Dagblaðið - 20.02.1981, Qupperneq 1

Dagblaðið - 20.02.1981, Qupperneq 1
HAr.m a mn cacti inAr.i id m ccddi'iad mo i GREIFINN AF MONTE CRISTO - sjónvarp laugardag kl. 21,45: Sjómaður dæmdur saklaus til ævilangrar fangavistar — í fangelsinu fær hann vitneskju um fjársjóð og tekst að flýja á ótrúlegan hátt Brezk biómynd frá árinu 1974, byggð á hinni kunnu sögu Greifanum •af Monte Cristo, eftir Alexandre Dumas, verður sýnd í sjónvarpinu annað kvöld, laugardagskvöld. Sagan fjallar um sjómann sem fyrir upplognar sakir er dæmdur sak- laus til ævilangrar fangavistar. Fjórir menn tóku sig saman um að koma honum í fangelsi en hver þeirra hafði sína ástæðu til að losna við hann. Daginn fyrir brúðkaup sitt er sjó- manninum varpaðí fangelsi. Áratug síðar situr hann enn inni þegar prestur í næsta fangaklefa grefur sig inii tii hans. Þessi prestur býr yfir vitneskju um mikinn fjársjóð og þeir ákveða að flýja úr fangelsinu í sameiningu og finna fjársjóðinn. En presturinn deyr. Sjómaðurinn not- færir sér dauða hans á hugvits- samlegan hátt og honum tekst að sleppa úr prísundinni. Leikararnir í myndinni eru ekki af lakara taginu. Richard Chamberlain fer með stærsta hlutverkið en auk hans má nefna Trevor Moward, Louis Jordan, Donald Pleasence og Tony Curtis. Leikstjóri er David Greene. Höfundur sögunnar, Alexandre Dumas, var franskur, fæddist árið 1802. Hann gat sér fyrst orð er hann llr Greifanum af Monte Cristo. sendi frá sér sögulega skáldsögu um Hinrik þriðja 1829 en hans kunnustu sögur eru Skytturnar þrjár og Greif- innaf MonteCristo. Ekki eru mörg ár síðan Háskólabió sýndi þessa mynd um Greifann af Monte Cristo en sagan hefur verið kvikmynduð nokkrum sinnum. - KMU Miðvikudagur 25. febrúar Sjónvarp Laugardagur 21. febrúar 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 _ Leyndardómurinn. Fjórði þáttur. Efni þriðja þáttar: Prest- urinn og doktorinn, vinur hans, fara á bókasafn, og þar fá þeir gagnlegar upplýsingar um týnda kaleikinn. En meðan presturinn er á safninu, er brotist inn á heimili hans. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. 18.55 Enska knattspyrnan. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Spitalalif. Bandarískur gamanmyndaflokkur. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 21.00 Söngvakeppni Sjónvarpsins. Fjórði þáttur undanúrslita. Tíu manna hljómsveit leikur undir stjórn Magnúsar Ingimarssonar. Söngvarar Björgvin Halldórsson, Haukur Morthens, Helga Möller, Jóhann Helgason, Pálmi Gunnarsson og Ragnhildur Gísla- dóttir. Kynnir Egill Ólafsson. Umsjón og stjórn upptöku Rúnar Gunnarsson. 2l.45Greifinn af Monte Cristo. (The Count of Monte Cristo). Bresk biómynd frá árinu 1974, byggð á hinni kunnu sögu eftir Alexandre Dumas. Leikstjóri David Greene. Aðalhlutverk Richard Chamber- lain, Trevor Howard, Louis Jordan, Donald Pleasence og Tony Curtis. Sjómaðttrinn Dantes er dæmdur saklaus til ævilangrar fangavistar. Hann sver þess dýran eið að hefna sín, sleppi hann nokkru sinni úr fangelsinu. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 23.25 Dagskrárlok. Sunnudagur 22. febrúar 16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Valgeir Ástráðsson, prestur í Seljasókn, flytur hugvekjuna. 16.10 Húsið á sléttunni. Gull — fyrri hluti. Þýðandi Óskar Ingi- marsson. 17.05 'Ósýnilegur andstæðingur. Fjórði þáttur er um fyrstu bólusetninguna sem dugði við hundaæði. Þýðandi Jón O. Edwald. 18.00 Stundin okkar. Meðal efnis: Gamla Iðnó verður heimsótt, rætt við leikara oe sýnt brot úr gleðileiknum Ótemjunni eftir William Shakespeare. Tónlistar- þáttur útvarpsins, Abrakadabra, verður fluttur i sjónvarpi. Umsjónarmennirnir, Bergljót Jónasdóttir og Karólína Eiríks- dóttir, kynna hljóð og hljóðfæri. Úmsjónarmaður Bryndís Schram. Stjórn upptöku Andrés Indriða- son. 18.50 Skíðaæfingar. Sjöundi þáttur endursýndur. Þýðandi Eiríkur Haraldsson. 19.20 Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 F'rétlir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Sjónvarp næstu viku. 20.45 Þjóðlíf. Efni þessa þáttar tengist einkum íslenskum dýrum. Sýnd verður ný kvikmynd af hreindýrum, tekin á Borgarfirði eystra, og rætt er við hreindýra- eftirlitsmann. Hundar, hestar, refir og fleiri dýr koma og við sögu úti á landi og í sjónvarpssal verður vikið að dýrum í myndlist, dönsum og kvæðum. Umsjónar- maður Sigrún Stefánsdóttir. Stjórn upptöku Valdimar Leifs- son. 21.45 Sveitaaðall. Breskur mynda- flokkur i átta þáttum, byggður á sögum eftir Nancy Mitford. Annar þáttur. í fyrsta þætti, sem gerðist um jólin 1924, voru kynnt- ar helstu sögupersónur, flestar á unglingsaldri. Annar þáttur gerist sex árum síðar, þegar ungu stúlkurnar eru orðnar gjafvaxta. Þýðandi Rannveig Tryggvadóttir. 22.35 Skáld í útlegð. Heimildamynd um Ciger-Xwin, sem er eitt af ást- sælustu ljóðskáldum Kúrda. Hann yrkir gjarnan um baráttuna fyrir frelsi og baráttu þjóðar sinnar og dvelst nú í útlegð í Svíþjóð. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 23.05 Dagskrárlok. Mánudagur 23. febrúar 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Sponni og Sparði. Tékknesk teiknimynd. Þýðandi og sögumað- urpuðni Kolbeinsson. 20.40 íþróttir. Umsjónarmaður Jón B. Stefánsson. 21.15 Hýenunni stekkur ekki bros. Sænskt sjónvarpleikrit. Höfundur handrits og leikstjóri Carlos Lem- os. Aðalhlutverk Thomas Hell- berg, Lars Wiberg og Pia Garde. Nokkrir suður-amerískir útlagar leggja undir sig sendiráð lands síns í Stokkhólmi og taka sendiherrann í gíslingu. Þýðandi Hallveig Thor- lacius. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 23.15 Dagskrárlok. Kanfnurnar Sponni og Sparfli eru á sfnum venjulega tfma, eftir fráttir á mánudag og þriðjudag. Þriðjudagur 24. febrúar 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Sponni og Sparði. Tékknesk teiknimynd. Þýðandi og sögumað- ur Guðni Kolbeinsson. 20.40 Styrjöldin á austurvígstöðvun- um. Þriðji og síðasti hluti. Þýski skriðdrekaher’inn fór halloka fyrir hinum rússneska, og Sjúkov sótti frant til Berlinar með gífurlegum herafla. Þjóðverjar börðust nú fyrir lifi sínu, en leiðtogar banda- manna sátu fundi með Stalín til þess að marka framtíð Evrópu. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 21.35 Ovænt endalok. Drottningar- hunang. Þýðandi Kristmann Eiðs- son. 22.00 Þingsjá. Þáttur um störf At- þingis. Umsjónarmaður Ingvi Hrafn Jónsson. 22.50 Dagskrárlok. 18.00 Herramenn. Herra Klúðri. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. Lesari Guðni Kolbeinsson. 18.10 Böm í mannkynssögunni. Lokaþátturinn er um barn í Frakklandi á hernámsárunum í seinni heimsstyrjöldinni. Þýðandi Ólöf Pétursdóttir. 18.30 Vetrargaman. Skíðafjallganga — fyrri hluti. Þýðandi Eiríkur Haraldsson. 18.55. Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttirogveður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Vaka. Fjallað verður um óperustarfsemi i Reykjavík og nýja, íslenska tónlist. Umsjónar- maður Leifur Þórarinsson. Stjórn upptöku Kristin Pálsdóttir. Fyrri hluti bandarfskrar sjónvarps- myndar, sem byggð er á skáld- sögu metsölurithöfundarins Har- old Robbins, verður sýndur á mið- vikudag. 21.05 Framadraumar. (The Dream Merchants). Bandarísk sjónvarps- 'mynd í tveimur hlutum, byggð á skáldsögu eftir Harold Robbins. Aðalhlutverk Mark Harmon, Vin- cent Gardenia og Morgan Fair- child. Fyrri hluti. Sagan hefst í Banda- ríkjunum skömmu fyrir fyrri heimsstyrjöld. Peter Kessler er þýskur innflytjandi, sem á litið kvikmyndahús. Ungur og stór- huga vinur Kessler, Johnny, fær hann til að selja kvikmyndahúsið og flytjast til New York, en þar ætla þeir sjálfir að frantleiða kvik- myndir. Síðari hluti myndarinnar verður sýndur miðvikudagskvöld- ið 4. mars. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.40 Dagskrárlok. Föstudagur 27. febrúar 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingarog dagskrá. 20.40 Ádöfinni. 20.50 Allt í gamni með Harold Lloyd s/h. Gamanmyndaflokkur i 26 þáttum, unninn ttpp úr göml- um Harold Lloyd-myndum, bæði þekktum og fáséðum. Fyrsti þátt- ur. Þessir þættir verða á dagskrá annan hvern föstudag næstu ntán- uðina. Þýðandi Þrándur Thor- oddsen. 21.15 Fréttaspegill. Þáttur unt inn- lend og eilend ntálefni á líðandi stund. Umsjónarmenn Helgi E. Helgason og Ögmundur Jónas- son. 22.25 Skothríðin hljóðnar. (The Sil- ent Gun). Nýleg, bandarisk sjón- varpsmynd. Aðalhlutverk- Lloyd Bridges og John Beck. Brad Clint- on er fræg byssuskytta í „villta vestrinu”. Hann hefur fengið sig fullsaddan af eilífum vigaferlum og strengir þess heit að reyna framvegis að gæta laga og réttar án blóðsúthellinga. Þýðandi Ragna Ragnars. 23.35 Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.