Dagblaðið - 02.03.1981, Side 33
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. MARZ 1981.
33
Erlent
Erlent
Erlant
Erlent
i
Vinsældir hljómsveitarinnar
Slade vaxa nú stöðugt
Hljómsveitin Slade. — Eftir
þriggja ára gleymsku er hún
komin fram á sjónarsviðið á
ný, hávœrari en nokkru sinni
áður.
bylgjuþrúguninni og sneri sér að nýju
að hressilegri hlutum, til dæmis
gamla góða rokk og rólinu.”
Hljómsveitin Slade er komin fram
á sjónarsviðið á nýjan leik og verður
stöðugt vinsælli og vinsælli. Hún’
þykir ein hávaðasamasta rokkhljóm-
sveit Englendinga og ættu liðsmenn
hennar samkvæmt þvi að vera með
heyrn eins og gamalmenni.
Sú er þó síður en svo raunin.
Heyrn Noddys Holder, Jims Lea,
Daves Hill og Dons Powell er í góðu
meðallagi, læknum til mikillar furðu.
Liðsmenn Slade voru fyrir skömmu
heyrnarmældir vegna rannsóknar á
áhrifum háværrar tónlistar á
heyrnina.
Noddy Holder, þrítugur
aðalsöngvari Slade, sagði um niður-
stöðurnar: „Allir voru standandi
hlessa. Þetta þýðir að við þurfum
síður en svo að lækka okkur.”
í toppbaráttuna
að nýju
Lagið We’ll Bring the House
Down með Slade er nú á uppleið á
enska vinsældalistanum. Það er hið
fyrsta sem hljómsveitin kemur á lista
um þriggja ára skeið.
„Það er ósköp gott að vera
kominn aftur fram á sjónarsviðið,”
segir Noddy Holder, „sérstaklega því
að flestir voru búnir að afskrifa
okkur alveg. — í sex ár nutum við
gífurlegra vinsælda. Við komum
tuttugu lögum á vinsældalistana og
sex þeirra höfnuðu í efsta sæti. En
skyndilega duttum við úr tízku og
enginn nennti að hlusta á okkur
lengur.
Auðvitað sárnaði okkur ákaflega
að vera ekki með í toppbaráttunni
lengur. En við bitum á jaxlinn og
byrjuðum aftur frá grunni. Sú vinna
er nú farin að bera ávöxt.
Þeir sem sáu Slade í Laugardals-
höllinni fyrir um það bil sjö árum
muna eflaust eftir öllum útbúnaði
hljómsveitarinnar og klæðnaði fjór-
menninganna. Nú er þetta allt breytt
— nema tónlistin — sem er háværari
en nokkru sinni áður. Slade kemur
nú fram eins og hver önnur „heavy
metal” hljómsveit. Rauðu silki-
buxurnar eru komnar í efstu hillu og
liðsmenn hennar koma fram í galla-
buxum, hinir látlausustu að flestu
leyti.
Rokkið kemur af tur
Noddy Holder segir að Slade hafi
alla tíð frá stofnun átt sína góðu og
slæmu daga, þó að þeir slæmu hafi
orðið anzi margir í seinni tíð. Þó
hvarflaði aldrei að þeim að gefast
upp og hætta.
„Við vorum alltaf sannfærðir um
að fólk yrði fyrr en síðar leitt á ný-
Ingrid Bergman í viðtali:
Ferill minn
er á enda
Leikkonan Ingrid Bergman lýsti því
nýlega yfir í viðtali við ísraelskt blað að
ferli hennar sem leikkonu væri lokið.
Hún mun hvorki koma fram í kvik-
mynd eða á sviði oftar. Hún ætlar þess
í stað að ferðast sem víðast — og Ieika
sér við barnabarn sitt.
„Nú er komið að því að ég geri það
sem ég haf aldrei haft tíma til að gera,”
sagði leikkonan í viðtalinu við blaðið
Yideoth Ahronoth. Reyndar lýsti hún
því yfir, eftir að hafa orðið að gangast
undir tvær erfiðar skurðaðgerðir i
fyrra, að sennilega væri nú Ieikferillinn
á enda en hún gæti vel hugsað sér að
leika eitt hlutverk enn. Nú leikur hins
vegar enginn vaft á því lengur að
Ingrid Bergman hefur lært sína siðustu
rullu.
maikaður
hefst mánudaginn 2, marz
aðLaugavegi 103
★
★
★
★
★
★
★
★
Flauelsbuxur á börn og fullorðna
Gallabuxur á börn og fullorðna
Stakkar og úlpur, margar gerðir
Drengjastakkar og úlpur
Föt, jakki og buxur
Föt m/vesti
Stakir jakkar
Stakar terylenebuxur
★
★
★
★
Skyrtur
Peysur
Bolir
Sokkar
Allar þessar vörur
eru á ótrúlega lágu
verði sannkölluð
kjarabót í dýrtíðinni