á þessum vettvangi) hafa eins og nemendur annarra greina, leitað víða fanga. Þegar Gylfi Þ. Gíslason var menntamálaráðherra sagði hann á fundi með námsmönnum erlendis að það væri meginstyrkur islenskra menntastétta hversu viða þær leituðu menntunar sinnar. Þannig færðu menn að námi loknu heim þekkingu úr öllum heimshomum, og þótt ein staklingarnir stæðu mönnum annarra þjóða tæpast framar væru stéttirnar i heild með þeim best menntuðu í heiminum. Samkvæmt því ættu íslenskir gítarleikarar að standa býsna vel að vígi, sem stétt. Pétur Jónasson, sem nú kveður sér hljóðs sem gítarleikari.kemur alla leið sunn- an frá Mexíkó, þar sem hann hefur numið síðastliðin tvö ár. gjarnan ungum hljóðfæraleikurum drjúgan tíma eftir að námi lýkur og, sujpir losna aldrei úr viðjum skólans. Ögun Péturs átti í sjálfu sér alls ekki ilia við verk Narvaéz og Ponces. í svítu Bachs fannst mér ögun hans fullströng en tónninn og tæknin gerðu leikinn mjög áheyrUegan. Svo í seinni hluta efnisskrárinnar fór að losna heldur um böndin og leikurinn æfingu Tarregas. Pétur troðfyllti Bústaðakirkju og áheyrendur fengu sitt ósvikið, þvi að það er ekki á hverjum degi sem menn debutera svo glæsilega í Reykjavík. - EM » Pétur Jónasson gítarleikari Tónn, tækni, agi Þrennt einkennir leik Péturs um- fram annað. S fyrsta lagi fallegur tónn. í öðru lagi Upur og átakalaus tækni og í þriðja Iagi afar strangur agi. Framan af fannst mér sem þessi strangi agi Péturs væri leifar af skól- un. Akademiskur leikmáti fylgir að verða frjálslegri. Þar kom í ljós að ekki var um skólaviðjar, heldur strangan aga að ræða. Það var einkum í verkum Villa-Lóbos og Albeniz sem mér fannst kostir Péturs sem gitarleikara koma hvað skýrast fram og þá ekki síður í aukalögun- um, enn einni perlu Villa-Lobos og hinni fögru og makalausu tremolo Trr,. Göngum ávallt vinstra megin á móti akandi umferð.. llX IFEROAR

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.