Dagblaðið - 16.01.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1981. 15
Hvað er á seyðium helgina?
Messur
komin hingað í búðir eða hvað hún
muni kosta hingaö komin, en bóka-
búðir ættu að verða sér úti um Is-
lande eftir Patay hið snarasta.
- AI
2
Guðsþjónustur í Revkjavíkurprófastsdæmi sunnudau-
inn 18. janúar.
ÁRBÆJARPRF.STAKAl.L: Bamasamkoma i safn
aðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30 árd. Gudsbjón
usta i safnaðarheimilinu kl. 2. Kirkjukaffi Kvenfélags
Árbæjarsóknar cftir messu. Sr. Guðmundur Þor
stcinsson.
ÁSPRFSTAKALL: Messa að Norðurbrún I kl. 2.
Fundur i safnaðarfélagi Ássafnaðar cftir messu. Kaffi
og félagsvist. Sóknarprestur.
BRF.IÐHOLTSPRFSTAKALL: í Breiðholtsskóla:
Sunnudagaskóli kl. 10.30. Fjölskvlduguðsbjónusta kl.
2. Biblíulestur mánudagskvöld kl. 20.30. Sr. Lárus
Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasamkoma kl. II. Guðs
hjónusta kl. 2. Esra Péiursson sálkönnuður flytur stól
ræðuna og lciðir umræður i safnaðarhcimilinu á eflir.
Almenn samkoma kl. 20.30 á vegum samstarfsnefnd
ar krislinna trúfélaga á íslandi. Organleikari Guðni h
Guðmundsson. Sr. ÓlafurSkúlason dómprófaslur.
DIGRANFSPRFSTAKALL: Barnasamkoma i safn
aðarhcimilinu við Bjárnhólastig kl. 11. Guðsþjónusta i
Kópavogskirkju kl. 1 L.Sr Þorbergur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Kl. II mcssa.Sr. Þórir Stephenscn.
Kl. 2 'messa. Sr. Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn
svngur. organleikari Márteinn H. Friðriksson. Landa-
kotsspítali: Kl. 10 messa. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Organleikari Birgir Ás. Guðmundsson.
FF.I.LA- OG HÓLAPRFSTAKALL: L.augardagur:
Barnasanikoma i Hólabrckkuskóla kl. 2 e.h. Sunnu
dagur: Barnasamkoma i Fellaskóla kl. 11 f.h. Guös-
bjónusta í safnaðarheimilinu að Keilufelli 1 kl. 2 e.h.
Sameiginleg samkoma safnaðanna í Breiðholti nk.
miðvikudagskvöld kl. 20.30 að Seljabraut 54. Sr.
Hreinn Hjartarson.
. GRF.NSÁSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Guðs-
bjónusta kl. 2. Organleikari Jón G. Þórarinsson. Al-
mcnn samkoma nk. fimmtudagskvöld k|. 20.30. Sr.
HalldórS. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Mcssa kl II. Sr. Ragnar
Fjalar L.árusson. Messa kl. 2. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Kirkjukaffi i umsjá sjálfboðaliða cftir messu. Þriðjud.:
Fyrirbænaguðsbjónusta k|. 10.30 árd. Bcðið fvrir
sjúkum. Kirkjuskóli barnanna cr i kórkjallara kl. 2 á
laugardögum. Landspítalinn: Mcssa kl. 10. Sr. Karl
Sigurbjörnsson.
HÁTFIGSKIRKJA: Barnaguðsbjónusta kl. 11 árd.
Sr. Arngrimur Jónsson. Messa kl. 2. Organleikari lllf
Prunner. Sr. Tómas Svcinsson. Mcssa og lyrirbænir
fimmtudaginn 22. jan. kl. 20.30. Sr. TómasSvcinsson.
Borgarspítalinn: Guðsbjónusta kl. 10 árd. Organlcik
ari Jón G. Þórarinsson. Sr. TómasSvcinsson.
KÁRSNFSPRFSTAKALL: Barnasamkoma i Kárs
nesskóla kl. 11 árd. Guðsbjónusta i Kópavogskirkju
kl. 2.Sr. Árni Pálsson.
Frumsýning helgarinnar—Oliver Twist í Þjóðleikhúsinu:
Aldursmunur elzta og yngsta
leikarans er um sjötíu ár
—fjöldi leikara kemur f ram í verkinu
Hér er verðlaunamynd Philippe Patay f Ijósmyndasamkeppni DB 1979.
Ég trúi ekki Ööru en að útiendingar
kunni aö meta þá Ijóðrænu skissu
sem Patay dregur upp af landinu, —
en sjálfur ílentist hann hér fyrir ára-
tug og segir landsmönnum sínum til
leiðar á sumrin. Eg held einnig að hið
glögga gests auga Patays geti einnig
upplýst okkur íslendinga um sitthvað
merkilegt af landi voru.
Ég veit ekki til þess að þessi bók sé
Barna- og fjölskylduleikrit Þjóð-
leikhússins á þessu ári er Oliver
Twist, — íslenzk leikgeriV unnin af
Árna Ibsen leikhúsfræðingi. Verkið
verður frumsýnt á morgun, laugar-
dag.
„Sagan um Oliver Twist hefur
margsinnis verið færð í leikbúning,”
sagði Árni, er blaðamaður DB ræddi
við hann um verkið. ,,Ég kynnti mér
margar útfærslur sögunnar úti í
London, en mér leizt ekki á þær. Tvö
síðastliðin sumur hef ég síðan unnið
við að velja og hafna því sem ég taldi
henta í þennan nýja leikbúning.
Sagan er mjög löng, svo að ljóst er að
mörgu verður að sleppa til að sýningin
taki ekki lengri tíma en tvær klukku-
stundir.”
Fjöldi leikara kemur fram í leikrit-
inu um Oliver Twist. Aldursmunur
elzta og yngsta leikarans er um sjötíu
ár. Tveir ungir piltar, Börkur Hrafns-
son og Sigurður Sverrir Stephensen,
fara með hlutverk Olivers. Sögu-
maðurinn í sýningunni, Charles
Dickens sjálfur, er leikinn af Þorleifi
Ein eftirminnilegasta persónan úr sögunni um Oliver Twist er Gvðingurinn Fagin.
Baldvin Halldórsson fer með hlutverk hans.
Haukssyni. Þorparann Fagin leikur
Baldvin Halldórsson og Árni
Blandon leikur Hrapp. Aðrir, sem
fara með helztu hlutverk, eru Flosi
Ólafsson, Bryndís Pétursdóttir, Jón
S. Gunnarsson, Jóhanna Norðfjörð,
Sigurður Skúlason, Þórunn Sigurðar-
dóttir, Erlingur Gíslason, sem leikur
ofbeldismanninn Bill Sikes, Þórunn
Magnea Magnúsdóttir, Ævar R.
Kvaran, Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Valur Gíslason, Arnar Jónsson,
Edda Þórarinsdóttir, Anna Guð-
mundsdóttir, Siguröur Sigurjónsson
og Árni Ibsen. Tveir þeir siðasttöldu
fara með hlutverk vasaþjófa í þjón-
ustu Fagins.
Leikstjóri Olivers Twist er Bríet
Héðinsdóttir. Leikmynd og búninga
gerir Messíana Tómasdóttir og lýs-
ingu annast Kristinn Daníelsson.
Oliver Twist verður frumsýndur
klukkan þrjú. Rétt er að vekja
athygli á að miðaverð á frumsýningar
barnaleikrita er hið sama og á seinni
sýningar. Önnur sýning verður
sunnudaginn 18. janúar.
- ÁT
Oliver Twist og herra Brownlow, góðhjartaði maðurinn, sem reynist Oliver svo
vel. Sigurður Sverrir Stephensen er þarna í hlutverki Olivers og Ævar R. Kvaran
ieikur Brownlow. DB-myndir: Bjarnleifur.
Bókvikunnar:
ISLAND EFTIR
PATAY
Verðlaunahafi DB íljósmyndasam-
keppninni 1979
gefur út bók í Frakklandi
Við urðum bæði undrandi og pínu-
lítið stoltir hér á DB þegar við feng-
um í hendur nú um daginn undur-
fallega litla bók eftir franskan ljós-
myndara og íslandsvin, Philippe
Patay. Patay vann nefnilega ljós-
myndasamkeppni blaðsins í fyrra
með eftirminnilegri mynd af dauðri
rollu uppi á hálendinu og er hún
einnig í bók hans sem við útnefnum
hér með bók vikunnar.
Bókin nefnist einfaldlega Islande
og er gefin út af litlu forlagi, Editions
de la Butte aux Cailles, í París. Það er
enginn annar en Régis Boyer, stór-
þýðandi á Laxness og öðrum íslensk-
um verkum og stórriddari af Fálka-
orðunni, sem skrifar formálann. Þar
er hann mjög skáldlegur og fer fögr-
um orðum um karakter íslendinga og
land, segir m.a. að íslendingar þoli
enga meðalmennsku.
Að öðru leyti eru það Ijósmyndir
Patays einar sem halda bókinni uppi,
án frekari skýringa á tilurð þeirra.
Þeim er óvenjulega smekklega fyrir
komið, ein mynd per síðu og allt lagt
upp úr því að gera hverja opnu sam-
stæða fremur en að fylgja ákveðnum
þræði og byggja upp stígandi. Patay
hefur gott auga bæði fyrir smáat-
riðum eins og rekaviði á strönd og
hinu stórfenglega í landslagi og kann
einnig þá kúnst að staðsetja fólk
þannig að það gæði myndir dýpri
merkingu.