Dagblaðið - 09.02.1981, Síða 3

Dagblaðið - 09.02.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1981. 3 Frá hljómleikunum, sem haldnir voru 1 minningu Lennons 1 Austurbæjarbfói 3. feb. sl. Frábærir tónleikar —í minningu Lennons Sólveig skrifar: listarmönnunum sem héldu minn- Mig langar til að óska öllum tón- ingartónleika um hinn alkunna snill- Sjónvarp: Sýnið myndina um J. Krishnamurti ing John Lennon heitinn til hamingju með stórkostlega tónleika. Tókst öllum þeim, sem að þeim stóðu, vel upp, ekki sizt okkar góða söngvara Pálma Gunnarssyni sem söng af mik- iili innlifun og hressileik. Einnig stóð hinn landskunni Magnús Kjartansson sig með prýði eins og allir aðrir sem þarna komu við sögu. Ég held að enginn sem fór á þessa tónleika hafi orðið fyrir vonbrigðum þar sem stemmning var mjög góð. Ég vil taka undir með mörgum öðrum og óska þess að tónleikarnir verði endur- teknir. Útvarp: Vel lesin saga — íMorgunstund bamanna Ein, sem hlustar á útvarp, skrifar: i Mig langar tii að minnast aðeins á söguna sem er verið að lesa 1 Morgun- stund barnanna eftir Hrafnhildi Val- garðsdóttur, Margt er brallað. Þetta er létt og skemmtileg saga og ]vel skrifuð, en væri hún svona skemmtileg ef hún vær-i ekki svona frábærlega lesin af Jónu Þ. Vern- harðsdóttur? Jóna setur sig inn í hlut- verk, að mér finnst, allra þeirra sem hún les um. Hún hefur líka skemmti- lega rödd og mjög góðan framburð. Ég vil þakka höfundinum, útvarp- inu og að sjálfsögðu Jónu fyrir þá miklu ánægju sem ég hef haft af ‘lestri þessarar sögu. Jóna Þ. Veraharflsdóttlr. SENDUM BÆKLINGA K. Þórðarson skrifar: Heyrzt hefur að Sjónvarpið ætli nú e.t.v. að sýna hina umdeildu mynd um J. Krishnamurti. Hér er vissulega um að ræða mynd sem margir hafa beðið eftir, enda er hér um að ræða vitrasta mann aldar- innar eins og oft er sagt, þegar minnzt er á Krishnamurti. Þá er einnig talað um það að hugsa raun- hæft og fordómalaust þegar minnzt er á kenningar hans. Sumir segja að kenningarnar iíkist ,,Zen”. Hér á landi var Krishnamurti kynntur í byrjun aldarinnar og boðuð koma hans sem mikils fræðara. Var félagið Stjarnan í austri stofnað í byrjun aldarinnar, en það starfaði víða um heim. Við tók núverandi félag, eða Krishnamurtisamtökin sem eru starfandi í mörgum löndum víðs vegar í heiminum og einnig hér. Seinni áratugi hefur verið hljótt um Krishnamurti hér á landi þar til ævi- sagan kom út fyrir þremur árum eins og kunnugt er. Vonandi fáum við nú að sjá og heyra hinn merka fræðara. Gerirðu skatt- kvrsluna sjálfur? Guflmundur Simonarson afgreiðslu- maflur: Nei, ég geri hana ekki sjálfur. Það er endurskoðandi sem gerir hana fyrir mig. Spurning dagsins Valdlmar Guflnason, Iflgg. endurskofl- andi: Já, það geri ég og geri hana líka fyrir marga aðra. Indrifli Jónsson sjómaflur: Nei, það er gert af endurskoðanda. ögmundur Guflmundsson loftskeyta- maður: Já, það geri ég sjálfur og hef næstum alltaf gert. Sveinbjöm BJarkason sölumaður: Nei, það er vinur minn sem gerir skattskýrsl- una fyrir mig. Ásfún Matthiasdóttir kennari: Já, ég hef alltaf gert skattskýrsluna sjálf.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.