Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 09.02.1981, Qupperneq 1

Dagblaðið - 09.02.1981, Qupperneq 1
7. ÁRG. — MÁNUDAGUR 9. FEBRÍIAR 1981 - 33. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. ALIGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 1 l.-AÐALSÍMI 27022. Fiskvinnslunnigérthærra fiskverö bærilegra: 2-4 PRÓSENT GENGIS- FELUNG ER LÍKLEG —„aðlagað meðalgengi", vegna hækkunar Bandaríkjadollars Stjórnmálamenn töldu i morgun líklegt, að gengi krónunnar yrði á næstunni fellt um 2—4 prósent. Það yrði „aðlagað meðalgengi” eins og komizt var að orði. Gengi krónunnar hefur verið bundið gengi Bandarikjadollars. Ríkisstjórnin ákvað um áramótin að halda genginu föstu gagnvart dollara- gengi fyrst um sinn. í fyrstu féll doll- arinn og krónan með gagnvart öðrum gjaldmiðlum, þannig að meðalgengi krónunnar féll, þegar allir gjaldmiðl- ar eru teknir. Síðan gerðist það í janúar, að dollarinn tók að hækka, og kom það á óvart miðað við fyrri reynslu. Með því hækkaði gengi krónunnar gagnvart öðrum gjald- miðlum en dollar, meðalgengið hækkaði í janúar um nærri tvö og hálft prósent. Nú er talið, að meðalgengið sé allt að fjórum prósentum fyrir ofan það, sem var um áramótin. Stjórnvðld álíta að með því að fella gengið nú megi koma til móts við fiskvinnsluna og gera 'henni bærilegra að þola hækkun fiskverðs. Því sé rétt að lækka gengi krónu og láta það fram- vegis fylgja meðalgengi að einhverju leyti frekar en að binda það rígfast við gengi dollars. Sú hætta er til staðar að hækkun á gengi dollars vari skamma hríð og hann fari aftur að falla gagnvart öðr- um gjaldmiðlum. Því telja sumir stjórnarliðar ráðlegt að gengisfelling- in verði ekki full fjögur prósent heldur eitthvað minni. Þetta er enn ófrágengið. - HH Eltingaleikur við ölvaðan og réttinda- lausan ökuþór Til nokkurs eltingaleiks kom við pilt á Lada-bifreið aðfaranótt laugar- dagsins. Veittu lögreglumennirnir at- hygli einkennilegu aksturslagi en er athuga Á«i4iverju þetta sætti vildi pilturinn helzt ekki við lögreglu- mennina tala. Barst leikurinn vestur á Sólarlags- braut en þar tókst að stöðva piltinn. Reyndist hann 16 ára gamall og hafði tekið bifreið föður síns traustataki til ökuferðarinnar. Pilturinn var einnig undir áhrifum áfengis. Siðustu tilraunina til undankomu gerði pilturinn með lögreglumenn hangandi utan á Ladabifreiðinni. Engan sakaði hins vegar. - A.St. Með strætó- miða fyrir 5000 kr. — eða hálfa milljón gkr.og 80-90 vindlingapakka á hlaupum undan lögreglunni Innbrotsþjófur sem lagði leið sína í söluskálann í gjánni í Kópavogi, reyndist haf troðið á sig 80—90 pökkum af vindlingum og í fórum hans fundust strætisvagnamiðar að- verömæti um 5000 kr. eöa um hálf milljóngkr. Lögreglumenn urðu þjófsins varir inni i söluskálanum þá er þeir voru á eftirlitsferð um Kópavog. Grunur leikur á að annar maöur hafi tekið þátt í innbrotinu. Sá fannst þó ekki á laugardagsnóttina. Rannsóknarlög- regla ríkisins fékk málið hins vegar til rannsóknar og kannar það nú. Innbrotsþjófurinn eöa þjófarnir fóru inn 1 söluskálann með þvl að brjóta stóra rúðu. - A.St. Skreytingameistari Stjörnumessunnar, Hendrik Berndsen I Blómum og ávöxtum, kom á laugardaginn heim frá Kaupmanna- höfii með japanskar kirsuberjagreinar, sem notaðar verða til skreytinga á Súlnasal á hátlðinni. „Þœr verða Ifullum blóma á fimmtudaginn og þá verður vor I Súlnasalnum, ” sagði Hendrik l morgun, þegar myndin var tekin af honum og einni aðstoðarstúlku hans, Unni Gunnarsdóttur. Hœstu greinarnar eru um þriggja metra háar — en skreytingar af þessu tagi hafa aldreifyrr sézt hér/endis. DB-mynd Einar Ótason. *' jfjá Stjömumessa ’81: Mikill kraftur f miðasölunni —dansað til kl. 2 að lokinni verðlaunaafhendingunni Aðeins fáir miðar eru nú óseldir á Stjörnumessuna, sem haldin verður á Hótel Sögu á fimmtudagskvöldið. Þeg- ar sala aðgöngumiðahófst þará laugar- daginn myndaðist fljótt biðröð og fóru tveir þriðju allra miða á fyrstu tuttugu mínútunum. Þeir miðar sem eftir eru, verða seldir á Sögu í dag og hefst miðasalan kl. 14. Undirbúningur á Sögu er löngu hafinn og í morgun var byrjað að koma þar fyrir umfangsmiklum ljósabúnaði, sem notaður verður á fimmtudags- kvöldið til að lýsa salarkynni, lista- mennina sem þar koma fram og gestina sjálfa. Reynsla undanfarinna ára sýnir, að síðustu sólarhringana fyrir Stjörnumessu er unnið við að leggja siðustu hönd á plóginn dag og nótt. Stjömumessa ’8J hefst á fimmtudagskvöldið kl. 19. Að loknu borðhaldi og verðlaunaafhendingu verður stiginn dans til klukkan tvö um nóttina. -óv/At. stöðvaði Guðstein „Auðvitað vonumst við eftir að eitthvað fari að gerast, en satt að segja heyrist litiö úr herbúðum út- vegsmanna,” sagði Óskar Vigfússon forseti Sjómannasambandsins i morgun. A miðnætti hófst áður boðað verkfall undirmanna á togurum og næstkomandi mánudag, 16. febrúar, er boðað verkfall á báta- flotanum hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. Togaravekfallið nær til svæðisins frá Snæfe'lsnesi til Hornafjarðar, að Vestmannaeyjum undanskildum. { Eyjum ætla sjómenn að efna til atkvæðagreiðslu um aðgerðir. Togarar frá öðrum stöðum á landinu stöðvast ekki, en þess má geta, að samningar togara- sjómanna á Vestfjörðum eru ekki lausir. Eitt landsfélag er þátttakandi i aðgerðunum, Vélstjórafélag íslands. Nokkir ngarar munu þvi stöðvast eingöngu vegna vélstjóraverkfalls. Útgerðarmenn hafa reynt að senda togarana á veiðar nú allra síðustu daga fyrir verkfall til að áhrifa þess gæti ekki fyrr en eftir viku—hálfan mánuð þegar þeir koma I höfn. Guðsteinn frá Hafnarfirði er þó þeg- ar stopp vegna verkfalls. Togarinn var í siglingu erlendis og hreppti hið versta veður á heimleiðinni. Af þeim sökum seinkaði heimkomunni um sólarhring og ekki tókst að gera skipið klárt í veiðiferð áður en verkfallskall á. -ARH. Fíkniefnamálið: Sáfimmtií gæzlu Fíkniefnamálið, sem lögreglan i Reykjavik hefur haft til rannsóknar undanfarnar vikur, verður stöðugt umfangsmeira. Á laugardaginn var ungur maður úrskurðaður í gæzlu- varðhald og var hann sá fimmti i þessu máli sem nú er í gæzlu vegna þess. Guðmundur Gígja hjá fikniefna- deild lögreglunnar i Reykjavlk færðist I morgun undan að skýra frá málinu i smáatriðum en sagöi að það velti talsvert upp á sig og næði orðið yfiralllangantima. -ÓY

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.