Dagblaðið - 16.01.1981, Qupperneq 2
Sjónvarp næstu viku • ••
sjúkdómi og notar peningana til
að fá læknishjálp. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
Tónli«ta>t>áttur m*ð Hauki
Morthens varflur anduraýndur á
miðvikudag.
DB-mynd: Einar Ólason.
21.55 Nokkur lög með Hauki.
Haukur Morthens flytur nokkur
lög ásamt hljómsveit. Sigurdór
Sigurdórsson kynnir lögin og
ræðir við Hauk. Stjórn upptöku
Rúnar Gunnarsson. Áður á dag-
skrá 29. nóvember 1980.
22.30 Dagskrárlok.
Föstudagur
23. janúar
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
|! ’ 20.40 A döfinni.
20.50 Skonrok(k). Þorgeir Ástvalds-
| son kynnir vinsæl dægurlög.
, 21.20 Fréttaspegill. Þáttur um inn-
lend og erlend málefni á líðandi
stund. Umsjónarmenn Bogi
1 Ágústsson og Ólafur Sigurðsson.
Jack Nichotson ar i aðaMutverki
biómyndar sjónvarpsins á föstu-
dag an hún fjallar um oliubormann.
22.30 Af fingrum fram (Five Easy
Pieces). Bandarisk bíómynd frá
árinu 1970. Leikstjóri Bob Rafel-
son. Aðalhlutverk Jack Nichol-
son, Karen Black, Susan Anspach
og Fannie Flagg. Þetta er sagan af
olíubormanninum Bobby. Hann
er að ýmsu leyti vel gefinn og
menntaður en festir hvergi yndi.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
24.00 Dagskrárlok.
Laugardagur
24. janúar
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
18.30 Lassie. Friðarboðar — fjórði
og síðasti þáttur. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
18.55 Enskaknattspyman.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsiagar og dagskrá.
Lougwdnglnn 24. janúar vorður
Spitalaftf á dagskrá.
20.35 Spitalalff. Þriðji þáttur. Þýð-
andi Ellert Sigurbjörnsson.
21.00 Show-Addy-Waddy. Sænskur
skemmtiþáttur með samnefndri
breskri hljómsveit. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið).
21.50 Bergnuminn (Bedazzled).
Bresk gamanmynd frá árinu 1968.
Aðalhlutverk Peter Cook, Dudley
Moore, Michael Bates og Raquel
Welch. Stanley Moon, matsveinn
á bitastað, seiur þeim vonda sál
sína, eins og Faust forðum, og
hlýtur i staðinn kvenhylli, auð og
völd. Þýðandi Heba Júlíusdóttir.
23.30 Dagskrárlok.
Sunnudagur
25. janúar
16.00 Sunnudagshugvekja. Séra
Ragnar Fjalar Lárusson, sóknar-
prestur í Hallgrímsprestakalli,
flytur hugvekjuna.
16.10 Húsið á sléttunni. Milli vonar
og ótta — síðari hluti. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
17.10 Leitin mikla. Lokaþáttur.
Þýðandi Björn Björnsson. Þulur
Sigurjón Fjeldsted.
18.00 Stundin okkar. Meðal efnis:
Farið á Veðurstofuna, þar sem
Trausti Jónsson veðurfræðingur
skýrir kort. Rætt við Hrafnhildi
Sigurðardóttur um ferð hennar til
Nýju-Guíneu og brugðið upp
myndum þaðan. Sýnd teiknisaga
eftir Kjartan Arnórsson. Um-
sjónarmaður Bryndís Schram.
Stjórn upptöku Ándrés Indriða-
son.
18.50 Skíðaæfingar. Þriðji þáttur
endursýndur. Þýðandi Eiríkur
Haraldsson.
19.20 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp, næstu viku.
20.45 Þjóðlif. í Þjóölífi verður fram
haldið, þar sem frá var horfið
síðastliðið vor og reynt að koma
sem víðast við í hverjum þætti. í
þessum þætti verður m.a. aflað
fanga í þjóðsögunum, t.d.
„Djáknanum á Myrká”, og fjall-
að um gildi þeirra og uppruna. Þá
verður rætt við nýútskrifaðan
fiðlusmið, leikið á fiðlu í sjón-
varpssal og farið í heimsókn til dr.
Gunnars Thoroddsens forsætis-
ráðherra og konu hans, Völu.
Umsjónarmaður Sigrún Stefáns-
dóttir. Stjórn upptöku Valdimar
Leifsson.
21.45 Landnemarnir. Tíundi þáttur.
Efni níunda þáttar: Wendell-hjón-
in eru farandleikarar en einnig út-
smognir svikahrappar, og þau
leika illilega á séra Holly. Eftir
andlát eiginmanns síns fer Char-
lotte Seccombe til Englands, en
snýr brátt aftur til Colorado og
annast rekstur Venneford-bú-
garðsins ásamt Jim Lloyd. Brum-
baugh er orðinn sterkefnaður..
Hann á á hættu að missa bæði
jörðina og vinnufólkiö, en hann
lætur ekki hræða sig fremur en
fyrri daginn. Þýðandi Bogi Arnar
Finnbogason.
23.15 Dagskrárlok.
Rögnvaldur hefur án efa frá mör'gu skemmtilegu að segja. . DB-mynd: Ragnar
TONUSTARMENN—sjónvarp sunnudag
kl. 20,45:
Rögnvaldur Sigur-
jónsson kynntur
—Eggll Friðleifsson spjallar við hann
Rögnvaldur Sigurjónsson píanó-
leikari verður kynntur í þættinum
Tónlistarmenn sem er á dagskrá sjón-
varpsins á sunnudag. Egill Friðleifs-
son kynnir Rögnvald og spjallar við
hann en þess á milli mun listamaður-
inn leika á píanóið.
Rögnvaldur Sigurjónsson. fæddist
áEskifirði 15. október 1918. Hann er
sonur Sigurjóns Markússonar sýslu-
manns, síðar stjórnarráðsfulltrúa í
Reykjavík, og Sigríðar Björnsdóttur.
Að loknu gagnfræðaprófi nam hann
4 ár í Tónlistarskólanum í Reykjavík
en hélt siðan út til framhaldsnáms,
fyrst í París 1937—39 en síðan í New
Vork 1942—45.
Rögnvaldur vakti mikla athygli,
listdómara í Washington fyrir tón-;
leika sem hann hélt þar i borg við lok-
náms síns í Bandaríkjunum. Fékk
hann þá mörg tilboð um frekara tón-
leikahald og er það skoðun margra
að sjaldan hafi islenzkur tónlistar-
maður staðið svo nálægt heimsfrægð'
sem Rögnvaldur þá. En hann ákvað
að snúa heim til íslands og síðan
hefur hann starfað sem kennari við
Tónlistarskólann.
Rögnvaldur hefur haldið fjölda
píanótónleika hérlendis sem erlendis,|
m.a. á öllum Norðurlöndum, Banda-'
ríkjunum, Kanada, Þýzkalandi,
Austurríki og Sovétríkjunum. -KMU.j
JARINS
TU
Stutt kynning á því athyglis-
verðasta sem kvikmyndahús
bofgarinnarsýna
Óvætturin
Leiuljórt Rldlay Scott, gwð 1 Bmhndi1(7*.
Syningarmtaður Nýja btó.
Nýja bió hefur nú hafið sýningar á jólamyndinni Óvættinni en
myndín sú er einhver umtalaðasta hrollvekja siðustu ára. Myndin
fjallar um sjö geimfara sem verða að hlýða neyðarkalli sem kemur frá
ókunnri plánetu. Þar lenda þeir í baráttu við óvætti sem því miður
reynist alger ofjarl þeirra á flestum sviðum. Það er engum greiði
gerður að rekja söguþráð myndarinnar nánar því hrollvekjan byRgir á
því að koma áhorfandanum á óvart. En eitt er vist að hrollurinn nistir
inn að beinum. Leikstjórinn Ridley Scott hafði aðeins gert eina mynd
í fullri lengd þegar hann gerði Óvættina, það var The Duellist sem
sýnd var i Háskólabíói fyrir rúmu ári Hann hafði áður gert þúsundir
auglýsingamynda. Þetta er mynd sem allir aðdáendur hryllingsmynda
verða aðsjá.
Hjónaband Mariu Braun
Leikstjórí: Reiner Wemer Fassbinder, þýsk 1979.
Sýningarstaður Regnboginn.
Þá er hingað komið.eitt af meistaraverkum Fassbinder og á kvik-
myndahúsið hrós skilið fyrir hversu fljótt hún berst hingað. Myndir
Fassbinder hafa margar hverjar sést hér, má þar nefna Örvæntinguna
sem sýnd var i Laugarásbíói og fjölmargar mánudagsmyndir og þá
hefur sjónvarpið sýnt að minnsta kœti tvær. En Fassbinder er einn
afkastamesti kvikmyndahöfundur sem er uppi og á tíu árum hefur
hann gert nær 30 myndir. Hjónaband Mariu Braun er sú mynda hans
sem mesta aðsókn hefur fengið utan Þýskalands. Myndin fjallar um
Maríu Braun sem giftist i lok striðsins, maður hennar er talinn af og
fer hún þá að halda við ameriskan hermann. Þegar svo eiginmaður-
inn birtist myrðir hún hermanninn en eiginmaðurinn tekur á sig
glæpinn og afplánar fangelsisvistina. Á meðan tekur hún saman við
verksmiðjueiganda sem reynist henni vel. Þegar hann deyr arfleiðir
hann hana og eiginmaðurinn losnar úr fangelsinu. Það litur út fyrir
(að allt ætli að blessast en skyndilega verða þau að horfast í augu við
eilífðina. Þetta er mjög vel gerð og ieikin mynd. Hanna Schygulla sem
fertneð hlutverk Maríu leikur þó sérstaklega vel enda fékk hún silfur-
björninn á kvikmyndahátíðinni í Berlin fyrir frammistöðu sína i.
myndinni. Þetta er mynd sem allir ættu að sjá.
í lausu lofti
Leikstjóri: Jim Abraham, David Zucker og Jery Zucker.
Gerö i USA1980
Sýningaretaðun Háskólabió
Þeir sem vilja hlæja af sér höfuðið geta gert það um þessar mundir í
Háskólabió. En þar er nú sýnd einhver allra besta gamanmynd sem
hingað hefur komið í langan tíma. Myndin fjallar um erfiðleika sem
upp koma þegar heiftarleg matareitrun gerir áhöfn flugvélar nokkurr-
ar óstarfhæfa í háloftunum. Eins og nærri má geta verður flugvélin
stjórnlaus og kátbroslegir atburðir gerast i kjölfarið. Höfundar
myndarinnar eru islenskum áhorfendum ekki alls ókunnir því þeir
sömu gerðu „The Kentucy Fried Movie” og Deltakiíkuna sem báðar
voru sýndar i Laugarásbiói hér um árið. í þessari ágætu mynd skopast
þeir félagar að stórslysamyndunum og þá einkum Airport myndunum
sem tröllriðu kvikmyndahúsunum hérfyrir nokkrum árum.