Dagblaðið - 06.02.1981, Qupperneq 2
Æðarfuglinn byrjar varp f lok maí og varptíminn getur staðið yfir í 6—7 vikur.
Fuglinn verpir oftast i eyjum úti fyrir iandi og venjuiega 4—6 eggjum.
DB-mynd: R. Th.
ÆÐARVARP V® ÍSAFJARDARDJÚP
—sjónvarp laugardag kl. 21,40:
Myndin tekin í
ÆðeyogVigur
— úr þekktum, brezkum náttúrulífsmyndaf lokki
Brezk heimildarmynd úr hinum
svokallaða Survival-myndaflokki
verður á dagskrá sjónvarps á
morgun, laugardag. Myndin fjallar
um dúntekju og fuglalíf við ísa-
fjarðardjúp, aðallega í eyjunum þar,
Æðey og Vigur. Flokkur kvikmynda-
gerðarmanna frá BBC undir forystu
ungrar stúlku dvaldi hér á landi um
nokkurt skeið fyrir tveimur árum við
gerð þessarar myndar. Að sögn þýð-
andans, Jóns O. Edwald er þetta
skemmtileg mynd, „lítil og falleg”,
eins og hann orðaði það. Við höfum
oft áður séð í íslenzka sjónvarpinu
náttúrulífsmyndir úr Survivalmynda-
flokknum og eru þær yfirleitt vel
gerðar og vandaðar.
íslendingar hafa sjálfsagt haft
nytjar af æðarfuglinum frá upphafi
byggðar, bæði vegna eggja og dúns
og fyrr á tímum var hann drepinn til
matar. Dúntekja þótti góð hlunnindi
og þykir enn því æðardúnn er
verðmætur. Ekki komust menn þó
upp á að hreinsa dún eins vel og
skyldi, fyrr en á 19. öld.
Þulur með myndinni er Katrín
Árnadóttir.
-KMU.
Sjónvarp næsta vika • ••
innlend og erlend málefni á
líðandi stund. Umsjónarmenn Ög-
mundur Jónasson og Ingvi Hrafn
Jónsson.
Frank Sinatra fer með aðalhlut-
verkið I föstudagsmynd sjón-
varpsins en hún fjallar um lög-
reglumann sem falifl er að
rannsaka morð á syni auflugs
borgara.
22.00 Morðgátan. (The Detective).
Bandarísk bíómynd frá árinu
1968. Leikstjóri Gordon Douglas.
Aðalhlutverk Frank Sinatra og
Lee Remick. Lögreglumanninum
Joe Leland er falið að rannsaka
morð á syni auðugs borgara. Flest
bendir til að morðinginn sé
kunningi piltsins sem búið hafði
hjá honum um skeið. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
23.30 Dagskrárlok.
Laugardagur
14. febrúar
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
18.30 Leyndardómurinn. Breskur
myndaflokkur í sex þáttum fyrir
unglinga. Þriðji þáttur. Efni
annars þáttar: Prestinum berast
þær fregnir að eitt sinn hafi verið
mikill dýrgripur í kirkjunni —
kaleikurúr gulli;: en hann hvarf
endur fyrir löngu. Getur kaleik-
urinn forni verið á leyndum stað í
kirkjunni? Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.55 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Spitalalíf. Bandariskur gam-
anmyndaflokkur. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
21.00 Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Þriðji þáttur undanúrslita. Kynnt
verða sex lög. Tiu manna hljóm-
sveit leikur undir stjórn Magnúsar
Ingimarssonar. Söngvarar eru
Björgvin Halldórsson, Haukur
Morthens, Helga Möller, Jóhann
Helgason, Pálmi Gunnarsson og
Ragnhildur Gísladóttir. Kynnir
Egill Ólafsson. Umsjón og stjórn
upptöku Rúnar Gunnarsson.
Laugardaginn 14. febrúar verflur á
dagskrá sjónvarps brezk gaman-
mynd frá árinu 1953 með Charles
Laughton í aðalhlutverki. Á
myndinni er Laughton i hlutverki
Hinriks VIII í kvikmynd frá árinu
1933.
21.40 Tengdasynir óskast s/h.
(Hobson’s Choice). Bresk gaman-
mynd frá 1953. Leikstjóri David
Lean. Aðalhlutverk Charles
Laughton, Brenda de Banzie og
John Mills. Henry Hobson er eig-
andi skóverslunar og kominn vel í
álnir. Hann á þrjár dætur og sér
sú elsta um viðskiptin fyrir hann.
Yngri dæturnar eru orðnar gjaf-
vaxta og Hobson hyggst velja fyrir
þær eiginmenn, en þá tekur elsta
dóttir hans ráðin i sínar hendur.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
23.05 Dagskrárlok.
Sunnudagur
15. febrúar
16.00 Sunnudagshugvekja. Séra
Valgeir Ástráðsson, prestur í
Seljasókn, flytur hugvekjuna.
16.10 Húsið á sléttunni. Vorferð. —
síðari hluti. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
17.05 Ósýnilegur andstæðingur.
Leikinn heimildamyndaflokkur í
sex þáttum um menn, sem á
siðustu öld grundvölluðu nútíma-
læknisfræði með uppgötvunum
sínum. Þriðji þáttur fjallar um
baráttu Pasteurs og Kochs við
miltisbrandinn og uppgötvun
bóluefnis gegn honum. Þýðandi
Jón O. Edwald.
18.00 Stundin okkar. Farið er í
heimsókn í álverið i Straumsvík,
flutt atriði úr sýningu Brúðu-
bilsins í Reykjavik sl. sumar og
talað við Sigríði Hannesdóttur og
Pétur páfagauk. Krakkar úr Ár-
bæjarskóla flytja leikþátt um
bónorð fyrr og nú. Fluttur verður
seinni hluti teiknisögunnar um
Tomma og snæálfana eftir Jónu
Axfjörð. Herra Latur og Binni
láta líka ljós sín skína. Umsjónar-
maður Bryndís Schram. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
18.50 Skiðaæfingar. Sjötti þáttur
endursýndur.— Þýðandi Eiríkur
Haraldsson.
19.20 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarpnæstuviku.
20.45 Leiftur úr listasögu. Mynd-
fræðsluþáttur. Umsjónarmaður
Björn Th. Björnsson.
Jón Ásgeirsson tónskáld verður
kynntur I þœttinum Tónlistar-
menn sunnudaginn 15. febrúar nk.
21.05 Tónlistarmenn. Egill Friöleifs-
son ræðir við Jón Ásgeirsson
tónskáld. Auk þeirra koma fram í
þættinum: Hamrahlíðarkórinn,
stjórnandi Þorgerður Ingólfs-
dóttir, Helga Ingólfsdóttir, ís-
lenski blásarakvintettinn, Sigríður
Ella Magnúsdóttir, Ólafur Vignir
Albertsson, Kór Langholtskirkju,
stjórnandi Jón Stefánsson. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
21.45 Broddborgarar. Nýr, breskur
framhaldsmyndaflokkur í átta
þáttum, byggður á sögum eftir
Nancy Mitford. Fyrsti þáttur.
Sagan gerist á árunum 1924—
1941, og lýsir breskri aðals-
fjölskyldu, lífsstíl hennar og
viðhorfum. Þýðandi Rannveig
Tryggvadóttir.
22.40 Dagskrárlok.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1981.
5ÆJARINS
ESTU
Stutt kynning á því athyglis-
verðasta sem kvikmyndahús
borgarinnar sýna
Midnight Express
Leikstjórí: Alan Parker
Leikendur Brad Davis, John Hurt, Randy Quaid o. fl.
Sýningarstaóur Stjörnubió
Midnight Express er vafalaust einhver ógeðfelldasta og áhrifa-
mesta kvikmynd, sem hefur verið sýnd hér lengi. Þetta er kvikmynd
sem lætur mann ekki ósnortinn. hvort sem manni líkar betur eða
verr. Ef litið er frámhjá fremur þunnu handriti. fullu af kynþátta-
hatri. þá stendur eftir mjög laglegt verk. Leikstjórinn, Aian Parker.
hefur gott vald á myndmálinu og leikurum. Myndin er vel leikin, sér-
staklega af aukaleikurunum, John Hurt og Randy Quaid. Midnight
Express er góð mynd sem auðvelt er að rnæla með. þrátt fyrir
minniháttar galla. Þetta er mynd sem vekur okkur til umhugsunar
um glæpi og refsingu, einnig er myndi'n góð fullorðinsafþreying.
Viðkvæmu fólki er ráðiagt sjónvarpið í stað Síjörnubíós.
The In-Laws
Leikstjóri: Arthur Hiller
Loikendur Peter Falk, Alan Arkin
Sýningarstaður Austurbœjarbíó
Austurbæjarbíó fylgir gamanmynd eftir með gantanmynd og víst er
að Peter Falk og Alan Arkin munu ekki bregðast fólki frekar en
Dudley Moore í „10". Það er engunt greiði gerður með þvi að lýsa
söguþræði „The In-Laws' en lianneri fáum orðunt skrautlegur farsi.
Því er ekki að neita að ittyndin er borin uppi af góðum leik Falk og
Arkin. Arkin leikur sína venjulegu taugaveikluðu millistóttartýpu. cn
þaðer hins vegar Peter Falk sem kentur ntanni verulega á óvart með
afburðaskemmtilegum leik. Mér segir svo hugur að ferill Falk i kvik-
myndum hafi verið verulega styttur nteð leik ltans í geldu sjónvarpi.
Leikstjóm „The In Laws” er i öruggum Itöndum Arthur Hiller („The
Silver Streak"), en stundum hefði hann mátt skerpa húntorinn tals-
vert. „The ln-Laws” er ágætis gamanmynd. borin uppi af góðunt
leikurum. en þvi miður er handritið ekki bitastætt og verða því suittir
kaflar myndarinnar verulega litið fyndnir og má nefna aftökuna i
lokin o.fl.
La Luna
Leikstjóri: Bernardo Bertolucci
Leikendun Jill Clayburgh, Matthow Barry, Tomas Milian
Sýningarstaður: Nýja Bió
Það fer alltaf viss fiðringur um mann að sjá nýjustu mynd uppáhalds
leikstjórans. miklar kröfur eru gerðar og hvað varðar invnd Berto-
lucci „La Luna". verða nokkur vonbrigði. Eftir að hafa gert stóra
epíska kvikmynd — 1900 — ákvað Berlolucci að finna sinn stíl aftur
óg hefur það að nokkru leyti tekist. Hér tekst liann á við samband
móður og sonar, og þrátt fyrir að margt sé vel unnið er eins og kaflar
myndarinnar séu óunnir. Bertolucci hefur sjálfur bent á áð hann sé að
nota nýja dramatiska frásagnartækni sem byggi á dramanu sjálfu en
ekki söguþræðinum. Dramatískir hápunktar atriða eru því ólikir þvi
sern við eigum að venjast. Nóg um það. Myndin er vel leikin af Jill
Clayburgh og sérstaklega af nýliðanum Matthew Barry. hann sýnir
óaðfinnanlegt öryggi i leik sínum. Eins og allar seinni ára Bertolueci
myndir er „La Luna" kvikmynduð listilega af Vittorio Storaro. Þeim
sem vilja sjá athyglisverðustu mynd sem sýnd hefur verið lengi er
bent á „La Luna". en hún er ekki allra manna lostæti og verður aldrei
uppáhaldsfæða min.
Kvik
myndir
ÚRN
ÞÓRISSON