Dagblaðið - 09.02.1981, Page 32
Ríkisverksmiðjumar:
VÉLSTJORARIVERK-
FALL Á M0NÆTTI
Framleiðsla í Áburðar- gangandi einum ofni í verksmiðjunni atvinnurekendur hjá ríkissátta- enn deilt við þá um vaktaálag. Þeir
verksmiðjunni stöðvaðist á miðnætti til að forða honum frá eyðileggingu. semjara. Enn er þó ólokið at- voru á fundum í gær og eru boðaðir á
í nótt vegna verkfalls vélstjóra. kvæðagreiðslu starfsmanna um nýja fund sáttasemjara síðdegis.
Vélstjórar boðuðu líka verkfall í Starfsmenn í þessum tveimur samninginn. Vélstjórar hjá Sements- Vélstjórar í verksmiðjunum báðum
Sementsverksmiðjunni en veittu und- ríkisverksmiðjum og Kísiliðjunni við verksmiðju og Áburðarverksmiðju eru samtals innan við 20 talsins. (
anþágu til að hægt væri að halda Mývatn hafa lokið samningsgerð við sitja eftir í samningsgerðinni og er
1
Fœrðin um helgina var heldur erfið og margir seinir í vinnu i Reykja-
vík og viðar í morgun. Blikkbeljurnar þola ekki mikinn snjó og þá
getur verið betra að nota önnur samgöngutœki. Þessi úrrœðagóða
kona tók fram gönguskíðin og henni skilaði mun betur en bílunum,
sem sátu fastir á víð og dreif.
DB-mynd Einar Ólason.
„HÖFUM RÆTT VIDISCARGO-MENN”
sagði Martin Petersen—nýja f élagið þarff nýtt nafn
„Ég get staðfest, að við höfum
rætt við Iscargomenn,” sagði Martin
Petersen, stjórnarformaður og tais-
maður hlutafélagsins Sameignar, sem
slofnað var af áhugamönnum um
flugrekstur fyrir skemmstu. Kjarninn
i félaginu eru fyrrum Loftleiðastarfs-
menn eins og fram hefur komið í
fréttumDB.
Samvinna við Iscargo hf. var
talin nærri því ákveðin, þó að því til-
skildu að s’.jórn Sameignar og/eða
hluthafar samþykktu hana, sam-
kvæmt heimildum DB.
„Umþetta hefur ekki verið tekin
endanleg ákvörðun,” sagði Martin
Petersen, „en þetta mál og raunar
mörg önnur verða rædd á næsta
stjórnarfundi hjá okkur alveg á
næstunni.”
Sennilega verður nafni nýja
félagsins breytt, þar sem heitið
Sameigin var áður skráð firmaheiti.
Um það var ekki kunnugt þegar heiti
hins nýja félags var valið.
-BS.
Æsispennandi
keppni
áSkákþingi
Reykjavíkur:
Jón, Helgi og Elvar
berjast um sigurínn
Þegar einni umferð er ólokið á
Skákþingi Reykjavíkur eiga þrír
keppenda enn möguleika á sigri, Jón
L. Árnason stendur bezt að vígi með
7,5 vinninga þrátt fyrir tap gegn
Helga Ólafssyni á föstudagskvöld.
Helgi er í 2. sæti með 7 vinninga og
Elvar Guðmundsson er þriðji með 6
vinninga og biðskák gegn Dan Hans-
son þar sem Elvar stendur til vinn-
ings.
Úrslit í tíundu og næstsiðustu um-
ferð sem tefld var í gær urðu þau, að
Jón vann Benedikt, Helgi vann
Björgvin, Þórir vann Braga, Ásgeir
vann Sævar og jafntefli varð í skák
Hilmars og Karls Þorsteins. Skák
Elvars og Dan fór í bið og hefur
Elvar betri stöðu eins og áður segir.
Bragi Halldórsson er í 4. sæti með
6 vinninga, Dan Hansson hefur 5
vinninga og bið og Karl Þorsteins
hefur 5 vinninga. í 7.—8. sæti eru
Sævar Bjarnason og Þórir Ólafsson
með 4,5 vinninga og Hilmar Karlsson
er í 9. sæti með 4 vinninga. Björgvin
Víglundsson og Ásgeir Þ. Árnason
hafa 3,5 vinninga og lestina rekur
Benedikt Jónasson með 2,5 vinninga.
í siðustu umferðinni, sem tefld
verður á miðvikudagskvöld, mætir
Jón Braga, Helgi mætir Dan og Elvar
mætirSævari. “ -GAJ
Jón L. Árnason vann Benedikt
Jónasson I gær og er sigurstrangleg-
astur á mótinu.
DB-mynd: Einar Ólason.
fijólst, áháð dagblað
MÁNUDAGUR 9. FEB. 1981.
Óttar Felix Hauksson afbendir Oddi
Bjamasyni lækni upphæðina sem tón-
listarmennirnir söfnuðu.
DB-mynd: Einar Ólason.
Minningarhljómleikarnir
um John Lennon:
Rúmfega
53 þúsund
krónur
söfnuðust
— upphæðin var af hent
Geðvemdarfélaginu
ígær
„Þetta fé kemur að góðum notum
fyrir starfsemi Geðvemdarfélagsins, en
sennilega er það theira virði að þið
skulið einmitt hafa valið þennan félags-
skap til að styrkja,” sagði Oddur
Bjarnason læknir, formaður Geð-
verndarfélags íslands, er hann tók við
peningaupphæð þeirri sem safnaðist á
minningarhljómleikunum um John
Lennon.
Hljómleikarnir voru haldnir á
þriðjudagskvöldið var. Aðsókn að
þeim var svo góð að halda varð þá
tvisvar. Urðu margir samt frá að
hverfa. Alls söfnuðust 53.077,95
krónur. Kostnaðurinn við hljómleika-
haldið var hverfandi lítill, þar eð tón-
listarmenn þeir sem komu fram gáfu
vinnu sina, svo og aðrir sem lögðu
hönd á plóginn.
Ótter Felix Hauksson afhenti pening-
ana í gær. Viðstaddir voru flestir þeir
tónlistarmenn, sem komu fram, svo og
fulltrúar frá Geðverndarfélaginu.
Oddur Bjarnason sagði að í vor og
sumar yrði byrjað að reisa heimili fyrir
fólk sem verið hefur á sjúkrahúsum —
áfangastaður áður en lagt er út í lífið að
nýju. Hann kvað peningana sem söfn-
uðust á minningarhljómleikunum
koma sér ákaflega vel fyrir félagið
þegar slíkt stórátak væri framundan.
- ÁT
50%
ódýrari
flugmiðar
— hjá Flugleiðum
fyriraldraða
Flugleiðir hafa tekið upp ný sérfar-
gjöld fyrir aldraða á innanlandsleiðum
félagsins. Þeir sem orðnir eru 67 ára og
eldri eiga kost á að kaupa farmiða á
50% lægra verði en venjuleg fargjöld.
Afslátturinn gildir hvort sem keyptur er
miði aðra leið eða báðar, en þó aðeins
þannig að flogið sé á laugardögum eða
miðvikudögum. Viðri ekki til flugs þá
daga gilda afsláttarmiðarnir næsta dag
sem fært er.
Undanfarin ár hafa aldraðir átt kost
á að fá far með Flugleiðum með 15%
afslætti. En nú er boðinn helmings af-
sláttur sem fyrr segir og segjast Flug-
leiðamenn vonast til að fleiri en áður úr
þessum aldurshópi muni nú notfæra
sér þennan möguleika til að heimsækja
ættingja og vini í öðrum landshlutum.
- ARH