Dagblaðið - 02.03.1981, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. MAR7.1981.
Li'itarmennirnir röðuðu sér upp i beina röð með stuttu millibili ou pjakka með álstöngum í gegn um snjóinn með 70 sm milli-
bili. Kf maður fannst undir snjónum hlupu nnkkrir til og bvrjuðu að moka hann upp. Hinir héldu áfram pjakkinu þar til allir
voru fundnir. Franian við þá má sjá skiði og skiðastaf, sem tilheyrðu einum þeirra er leitað var. DB-myndir: Atli Rúnar.
i
Fjögurra sæta flugvél, TF-RAK,
fórst á föstudaginn á leiðinni frá Vest-
mannaeyjum til Reykjavíkur. Flakið
fannst nálægt Bláfjöllum. Flugmaður-
inn og farþegi fundust á lífi en annar
farþegi látinn. Skömmu siðar bárust
fréttir af því að snjóflóð haft fallið á
svipuðum slóðum og undir því ient þrír
skíðamenn. Björgunarsveitir fóru á
vettvang og í gærmorgun fundust
mennirnir allir heilir á húfi undir snjó-
skriðunni.
Áður en lengra er haldið er rétt að
upplýsa að sem betur fer eru þessar
fréttir uppspuni frá rótum, en voru þó
raunveruleiki í hugum vaskra manna í
Flugbjörgunarsveitinni. Þeir voru við
æfingar á Bláfjallasvæðinu og ná-
grenni um helgina. Æfð var allsherjar-
leit að týndu fólki í smáum og stórum
atriðum og farið I gegnum margbrotið
skipulag hennar. Hópur nýliða í sveit-
inni fékk sína eldskírn á æftngunni og i
gærmorgun var bæði þeim og nýliöum
i Björgunarsveit Ingólfs kennt að leita
að fólki sem grafið er undir snjóskriðu.
Blaðamaður Dagblaðsins fylgdist með
leitinni t snjóflóðinu og björgun
þriggja manna. Einn maðurinn hafði
legið grafinn í snjónum í rúma tvo tima
áður en hann fannst. Annar lá í hálf-
tima, en sá þriðji reyndist jvegar til kom
verapbki fyllturaf teppum!
Ruglaður
flugstjóri á gangi
fannst við Fjallið eina á laugardags-
kvöld. Björgunarmenn voru ekki nema
rétt búnir að finna vélarflakið er þeim
barst tilkynning um að tveir menn væru
týndir á Bláfjallasvæðinu. Var ákveðið
að grafa snjóhús á staðnum og láta
fyrirberast utn nóttina til'að leit gæti
hafizt strax í birtingu. Rétt eftir að
menn voru sofnaðir voru þeir ræstir
um miðnættið til leitar, en sézt hafði
neyðarblys á Þrengslavegi. Laust eftir
kl. 1 fannst maður, farþegi úr flugvél-
inni. Þá var hægt að sofa áfram.
Löng helgi og ströng hjá Flugbjörgunarsveitarmönnum:
Lítil flugvél fórst, þrír
menn f snjóðf lóði
—en sem betur fer voru f regnimar upplognar, þetta
var bara æf ing
Klukkan 8 í gærmorgun voru
björgunarmenn enn kallaðir til leitar. í
þetta sinn að mönnum sem grunur lék á
að hefðu lent í snjóflóði. Skriða hafði
falliö og að henni lágu skíðaför..
Þriggja manna var saknað. öllu liðinu
var stefnt að snjóskriðunni og einnig
hóp úr Björgunarsveit Ingólfs. Magnús
Hallgrímsson verkfræðingur og félagi í
Flugbjörgunarsveitinni stjórnaði leit-
inni og leiðbeindi björgunarmönnum
að bera sig rétt við að pota í skriðuna
með 3ja metra löngum álstöngum.
Ætlunin var að setja af stað snjóflóð með dýnamitssprengingu til að leita i, en móðir
náttúra gerði betur en dýnamítið og setti sjálf af stað stórflóð, svonefnt flekaflóð.
Mennirnir eru anzi litlir i samanburði við snjóskriðuna.
Reynt var að hafa æfinguna eins raun
verulega og framast var unnt. A föstu-
daginn var Flugbjörgunarsveitin kölluð
út til leitar að TF-RAK. Sveitarmenn
héldu þegar út úr bænum áleiðis til Blá-
fjallasvæðisins. Þar var liðinu skipt í 4
hópa og leit hafin. Flugstjórinn fannst
á gangi og kom í Ijós að hann var meira
en lítið ruglaður í kollinum eftir slysið.
Hann gat litið sagt til um hvar flug-
vélarflakið væri niðurkomið en á
honum mátti skilja að 2 km vestnn við
hann væri maður úr vélinni. Þar fannst
svo lik annars farþegans. Flakið sjálft
Snjóflóðsmaðurinn staðinn á fætur með
kaffitár sér til hressingar. Hann hafði
legið undir snjónum f hálfan þriðja
klukkutfma áður en strákarnir fundu
hann og fann til kulda undir það sfðasta.
Helgi Ágústsson heitir maðurinn, félagi í
Flugbjörgunarsveitinni.
Maður fundinn. Leitarmenn mokuðu varlega l'rá honum og þegar rúmt var orðið I
kringum hann var komið með sjúkrabörur og maðurinn borinn burt.
Allir samtaka og hifopp! Maðurinn kominn á börurnar (þetta eru sérstaklega búnar
börur til að hifa menn úr sprungum og þvilíku við erfiðar aðstæður. Börur af þessari
tegund kosta 10.000 krónur (I milljón gkrónur)!
Eftir leit í á þriðja tíma voru allir
fundnir heilir á húfi og æftngunni þar
með lokið.
Ekki heiglum hent
að komast í flugbjörg-
unarsveitina
Margir nýliðarnir voru greinilega
orðnir dálítið þreyttir og slæptir eftir
langa og stranga helgi. Það er ekki
tekið út meðsældinni aðgerast félagi í
sveitum sem kallaðar eru út til leitar og
alls kyns hjálparstarfa við erfiðustu
aðstæður. Nýliðar í Flugbjörgunar-
sveitinni eru þjálfaðir í 1 1/2 til 2 ár og
þurfa að sýna og sanna að þeir hafi
áhuga á og séu hæfir til að komast í
sjálfa aðalsveitina. Þeir sem ganga til
liðs við sveitina sitja fundi í hverri viku,
einn eða fleiri, eru í þrekæftngum og á
fræðslufundum. Um helgar eru ýmsar
æfingar, og til viðbótar eru útköllin
þegar samborgararnir þurfa á hjálp að
halda. Og það er hreint ekki sjaldan.
í mánudagsfárviðrinu mikla fyrir
skömmu voru Flugbjörgunarsveitar-
menn sendir upp á þak Loftleiðahótels-
ins til að negla járnplötur sem voru að
losna og fjúka. Þeir sinntu líka hjálpar-
starfi í Árbænum, við Borgarspítalann
og viðar um borgina. Og bíll frá þeim
fór til leitar að sendibíl frá Hveragerði
sem fauk út af veginum á Hellisheiði.
Allt þetta leggja menn á sig án þess
að fá nokkuð í staðinn nema ánægjuna
af því að hafa orðið einhverjum að liði.
Kostnaður við rekstur tækja sveitar-
innar er greiddur að nokkru leyti með
fé sem safnað er eða fæst fyrir sölu
merkja. Hið opinbera styrkir starfsem-
ina lika nokkuð. Athygli vekur að
opinberu styrkirnir rýrna að verðgildi
ár frá ári, sem kemur sér skiljanlega
mjög illa fyrir þá sem í þessu stappi
standa. Er þá illa komið fyrir stjórn-
Magnús Hallgrimsson t.v. stjórnaði leit-
inni i snjóflóðinu og kenndi rétt vinnu-
brögð. Hann hefur sótt námskeið
erlendis f snjóflóðafræöum og miðlar
mörgum manninum af þekkingu sinni og
reynslu. Til hægri er Rúnar Nordquist,
félagi hans úr Flugbjörgunarsveitinni.
málamönnum ef næsta útkall björg-
unarsveitamanna verður til að leita
með logandi ljósi að góðvild hins opin-
bera sem það ætti skilyrðislaust að auð-
sýna ómetanlegu starfi sjálfboðaliða.
-ARH.