Dagblaðið - 02.12.1980, Page 28
Alþýðuflokkurinn
íHafnarfirði:
Lýsi og mjöl
úr bænum
Illafór / morgun er setja átti skurðgröfu á flutningsvagn efst í Selja-1 götunni. Ekkert slys varð á mönnum. en tjónið er talið talsvert á
hverfmu í Breiðholti. Báknið valt út af tengivagninum og lá afvelta á | gröfunni. DB-mynd S.
Loftleiðaf lugmenn fallast á gerðardóm
„ógeðfelld lausnsegir form. FIA
„Viö Loflieiðamenn höfum sam-
þykkt tilboð Flugleiða og sætlum
okkur við gerðardóm,” sagði Baldur
Oddsson form. Félags Loftleiðaflug-
manna i morgun.
Kristján Egilsson, form. Félags
islenzkra atvinnuflugmanna taldi
gerðardóm ógeðfellda lausn;
„forsendur .fyrir dómum hafa okkur
oft fundizt ákaflega undarlegar, þvi
getum við ekki sætt okkur við þá
lausn,” sagði hann.
„Það er okkar vilji að næsta
skrefið verði það að skipa sáttanefnd
til að vinna að lausn málsins,” sagði
Kristján ennfremur.
Tilboð Flugleiða er í stórum drátt-
um þannig að flugmönnum er boðin
endurráðning i a.m.k. 10 mánuði,
sérstökum úrskurðaraðila verði falið
að úrskurða um starfsaldurslistamál-
ið og flugmenn sameinist í eitt stétt-
arfélag.
-KMU
Nú eru 5 dagar til boðaðs bankamannaverkf alls:
ELULÍFEYRIRINN ER
T1LBÚINN TIL GREIÐSLU
—ef Tryggingastof nun fær peningana frá ríkisvaldinu
Enn hefur nákvæmlega ekkert
gerzt i kjaradeilu bankastarfsmanna.
í gær vantaði kjörgögn frá um 15
kjörstöðum á Austur- og Vesturlandi
en búizt var við þeim árla í dag, svo
þá er unnt að telja atkvæðin um
tillögu sáttasemjarans, Vilhjálms
Hjálmarssonar. Bankamenn allir
telja nær öruggt að sáttatillagan hafi
verið felld. Verkfall blasir því við i
öllum bönkum landsins og nokkrum
stöðum öðrum, m.a. Framkvæmda-
stofnun, á mánudaginn.
Ef til verkfalls kemur stöðvast allt
bankakerfið og allír bankar verða
Iokaðir. Þó bankalokun lami flesta
starfsemi myndi hún þó koma einna
harðast við ellilífeyrisþega, því fjöldi
þeirra fær greiddan ellilífeyri
gegnum bankakerfið.
Ólafur Björgúlfsson hjá
Tryggingastofnuninni tjáði DB í
morgun, að stofnunin væri tilbúin
fyrir sitt leyti með greiðslur í þessari
viku, en til þess þyrfti fé að koma frá
ráðuneytinu. Kvað hann vandamálið
leysanlegt í Reykjavík og Kópavogi
nokkuð auðveldlega, ef stofnunin
fengi leyfi ráðherra til að senda
greiðslur gegnum bankakerfið í dag
eða á morgun, en vandinn yrði meiri
úti á landsbyggðinni.
Aðeins einn fundur var haldinn í
kjaradeilunni eftir fyrri atkvæða-
greiðslu um lausn kjaradeilunnar.
Þar gerðist ekki neitt-. Annar fundur
var í bigerð, en þá höfðu fulltrúar
bankanna ekki tíma til fundahalda.
Þykir bankamönnum að samninga-
aðilum hafi illa eða alls ekki verið
haldið að samningaviðræðum —
þveröfugt'við sáttanefndir annarra
stétta.
Heyrzt hafa raddir um lög er
banni verkfallið en'-bankamönnum
þykir fáheyrt ef „bankavaldið” getur
knúið slíkt fram, sem ríkisvaldið
beitir ekki i almennum kjaradeilum.
Benda þeir á að um margt megi semja
fram á næsta sunnudag. Tími sé til
stefnu.
-A.St.
Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði hélt
í gærkvöld bæjarmálafund um fyrir-
tækið Lýsi og mjöl. Eyjólfur
Sæmundsson öryggismálastjóri hélt
framsögu og síðan voru umræður. Um
eða yfir 20 manns mættu á fundinn og
var á mönnum að heyra að þeir væru
sammála þeirri stefnu sem mótuð hefur
verið af flokknum. Hún felst í því að
verksmiðja Lýsi og mjöls verði flutt frá
Hafnarfirði.
1 dag klukkan fimm verður haldinn
bæjarstjómarfundur í Ráðhúsinu í
Hafnarfirði um þessa umdeildu verk-
smiðju. -DS.
Þokast hjá
farmönnum
Eitthvað virðist vera að þokast í sam-
komulagsátt með farmönnum og
viðsemjendum þeirra. Sáttafundur
hófst klukkan fjögur í gærdag og stóð
hann enn klukkan níu í morgun er
leitað var frétta. Mjólkurfræðingar
mættu einnig á sdttafund klukkan
fjögur í gær. Sáttafundi þeirra lauk
milli 12 og 1 í nótt og er nýr fundur
boðaður í dag kl. 2. , -DS.
LUKKUDAGAR:
2. DESEMBER 25367
Braun LS 35 krullujárn.
Vinningshafar hringi
ísíma 33622.
■i&Wb'
$rirþáN>\
sem meta ^
W fagra muni
/lEISISt-
KRISTAIL
Laugavegi T5, Reykjavík
sími 14320
Allt íóvissu með verö landbúnaðarvara:
FOLK HAMSTRAR KJOT
í HEILUM SKROKKUM
Kaupmenn birgja sig ekki upp af ótta við að niðurgreiðslur verði auknar til að
verðhækkun hækki ekki vísitöluna
„Það er ekkert smásöluverð farið
að reikna út hjá samtökum bænda
ennþá. Það átti að ræðast í ríkis-
stjórninni í dag, hvernig að þessu
skyldi staðið, og ég geri ráð fyrir að
það verði skoðað í rólegheitum
næstu daga,” sagði Agnar Guðnason
blaðafulltrúi í samtali við blaðamann
DB.
„Verðlagsgrundvöllur land-
búnaðarvaranna átti^að hækka um
mánaðamótin um 13.84% Hækkunin
er að langmestu leyti í sambandi við
launalið grundvallarins. Þessi
hækkun veldur misjafnri hækkun á
verði landbúnaðarafurða og fer
mismunurinn eftir því hve niður-
greiðslur eru miklar á hinum ýmsu
vörutegundum fyrir. Smjör myndi
t.d. hækka hvað mest eða kringum
20% ef hækkunin ætti öll að fara út í
verðlagið,” sagði Agnar.
Hann sagði að ríkisstjórnin vildi
nú skoða, að hve miklu leyti ætti að
láta hækkun verðlagsgrundvallarins
fara út I verðlagið eða hvort auka
ætti niðurgreiðslur og það mikið að
meginhluti hækkunarinnar lenti á
ríkissjóði.
Meðan þetta er í skoðun er fólk
tekið að hamstra. Mikil sala var í
heilum skrokkum dilkakjöts I gær —
meiri en búast mátti við.
„Kaupmenn reyndust sammála
um að ógemingur væri fyrir þá að
birgja sig upp af kjöti „á gamla verð-
inu” við þessar aðstæður. Ef skyndi-
lega yrði ákveðið að auka niður-
greiðslur, fengju kaupmenn með
birgðir það ekki bætt. „Birgðir hjá
kaupmönnum eru nefnilega ekki
sama og birgðir hjá SÍS eða SS,”
sagði einn kaupmanna. „Við höfum
t.d. enn ekki fengið bætur fyrir þær
birgðir smjörs sem við áttum er
útsölu var slengt á 1978, hvað þá að
farið sé að tala um bætur fyrir smjör-
birgðir sem kaupmenn áttu er síðasta
útsala var skyndilega ákveðin.”
-A.St.
frfálst, úháð dsgblað
ÞRIÐJUDAGUR 2. DES. 1980.
Hæðarmet ís-
lendings
yfir Kína?
Fyrir stuttu setti Þórður Sigurjóns-
son flugstjóri hjá Cargolux hæðarmet
meðal flugmanna Cargolux. Hann var
við stjórn annarrar Jumbo-vélar
Cargolux á leið til Hong Kong og yfir
Kína náði vélin 45100 feta hæð, en það
er hámarkshæð sem þessari vélar-
tegund er leyfilegt að fljúga.
Þórður sagði í stuttu viðtali við
blaðamann DB að aldrei áður hefðu
Cargolux vélar náð þessari hámarks-
hæð. Til að ná henni ræður fyrst og
fremst þungi vélarinnar, en á þessari
flugleið var vélin tóm. Annað gott skil-
yrði til að ná hámarkshæð er að kalt sé
í lofti, en því átti Þórður ekki að fagna
i þetta sinn.
Þórður lét lítið yfir þessum atburði
og taldi hann ekki ýkja merkilegan, en
sennilega er Þórður nú sá íslenzkur
flugmaður sem mestri hæð hefur náð.
-A.St.