Dagblaðið - 10.03.1981, Side 16
FÓLK
ASGEIR
TÓMASSON
Gömlu fötin hennar Carolu Idu
Köhler tolldu ekki einu sinni uppi eftir
að hún var búin að fjarUegja gömlu
bumbuna.
Sambandið virðist ætla að gripa til
þeirra ráðstafana sem duga til þess að
fjölga bændum. Svo virðist sem SÍS
treysti ekki alveg sæði bænda eða
geri ráð fyrir að flestir þeirra séu ein-
hleypir, því í nýjustu Sambandsfréti-
um hvetur innflutningsdeild SÍS
bændur til að huga að sáðvörupönt-
unum sínum fyrir vorið. Fram kemur
að deildin á allmikið af sáðvörum i
pöntun, þannig að freyjur þessa
lands þurfa engu að kvíða.
Hægra augað
Geir hafði ákveðið að taka bíl-
próf. Hann fór því til læknisins og
falaði af honum vottorð um að hann
væri heilbrigður. Að skoðun lokinni
lýsti læknirinn yFtr ánægju sinni með
hreysti Geira, nema að einu leyti:
— Því miður ertu ekki nema með
þrjátiu prósent sjón á hægra auganu,
sagði hann.
— Þrjátíu prósent, sagði Geiri,
— það kalla ég góða sjón áglerauga.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1981.
Kolbrún Gunnarsdóttir býst til að létta
á sér. Hún fékk úsamt nokkrum
öðrum viðurkenningu fyrir góðan
árangur á skömmum tlma.
Ástirsam-
lyndra hjóna
Sœðið afgreitt
fyrir vorið
Reynir Sigurósson reytir utan af sér
púða og annað tróð.
Þau fengu viðurkenningu á árshátlð megrunarklúbbsins Llnunnarfyrir að hafa staðið sig vel til þessa. Hópurtnn er þó enn
ekkiútskrifaður. Hann á vonandieftir að láta hressilega „ásjá”á nœstunni. DB-myndir: Sigurður Þorri.
Fólk á árshátíð megrunarklúbbsins Línunnar:
KÓNGUR KVÖLDSINS
LÉTTIST UM 52 KlLÓ
A SEX MÁNUÐUM
Fjármálastjórn Reykjavíkurborgar
kvartaði mikið undan tapinu á Lista-
hátíð, sem nam tugum milljóna
króna, gamalla að vísu. Gekk það
svo langt að forkólfar Listahátíðar,
örnólfur Árnason og Njörður P.
Njarðvík, skrifuðu langt bréf til skýr-
ingaogyfirbóta.
En ástin lætur ekki að sér hæða.
Fjármálastjórnin og Listahátíðarfor-
kólfarnir hafa nú fallizt í faðma líkt
og gerist í ástum samlyndra hjóna.
Njörður P. Njarðvík var kosinn i
framkvæmdastjórn til næstu tveggja
ára og síðan formaður framkvæmda-
stjórnar. Framkvæmdastjóri var
endurráðinn, örnólfurÁmason.
Vér bíðum næstu bréfaskrifta.
Margir telja að feitt fólk sé
almennt glaðlynt og ánægt með
tilveruna. Það kann að vera, en feita
fólkið vill stundum gjarnan vera
aðeins mjórra um miðjuna. Þannig
var háttað um hópinn sem skemmti'
sér saman eina kvöldstund í Domus
Medica á föstudagskvöldið. Þar fór
sem sagt fram árshátíð megrunar-
klúbbsins Línunnar.
Krýndu kóng
— og drottningu
„Það var fjölmennt og
stemmningin með ágætum,” sagði
Margrét Guðmundsdóttir hjá
Linunni í samtali við blaðamann DB.
„Við höfðum ýmislegt til
skemmtunar. Til dæmis voru kóngur
og drottning klúbbsins krýnd. Þau
voru Ásta Magnúsdóttir og Einar
Andrésson. Bæði sýndu þau mjög
góðan árangur í megruninni og náðu
kjörþyngd á mettíma. Einar léttist
um 52 kiló á sex mánuðum og Ásta
missti 25 kilóá fjórum mánuðum.
Einnig kom fram hópur fólks sem
fékk viðurkenningu fyrir að hafa
létzt mikið á tiltölulega skömmum
tíma. Þau eru þó ekki útskrifuð
ennþá. — Þá má nefna nýstárlega
danssýningu þar sem daman sýndi
ErKalli
eitthvað
hinsegin?
Morgunblaðið heldur áfram
kryddsildarþýðingum sínum. Sl.
fimmtudag greindi blað allra lands-
manna frá því að hefðarfraukan
Diana ætlaði sér að kvongast Karli
prinsi Filippussýni af Bretlandi. Og
hvað á þá blessaður prinsinn að gera?
•
Ekki gráta allir
skrefatalninguna
Reykvíkingar reyta nú hár sitt
vegna væntanlegrar skrefatalningar
Jóns Skúlasonar símamálaforstjóra.
Virðast þar fáar fortölur duga, enda
Póstur og sími með erfiðari stofnun-
um við að eiga. En sumir gráta ekki
skrefatalninguna. Það eru símalausir
Akureyringar. Þeir sjá ekki fram á
síma fyrr en eftir tvö ár. Skrefataln-
ing plagar þá ekki eða reykvískur
harmagrátur.
Ásta Magnúsdóttir og Einar Andrésson voru kjörin kóngur og drottning
kvöldsins fyrir að hafa náð mjög góðum árangri I að megra sig á stuttum tima.
Þau eru bœði útskrifuð úr Línunni.
tvist í orðsins fyllstu merkingu og
herrann mætti með lítinn rokk.”
Fólk kemur og fer
Margrét sagði að ómögulegt yæri
að segja til um hversu margir væru í
Línunni hverju sinni því að dálítið er
um að fólk gefist upp og komi svo
síðar aftur. Enn sem komið er eru
það fleiri konur en karlar, sem koma
til meðferðar, en Margrét sagði að
körlum færi sífellt fjölgandi. Hún
nefndi sem dæmi að fyrir nokkru
hefðu sjö karlmenn tekið sig saman
og farið 1 megrun hjá Línunni. Á
fjórum vikum tókst þeim að losa sig
við samtals fimmtiu kílógrömm.
Og að lokum: hvaða matur skyldi
vera á borðum, þegar megrunar-
klúbbur heldur árshátíð? Margrét
Guðmundsdóttir svaraði þvi:
„Við fengum rækjukokkteil og
grillað lambalæri með þykkri sósu
fyrir gesti og kjötsoði fyrir þá stabílu.
Með þvi var boðið upp á hrásalat og
kartöflur fyrir gesti. — Hvort einhver
af Línu-félögunum laumaðist í
kartöfiurnar og sósuna? Ég er ekki
alveg viss, en þó grunar mig ýmis-
legt,” sagði hún og hló. -ÁT-
LJOSMYNDIR
SIGURDUR ÞORRI
SIGUROSSON
IM