Dagblaðið - 10.03.1981, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1981.
3
Þessi mynd er af hinum umtaiaða vamargarði i Kópaskeri, mitt á milli háflóðs og háfjöru.
Bimi Halldórssyni Kópaskeri svarað:
MÁLEFNIÐ VIRÐIST
ORÐIÐ AUKAATRIÐI
DB-m.vnd Marinó Eggertsson.
— við erum
aðeins
venjulegir
menn
Auðunn Benediktsson, Kópaskeri,
skrifar:
Heldur er það dapurlegt að þurfa
að standa í blaðaskrifum við ná-
granna sína en hjá því verður ekki
komizt í þetta sinn, eftir hina kurteis-
legu kveðju Björns Halldórssonar til
okkar sjómanna á Kópaskeri i Dag-
blaðinu 19. febrúar sl.
Ekki mun ég fjalla efnislega um
þann málflutning (en hann minnir
mann óneitanlega á söguna af ind-
verska bóndanum, sem eignaðist kú
og geymdi hana í glerhúsi).
Málefnið sem fjallað var um
virðist að mestu hafa farið fram hjá
Birni, enda snúast skrif hans upp i
persónulegt skítkast á okkur
sjómenn. Ekki er ljóst við hvað Bjöm
miðar þegar hann daemir hæfni
okkar sjómanna, en hann verður að
gera sér ljóst að við erum aðeins
venjulegir menn og verðum aldrei
nein „ofurmenni”.
Að lokum vil ég benda Birni á að
kynna sér allar hliðar þeirra mála
sem hann ætlar sér að fjalla um, áður
en hann lætur þjónustulund sína
hlaupa með sig í gönur.
Má bjóða þér íbfltúr, ríkið borgar:
Peningabruðl hjá ríkisfyrirtækjum
— allir f lækjast fyrir öllum milli þess sem þeir taka pásu
3974—8290 skrifar:
Ég var að lesa það í blöðum að
starfsmenn Ríkisútvarpsins og Pósts
og sima fái felld niður viðkomandi
afnotagjöld, því langar mig til að
spyrja um það hvort ég sem húsa-
smiður eigi ekki að fá t.d. ókeypis lóð
undir húsnæði eða sleppa við fast-
eignagjöldin, eða pípulagningar-
maður á hann ekki að fá ókeypis heitt
vatn og rafvirki að fá ókeypis raf-
magn.
Bæði Ríkisútvarpið og Póstur og
sími eru alltaf að kvarta yfir peninga-
leysi, ég held að það ætti að láta
starfsfólkið hjá þessum fyrirtækjum
borga sín afnotagjöld eins og aðra.
Ekki fmnst mér skipulagið upp á
marga fiska hjá Pósti og síma. Ég vil
taka sem dæmi: Við byggingu húss
sem ég vann við komu menn frá
þessu fyrirtæki, þeir áttu að grafa
skurð, sem var 2 metrar á kant og
innan við metra á dýpt, það komu 9
menn og 2 gröfur, svo flæktust
auðvitað allir fyrir öllum á milli
pásanna.
Og svo er'annað! Ég þekki strák
sem vinnur hjá Pósti og sima og býr
fyrir utan bæinn, hann fer alltaf heim
til sín á hverju kvöldi á bíl fyrirtækis-
ins. Þessar bifreiðar virðast vera
mjög mikið misnotaðar.
Eins þekki ég verkstjóra hjá Véla-
miðstöð Reykjavíkurborgar, hluti af
hverjum vinnudegi hans fer í innkaup,
auðvitað á bíl frá borginni, og svo
notar hann bilinn allar helgar, þannig
mætti lengi telja upp dæmi um mis-
notkun á bilum hjá öllum þessum
opinberu fyrirtækjum. Svo er alltaf
verið að kvarta yfir peningaleysi, ég
held að maður ætti að hætta að
borga skattana.
Svo eru margir af þessum ríkis-
bílum ekki neinir smá bílar, heldur
bara keypt það flottasta og dýrasta
og ekkert hugsað um bensíneyðslu.
Svo segja starfsmennirnir: Má
bjóða þér í bíltúr, ríkið borgar.
Spurning
dagsins
Ertu orðin(n)
þreytt(ur) á
veðurfarinu?
Rúnar Sigurðsson tannsmiður: Já, því
er ekki að neita. Þetta veðurfar er farið
að fara í skapið á manni.
Hannes Vigfússon rafverktaki: Já,
þetta er orðinn nokkuð strangur vetur.
Það er búiö að vera leiðindaveöur alveg
síðan í nóvember.
Bæringur Guðvarðsson, starfar i
byggingavinnu: O, já, mér er farið að
finnast þetta nokkuð mikið af þvi
góða. Annars væri allt í lagi að hafa
harðan vetur ef sumarið verður gott.
Bréfritari finnur að því að starfs-
menn hjá Pósti og sima fái ókeypis
fastagjöld af síma.
Við teljum
aö notaðir VOL VO bílar séu betri en nýir bílar af
ódýrari gerðum.
VOLVO 244 GL ÁRG. 1980
beinskiptur, ekinn 14 þús. kr. 120.000
VOLVO 244 GL ÁRG. 1979
beinskiptur, ekinn 31 þús. kr. 105.000
VOLVO 244 GL ÁRG. 1979
sjálfskiptur, ekinn 32 þús. kr. II 0.000
VOLVO 244 DL ÁRG. 1978
beinskiptur, ekinn 45 þús. kr. 80.000
VOLVO 244 DL ÁRG. 1978
sjálfskiptur, ekinn 50 þús. kr. 85.000
VOLVO 244 DL ÁRG. 1978
beinskiptur, ekinn 24 þús. kr. 84.000
VOLVO 245 DL ÁRG. 1978
beinskiptur, ekinn 36 þús. kr. 85.000
VOLVO 245 DL ÁRG. 1978
beinskiptur, ekinn68 þús. kr. 85.000
VOLVO VELTIR HF
Suðurlanasbraut 16, K.
Sími 35200.
Katrfn Jakobsdóttlr starfsstúlka á
sjúkrahúsi: Já, ég er orðin mjög þreytt
áveðurfarinu.
Ellen Blumenstein: Ég er orðin afar
þreytt á veðurfarinu.
Trausti Jónsson veðurfræðingur: Nei,
þetta er mitt lifibrauð, ég verð aldrei
þreytturáþví.