Dagblaðið - 16.01.1981, Qupperneq 4
16
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1981.
Hvað er á seyðium helgina?
Fjórar sýningar og fjörutíu listamenn
mikið um að vera að Kjarvalsstöðum um helgina
Hjónin Leifur Breiðfjörð oj> Siuríður Jóhannsdóttir hafa unnið vefnað i samein-
ingu fvrir sýningu Vetrarmvndar.
Það var ys og þys að Kjarvals-
stöðum er blaðamenn komu þar til að
fylgjast með uppsetningu fjögurra
myndlistarsýninga, bæði í sölum
hússins og göngum. Eru þetta jafn-
framt fyrstu sýningar hússins á þessu
ári.
í vestursal virtist mikill mannfjöldi
að störfum. Þarna voru nefnilega 11
aðstandendur sýningarinnar Vetrar-
mynd sem nú koma saman í þriðja
sinn til að sýna verk sín um miðjan
vetur. Listamennirnir eru afar ólíkir:
málarar, nýlistarmenn, teiknarar,
vefarar, leirkerasmiðir o.fl. enda er
stefna hópsins sú að sýna fjölbreytt
verk og endurnýja þátttakendur
stöðugt. Þarna sýna Baltasar, Bragi
Hannesson, Einar Þorláksson.
Haukur Dór, Hringur Jóhannesson,
Leifur Breiðfjörð, Magnús Tómas-
son, Níels Hafstein, Sigríður
Jóhannsdóttir, Sigurður örlygsson
og Þór Vigfússon. Þeir Vetrarlista-
menn opna svo sýningu sína á laugar-
dag kl. 15.
Skart og graf ík
Þegar út á ganginn kom, var þar
fyrst fyrir sýning á skartgripum frá
Hollandi, í þartilgerðum og hugvits-
samlega hönnuðum sýningarkössum
sem henta einnig til flutninga. Skart
þetta er næsta óvenjulegt, bæði að
efni og útliti. Þarna eru að vísu gripir
úr silfri og kopar, en einnig úr áli og
plasti og sýnist mér sem hönnuðirnir
19 sem að sýningunni standa hafi
leitaö hugmynda bæði í vísindum og
verkfræði.
Næst verður á vegi skoðandans
önnur hollenzk sýning, Grafík frá
landi Mondrians og á heitið við þá
listamenn í Hollandi sem halda til
streitu geómetrískum ígrundunum og
flatarmálsfræði ýmiss konar, i anda
þess sem Mondrian gerði forðum
daga og varð heimsfrægur fyrir.
Þarna ríkja hin hreina, beina lína og
hinn tæri, skýrt afmarkaði flötur.
Verkin eru öll gerð í grafik og margir
listamannanna eru líka frægir fyrir
kúnst sína, m.a. Jan Dibbets, Ger-
hardt von Graevenitz og Ad Dekkers,
en alls eru þeir 10.
Teikningar
geðsjúklings
Síðan getur áhorfandinn labbað sig
yfir í austurhluta hússins og gjóað
augum í leiðinni að skipulagssýning-
unni umdeildu sem komið hefur
verið fyrir í austurgangi og er hún
eiginlega fimmta sýningin á staðnum.
í Kjarvalssalnum var verið að hengja
upp verk eftir sérstæðan sænskan
listamann, Carl Frederik Hill (1849—
1911) og voru þar m.a. að verki full-
trúi listasafnsins í Malmö, Göran
Christensen og sendiráðsritari Svía,
Esbjörn Rosenblad. Verkin eru ein-
mitt í eigu safnsins í Malmö en sendi-
ráð Svía og Svenska Institutet höfðu
milligöngu um það að þau kæmu
hingað til lands.
Hill þjáðistaf geðsjúkdómi siðustu
30 ár ævi sinnar og var þá ýmist á
sjúkrahúsum eða i einangrun heima
hjá sér, hélt þó ávallt áfram að
teikna. Mikið er til af teikningum
eftir Hill frá þessu tímabili og hafa
þær vakið mikla athygli síðari tíma'
manna fyrir óbeislað hugarflug teikn-
arans og tæknigetu. I einangrun
sinni fer Hill ýmsar þær leiðir í Iist-
inni sem eru býsna nærri því sem nú-
tima myndlistarmenn tóku upp löngu
síðar. Hafa jafnvel verið uppi tilgátur
um það að Píkassó hafi orðið fyrir
áhrifum af teikningum Hills er þær
voru sýndar í París snemma á öld-
inni.
Allt um það er sýningin stórmerki-
leg og verður opnuð kl. 14. Þrjár sýn-
ignar hússins verða opnar til 15.
febrúar en sýningu Vetrarmyndar
lýkur 1. febrúar. - AI
Göran Christenven, starfsmaöur listasafnsins i Malmö, heldur hér á einni teikn-
inga Carls Frederik llill.
Evrópuleikur Víkings og Lugi á sunnudag:
MEGA EKKIVANMETA LUGI
—eru vamaðarorð Jóhanns Inga Gunnarssonar til Víkinga
„Þetta verður uppgjör tveggja
áþekkra liða og ég tel helmingslíkur á
því að Víkingur hafi vinninginn og
komist áfram í fjögurra liða úrslit
Evrópukeppninnar,” sagði Jóhann
Ingi Gunnarsson, fyrrverandi lands-
liðsþjálfari, aðspurður um möguleika
Víkings í leikjunum við sænsku
meistarana Lugi. Fyrri leikurinn
verður kl. 20.00 á sunnudag í Laugar-
dalshöll.
„Svíar eru þekktir fyrir gífurlega
seiglu og því mega Víkingarnir alls
ekki vanmeta Lugi i fyrri leiknum í
Laugardalshöll,” sagði Jóhann.
„Sænsk lið leika alltaf bezt þegar
Hilmar Björnsson, Undsliðsþjálfarl.
mikið er í húfi, það gerir sænska
stoltið. Víkingarnir verða að ganga
inn á völlinn með því hugarfari að ef_
hver og einn leikmaður gerir sitt
bezta eru sigurmöguleikar fyrir
hendi, annars ekki. Liðið verður að
leika yfirvegaðogántaugaspennuog
Wadmark og hans gerðum í Víkings-
málinu má ekki blanda saman við
þennan leik.”
Jóhann lngi þekkir vel til sænsks
handknattleiks.
„Lugi var topplið í sænskum
handknattleik í fyrra en hefur átt
erfitt uppdráttar t sænsku deildar-
keppninni i vetur. En samkvæmt nýj-
um fréttum frá Sviþjóð er Lugi aftur
á uppleið og hefur unnið nokkra leiUi
í röð. Þetta er ungt og skemmtilegt
lið sem leikur fremur hraðan hand-
bolta og beitir hraðaupphlaupum.
mikið. Ribendahl er burðarás liðsins,
einn bezti ef ekki bezti leikmaðurinn i
sænskum handbolta um þessar
mundir, mikil skytta og gegnum-
brotsmaður.
Þjálfarinn Bertil Andersen hefur
náð frábærum árangri með Lugi og
landsliðið, hann stjórnaði t.d.
sænska landsliðinu í B-heims-
meistarakeppninni i Austurríki
1977, sem Svíarnir unnu. Ég tel hann
bezta þjálfara Svía í dag. Ég tel líka
að Bogdan Víkingsþjálfari sé bezti
þjálfarinn sem nú starfar hér á landi
og það má því segja að þarna mætist
lið beztu þjálfaranna í hvoru landi.
Ég vil að lokum hvetja fólk til að
koma í Höllina og sjá leik Víkings og
Lugi, sem ég vona að verði bæði
spennandi og vel leikinn.”
íþróttir
Jóhann Ingi Gunnarsion, fyrrum
landsliðsþjálfari.
Ribendahl skæður leikmaður
„Lugi hefur verið í mikilli sókn
undanfarið. Eftir fremur slæma
byrjun hefur liðið unnið hvern leik-
inn á fætur öðrum. Lugi er dæmigert
sænskt lið — leikur yfirvegað og
sóknir liðsins eru langar. En Lugi
hefur innan sinna vébanda sænska
landsliðsmanninn Claes Ribendahl
og hann hefur skorað flest mörk í
sænsku Allsvenskan. Ákaflega sterk-
ur leikmaður og skorar mörg marka
sinna með gegnumbrotum, auk þess
að hann tekur vítaköst liðsins. Vík-
ingar verða að vara sig á honum,”
sagði Hilmar Björnsson, þjálfari
islenzka landsliðsins, en hann lék sem
kunnugt er með sænska liðinu Hellas
fyrir nokkrum árum.
„En Lugi hefur átt við sín vanda-
mál að stríða. Ribendahl hefur
stundað námvið íþróttakennaraskól-
ann i Stokkhólmi og þvt ekki getað
æft með liðinu sem skyldi. Þá átti
Lugi i markmannsvandræðum
framan af vetri. Ungur leikmaður,
Mats Ollson, hefur staðið í markinu
og framan af átti hann misjafna leiki.
En hann hefur mjög sótt sig og er nú
þriðji markvörður i sænska landslið-
inu.
Þá verða Víkingar að vara sig á
stóru oröunum — því með þeim auka
jreir á innri spennu og það gæti
komið niður á leik liðsins. Víkingar
verða að leika eins og þeir eru vanir
og vera ekki of bráðir. Umfram allt
mega þeir ekki ofmeta sig. Lexian frá
I fyrra er enn í fersku minni þegar
sænsku bikarmeistararnir Heim
slógu Víking út úr Evrópukeppni. Þó
Víkingar hafi slegið ungversku
meistarana Tatabanya út þá verða
þeir að hafa það hugfast, að sænska
liðið er mjög erfitt viðfangs og þeir
verða því að ná toppleikjum til að
komast áfram,” sagði Hilmar enn-
fremur.
LANGHOl.TSKIRKJA: Barnasamkoma kl. II
Söngur. sögur. myndir. Ciuðshjónusta kl. 2. Orgunkik
ari Jón Stefánsson. Sr. Sig. Haukur Guðjónsson.
I.AUGARNKSKIRKJA: Barnaguðshjónusta kl. II.
Messa kl. 2. Þriðjudagur 20. jan.: Bænaguðshjónusta
kl. 18 og æskulýðsfundur kl. 20.30. Sóknarprestur.
NKSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10.30. Messa kl.
14. Orgel- og kórstjórn Rcynir Jónasson. Sr. Guð
mundur Óskar Ólafsson. Kirkjukaffi. og munið hæna
guðshjónustur á fimnuudagskvöldum kl. 20.30 og
félagsstarf aldraðra á laugardögum i safnaðarheimil
inu kl. 3—5.
SKLJASÓKN: Barnaguðshjónusta i Olduselsskóla kl.
10.30 árd. Barnasamkoma aö Seljabraut 54 kl. 10.30
árd. Guðshjónusta að Seljabraul 54 kl. 2 e.h. Sant
eiginlcg samkoma safnaöanna i Brciðholti nk. mið
vikudagskvöld kl. 20.30 aö Seljabraut 54. Sóknar
prestur.
SK.LTJARNARNK.SSÓKN: G.uðshjónusta kl. II
árd. i félagsheimilinu. Sr. Frank M. Halldórsson.
KRÍKIRKJAN í RK.YKJAVÍK: Messa kl. 2 Organ
leikari Sigurður ísólfsson. Prcstur sr. Kristján
Róbcrtsson.
HAKNARKJARÐARKIRKJA: Fjölskylduguðshjón-
ustakl. 14. Sóknarprestur.
KÍLADKLKÍA: Safnaðarguðshjónusta kl. 14. Almcnn
guðshjónusta kl. 20. Félagar úr Gideon sjá um guðs
hjónustuna.
KIRKJA ÖHÁDA SAKNÐARINS: Mcssa kl 14
sunnudag. Kaffiveitingar i Kirkjubæcftir niessu tilcfl
ingar Bjargarsjóði.
KKFLAVlKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl II
Munið skólabilinn. Bænaguðshjónusta kl. 14 i tilcfni
af alhjóðlegri bænaviku.
Kirkjustarf
Óháði söfnuðurinn
Veízlukaffi verður i Kirkjubæ eftir messu nk. sunnu
dag lil styrktar Bjargarsjóði.
Sýningar
Listasötn
LISTMUNAHÓSIÐ, Lækjargðtu 2: Engin sýning
um helgina.
DJÓPIÐ, Hafnarstræti (Hornið): A. Paul Wcber.
steinprent. frá ýmsum timum. Opnar laugardag kl. 15.
Opið 11 —23 til mánaðarmóta.
mynd að Kjarvalsstöðum. Hér er verk eftir hann af
bandarfskum sérvitringi.