Dagblaðið - 09.02.1981, Side 28

Dagblaðið - 09.02.1981, Side 28
28 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1981. Það er orðinn árlegur atburður hér í Tokyo að félag japanskra bif- reiðainnflytjenda haldi alþjóðlega bilasýningu. Þann 1 ó. janúar sl. var Autophia '81 opnuð og stóð hún í 4 daga l ilgaiigurinh með sýningunni er náttúrlega sá að kynna væntanlegum kaupendum það nýjasta frá erlendum framleiðendum. M.a. sást hér í fyrsta sinn í Japan Mini Metro bíllinn sem British Leyland framleiðir og svo sá franski, Peugeot 505. Einnig gafst gestum tækifæri til að prufukeyra suma bílana innan sýningarsvæðisins. Sportútgáfurnar vinsælastar Á sýningunni kenndi margra grasa. Augsýnilegt var að Japönunum þóttu sportútgáfur hinna ýmsu fram- leiðenda einna athyglisverðastar þvi kringum þær flykktust þeir. Sport- bíllinn frá Fíat virtist mjög vinsæll, og einnig stöldruðu margir við í sýningarbás Lotus, sem sýndi hinn umtalaða Espirit Lotus bíl sinn.Ekki vantar það að hann er rennilegur. Japanarnir virtust sýna bandarísku bílunum litinn áhuga ef Willys jepparnir eru undanskildir. Voru það mestmegnis háskólastúdentar, sem skoðuðu jeppana i krók og kring. Jafnvel K-bíllinn frá Chrysler vakti litla athyglisem enga. Volvo stelur senunni Norðurlöndin koma gífurlega sterk til leiks með Volvo concept bílinn í fararbroddi. Þessi Volvo bíll er hannaður með öryggissjónarmið í huga og ekki sakar það að hann lítur mjög vel út. Þessi sami bíll hafði einnig verið almenningi til sýnis vikuna á undan við Sony-bygginguna i Ginza, dýrasta verzlunarhverfi Tokyo, við mikla athygli vegfarenda. Einnig sýndi Volvo ýmsar aðrar út- gáfur af bíl sínum. Hjá Saab var Saab 900 Turbo einn sá glæsilegasti en segja má að Volvo hafi stolið senunni hvað Svíþjóð varðar. Lítill innflutningur Samkvæmt upplýsingum bifreiða- innflytjenda dróst innflutnngur er- Gamli góði Mustang? Nei, ekki aldeilis, heldur Aston Martin frá Bretlandi. Lotus Espirit, einn athyglisverðasti sportlegu bilanna á sýningunni. Lancia Beta Monte Carlo, mjúka itaiska Unan leynir sér ekki. EUEGO frá Renault, bfll með mjúkri sportlegri linu. Sportbill frá FIAT, skemmtilegur bfll. Séð yfir sýningarsvæðið á alþjóðlegu biiasýningunni I Tokyo. Hér sést yfir sýningardeild BMW. lendra bifreiða saman sl. ár, og var þó ekki mikill fyrir. Innfluttar bif- reiðir eru hátollaðar og nær tvöfaldar í verði miðað við sambærilega innlenda framleiðslu. Erlendir bílar í einkaeign eru næsta fágætir og eru eigendur þeirra fáu erlendu bíla, sem hér eru yfirleitt sendiráð, stórfyrir- tæki eða glæpamenn en amerískir bílar eru nokkurs konar stöðutákn meðal þeirra. Ekki tókst undir- rituðum að afla áreiðanlegra talna um fjöldi innfluttra bifreiða í Japan, en kunnugir telja að aðeins 3—4% af bílaeign Japana sé erlend framleiðsla. Baldur Hjaltason skrifar frá Japan VOLVO stal senunni með Concept bil sínum. Þessi bfll er sérlega hannaður með öryggissjónarmið f huga. SAAB verksmiðjurnar sýndu þarna stolt sitt, SAAB 900 Turbo. Vespan hefur ekki lengi sést á götum hér, alla vega ekkert sem heitið getur. || 3Z8S í' Porsche verksmiðjurnar hafa lengi verið frægar fyrír hraðskreiða sportbila, hér er einn sá nýjasti, 928 S. DB-myndir Baldur Hjaltason. Mini Metro frá British Leyland, nýjasta von Breta á smábfiamarkaðnum.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.