Dagblaðið - 02.12.1980, Qupperneq 27
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1980.
H
Úfvarp
27
Sjónvarp
9
lillii
íílííí:*:?*:'::::*:--:
Wmmm
i
XvX
X;W
Xv/Xv
Sjónvarp kl. 22,25:
Hvemig eigum
við að bregöást
viö nýrri tækni?
„Bollaleggingar um hvaða áhrif ný
tækni kemur til með að hafa á
mennta- og atvinnumál,” sagði
Magnús Bjarnfreðsson um þátt sem
hann stjórnar í kvöld kl. 22.25.
,,Mun ný tækni leiða til at-
vinnuleysis eða styttri vinnutíma?
Hvernig kemur fólk til með að verja
auknum frítíma? Þessar spurningar
og ýmislegt þessu tengt fjöllum við
um,” sagði Magnús.
í þessum umræðum taka þátt
nokkrir áhugamenn um þessi mál
sem hafa kynnt sér ákveðnar hliðar
þessarar þróunar. Sigurður Guð-
mundsson hefur kynnt sér endur-
menntun í þessu sambandi, hvernig
hægt er að hjálpa fólki að skipta um
vinnu, það verður nauðsynlegt fyrir
fólk að geta skipt um störf eða endur-
mennta sig að einhverju leyti. Jón
Torfi Jónsson er kunnugur þeim'
spurningum sem rísa í sambandi við
tölvunotkun í skólastarfsemi.
Hannes Þ. Sigurðsson er í nefnd sem
Alþýðusambandið setti á fót til þess
að fjalla um þessi mál. Jón Erlends-
son er forstöðumaður upplýsinga-
þjónustu rannsóknaráðs. -GSE.
Magnús Bjarnfreðsson stjórnar um-
ræðuþætti um hvernig bregðast eigi
við nýrri tækni.
A HUÓDBERGI - útvarp í kvSld kl. 23,00:
SAKLAUS MAÐ-
UR LÍFLÚTINN
Henry Fonda leikari les í kvöld
fyrir okkur söguna Atburðurinn við
Ox-Bow. Þessi saga nefnist á enskri
tungu The Ox Bow Incident og er
eftir Walter Van Tilburg Clark. Sag-
an mun að einhverju leyti eiga við
sannsögulegar heimildir að styðjast.
Þessi saga er ein af sígildum sögum
sem oft er vitnað til. Hún greinir frá
manni sem er grunaður um að hafa
stolið nautgripum. Þar eð þetta er i
Texas þar sem menn eru æstir út af
smámunum, er maðurinn umsvifa-
laust tekinn af lífi án dóms og laga.
En varla hefur snaran náð að herða
að hálsi hans þegar upp kemst að
maðurinn er saklaus með öllu.
Árið 1943 var gerð kvikmynd eftir
þessari sögu sem hlaut mikiö lof og
mikla aðsókn. Meðal annars var hún
sýnd hér á tandi á sínum tíma. Mynd-
in þótti ákaflega spennandi og menn
sátu stífir undir henni í bíó. í þeirri,
mynd lék Henry Fonda einmitt
aðalhlutverkið á móti Dana
Andrews. Er því vel við hæfi að
heyra þá gömlu kempu lesa söguna.
Á hljóðbergi er að vanda síðast á
útvarpsdagskránni og i umsjón
BjömsTh. Bjömssonar. -DS.
ÓVÆNTENDALOK
—sjónvarp kl. 21,50:
ALLT í SKORDUM
HJÁ APPLEBY
Allt í skorðum hjá Appleby nefnist
fyrsti þátturinn af tólf í nýjum brezk-
um myndaflokki sem sýndur verður í
kvöld kl. 21.50. Að sögn Kristmanns
Eiðssonar, sem þýðir þættina, eru þetta
stuttir þættir, ca 1 /2 tíma langir. í upp-
hafi þáttanna flytur höfuðpaurinn,
Roald Dahl, inngangsorð. I þessum
þætti segist hann ætla að segja eigin-
konum hvernig þær eigi að kála eigin-
mönnum sinum. Það kemur einnig
fram i inngangi Roald Dahls að um-
ræddur Appleby hafi verið þrígiftur.
Fyrrverandi eiginkonur hans sem
Appieby lifði hafi allar átt verzlanir.
Appleby hafði alltaf tekið andlát
eiginkvenna sinna svo nærri sér að
hann seldi verzlanirnar og hafði þannig
komizt yfir talsvert fé. Appleby stofn-
setur nú verzlun, en áður en hann opn-
ar kemur í búðina kona sem vill kaupa
vasa hjá honum, en hann vill ekki selja,
þvi eins og heiti myndarinnar ber með
sér er allt í skorðum hjá Appleby. Vill
Appleby ekki selja konunni vasann fyrr
en búðin opnar formlega, þannig hefj-
ast kynni þeirra, sem við fylgjumst með
íkvöld.
SYNINGARSALUR
NOTAÐIR
'AVANJ ^ BILAR
SAAB 99 GL árg. '73,2ja dyra, rauður
SAAB 99 GL árg. '74,2ja dyra, blár
SAAB 99 GL árg. '75,2ja dyra, grænn
SAAB 99 GL árg. '77,2ja dyra, rauður
SAAB 99 GL árg. '77,2ja dyra, brúnn
SAAB 99 GL árg. '78,2ja dyra, dökkbrúnn
SAAB 99 GL árg. '78,4ra dyra, sjálfsk., silfur
SAAB 900 GLE árg. '79,5 dyra, sjálfsk., vökvastýri
TÖGGURHF.
SAABUMBOÐIÐ