Dagblaðið - 09.02.1981, Page 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1981.
2
r
Er folk algjöriega réttiaust
—í viðskiptum sínum við tannlækna?
Hulda Pétursdóttir, Útkoti Kjalar-
nesi, skrifar:
Tannlæknar á íslandi eru ein bezt
launaða stétt þjóðfélagsins. Þess
vegna er mér spurn: Hafa þeir ekki
sömu skyldur gagnvart sjúklingunum
viðskiptvinum sinum og kaupmenn
og aðrir hafa gagnvart þeim er þeir
skipta við og verða þeir ekki að bera
hallann af gallaðri vöru?
Svo er mál með vexti að vinur minn
einn haföi hvorki getað neytt svefns
né matar í langan tíma vegna tann-
verks.
Hann fékk sér því frí i vinnunni
einn daginn og rölti til tannlæknis og
sagði sínar farir ekki sléttar. Læknir-
inn brást vel við og kippti skemmdu
tönnunum úr og bauðst til að smíða
nýjar. Á tilsettum tíma kom svo
vinur minn.borgaði það sem upp var
sett og gekk út glaður í bragði. En sú
gleði varaði ekki lengi því að fljótlega
kom á daginn að tennurnar þjónuðu
ekki hlutverki sínu. Tannlæknirinn
tók nú til sinna ráða og skóf og púss-
aði en ekkert dugði. Einn daginn
þegar vinur minn birtist í dyrunum
sem oftar sagði læknirinn: „Ég verð
að fóðra þær, þá ætti þetta allt að
lagast, en það verður þú að borga
aukalega.”
Verkamaðurinn vinur minn var nú
búinn að tapa svo mörgum vinnudög-
um á þeim fjórum mánuðum sem
hann hafði staðið í þessum eltingaleik
að hann hugði þetta beztu lausnina úr
því sem komið var. Síðan var tann-
gómurinn fóðraður og enn taldi
verkamaðurinn fram aura og gekk
glaður út með eilítið léttari buddu.
En ekki voru margir dagar liðnir
þegar allt sótti í sama horfið.
Munnur mannsins, þar sem tann-
gómurinn snerti hann, varð ein
bólguhella ef hann reyndi að nota
tennurnar. Þannig liðu nokkrir
mánuðir til viðbótar og læknirinn
réð ekki við neitt. Þá sagði hann vini
mínum að eina lausnin yrði að smíða
nýjar tennur og hann skyldi gefa
honum góðan afslátt.
Tíminn leið og einn daginn sótti
vinur minn tennurnar og þegar
læknirinn hafði skellt þeim upp í
hann, rétti hann fram reikninginn
sem var sá hæsti sem vinur minn
hafði séð frá tannlækni. Þó að hann
langaði til þess að mótmæla þessu og
spyrja um afsláttinn þá gat hann það
ekki fyrir klígju í hálsinum vegna
nýju tannanna en rétti lækninum þó
seðla sem hann hafði á sér og taldi að
þetta myndi kosta. Læknirinn var
ekki ánægður og vildi fá afganginn
strax næsta dag.
Sem sagt enginn afsláttur, heldur
þurfti maðurinn að borga fullt verð
fyrir tvo ganga af tönnum og eina
fóðringu, fyrir utan tanntökuna. Ég
segi og skrifa tvo ganga af tönnum og
eina fóðringu, fyrir utan tanntökuna
á tiu mánuðum.
Er þetta hægt, er fólk algjörlega
réttlaust?
V
A að lengja framtalsfrestinn
—vegna vaxtabreytinga?
Siggi flug skrifar:
Ég held að það sé rétt munað hjá
mér að það hefur fallið hæstaréttar-
úrskurður um það að leyfilegt taldist
vera að hið opinbera, ríkið, (gæti)
eða mætti leggja á skatta og þá
væntanlega gjöld eftir á, þótt búið sé
að leggja á skatta og gjöld fyrir
síðasta ár.
Þetta varð Hæstiréttur þó ekki
sammála um og skiluðu tveir dómar-
ar séráliti og töldu sköttun eftir á
ekki fást staðizt.
Þetta kom auðvitað eins og köld
gusa framan i flesta skattborgara, en
þannig vinnur þessi ríkisstjórn,
maður getur aldrei á hana treyst.
Ég hef hugboð um að eitthvað
svipað sé nú í aðsigi er fjármáíaráð-
herra, Ragnar Arnalds, tilkynnti
(óformlega þó) að liklega yrði að
framlengja skilafrest skattskýrsl-
unnar eitthvað fram yfir þ. 10. þ.m.
vegna einhverra vaxtabreytinga sem í
vændum væru í sambandi við frá-
drátt vaxta frá skatttekjum.
Eitthvað vefst þetta vaxtamál fyrir
blessuðum ráðherranum, en hanr
álítur að ákvæði hér að lútandi
komist varla í gegnuni þingið fyrir
10. þ.m. sem varla er von með þeim
vinnubrögðum sem þingið starfar
eftir.
Við bíðum og sjáum hvað
setur?????
Mér datt þetta (svona) í hug.
Verzlunarbankanum þakkað
Hjúkrunarfræðingur hringdi: Grensásdeild Borgarspítalans rjóma- sjúklingana, bæði tilbreytingin og
Á aldarfjórðungsafmæli sínu sl. tertur og kökur. Mér finnst þetta þaðað finna að munað er eftir þeim. '
miðvikudag sendi Verzlunarbanki Ís- bera vott um sérstaklega góðan hug Vil ég fyrir hönd allra hér færa
lands sjúklingum og starfsfólki á og var það mjög kærkomið fyrir Verzlunarbankanum alúðarþakkir.
Ragnar Arnalds fjármálaráðherra.
MEIRIHÁTTAR HUÓMPLÖTUÚTSALA
10 til 80% afsláttur
STORAR PLOTUR
FRÁ KR. 30,-
LITLAR PLÖTUR
FRÁ KR. 3
HELZTU ÚTGEFENDUR:
Fálkinn hf. iöunn
Hljómplötuútgáfan hf. Ýmir
i Steinar hf. Sólspil
L Geimsteinn Tónaútgáfan
SG-hljómp/ötur Mífa o.fí.
ATH.
ALLT /
AUar fáan/egar ís/enzkar hljómp/ötur.
Yfir 250 títíar. — Op/ð a//a þessa viku
föstudag 9—19, laugardag 9—12.
80%
AFSLÁTTUR
Ath.: Við gefum /andshyggðinni
kostá að vera með
Hæk}artorg
Hafnarstræti 22
2. hæð nýja SVR-húsinu við Lækjartorg.
Pöntunarsimi 53203 alla virka daga
kl. 10-13 og 19-20.
Sendum pöntunarlista ef óskað er.