Dagblaðið - 10.03.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1981.
I
G
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Farartæki framtíöarinnar?
Á tímum orkukreppu snúa æ fleiri sér að
reiðhjólum, ekki aðeins almenningur, heldur
einnig fyrirtæki, sem sífellt reyna að þróa
reiðhjólin, — setja fram nýjar og betri tegundir á
markað.
Peugeot og Raleigh eru fyrirtæki sem bæði
hafa verið áberandi í framleiðslu reiðhjóla,
Peugeot að vísu þekktara fyrir bílaframleiðslu.
Þau hafa gert tilraunir með ýmsar útfærslur af
reiðhjólum, eins manns, tveggja, þriggja og
jafnvel fjögurra manna hjól, tvihjól jafnt sem
þríhjól.
Að sjálfsögðu er draumurinn sá að reiðhjólin
geti í æ ríkara mæli leyst bílana af hólmi og því
eru gerðar tilraunir með yfirbyggð og hraðskreið
hjól.
Við birtum hér myndir af nokkrum útgáfum.
sumar þeirra fá fólk sjálfsagt til að brosa en aldrei
er að vita nema inn á milli leynist fyrirmyndin að
samgöngutækjum framtíðarinnar.
Þetta hjól nær ekki nema um 30 km hraða enda minnir það á dýr, sem ekki er þekkt
fyrir að fara hratt yfir.
EÐULEGRA AÐ
FÆÐA SITJANDI?
—f ramleiðsla f æðingarstóla haf in
Okumaöur þessa þríhjöls liggur á maganum inni i þvi.
Fyrirtæki eitt í Nebraska hefur þegar framleitt 185 fæðingarstöla.
Þetta tvihjól minnir óneitanlega á skordýr.
Tveggja manna „gróðurhús" á fullri ferð?
Flestar mæður i dag fæða börn sín
liggjandi á bakinu. Ástæðan er ekki
sú að það sé auðveldara fyrir konur
að fæða þannig, heidur hefur verið
talið að viö liggjandi fæðingu sé
auðveldast fyrir þá, sem aðstoða við
fæðinguna að athafna sig.
Nú hefur hugmynd um nýja stöðu
við fæðingu verið viðruð — konan
situr upprétt í fæðingarstól. Reyndar
er langt frá því að hér sé um nýja
hugmynd að ræða. í Grikklandi hinu
forna var þessi aðferö notuð og vitað
er til þess að I Feneyjum hafi verið til
V-laga fæðingarstóll á 16. öld.
Upprétt fæðing hefur ýmsa kosti
umfram hina. Dr. Warner Nash sem
er læknir við Lenox-sjúkrahúsið í
New York, segir að vegna byggingar
mjaðmagrindarinnar sé sitjandi
fæðing eðlilegust fyrir konuna.
Einnig gangi slík fæðing hraðar fyrir
sig vegna þess að þyngdaraflið haft
áhrif.
Því er einnig haldið fram að
sitjandi fæðing sé þægilegri fyrir
konuna, dragi úr verkjum auk þess
sem hún minnkar þrýstinginn á
bakið.
,,Það er skammarlegt fyrir okkur
læknana að við skuium loksins læra
það sem náttúran kenndi okkur fyrir
langa löngu á árinu 1981,” segir Dr.
Nash. „Flestar konur myndu fæða I
lóðréttri stöðu ef enginn læknir, eða
annar aðstoðarmaður, væri til
staðar til að segja þeim aðleggjast.”
Þetta hjól var hannað með aðstoð tölvu.
■■ , ■.':■'