Dagblaðið - 09.02.1981, Síða 18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1981.
Iþróttir
Iþróttir
D
18
ð
Iþróttir
Iþróttir
Einvígi Ipswich og Aston
Villa um meistaratitilinn
—Sigruðu bæði á laugardag en meistarar Uverpool eru að falla út úr myndinni. Hafa aðeins hlotið fjögur
stig af síðustu tíu. Dýrlingarnir unnu sinn sjðunda deildasigur í röð
Keppnin um enska meistaratitilinn i
knattspyrnunni er nú afl þróast f algjört
einvigi milli Ipswich Town og Aston
Villa. Bæði lið sigruðu á laugardag en
meistarar Liverpool töpuðu enn einu
sinni. Eru alveg að detta út úr mynd-
inni, þó enn séu þeir i þriðja sæti.
Dýrlingar Southamptons og West
Bromwich Albion eru mun Ifklegri en
meistararnir til að gefa efstu liðunum
einhverja keppni. Dýrlingarnir unnu
sinn sjöunda sigur i röð á laugardag —
WBA hafði yfirburði i leik sinum gegn
Liverpool.
Athyglisverðastur var sigur Aston
Villa gegn EVerton á Goodison Park í
Liverpool — Birmingham-liðið komst
svo auðveldlega gegnum þann erfiða
leik. Lék oft frábæra knattspyrnu með
kantmanninn Tony Morley fremstan í
flokki. Það var Morley, sem skoraði
fyrsta mark leiksins eftir mikið einstak-
lingsafrek. Trevor Ross jafnaði fyrir
Everton úr umdeildri vítaspyrnu, en
fyrirliði Villa, Dennis Mortimer, náði
aftur forustu fyrir lið sitt. Staðan 1-2 i
hálfleik. í síðari hálfleiknum var aðeins
eitt mark skorað. Gary Shaw
var felldur innan vítateigs Everton og
Gordon Cowans skoraði úr vítaspyrn-
unni sem dæmd var. Aldrei vafi hvort
liðið var betra og greinilegt að Aston
Villa er orðið mjög sterkt lið. Liðs-
heildin frábær. Kenny McNaught mið-
vörður lék með og kom það talsvert á
óvart eftir meiðslin sem hann hlaut
fyrra laugardag gegn Man. City. Steve
MaMahon lék ekki með Everton, er í
leikbanni.
Ipswich lenti hins vegar í basli með
neðsta liðið, Crystal Palace, á heima-
velli sínum, Portman Road. Lið Palace
gaf Ipswich ekkert eftir framan af,
nema slður væri. Það kom engan
veginn á óvart, þegar Ian Walsh náði
forustu fyrir Lundúnaliðið á 43. mín.
Staðan 0-1 I hálfleik en á átta minútna
kafla I síðari hálfleiknum gerði Ipswich
út um leikinn. Paul Mariner jafnaði og
John Wark náði forustu fyrir Ipswich,
þegar hann skoraði úr vítaspyrnu. 27.\
mark framvarðarins á leiktímabilinu.,
Síðan varð varnarmaðurinn hjá Palace,1
Billy Gilbert, fyrir því að senda knött-
inn í eigið mark, 3-1. Undir lokin,
skoraði Mariner sjálfsmark með mikl-
um tilþrifum. Kom aftur til að
„hjálpa” varnarmönnum sínum og
skallaði knöttinn í eigið mark. í fyrsta
skipti á leiktlmabilinu,, sem Ipswich fær
á sig tvö mörk á heimavelli.
En nóg um það. Lítum á úrslitin á
laugardag.
1. deild
Birmingham-Brighton 2—1
Coventry-Wolves 2—2
Everton-Aston Villa 1—3
Ipswich-C. Palace 3—2
Leicester-Man. Utd. 1—0
Man. City-Nottm. For. 1—1
Middlesbro-Sunderland 1—0
Southampton-Norwich 2—1
Stoke-Arsenal 1 — 1
Tottenham-Leeds 1—1
WBA—Liverpool 2—0
2. deild
Bolton-Cardiff 4—0
Bristol City-Sheff. Wed. 1—0
Chelsea-Cambridge 3—0
Derby-Grimsby 2—1
Luton-Blackburn 3—1
Newcastle—QPR 1—0
Notts Co.-Swansea 2—1
Oldham-Bristol Rov. 1—0
Orient-Wrexham 2—1
Preston-Watford 2-1
Shrewsbury-West Ham 0-2
3. deild
Burnley-Exeter 1—0
Chester-Charlton 4—0
Fulham-Brentford 1 — 1
Gillingham-Carlisle 0—1
Huddersfield-Barnsley 1—0
Hull-Blackpool 2—1
Millwall-Colchester 3—1
Oxford-Newport 0—1
Plymouth-Chesterfield 1—0
Portsmouth-Walsall 2—0
Rotherham-Swindon 1—0
-Sheff. Utd.-Reading 2—0
4. deild
Aldershot-Port Vale 0—0
Bradford-Torquay 2—0
Doncaster-Northampton 1 — 1
Hartlepool-York 1—0
Lincoln-Stockport 1—0
Mansfield-Bury 2—0
t Rochdale-Peterborough 2—3
Scunthorpe-Halifax 2—2
Southend-Hereford 2—0
Tranmere-Bournemouth 0—1
Wigan-Darlington 3—1
Wimbledon-Crwe 2—0
Það vakti gífurlega athygli, að 29
þúsund áhorfendur sáu leik Yorkshire-
liðanna Huddersfield og Barnsley i
þriðju deild. Nokkrir kilómetrar milli
borganna. Huddersfield sigraði. Náði
Barnsley að stigum — 42 stig — og er
nú aðeins stigi á eftir efstu liðunum í 3.
deild, Charlton og Rotherham. Harold
gamli Wilson, fyrrum forsætisráðherra
Breta, er hress með Huddersfield-liðið
sitt þessa dagana. Þegar hann var
ungur að árum var Huddersfield fræg-
asta knattspyrnulið Englands.
Liverpool-liðið slakt
„Það fer ekki milli mála, að Liver-
pool er ekki sama lið og áður. Það
leikur ekki vel núna — nokkrir leik-
menn meiddir, aðrir ekki í formi,”
sagði kappinn kunni, Dennis Law,
þegar hann var meðal fréttamanna
BBC í West Bromwich. Fyrir leikinn
kom heldur betur bomba. Bob Paisley
setti Terry McDermott, leikmann árs-
ins í fyrra á Englandi, úr Liverpool-lið-
inu. Valdi Jimmy Case í hans stað.
McDermott ekki einu sinni varamaður.
Þeir Kenny Dalglish og Phil Thompson
gátu ekki leikið vegna meiðsla. Heldur
ekki bakvörðurinn AUan Kennedy
frekar en áður — og Ísraelinn Avi
Cohen gat heldur ekki verið með. Hins
vegar lék Allan Hansen með að nýju,
sinn fyrsta leik frá því á jóladag. Seint i
leiknum var David Fairclough tekinn
út af og Steve Heighway kom í hans
stað. Ekki munaði miklu að það breytti
gangi leiksins.
Hjá WBA kom John Deehan í stað
David Mills sem miðherji og það varð
til þess að framlina WBA varð miklu
skarpari. Þrátt fyrir nokkra yfirburði i
fyrri hálfleik skoraði miðlandaliðið
aðeins eitt mark. Enski landsliös-
maðurinn Brian Robson var þar að
verki með óvæntri hælspyrnu á 38. mín.
Áður hafði hann meiðzt og utan
vallar nokkurn tíma. Kom inn á og
skoraði en varð að yfirgefa völlinn
vegna meiðsla á ökkla. Það var undir
lok fyrri hálfleiksins. Ali Brown kom í
hans stað.
í síðari hálfleiknum hristi Liverpool-
liðið aðeins af sér slenið. Godden,
markvörður WBA, varði þá tvívegis
vel. Náði knettinum fyrst frá Fair-
clough, sem hafði komizt einn í gegn —
síðan eftir að Steve Heighway hafði
splundrað vörn WBA og Graeme
Souness átti hörkuskot á markið. En
þar sem Liverpool lagði meiri áherzlu á
sóknina til að reyna að jafna opnaðist
vörn Uðsins stundum iUa. Gary Owen
átti stangarskot — Regis, stóri sverting-
inn, sem fæddur er i frönsku Guyana,
skoraði gott mark að áliti Dennis Law
á 68. mln. sem dæmt var af vegna brots
einhvers annars. En á 84. min. guU-
tryggði Regis sigur WBA. Fékk stungu-
bolta frá Ali Brown og skoraði
Cyrille Regis — vörn Liverpool erfiöur
á laugardag.
auðveldlega hjá Ray Clemence. Fyrsti
sigur WBA á Liverpool frá leiktímabil-
inu 1971—72 og Liverpool hefuraðeins
hlotið fjögur stig af tíu mögulegum í
síðustu fimm leikjunum. Það eru ekki
meistarataktar Liðin voru þannig skip-
uð. WBA, Godden, Batson, Bennett,
Wile, Statham, Moses, Robson
(Brown), Owen, Deehan, Regis og
Barnes. Liverpool: Clemence, Neal,
Hanse, Irwine, Money, Lee, Case, Ray
Kennedy, Fabeiough (Heighway),
Johnson og Souness.
Sá sjöundi
hjá Dýrlingunum
Southampton er komið ( fjórða sæt-
ið eftir sinn sjöunda deildasigur i röð.
Auðveldur sigur á Norwich á laugardag
þó markatalan gefi kannski annað til
kynna. Þrátt fyrir mikla yfirburði skor-
uðu Dýrlingarnir ekki fyrr en á 60.
mín. Þar var Steve Williams að verki.
Hreint frábært mark. Charlie George
bætti við öðru áður en Dave Watson
sendi knöttinn í eigið mark undir lokin.
Kevin Bond1 lék ekki með Norwich.
Möguleikar eru nú taldir á að hann fari
til Seattle Sounders í Bajidaríkjunum.
Peter Fox, markvörður Stoke, átti
hreint frábæran leik í marki og kom í
veg fyrir sigur Arsenal. Samkvæmt
fréttum Reuters náði hollenzki lands-
liðsmaðurinn Loek Ursem forustu fyrir
Stoke snemma leiksins. BBC sagði hins
vegar Paul Bracewall og það hefðu ein-
mitt verið mistök hans, sem leiddu til
jöfnunarmarks Arsenal. Bracewall ætl-
aði þá að gefa aftur til markvarðar en
sendi beint til Alan Sunderland. Hann
lék áfram og gaf síðan á Frank Staple-
ton, semskoraði.
Man. City lék vel gegn Nottingham
Forest í fyrri hálfleik. Fyrirliðinn Paul
Power skoraði á 11. mín. en i síðari
hálfleik yfirspilaði Forest City lengst-
um. Ian Wallace lék Trevor Francis
frían á 55. mín. og Frands skoraði.
Spyrnti knettinum innan á stöng og í
markið. í Iokin gátu leikmenn Man.
City þakkað fyrir jafnteflið. Totten-
ham tókst ekki að sigra Leeds á heima-
velli. Óvænt úrslit það eftir sigurgöngu
Lundúnaliðsins að undanförnu. Steve
Archibald skoraði mark Tottenham en
Carl Harris jafnaði sjö mínútum fyrir
leikslok.
Leicester í sókn
Leicester virðist vera að ná sér á strik,
lék vel gegn Man. Utd. og sigraði með
marki Jim Melrose i síðari hálfleik.
Það var einmitt hann, sem skoraði
sigurmark liðsins gegn Liverpool fyrra
laugardag. Strax á 2. mín. sendi fram-
herji Leicester knöttinn í mark United
en dómarinn dæmdi það af vegna brots
miðherjans Alan Young á Gary Bailey.
Leicester er nú aðeins tveimur stigum á
eftir Brighton og Norwich. Möguleik-
arnir á björgun frá falli eru fyrir hendi.
Nokkuð sem virtist útilokað fyrir fáum
vikum.
Blöðin í Manchester skýrðu frá því í
síðustu viku, að stjórn Man. Utd.
hefði kallað framkvæmdastjórann,
Dave Sexton, á sinn fund. Umræðan
þar síakt gengi þessa risafélags — léleg
knattspyrna liðsins. Engar líkur eru þó
á að Sexton verði „höggvinn”, að
minnsta kosti ekki á þessu leiktímabili.
En samt var strax farið að ræða um
hugsnlega eftirmenn hans — Robson
hjá Ipswich og McMenemy hjá
Southampton, þó líkur á því að þeir
yfirgefi lið sín séu nánast engar.
Rúmlega 35 þúsund áhorfendur sáu
leik Middlesbrough og Sunderland
enda stutt á milli borganna á Norð-
austur-Englandi. Langmesti áhorf-
endafjöldinn hjá Middlesbrough á leik-
tímabilinu. Heimaliðið sigraði með
marki Graeme Hedley, á 39. mín.
fyrsta mark hans á tímabilinu. Sunder-
land reyndi mjög að jafna í síðari hálf-
leik en tókst ekki. Á lokamínútunni var
bakvörður liðsins, Joe Bolton, rekinn
af velli.
Coventry náði 2ja marká forustu
gegn Úlfunum í fyrri hálfleik — Steve
Hunt og Mark Hateley skoruðu. Hins
vegar tókst þeim John Richards og
Andy Grayaðjafna. Gray jafnaði á 84.
mín. Birmingham hlaut þýðingarmikil
stig gegn Brighton. Tony Evans og
Alan Cusbisley skoruðu fyrir Birming-
ham — Mike Robinson fyrir Brighton.
West Ham heldur strik-
inu
Lundúnaliðið West Ham heldur allt-
af sinu striki i 2. deild og það fer nú að
vera stutt í að liðið tryggi sér sæti í 1.
deild. Devonshire og Cross skoruðu
mörk liðsins á laugardag í Shrewsbury.
Notts County vann þýðingarmikinn
sigur á Swansea. Masson og MqCulloch
skoruðu — Don Masson gamli, skozki
landsliðsmaðurinn, sem gerði garðinn
frægan hjá QPR og Derby. Alan
Mayes skoraði tvö af mörkum Chelsea.
Derby vann sigur á „uppgangsliði”
Grimsby með mörkum Swindlehurst og
Emery en Waters skoraði mark
Grimsby.
Við höfum áður skýrt frá stöðu efstu
liðanna í 3. deild. í 4. deild er Southend
efst með 48 stig. Lincoln hefur 45,
Mansfield 40 og Hartlepool 38. í úr-
valsdeildinni á Skotlandi voru aðeins
tveir leikir. Aberdeen tapaði á heima-
velli fyrir Morton, 0-1, og Dundee
Utd. sigraði Rangers 2-1. Staðan hjá
Celtic styrktist þvi þó liðið léki ekki.
Er efst með 36 stig. Aberdeen hefur 35
stig, bæði lið leikið 24 leiki, og Rangers
er í þriðja sæti með 30 stig eftir 23 leiki.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Ipswich 28 16 10 2 53—24 42
A. Villa 29 18 6 5 50—25 42
Liverpool 29 12 12 5 48—33 36
South.ton 29 14 7 8 58—46 35
WBA 28 13 9 6 37—26 35
Arsenal 29 11 12 6 42—34 34
Tottenham 29 12 9 8 55—48 33
Nottm.For. 28 12 8 8 42—30 32
Man. Utd. 29 8 15 6 37—27 31
Middlesbro 28 12 4 12 40—38 28
Man.City 29 10 8 11 41—41 28
Everton 28 10 7 11 40—37 27
Stoke 28 7 13 8 31—40 27
Leeds 29 10 7 12 24—38 27
Coventry 29 9 8 12 35—44 26
Wolves 29 9 8 12 30—39 26
Birmingh. 29 9 8 12 34—44 26
Sunderl. 29 9 6 14 38—38 24
Brighton 29 8 4 17 33—51 20
Norwich 29 7 6 16 32—54 20
Leicester 29 8 2 19 20—46 18
C. Palace 29 5 5 19 36—59 15
2. deild
West Ham 29 18 7 4 52—23 43
Notts Co. 28 12 12 4 38—27 36
Chelsea 29 13 9 7 44—25 35
Derby 29 12 10 7 45—39 34
Swansea 29 11 10 8 43—34 32
Luton 29 12 8 9 44—36 32
Blackburn 28 11 10 7 31—24 32
Grimsby 29 10 11 8 31—26 31
QPR 29 11 8 10 39—27 30
Sheff. Wed. 27 12 6 9 35—29 30
Orient 28 11 8 9 40—36 30
Cambridge 28 13 4 11 32—36 30
Newcastle 28 10 9 9 21—34 29
Bolton 29 10 6 13 47—46 26
Watford 29 8 9 12 31—34 25
Oldham 28 8 9 11 25—30 25
Wrexham 28 8 8 12 23 —30 24
Preston 28 6 12 10 27—44 24
Cardiff 28 8 7 13 32—44 23
Shrewsb. 29 5 12 12 25—33 22
BristoICity. 29 5 12 12 19—34 22
Bristol Rov. 29 1 11 17 22—49 13
-hsím.
Sigurogtap
hjá Sköllunum
Borgnesingar höfðu heim með sér
sigur og tap er þeir héldu frá Akureyri
um helgina. Fyrri leiknum gegn Þór
töpuðu þeir með 79 stigum gegn 87 en
þann siðari unnu þeir örugglega 88—
7S.
í fyrri leiknum leiddi Borgarnes
36 i hálfleik en míssti leikinn úr hönd-
um sér er Þórsarar tóku upp á þvi að
leika maður gegn manni. Stigahæstir:
Þór: Gary Schwarz 36, Eirikur 20,
Alfreð 10. Skallagrimur: Webster 30,
Gunnar 23 og Bragi 19.
Á laugarag voru Borgnesingar hins
vegar mun ákveðnari. Leiddu 46—44 i
hálfleik og unnu siöan með 14 stigum.
Það gerði útslagið að Schwarz fór út af
um miðjan fyrri hálfleikinn með 5 vill-
ur. Fyrir Skallagrim skoraði Webster
mest eða 31 stig, Gunnar varð með 25
og Bragi 20. Fyrir Þór var Gary hæstur
með 23 stig, Erlingur var með 22 og
Eirikur 14.
- GSv. / SSv.