Dagblaðið - 06.02.1981, Blaðsíða 5
17
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1981.
SIGRUN
JÓNSDÓTTIR
LEIKFÉLAG REYKJAVlKUR:Ötemjan,kl. 20.30.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Oliver Twist, kl. 15.
Könnusteypirinn pólitíski. kl. 20.
Leikbrúðuland
Sýning sunnudag kl. 15 að Fríkirkjuvegi 15: „Sálin
hans Jóns mins”. Miðar verða teknir frá i sima 15937
frá kl. 13 sama dag.
Pæld' í 'ðí og Utangarðs-
menn — hljómleikar og
leiksýning
Nasstkomandi sunnudag klukkan 20 býður Alþýðu-
leikhúsiö upp á tvöfalt prógramm i Hafnarfirði — hið
umdcilda unglingaleikrit Pæld’ í ’ðí ásamt Utangarðs
mönnum með Bubba Morthens í broddi fylkingar.
Pæld' í ’ði hefur nú verið sýnt yfir 40 sinnum í hart
nær öllum skólum á höfuðborgarsvæðinu og byggðar
lögunum í kring og hafa nú um 10.000 manns. aðal-
lega unglingar. séð sýninguna. Á næstunni eru svo
fyrirhugaðar leikferðir í fjarlægari byggðarlög. sú
fyrsta á Austfirði vikuna 9.— 13.f ebrúar.
Gum og Goo
Annað verkefni Talíu, leiklistarsviös Menntaskólans
við Sund, á þessu skólaári er einþáttungurinn Gum
og Goo eftir Howard Brenton. í október sl. framdi
hópur frá sviöinu heimatilbúna uppákomu á Kjar-
valsstöðum í tengslum við Hungurvöku. Og æfingar
eru hafnar á næsta verkefni sem er leikritið Erping-
hambúöirnar eftir Joe Orton, þýtt í hópvinnu af
nokkrum nemendum MT veturinn ’74-5. Auk þess-
ara verkefna er almenn tilsögn í leiklist tvisvar i
viku. Kennari á þessu námskeiði og leikstjóri i öllum
verkefnunum er Rúnar Guðbrandsson. Hann hefur
einnig þýtt einþáttunginn Gum og Goo sem verður
frumsýndur á Þorravöku skólans föstudagin 6. feb.
kl. 21.
Keppni í 1. deild handboltans lýkur um helgina:
FALLBARÁTTAN RÆÐUR
RÍKJUM í LOKALEIKJUNUM
„Við munum berjast til síðasta
blóðdropa,” sagði Axel Axelsson,
leikmaðurinn kunni í Fram, í sam-
bandi við leik Hauka og Fram í 1.
deild handknattleiksins hjá körlum.
Sá leikur verður í Hafnarfirði á
morgun, laugardag, kl. 14.00 og
hefur geysilega þýðingu fyrir bæði
lið. Enn er falldraugurinn yfirþyrm-
andi hjá báðum liðum. Haukar hafa
11 stig eftir 13 umferðir. Fram og KR
níu stig — Fylkir er fallinn í 2. deild.
Fram verður að sigra í leiknum í
Hafnarfirði á laugardag, annars
verður fallið niður í 2. deild sennilega
örlög liðsins. Fram hefur náð prýðis-
árangri í leikjum sinum að undan-
förnu, unnið Þrótt, Val og KR —
aðeins tapað fyrir meisturum Vík-
ings.Björgvin Björgvinsson hefur áti
hvern stórleikinn á eftir öðrum að
undanförnu en nú er hins vegar ekki
víst að Björgvin geti leikið gegn
Haukum. Á við meiðsli í fæti að
stríða. En Björgvin er flestum mönn-
um harðari og ef einhver möguleiki er
á því að hann geti leikið verður hann
með félögum sínum i leiknum þýð-
ingarmikla á laugardag. Haukum
nægir jafntefli í leiknum til að kom-
ast hjá falli.
Á sunnudag ki. 20.00 leika KR og
Fylkir í Laugardalshöll. í fyrri um-
ferðinni gerðu þessi lið jafntefli en nú
verða KR-ingar að ná í bæði stigin.
Gætu bjargað sér frá fallinu á ellefu
stigum. Alfreð Gíslason leikur með
KR á ný eftir langvarandi meiðsli en
ólíklegt að hann geti leikið á fullu.
Árbæjarliðið er fallið í 2. deild en
sýndi talsverð tilþrif í leikjum sínum
við Víking og Val í janúar. Leikmenn
liðsins koma afslappaðir til leiksins
en taugaspennan verður mikil i her-
búðum vesturbæjarliðsins.
Björgvin Björgvlnsson, flestum harð-
ari en þó vafl ó að hann geti leikið
gegn Haukum á laugardag.
Fyrstu sýningar á Gum og Goo eru föstudaginn 6.
feb. kl. 21.00, sunnudaginn 8. feb. kl. 20.30, þriðju-
daginn 10. feb. kl. 20.30, sunnudaginn 15. feb. kl.
20.30, mánudaginn 16. feb. kl. 20.30 og þriöju-
daginn 17. feb. kl. 20.30. Leikið er í Skálholti, sam-
komusal Skólafélags Menntaskólans við Sund, og er
gengið inn um kjallaradyr frá Ferjuvogi. Miðar eru
seldir í skólanum á virkum dögum kl. 12—2 og við
innganginn. Verð miða er krónur 5 fyrir meðlimi
LMF en 10 krónur fyrir aðra. Sýningin tekur 40
mínútur.
Leikendur: örbrún Guömundsdóttir, Sigríður
Anna Ásgeirsdóttir og Soffia Gunnarsdóttir. Leik-
stjóri og þýðandi: Rúnar Guðbrandsson.
Kvikmyndir
Kvikmyndir í
MÍR-salnum
UNESCO, Menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna.
hefur lýst árið 1981 Ár Dostoévskís i tilefni þess að á
þessu ári (9. feb.l er liðin rétt öld frá andláti hins
fræga rússneska skáldsog 160 ár frá fæðingu hans (11.
nóvember). Laugardaginn 7. febr. kl. 15 verður sýnd
stutt heimildarkvikmynd um Dostoévski i MÍR-saln-
um. Lindargötu 48. Einnig verður sýnd kvikmynd um
nokkra unga listamenn i Sovétrikjunum sem hafa
haslað sér völl i fremstu röð á sviði tónlistar og dans-
listar. — Aðgangur að kvikmyndasýningum i MÍR
salnum cr ókeypis og öllum heimill.
Spilakvöid
Skagfirðingafélagið
Félagsvist verðurspiluðsunnudaginn 8. febrúar kl. 14
í Drangey (félagsheimilinu). Byrjað verður á keppni
sem stendur yfir i fjögur skipti. Allir velkomnir.
i T
Aðalfundir
Samtök Svarfdælinga
í Reykjavik og nágrenni
Aðalfundur og spilavist Samtaka Svarfdælinga i
Reykjavik og nágrenni verður laugardaginn 7. fcbrúar
kl. 16 í Safnaðarheimili Langholtssafnaðar.
Mætum öll.
Stjórnin.
Fundir
Stórleikur í blakinu um helgina:
Blakrisarnir Þrótt-
ur og ÍS berast
á banaspjótum
—sigri Þróttur er óhætt að graf a nafn
liðsins á íslandsbikarinn
Mjög mikilvægur leikur verður í 1.
deild karla á íslandsmótinu í blaki
um helgina. Það er viðureign Þróttar
og ÍS. Liðin eru þau einu sem mögu-
leika eiga á sigri í mótinu en staða
Þróttar er þó ólíkt betri. Þróttur
hefur þegar lagt Stúdentana tvisvar í
mótinu í ár en fjórar umferðir eru
leiknarídeildinni.
Stúdentar hafa að undanförnu sýnt
öryggi í leikjum sínum og vaxandi
styrk. Hins vegar er eins og Þróttarar
séu í lægð um þessar mundir eftir frá-
bæra byrjun í mótinu í haust. Leikur
þeirra gegn Fram í janúar bar þess
ekki merki að þar væru verðandi
íslandsmeistarar á ferðinni. Stúd-
entar hafa á meðan sýnt hvern glæsi-
leikinn af öðrum — sama dag og
Þróttur var að rembast með Fram
möluðu Stúdentar t.d. Víkinga.
Margt bendir þvi til að ÍS muni veita
Þrótti harða keppni á sunnudag en
ieikur liðanna verður i Hagaskóia og
hefst kl. 14.45.
Fari hins vegar svo að Þróttur
vinni er óhætt að biðja gullsmið um
að grafa nafn liðsins í fslandsbikar-
inn því eitthvað mikið þarf að breyt-
ast áður en önnur lið fara að hirða
stig af Þrótti.
Á eftir stórleik Þróttar og ÍS leiða
saman hesta sína Fram og Vikingur.
Þar má einnig búast við spennandi
viðureign því liðin eru nú hnífjöfn og
í harðri baráttu um bronsið.
Ljóst er að enginn ætti að verða
svikinn af því að mæta í Hagaskólan-
um á sunnudag því þar verður leikið
blak eins og það gerist bezt á íslandi
nú.
-KMU
Kynningarfundur Málfreyju-
deildarinnar íris
Málfreyjudeildin Iris í Hafnarfirði verður með
kynningarfund laugardaginn 7. febrúar i Snekkjunni
Strandgötu 1— 3 kl. 14.30—17. Einsogkunnugterer
tilgangur starfsemi Alþjóðasambands málfreyja að
gefa konum tækifæri til að: þjálfa hæfileika til forystu,
auka hæfni sem áheyrandi og flytjandi. þjálfa skipu-
lagshæfileika. Öðlast þroska með þvi að byggja upp
sjálfstraust. ná meiri viðurkenningu i starfi og sam
félagi sem einstaklingur, vera þátttakandi í alþjóðlcg
um félagsskap sem starfar á fræðilegum grundvelli án
gróðasjónarmiða.
Við bjóðum allar konur velkomnar en þó sérstak-
lega konur frá Álftanesi. Garðabæ og Hafnarfirði.
Félag einstæðra foreldra
Fundur um skóladagheimilismál verður haldinn að
Hótel Heklu við Rauðarárstig laugardaginn 7.
febrúar kl. 14. Foreldrar barna á skóladagheimilum
eru sérstaklega hvattir til að mæta og taka börn sln
með. Gestir og nýir félagar eru vclkomnir.
Stórstúkan beitir sér fyrir
stórátaki gegn áfengisbölinu
Stórstúka íslands hefur nú boðað milli 30 og 40 félaga-
samtök til aö undirbúa stórátak í áfengismálum i
svipuðum dúr og gerzt hefur i Noregi og Svíþjóð. 1
framhaldi af þvi heldur stórstúkan útbreiðslufund i
Iðnaðarmannahúsinu í Keflavik á morgun. laugar
daginn 7. febrúar kl. 13.30. Klukkan 15 vcrður
almennur opinn fundur um áfengismál á sama stað.
Frummælandi verður Guðsteinn Þengilsson læknir.
Samkomur
Þorravaka í Mennta-
skólanum við Sund
Dagana 5.—1 l.febrúar verður haldin svokölluðþorra-
vaka i Menntaskólanum við Sund. Þessa viku fellur
öll kennsla niöur og vcröur skammt stórra högga á
milli hvað menningarviðburði snertir.
1 stað hins hefðbundna kennsluforms vinna nem-
endur og kennarar i hópum aö ýmiss konar vcrkefn-
um, allt eftir áhugasviðum hvers og eins. Hugmyndir
að verkefnum þessum komu frá nemendum og kenn-
urum sjálfum. Úr þessum hugmyndun vann svo sér-
stök nefnd og setti hún saman vallista sem innihélt
rúmlega hundrað verkefni. Nú hafa nemendur og
kennarar raðað sér niður og skipt í um 60 hópa. Þessa
viku munu hóparnir starfa að þessum verkefnum frá
kl. 8—17. Sem dæmi um fjölbreytni þessara verkefna
mætti t.d. nefna: kvikmyndagerð, hugrækt. drottn-
unarstefnu stórveldanna. fiskeldi og tónlistargrein
Jnm
uppákomur scm opnar eru almcnningi svo lengi scm
húsrúm leyfir.
Dagskráin um helgina verðursem hér segir:
Föstudagur: Kl. 21 Lciklistarsviðskólans. Talia. flytur
einþáttunginn Gum og Goo eftir Howard Brenton.
Opiðhús. Ýmsirskemmtikraftar.
Sunnudagur: Kl. 15 lrlandskynning. Ámi Berg
mann og fleiri kynna Irland og irska þjóðlagatónlist.
sýndar verða skuggamyndir og fleira áhugavert. Kl.
20.30 Gum og Goo. 2. sýning. Kl. 21.30 Hreyfilist.
HaukurogHörðurhreyfasig.
Mánudagur: Kl. 12.30 Gjörningar frá /nýlistadeikl
Myndlista- og handiðarkólans og Galleri SuðutRötu 7.
Miðvestrargleði í /
Félagsheimili Kópavogs
Skemmtun ve'ður haldintil fjárötlun.ir /fyrir hjiikr
unarhcimili aldraðra i Kópavogi a vcg”in kirkjufélags
DigranesprestiAalls. Miðsvetrargleðin v/rrður il élags
Jicimili Kópavogs (biósal) sunni/daginiT 8. febrúai nk.
kl. 15.30. Þcir scm halda uppi glcðinni verða: Guð
mundur Guðjónsson ásamt Sigfúsi Halldórssyni.
Sigriður Hannesdóttir ásamt Aagc Lorange, Grcttir
Björnsson, Stefania Pálsdóttir, Sigriður Magnúsdótlir.
barnakór, unglingakór og kvartett. Kynnir verður
Sigurður Grétar Guðmundsson. Aðgöngumiðar verða
seldir í Félagsheimilinu Ibiómegin) laugardaginn 7.
febrúar frá kl. 14—19 og sunnudag frá kl. 14. Sýnum
samstöðu. mætum öll og styrkjúm gott málefni.
Árshátíðir
Árshátíð Eskfirðinga- og
Reyðfirðingafélagsins
Árshátíð Eskfirðinga- og Reyöfirðingafélagsins verður
haldin i Domus Medica i kvöld, fösudagskvöld. Há-
tiðin hefst klukkan 20 með borðhaldi og skemmtiat
riðum. Þorramatur verður á boðstólum. Frá klukkan
10 til 3 um nóttina veröur stiginn dans.
Kvæðamannafélagið
Iðunn
heldur árshátíð sína föstudaginn 6. fcbrúar i Lindar-
bæ. Húsið vcrður opnað kl. 18.30. Þorramalur. góð
skemmtiatriði. Miðasala við innganginn en vinsamlcg-
ast tilkynnið þátttöku í sima 84649 og 11953 fyrir
fimmtudag. Félagar. fjölinennið og takið mcð ykkur
gcsti.
Árshátíð Átthagafélags
Snæfellinga og Hnappdæla á
Suðurnesjum
verður i Stapa-laugardaginn 7. febrúar nk. og hefst
rneð borðhaldi kl. 19. Heiðursgestir verða Guð^
mundur Jónsson og frú, Emmubergi. Tcx-sex Irió
skemmtir. Hljómsveit Ólafs Gauks leikur fyrir
dansi. Aðgöngumiðar verða seldir hjá Lárusi
Sumarliðasyni, Baldursgötu 8, s. Í278 þriðjudags-
kvöld frá kl. 20—22 og hjá Þorgils Þorgilssyni,
l.ækjargötu 6 A, s. 19276.
Ferðalög
Útivistarferðir
Sunnud. 8. febr. kl. 13: Fjöruganga á Kjalarnesi. létt
og góð ganga fyrir alla fjölskylduna. Verð 40 kr., fritt
fyrir börn með fullorðnum. Fariö frá BSl, vestan-
verðu.
Mynda- og skemmtikvöld verður þriöjudaginn 10.
febr. kl. 20.30 að Freyjugötu 27. Emil Þór sér um
kvöldið.
Iþrottir
Islandsmótið
í handknattleik
Föstudagur 6. feb.
íþróttahúsiö Akranesi
lA-lBK, 3. deild karlakl. 20.
FÖSTUDAGUR
Súlnasalur
Simi 20221
Einkasamkvæmi
Stjörnusalur
(Grillið)
Simi 25033
Opið alla daga.
Lœkjarh vammur /
Átthagasalur
Simi 26927
Einkasamkvæmi
Mímisbar
Opið frá kl. 19 til 03.
Bjarki Sveinbjörnsson
við pianóið.
LAUGARDAGUR
Súlnasalur
Sími 20221
Kvöldverður framreiddur
frá kl. 19. Hljómsveit
Ragnars Bjarnasonar og
María Helena leika til
kl. 03.
Lœkjarh vammur
Átthagasalur
Sírai 26927
Einkasamkvæmi
Mímisbar
Opið frákl. 19 tíl 03.
Bjarki Sveinbjörnsson
við hljóðfærið
SUNNUDAGUR
Súinasalur
Simi 20221
Samvinnuferðir,
skemmtikvöld.
Kvöldverður fram-
reiddur frá ki. 19.00.
Lœkjarh vammur /
Átthagasalur
Simi 26927
Lokað.
Mímisbar
Opiö frákl. 19 til 01.
Bjarki Sveinbjömsson
við hljóðfærið