Dagblaðið - 16.01.1981, Page 4

Dagblaðið - 16.01.1981, Page 4
16 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1981. Hvað er á seyðium helgina? Fjórar sýningar og fjörutíu listamenn mikið um að vera að Kjarvalsstöðum um helgina Hjónin Leifur Breiðfjörð oj> Siuríður Jóhannsdóttir hafa unnið vefnað i samein- ingu fvrir sýningu Vetrarmvndar. Það var ys og þys að Kjarvals- stöðum er blaðamenn komu þar til að fylgjast með uppsetningu fjögurra myndlistarsýninga, bæði í sölum hússins og göngum. Eru þetta jafn- framt fyrstu sýningar hússins á þessu ári. í vestursal virtist mikill mannfjöldi að störfum. Þarna voru nefnilega 11 aðstandendur sýningarinnar Vetrar- mynd sem nú koma saman í þriðja sinn til að sýna verk sín um miðjan vetur. Listamennirnir eru afar ólíkir: málarar, nýlistarmenn, teiknarar, vefarar, leirkerasmiðir o.fl. enda er stefna hópsins sú að sýna fjölbreytt verk og endurnýja þátttakendur stöðugt. Þarna sýna Baltasar, Bragi Hannesson, Einar Þorláksson. Haukur Dór, Hringur Jóhannesson, Leifur Breiðfjörð, Magnús Tómas- son, Níels Hafstein, Sigríður Jóhannsdóttir, Sigurður örlygsson og Þór Vigfússon. Þeir Vetrarlista- menn opna svo sýningu sína á laugar- dag kl. 15. Skart og graf ík Þegar út á ganginn kom, var þar fyrst fyrir sýning á skartgripum frá Hollandi, í þartilgerðum og hugvits- samlega hönnuðum sýningarkössum sem henta einnig til flutninga. Skart þetta er næsta óvenjulegt, bæði að efni og útliti. Þarna eru að vísu gripir úr silfri og kopar, en einnig úr áli og plasti og sýnist mér sem hönnuðirnir 19 sem að sýningunni standa hafi leitaö hugmynda bæði í vísindum og verkfræði. Næst verður á vegi skoðandans önnur hollenzk sýning, Grafík frá landi Mondrians og á heitið við þá listamenn í Hollandi sem halda til streitu geómetrískum ígrundunum og flatarmálsfræði ýmiss konar, i anda þess sem Mondrian gerði forðum daga og varð heimsfrægur fyrir. Þarna ríkja hin hreina, beina lína og hinn tæri, skýrt afmarkaði flötur. Verkin eru öll gerð í grafik og margir listamannanna eru líka frægir fyrir kúnst sína, m.a. Jan Dibbets, Ger- hardt von Graevenitz og Ad Dekkers, en alls eru þeir 10. Teikningar geðsjúklings Síðan getur áhorfandinn labbað sig yfir í austurhluta hússins og gjóað augum í leiðinni að skipulagssýning- unni umdeildu sem komið hefur verið fyrir í austurgangi og er hún eiginlega fimmta sýningin á staðnum. í Kjarvalssalnum var verið að hengja upp verk eftir sérstæðan sænskan listamann, Carl Frederik Hill (1849— 1911) og voru þar m.a. að verki full- trúi listasafnsins í Malmö, Göran Christensen og sendiráðsritari Svía, Esbjörn Rosenblad. Verkin eru ein- mitt í eigu safnsins í Malmö en sendi- ráð Svía og Svenska Institutet höfðu milligöngu um það að þau kæmu hingað til lands. Hill þjáðistaf geðsjúkdómi siðustu 30 ár ævi sinnar og var þá ýmist á sjúkrahúsum eða i einangrun heima hjá sér, hélt þó ávallt áfram að teikna. Mikið er til af teikningum eftir Hill frá þessu tímabili og hafa þær vakið mikla athygli síðari tíma' manna fyrir óbeislað hugarflug teikn- arans og tæknigetu. I einangrun sinni fer Hill ýmsar þær leiðir í Iist- inni sem eru býsna nærri því sem nú- tima myndlistarmenn tóku upp löngu síðar. Hafa jafnvel verið uppi tilgátur um það að Píkassó hafi orðið fyrir áhrifum af teikningum Hills er þær voru sýndar í París snemma á öld- inni. Allt um það er sýningin stórmerki- leg og verður opnuð kl. 14. Þrjár sýn- ignar hússins verða opnar til 15. febrúar en sýningu Vetrarmyndar lýkur 1. febrúar. - AI Göran Christenven, starfsmaöur listasafnsins i Malmö, heldur hér á einni teikn- inga Carls Frederik llill. Evrópuleikur Víkings og Lugi á sunnudag: MEGA EKKIVANMETA LUGI —eru vamaðarorð Jóhanns Inga Gunnarssonar til Víkinga „Þetta verður uppgjör tveggja áþekkra liða og ég tel helmingslíkur á því að Víkingur hafi vinninginn og komist áfram í fjögurra liða úrslit Evrópukeppninnar,” sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrverandi lands- liðsþjálfari, aðspurður um möguleika Víkings í leikjunum við sænsku meistarana Lugi. Fyrri leikurinn verður kl. 20.00 á sunnudag í Laugar- dalshöll. „Svíar eru þekktir fyrir gífurlega seiglu og því mega Víkingarnir alls ekki vanmeta Lugi i fyrri leiknum í Laugardalshöll,” sagði Jóhann. „Sænsk lið leika alltaf bezt þegar Hilmar Björnsson, Undsliðsþjálfarl. mikið er í húfi, það gerir sænska stoltið. Víkingarnir verða að ganga inn á völlinn með því hugarfari að ef_ hver og einn leikmaður gerir sitt bezta eru sigurmöguleikar fyrir hendi, annars ekki. Liðið verður að leika yfirvegaðogántaugaspennuog Wadmark og hans gerðum í Víkings- málinu má ekki blanda saman við þennan leik.” Jóhann lngi þekkir vel til sænsks handknattleiks. „Lugi var topplið í sænskum handknattleik í fyrra en hefur átt erfitt uppdráttar t sænsku deildar- keppninni i vetur. En samkvæmt nýj- um fréttum frá Sviþjóð er Lugi aftur á uppleið og hefur unnið nokkra leiUi í röð. Þetta er ungt og skemmtilegt lið sem leikur fremur hraðan hand- bolta og beitir hraðaupphlaupum. mikið. Ribendahl er burðarás liðsins, einn bezti ef ekki bezti leikmaðurinn i sænskum handbolta um þessar mundir, mikil skytta og gegnum- brotsmaður. Þjálfarinn Bertil Andersen hefur náð frábærum árangri með Lugi og landsliðið, hann stjórnaði t.d. sænska landsliðinu í B-heims- meistarakeppninni i Austurríki 1977, sem Svíarnir unnu. Ég tel hann bezta þjálfara Svía í dag. Ég tel líka að Bogdan Víkingsþjálfari sé bezti þjálfarinn sem nú starfar hér á landi og það má því segja að þarna mætist lið beztu þjálfaranna í hvoru landi. Ég vil að lokum hvetja fólk til að koma í Höllina og sjá leik Víkings og Lugi, sem ég vona að verði bæði spennandi og vel leikinn.” íþróttir Jóhann Ingi Gunnarsion, fyrrum landsliðsþjálfari. Ribendahl skæður leikmaður „Lugi hefur verið í mikilli sókn undanfarið. Eftir fremur slæma byrjun hefur liðið unnið hvern leik- inn á fætur öðrum. Lugi er dæmigert sænskt lið — leikur yfirvegað og sóknir liðsins eru langar. En Lugi hefur innan sinna vébanda sænska landsliðsmanninn Claes Ribendahl og hann hefur skorað flest mörk í sænsku Allsvenskan. Ákaflega sterk- ur leikmaður og skorar mörg marka sinna með gegnumbrotum, auk þess að hann tekur vítaköst liðsins. Vík- ingar verða að vara sig á honum,” sagði Hilmar Björnsson, þjálfari islenzka landsliðsins, en hann lék sem kunnugt er með sænska liðinu Hellas fyrir nokkrum árum. „En Lugi hefur átt við sín vanda- mál að stríða. Ribendahl hefur stundað námvið íþróttakennaraskól- ann i Stokkhólmi og þvt ekki getað æft með liðinu sem skyldi. Þá átti Lugi i markmannsvandræðum framan af vetri. Ungur leikmaður, Mats Ollson, hefur staðið í markinu og framan af átti hann misjafna leiki. En hann hefur mjög sótt sig og er nú þriðji markvörður i sænska landslið- inu. Þá verða Víkingar að vara sig á stóru oröunum — því með þeim auka jreir á innri spennu og það gæti komið niður á leik liðsins. Víkingar verða að leika eins og þeir eru vanir og vera ekki of bráðir. Umfram allt mega þeir ekki ofmeta sig. Lexian frá I fyrra er enn í fersku minni þegar sænsku bikarmeistararnir Heim slógu Víking út úr Evrópukeppni. Þó Víkingar hafi slegið ungversku meistarana Tatabanya út þá verða þeir að hafa það hugfast, að sænska liðið er mjög erfitt viðfangs og þeir verða því að ná toppleikjum til að komast áfram,” sagði Hilmar enn- fremur. LANGHOl.TSKIRKJA: Barnasamkoma kl. II Söngur. sögur. myndir. Ciuðshjónusta kl. 2. Orgunkik ari Jón Stefánsson. Sr. Sig. Haukur Guðjónsson. I.AUGARNKSKIRKJA: Barnaguðshjónusta kl. II. Messa kl. 2. Þriðjudagur 20. jan.: Bænaguðshjónusta kl. 18 og æskulýðsfundur kl. 20.30. Sóknarprestur. NKSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10.30. Messa kl. 14. Orgel- og kórstjórn Rcynir Jónasson. Sr. Guð mundur Óskar Ólafsson. Kirkjukaffi. og munið hæna guðshjónustur á fimnuudagskvöldum kl. 20.30 og félagsstarf aldraðra á laugardögum i safnaðarheimil inu kl. 3—5. SKLJASÓKN: Barnaguðshjónusta i Olduselsskóla kl. 10.30 árd. Barnasamkoma aö Seljabraut 54 kl. 10.30 árd. Guðshjónusta að Seljabraul 54 kl. 2 e.h. Sant eiginlcg samkoma safnaöanna i Brciðholti nk. mið vikudagskvöld kl. 20.30 aö Seljabraut 54. Sóknar prestur. SK.LTJARNARNK.SSÓKN: G.uðshjónusta kl. II árd. i félagsheimilinu. Sr. Frank M. Halldórsson. KRÍKIRKJAN í RK.YKJAVÍK: Messa kl. 2 Organ leikari Sigurður ísólfsson. Prcstur sr. Kristján Róbcrtsson. HAKNARKJARÐARKIRKJA: Fjölskylduguðshjón- ustakl. 14. Sóknarprestur. KÍLADKLKÍA: Safnaðarguðshjónusta kl. 14. Almcnn guðshjónusta kl. 20. Félagar úr Gideon sjá um guðs hjónustuna. KIRKJA ÖHÁDA SAKNÐARINS: Mcssa kl 14 sunnudag. Kaffiveitingar i Kirkjubæcftir niessu tilcfl ingar Bjargarsjóði. KKFLAVlKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl II Munið skólabilinn. Bænaguðshjónusta kl. 14 i tilcfni af alhjóðlegri bænaviku. Kirkjustarf Óháði söfnuðurinn Veízlukaffi verður i Kirkjubæ eftir messu nk. sunnu dag lil styrktar Bjargarsjóði. Sýningar Listasötn LISTMUNAHÓSIÐ, Lækjargðtu 2: Engin sýning um helgina. DJÓPIÐ, Hafnarstræti (Hornið): A. Paul Wcber. steinprent. frá ýmsum timum. Opnar laugardag kl. 15. Opið 11 —23 til mánaðarmóta. mynd að Kjarvalsstöðum. Hér er verk eftir hann af bandarfskum sérvitringi.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.