Dagblaðið - 09.02.1981, Side 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1981.
Þjóðleikhúsið óskar
að ráða skipulagsstjóra
— lögfrá 1978 hafa ákvæði um slíkt starf en fjárveiting hefur ekki fengizt fyrr en nú
Þjóðleikhúsið hefur nýverið aug-
lýst eftir skipulagsstjóra og er um-
sóknarfrestur til næstu mánaðamóta.
Við slógum á þráðinn til Sveins
Einarssonar leikhússtjóra og spurð-
um hvort hér væri um nýtt starf að
ræða og hvers eðlis það væri.
„Starf sem þetta hefur vantað 1
þessu húsi frá upphafi,” sagði
Sveinn, ,,enda er það í öllum leikhús-
um af þessari stærðargráðu. Þegar ég
kom til leikhússins árið 1972 lá fyrir
alþingi frumvarp að nýjum leikhús-
lögum pg óskaði ég þá strax eftir að
inn í það kæmi ákvæði um skipu-
lagsstjóra. Var svo gert en það var
ekki fyrr en 1978 sem Alþingi sam-
þykkti þessi lög. Og fjárveiting til að
ráða slíkan starfsmann hefur ekki
fengizt fyrr en á þessu ári. ”
Sveinn sagði ennfremur að sam-
kvæmt þessum lögum ætti sá sem
ráðinn yrði í hina nýju stöðu að hafa
meö höndum skipulagningarstarf
innan leikhússins. Hann ætti að hafa
yfirumsjón með vinnuhagræðingu
hinna ýmsu deilda, fylgjast með inn-
kaupum, raða niður æfíngum og
æfmgatimum, skipuleggja leikferðir
innan bæjar og utan og annast starfs-
mannastjórn ásamt öðrum yfirmönn-
um hússins.
Starfssviðið verður
mjög fjölbreytt
Reynsla, sem mundi nýtast við
þetta verkefni, sagði þjóðleikhús-
stjóri, að gæti bæði verið vinna 1 leik-
húsi eða þá við skipulagsstörf í
öðrum fyrirtækjum. Og heppileg
undirbúningsmenntun væri einhver
fræðigrein þar sem þjálfun heföi
fengizt i skipulagsmálum, svo sem til
dæmis hagfræöi, viðskipta- eða
tæknifræði.
,,Á launaskrá hjá okkur eru suma
mánuði upp undir 250 manns,” sagði
Sveinn, ,,og mikilvægt að raða verk-
efnum þannig að tími hvers og eins
nýtistsembezt.”
Hann lagði áherzlu á að skipulags-
stjóri mundi bera ábyrgð á því að
ákvarðanir sem teknar væru kæmust
1 framkvæmd á þeim tima og fyrir
það fé sem ákveðið hefði verið.
„Starfssviðið verður fjölbreytt,”
sagði Sveinn og nefndi sem dæmi að
það gæti ýmist verið að fylgjast með
því að haldin væri kostnaðar- og
tímaáætlun fyrir búninga 1 einhverju
leikriti eða þá að skipuleggja leikför f
smáatriðum, annaðhvort um landið
eða tilútlanda.
Ekki væri fráleitt að hugsa sér að
þetta starf mundi einmitt hæfa Jóni
Viðari Jónssyni, sem undanfarið
hefur haldið uppi nokkurri gagnrýni
á skipulag Þjóöleikhússins og við
spurðum þjóðleikhússtjóra hvernig
umsókn af hans hálf u yrði tekið.
„Það yrði fjallað um hans umsókn
á nákvæmlega sama hátt og allra
annarra sem kunna að sækja,” svar-
aði þjóðleikhússtjóri, en ásamt þjóð-
leikhúsráði veitir hann þetta starf,
eins og flestar ábyrgðarstöður í hús-
inu. -IHH.
„®5Sfai
fr. „uí«iddir^V«tri> ,, .
m*ff$^'1*** iure»8»»sU"Í8,>' 8
0 f2.452.000 . arítWba Jj .
)0 - 1
Og sVO
ÓlafsYÍk:
Atvinnu-
ástand er
sæmilegt
— enginn skráður
atvmnulausfráárínu
1978
Vinna hefur verið sæmileg í öllum
fiskvinnslustöövunum sex í Ólafsvík.
Linubátar hafa komið með góðan
afla, t.d. Gunnar Bjarnason með 13
tonn og Garðar með 12 tonn. Neta-
bátar hafa verið með frá 3—7 tonn í
róðri. Enginn hefur verið skráður at-
vinnulaus á Ólafsvík frá því í marz
1978.
Togararnir báðir, Lárus Sveinsson
og Már, voru að koma úr siglingu.
Þeir seldu ekki vel enda mikið fram-
boð á fiski á mörkuðunum. Lárus fór
siðan út á mánudaginn og Már á
þriðjudaginn. Vinnustöðvun hefur
verið boðuð á togurum við Breiða-
fjörð frá og með deginum í dag og á
bátaflotanum frá 16. febrúar. Sem
formaður verkalýðsfélagsins hér er ég
óánægður með samstöðuleysi sjó-
mannafélaganna á landinu. Aðeins
hluti þeirra hefur boðað verkfall.
Það er ekki gott að sumir bíði og sjái
hvað út úr verkfallinu kemur.
-BárðurÓlafsvik.
Gufan ekki opnuð enn
íBreiðholtinu:
Sérsmíða
þarf hvíld-
arbekkina
— segjaarkitektar
Gufubað hefur ekki enn verið
opnað við hina nýju sundlaug í Breið-
holti. Breiöhyltingar töldu þó að þar
væri allt tilbúið. Hallgrimur Jónsson
sundlaugarstjóri var spurður að því.
„Það er ekki alveg rétt að allt sé til-
búiö. Klefarnir þarna niðrí voru
notaöir sem skiptiklefar fyrir börnin
þegar þau notuðu innisundlaugina.
Þar vantar nú bekki til þess aö hægt
sé að koma upp hvildaraðstöðu. Við
höfðum látiö okkur detta í hug að
kaupa einhverja bekki og setja þar
inn en það var ekki nógu fínt. Arki-
tektarnir vilja láta smiða sérstaka tré-
bekki sem er eflaust talsvert dýrara.
En ég held að þeir hljóti aö koma
bráöum og trúi þvi ekki að langt liði
um þar til gufubaðið hefur verið
opnað, ” sagði Hallgrimur. -DS.
Harflk bMafltuatrákar ttta troat
oo kuida akkl á slg fá.
DB-mynd Elnar ólaaon.
Nei takk ...
ég er á bflnúm