Dagblaðið - 10.03.1981, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 198L
[( Erlent Erlent Erlent Erlent )]
Meiri bjartsýni íPóllandi:
Eining f restar verk-
föllum um stundarsakir
— meðan á viðræðum Walesa og forsætisráðherrans stendur
Pólski verkalýðsforinginn Lech er í fyrsta skipti sem þeir hittast form-
Walesa hittir forsætisráðherra Pól- lega. Andrúmsloftið í Póllandi var létt-
lands, Wojciech Jaruzelski í dag. Þetta ara í morgun eftir að frjálsu verkalýðs-
Kreditkorthafar
velkomnir
§[]^CQ)Tr[íMi]n{E)©Tj^®niR£i
Laugalæk 2, Reykjavík,
Sími 86511
TILKYNNING
til söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að gjald-
dagi söluskatts fyrir febrúarmánuð er 15. mars. Ber þá að
skila skattinum til innheimtumanna ríkisins ásamt
söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið 6. mars 1981.
NEMENDALEIKHÚSIÐ
Peysufatadagurinn
eftir Kjartan Ragnarsson
Sýning í kvöld kl. 20.
Sýning fimmtudag kl. 20.
Miðasala opin í Undarbœ frá kl. 16-19 alla daga, nema laugar-
daga. Miðapantanir i sima 21971 á sama tima.
LAUS STAÐA
YFIRLÆKNIS
Laus er til umsóknar staða
yfirlæknis endurhæfingar-
deildar Landspítalans. Staðan veitist frá og með 1. maí
1981.
Umsóknir ásamt upplýsingum um læknismenntun og
læknisstörf sendist ráðuneytinu fyrir 1. apríl 1981.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
5. mars 1981.
Allsherjar-
Ákveðið hefur verið að viðhafa
allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör
stjórnar og trúnaðarmannaráðs í Félagi starfsfólks i veitingahúsum fyrir
næsta starfsár.
Frestur til aðskila tillögum rennur út fimmtudaginn I2. marz kl. 13.00.
Skila þarf lista með:
1. Formannsefni.
2. 6 mönnum I aöalstjúrn.
3. Þrem til vara i aðalstjórn.
4. Tólf aðalmönnum i trúnaðarmannaráð.
5. Átta til vara í trúnaðarmannaráð.
6. Tveim cndurskoðendum og einum til vara.
Tillögum skal skilað til kjörstjórnar á skrifstofu félagsins, Hverfisgötu 42.
ásamt meðmælum að minnsta kosti 65 félagsmanna.
Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs liggur frammi á skrifstofu félagsins.
Stjórnin.
samtökin, Eining, báðu verkamenn i
tveimur borgum Póllands að hætta við
verkfall.
Eining gaf út tilkynningu í gærkvöldi
til verkamanna í borgunum Lodz og
Radom, þar sem menn voru beðnir að
halda áfram vinnu sinni vegna við-
ræðna verkalýðsleiðtogans og forsætis-
ráðherrans. Með þessum tilmælum er
reynt að koma í veg fyrir að sá friður
sem ríkt hefur á pólskum vinnumark-
aði i fjórar vikur fari út um þúfur.
Eining sagði að samkomulag hefði
náðst um fimm félagsmenn Einingar í
Lodz, en þeim var sagt upp störfum í
síðasta mánuði. Ekki fylgdi sögunni út
á hvað samkomulagið gekk. Opinbera
fréttastofan í Póllandi vék aðeins lítil-
lega að samkomulaginu í fréttum.
REUTER
Yfirmaöur lögreglu, Kjell Lorentsson, við tunnurnar I verksmiðjunni
Eituref naf undur setur smábæi í Svíþjóð á annan endann
EITUREFNIÐ HEFÐIGETAÐ
DREPIÐ 40 ÞÚSUND MANNS
— óvarðar eiturtunnur í krómverksmiðju
—allir starfsmenn rannsakaðir
— menn hræðast mengun neyzluvatns
Allir fyrri starfsmenn og þeir sem
nú starfa í krómverksmiðju nokkurri
rétt hjá Malmö i Suður-Svíþjóð verða
teknir til nákvæmrar rannsóknar, þar
sem óttazt er að þeir hafi orðið fyrir
eitrun sem m.a. getur leitt til alvar-
legs krabbameins.
Við rannsókn fann lögréglan þrjár
tunnur í verksmiðjunni með eiturefn-
inu cyanid og hefði efnið í þessum
þremur tunnum nægt til þess að
drepa 40 þúsund manns. Að auki
fundust i verksmiðjunni 20 tunnur til
viðbótar en rannsókn á innihaldi
þeirra er ekki lokið.
Þegar eftir fund eiturefnisins i
verksmiðjunni Plateline í Hököp-
inge, sem er smáþorp fyrir sunnan
Malmö, var verksmiðjunni lokað.
Eiturefnið fannst bak við vegg í mat-
sal verksmiðjunnar og í skúr um 20
metra frá verksmiðjubyggingunni.
Talið var að í opnum kerjum undir
verksmiðjugólfinu væri vatn, veru-
lega mengað af eitrinu.
íbúar þorpsins eru bæði reiðir og
skelkaðir. Mikill ótti hefur komið
upp vegna þess að alls ekki er útilok-
að að eitrið hafi komizt í grunnvatn i
Erlendar
fréttir
þorpinu. Lögregla og vísindamenn
hafa tekið sýni af vatni víða í þorp-
inu. Ef vatnið er mengað af eitrinu,
kann það að hafa í för með sér ófyrir-
sjáanlegar afleiðingar fyrir þetta litla
samfélag.
Eftir að eitrið fannst minnast menn
sjúkdómstilfella sem upp hafa komið
í verksmiðjunni. Starfsmenn hafa
fengið útbrot á handleggi, andlit og í
nef. Staðfest er að þrítugur maður,
sem vann í verksmiðjunni árið 1978,
fékk krabbamein i handlegg. Yfir-
völd telja nú að krabbameinið sé til-
komið vegna áhrifa króms.
Rannsóknarlögregla hefur rann-
sakað skrifstofu verksmiðjunnar og
lagt hald á gögn. Verksmiðjueigand-
inn hefur verið ákærður fyrir að
geyma eiturefni með ólögmætum
hætti, þannig að hætta stafaði af og
það komst út í umhverfið.