Dagblaðið - 04.02.1981, Side 8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1981.
d
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
9
Ekkert lát á hörmungum f lóttafólks frá Víetnam:
SJORÆNINGJAR UPPIVOÐSLU-
SAMARIEN NOKKRU SINNI
— Bátafólkið svonefnda verður fyrir stöðugum árásum sjóræningja
misþyrmt og öllu fémætu stolið
Konum er nauðgað, körlum
Árásir sjóræningja á vietnamskt
bátafólk á Thailandsflóa virðast vera
að aukast og verða ennþá grófari,
eftir skýrslu Sameinuðu þjóðanna
um málið að dæma, en hún er byggð
á miklum fjölda frásagna víet-
namskra flóttamanna í flóttamanna-
búðum í Thailandi.
Margir flóttamenn sem komið hafa
til Songkhla í Thailandi hafa sagt frá
árásum sem bátar þeirra hafi orðið
fyrir, stundum fleiri en einni sama
daginn. Sjóræningjarnir ræna öllu
gulli, peningum ogverðmæti, nauðga
konum og ungum stúlkum og mis-
þyrma karlmönnunum.
Etienne Paridant, einn af yfir-
mönnum hjálparstarfs Rauða kross-
ins, sagði í Kuala Lumpur snemma í
síðasta mánuði að meira en helm-
ingur þeirra báta sem legði upp frá
Víetnam með flóttafólk yrði fyrir
árásum sjóræningja.
Af næstum 350 bátum sem kæmu
til strandar Malasíu á fyrstu ellefu
mánuðum síðasta árs urðu um 250
fyrir árás vopnaðra ræningja. Til-
kynnt var um meira en 30 morð og
nauöganir áttu sér stað i meira en
fjórðungi tilfellanna. Paridant sagði
að varnir á hafinu væru öldungis
ófullnægjandi og hann hvatti til þess
að meira yrði gert til að tryggja
flóttafólkinu vernd. Varðskip sem
flóttamannahjálp Sameinuðu þjóð-
anna lét í té til að vernda flóttafólkið
á Thailandsflóa fyrir sjóræningjum
hefur komið að litlum notum að því
er einn af starfsmönnum flótta-
mannabúðanna i Songkhla segir.
Flóttamannahjálpin hefur bjargað
mörgum konum og ungum stúlkum
úr höndum sjóræningja á eyjunni
Kra sem er lítil óbyggð eyja um 80 km
fyrir norðan Songkhla. Starfsmenn
flóttamannahjálparinnar fara reglu-
lega til eyjarinnar Kra til að sækja
fórnarlömb sjóræningja.
Einn sjálfboðaliðanna sagði að
sumar stúlknanna hefðu sjóræningj-
arnir selt sem vændiskonur. ,,Það
sorglega er að eftir stuttan tíma
virðast sumar stúlkurnar hafa sætt
sig viðslíkt líf,” sagði hann.
Búðirnar 1 Songkhla, sem eru hinar
Margt flóttafólkið er rænt aleigu sinni á leiðinni yfir hafið.
sinn hefðu tveir sjóræningjar komið
flóttamanni sem hafði lofað þeim
gulli ef þeir flyttu fjölskyldu hans í
land. Þegar hann gat ekki innt
greiðsluna af hendi kröfðust þeir þess
að fá átján ára gamla dóttur hans
upp í skuldina. Þeir eru nú í haldi hjá
iögreglunni.
Þau fórnarlömb sjóræningjanna
sem kæra árásir til yfirvalda verða að
vera í búðunum þar til málinu er
lokið og það þýðir lengri bið eftir að
þau geti flutzt til þriðja lands.
í Malasíu hefur fram til þessa
aðeins eitt mál þessarar tegundar
verið höfðað. Það var gegn átta thai-
lenzkum sjómönnum fyrir vopnað
^ rán. Málaferlin stóðu í sexmánuði og
voru allir sýknaðir vegna formgalla í
rannsókn ákæruvaldsins.
Eina huggun flóttamannanna
siðasta hálfa mánuðinn er sú að
veðrið hefur verið mjög gott og norð-
austlæg vindátt þannig að bátarnir
hafa ekki verið nema tvo til fjóra
daga á leiðinní yfir hafið og það
hefur dregið verulega úr árásarhætt-
unni. Það hefur þó ekki orðið til þess
að draga úr athafnasemi sjóræningj-
anna því góða veðrið hefur aukizt um
allan helming. Meira en 500 flótta-
menn komu til Songkhla-búðanna i
janúarmánuði síðastliðnum og búizt
er við að fjöldi flóttafólksins í búð-
unum verði orðinn yfir átta búsund
um mitt ár. (reuteri
Mörg barnanna i flóttamannabúðunum hafa séö á eftir mæðrum sinum I hendur sjóræningjunum.
Af um 350 flóttabátum á ellefu fyrstu mánuðum slðasta árs urðu yflr 250 fyrir
árásum sjóræningja.
einu I Súður-Thailandi, hafa að
geyma meira en 5.500 flóttamenn
með sérstakri barnamiðstöð fyrir
meira en 100 börn og mörg þeirra
horfðu á eftir mæðrum sínum í
hendur sjóræningjunum.
Fjórtán ára gamalli stúlku í búðun-
um var bjargað eftir að hún hafði
verið með öðrum konum á eyjunni
Kra í fjóra daga. Þarna er líka sjö
mánaða gamall drengur sem missti
móður sína til sjóræningjanna.
Stúlkan fyrrnefnda fór frá Víetnam
með fleira flóttafólki fyrir tveimur
eða þremur mánuðum. Strax fyrsta
daginn á hafinu réðust sjóræningjar
á bátinn. Þeir fylgdu bátnum eftir I
meira en viku, nauðguöu konum og
stúlkum. Sumar þeirra voru síðan
teknar og fluttar til eyjarinnar Kra.
Starfsmenn flóttamannabúðanna
segja að ofbeldi sjóræningjanna sé
nú meira en þegar straumur flótta-
fólksins frá Víetnam byrjaði fyrir
alvöru árið 1978. „Þeir bera ekki
minnstu virðingu fyrir mannlegu
lífi,” sagði einn þeirra. Fram aö
þessu hafa aðeins sjö mál verið
höfðuð á hendur sjóræningjum
vegna árásar á flóttafólk. Marga
mánuði tók að ljúka sumum málun-
um vegna margvíslegra tafa i með-
ferö þeirra. Starfsmenn flóttamanna-
búðanna 1 Songkhla sögðu að eitt