Dagblaðið - 10.03.1981, Side 18
18
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1981.
Veðrið 1
Gert er ráö fyrir vaxendi austanátt
um allt land og talsverðu hvassviröi,
snjókomu á Vestfjöröum en slyddu
eöa rigningu annars staðar á landinu.
Klukkan 6 voru austnorðaustan 4,
slydda og 2stig í Roykjavlk, austsuð-
austan 6, rigning og 2 stig á Gufuskál-
um, noröaustan 4, snjókoma og —1
stig á Galtarvita, hœgviðri, alskýjað
og — 8 stig á Akureyri, austan 4, skaf-
renningur og —2 stig á Raufarhöfn,
sunnan 5, úrkoma og 1 stig á Dala-
tanga, austsuöaustan 7, rignlng og 3
stig á Höfn og austsuðaustan 11,
rigning og 4 stig á Stórhöföa.
( Osló var lóttskýjað og —10 stig,
hoiðskfrt og —2 stig ( Stokkhólmi,
rigning og 11 stig I London, þoka og 0
stig ( Hamborg, alskýjað og 13 stig f
Parfs, hátfakýjað og 9 stig (Madrid og
alskýjað og 6 stig (New York.
Andlát
Sigurflur Hólm Jónsson bóndi sem lézt
26. febrúar sl. fæddist 27. ágúst 1896
að Núpufelli í Eyjafirði. Foreldrar hans
voru Guðrún Tryggvadóttir og Jón
Jónatansson. Árið 1920 hóf Sigurður
búskap að Teigi þar sem hann bjó til
ársins 1932 er hann fluttist til Akureyr-
ar. Á Akureyri starfaði hann hjá KEA
við kolaafgreiðslu og síðar sem
verkstjóri þar. Árið 1948 keypti
Sigurður jörðina Ásláksstaði í
Kræklingahlið þar sem hann bjó í um
25 ár. Fyrsta kona Sigurðar var Helga
Pálmadóttir og áttu þau 2 dætur,
Helga lézt af barnsförum. Árið 1929
kvæntist Sigurður Matthildi Jóhanns-
dóttur og áttu þau 2 syni. Hún lézt árið
1934. Árið 1940 kvæntist Sigurður
Hrefnu Snæbjörnsdóttur og áttu þau 5
börn.
ísleifur Jónsson kaupmaður, sem lézt
1. marz sl., fæddist 4. apríl 1899 í
Reykjavík. Foreldrar hans voru Kristj-
'ana Lovísa ísleifsdóttir og Jón
Eyvindsson. Árið 1915 lauk ísleifur
prófi úr Verzlunarskóla íslands og hóf
hann þegar störf hjá heildverzlun Hall-
gríms Benediktssonar og Tuliniusar og
vann þar i nokkur ár. Árið 1921 stofn-
aði hann sitt eigið fyrirtæki, Bygg-
ingarvöruverzlun ísleifs Jónssonar og
rak það allt til dauðadags. ísleifur sat i
stjórn Verzlunarráðs íslands og siðar i
stjórn Kaupmannasamtaka íslands og
var um skeið varaformaður samtak-
anna. Árið 1926 kvæntist ísleifur
Svanlaugu Bjarnadóttur og áttu þau 4
börn. Hann verður jarðsunginn í dag,
10. marz, frá Fríkirkjunni í Reykjavík
kl. 13.30.
Einrún ísuksdóttir frá Siglufirði lézt í
Landspítalanum 7. marz sl.
Daniela Jóna Jóhannesdóttir lézt
sunnudaginn 8. marz.
Jónína Þóroddsdóttir, Bergþórugötu
14 Reykjavík, lézt 6. marz sl.
Sigríður Ólafsdóttir, Þórkötlustöðum
Grindavík, lézt i St. Jósefspitala,
Hafnarfirði, laugardaginn 7. marz sl.
Brynjólfur Önfjörð Steinsson, Löngu-
brekku 26 Kópavogi, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju kl. 13.30. mið-
vikudaginn 11. marz.
Sigurður Guðmundsson skipasmiður,
sem lézt 26. febrúar sl., verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 11. marzkl. 15.
Steinunn Sigurjónsdóttir, Amtmanns-
stíg 5, verður minnst frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 11. marz kl.
10.30. Jarðsett verður frá Glaum-
bæjarkirkju, Skagafirði, laugardaginn
14. marz kl. 14.
Anna Þorkelsdóttir, Njálsgötu 59,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni i
dag, þriðjudaginn 10. marz, kl. 15.
Þorkell Gíslason fyrrverandi aðalbók-
ari, Skeggjagötu 10, lézt að heimili sinu
laugardaginn 7. marz.
Lillý Magnúsdóttir, Hringbraut 56
Reykjavík, lézt á Landspitalanum 7.
marz.
Árni Egilsson, Langholtsvegi 164, sem
lézt 18. febrúar sl., verður jarðsunginn
í dag, þriðjudaginn 10. marz, kl. 13.30
frá Fossvogskirkju.
Oddur Oddsson frá Siglunesi við Siglu-
fjörð, til heimilis að Norðurbrún 6,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 12. marz
kl. 13.30.
AA-samtökin
I dag þriðjudag verða fundir á vcgum A A-samlakanna
sem hér segir: Tjarnargata 3c kl. 12 og 21, Tjarnargata
5b kl. 21 og 14, Neskirkja kl. 21. Akranes Suðurgata
102 (s. 93-2540) kl. 21, Akureyri Geislagata 39 (s. 96-
22373) kl. 21. Kcflavík Klapparstig 7 (s. 92-1800) kl.
21, Ísafjöröur Gúttó uppi kl. 20.30, Siglufjörður
Suðurgata 10 kl. 21, Keflavikurflugvöllur (Svavar) kl.
11.30, Dalvík kl. 21.
í hádeginu á morgun, miðvikudag. verða fundir
sem hér segir: Tjarnargata 5b (opinn) kl. 12 og 14.
Kvennadeild Flugbjörgunar-
sveitarinnar
heldur fund miðvikudaginn 11. marz kl. 20.30. Spiluð
vcrður félagsvist. Takið með ykkur gesti.
Aðalfundur
Ferðafélags íslands
veður haldinn þriðjudaginn 10. mar/ kl. 2Ö.30 að
Hótel Heklu. Rauðarárstig 18. Vcnjuleg aðalfundar
störf. Félagar þurfa að sýna skírtcini I980_ við
innganginn.
Að loknum fundarstörfum sýnir Björn Rúriksson
litskyggnur.
Kvennadeild Slysavarna-
félagsins í Reykjavík
Aðalfundur verður haldinn fimmtudaginn 12. marz
kl. 20 í húsi SVFÍ Grandagarði. Kosið verður í stjórn
og nefndir, ársreikningar verða lagðir fram og lögin
rædd. Skemmtiatriði, kaffi. Konur fjölmennið.
Spilakvöíd
Golfklúbbur Reykjavíkur
Skák- og bridgekvöld verður i Golfskálanum i Grafar-
holti í kvöld, 10. marz. Takið mcð ykkur töfl og spil.
Félagsvist í Félags-
heimili Hallgrímskirkju
Félagsvist verður spiluð í kvöld, þriðjudag kl. 21 i
Félagsheimili Hallgrimskirkju til styrktar
kirkjubyggingarsjóði. Spilað verður annan hvern
þriðjudagá sama staðog tíma.
Stjommalafursdir
Árnesingar
Alþingismcnnirnir Þórarinn Sigurjónsson og Jón
Helgason verða til viðtals i Þjórsárveri Villingaholts
hreppi i kvöld. þriðjudaginn 10. marz, kl. 21.
Áætlun Akraborgar
i janúar, fcbrúar, marz, nóvember og desembcr:
Frá Akrancsi
Kl. 8.30
Kl. 11.30
Kl. 14.30
Kl. 17.30
Frá Reykjavík
Kl. 10.00
Kl. 13.00
Kl. 16.00
Kl. 19.00
I apríl og október verða kvöldferðir á sunnudögum. —
í mai, júni og september verða kvöldferðir á föstudög-
um og sunnudögum/ — I júlí og ágúst verða kvöld-
fcrðir alla daga ncma laugardaga.
Kvöldferðir eru frá Akranesi kl. 20.30 og frá Reykja
vík kl. 22.00.
Afgreiðsla Akranesi. sími 2275. Skrifstofan Akranesi.
simi 1095. Afgreiðsla Rvik. sími 16050. Símsvari i
Rvík.sími 16420.
Talstöðvarsamband við skipið og afgreiðslur á
Akranesi og Reykjavik FR-bylgja. rás 2. Kallnúmer:
Akranes 1192. Akraborg 1193, Rcykjavik 1194.
íbúðarkaupendur
athugi sinn gang
Á fundi húsnæðismálastjórnar hinn 3. marz sl. var
svofelld samþykkt gerð:
„I tilefni af blaðaskrifum um að kaupendur notaðra
íbúða fái ekki réttar upplýsingar um fjárhæðir lána.
sem hvíla á ibúðum, m.a. frá Byggingarsjóði ríkisins.
þá vill húsnæðismálastjórn eindregið hvetja
Hörkugaddur í skýjum,
vítislogar í miðjunni
Brezk heimildamynd um reiki-
stjörnuna Júpíter síðast á sjónvarps-
dagskránni fannst mér langmerkileg-
asta fjölmiðlafóður gærdagsins.
Kanar senda geimskipaflotann sinn
út og suður, norður og niður um him-
ingeiminn til að skoða stjörnur. Fyrir
mig, sem bý yfir þeirri þekkingu einni
í fræðum stjarna og himingeims að
þekkja Fjósakonurnar, var Júpíter-
myndin ákaflega vel þegin. Nú veit ég
að Júpíter er 1300 sinnum stærri en
Jörðin. Á stjörnunni er rauður
blettur sem snýst, 150 gráðu frost í
skýjunum allt í kring, en vítislogar og
ógnarhiti inni í miðju stjörnunnar.
Einhvers staðar mitt á milli er her-
bergishiti og notalegt að vera, sagði
okkur vísindamaður.
Áður en stjörnumessan hófst
horfðum við á danska vandamála-
kvikmynd þar sem kastljósi var beint
að ósköpum sem dundu yfir danska
fjölskyldu. Vandamálin voru í sem
stystu máli fólgin í því að húsbóndinn
var duglegur sölumaður í fyrirtæki
og seldi þvottavélar. Hann var eins
og nærri má geta voða voða duglegur
— eðlilega á framabraut. Trúlega i
Junior Chamber þó ekki kæmi það
nú beint fram. Vann og vann frá
morgni til kvölds, kom heim dauð-
þreyttur, nöldraði í syninum, tók til
sín fæði og velti sér svo til veggjar
hrjótandi. Mátti ekkert vera að sam-
faradútli og öðru þvi sem fólk fæst
við undir sæng. Konan sat á rúm-
stokknum snöktandi og vildi gera hitt
— en fékk ekki. Og sonurinn gerðist
veiklaður og meig undir. Svo endaði
allt vel. Strákur fór á sjúkrahús og
heim aftur. Sölumaðurinn bauð
frúnni á árshátíð þvottavélasölunnar
og fékk lifandi rollu (kind, á) í verð-
laun af því hann var svo góður sölu-
maður. Konan sat úti í horni í salnum
sæl og ánægð yfir því hve langt eigin-
maðurinn var kominn á þjóðvegi
framans og fyrirgaf honum letina í
bólinu.
Sponni og Sparði fengu aö fljóta
framhjá óséðir og íþróttaþátturinn
líka. Fréttirnar vöktu ekki sérstaka
athygli. Þó hjó ég eftir því að kynnlar
voru tvær kvikmyndir í fréttatíman-
um, annars vegar Punktur punktur
komma strik, sem verið er að ljúka
við í Stokkhólmi þessa dagana (frum-
sýning á föstudaginn), og svo einhver
brennivínsmynd í Austurbæjarbíói
fyrir skólafólk. Með textanum um
fyrri myndina voru sýndar ljós-
myndir, en sú síðari var kynnt með
viðtali við mann, viðtali sem eigin-
lega var hvorki fugl né fiskur. í
hvorugt skiptið sjónvarpsfréttir í þeim
búningi sem boðið var upp á, heldur
myndskreyttar útvarpsfréttir. Nær
hefði verið að sýna kafla úr brenni-'
vínsmyndinni og kvikmynd frá upp-
töku á Punktinum í Reykjavík sem ég
minnist að hafa séð áður í sjónvarp-
inu.
Böðvar Guðmundsson var að
vanda ágætur þegar hann flutti
okkur Daglegt mál í útvarpi. Hann
má þó gæta sin stundum að skýra
betur dæmi sem hann tekur, þannig
að hlustendur viti hvenær hann talar
rétt mál og hvenær rangt. Stundum
setur hann saman og flytur vitleysis-
texta án þess að taka það fram. Gæti
einhver haldið að það væri allt sagt á
þann veg sem íslenzkufræðingar
vilja!
Úlfar Þorsteinsson skrifstofu-
maður talaði um daginn og veginn.
Þáttur sem ég hlusta yfirleitt alltaf á,
enda oft ágætis innlegg í þjóðmála-
umræðuna sem birtast þar.
Hreppamál, þáttur um sveitar-
stjórnarmál, var seint á dagskránni.
Eg man ekki eftir að hafa hlustað á
hann áður og þótti hann allvel heppn-
aður. Lítið fór þó fyrir léttleikanum.
heldur kjósa umsjónarmenn að lesa á
köflum fremur þurran texta í fundar-
gerðaranda um það sem efst er á
baugi. Mikill kostur er að þátturinn
er uppbyggður af mörgum stuttum
atriðum, sem gerir hann áheyrilegri
og fjölbreyttari.
Lögum unga fólksins sleppti ég
ekki heldur. En skyldi orðaforðinn í
kveðjum unglinganna gefa hugmynd
um orðaforða þeirra yfirleitt?! Þetta
eru lykilorðin i 8 af hverjum 10
kveðjum: „fríkaðar stuðkveðjur”,
æðislegar stuðkveðjur”, „fríkaður/-
fríkuð/fríkað”, að „flippa út”.
Þegar sami textinn er kyrjaður yfir
lýðnum viku eftir viku, aðeins breytt
um nöfnin sem senda og taka við
skeytunum, þá gerast hamar, steðji
og ístað þreytt tól og vilja nýtt hljóð í
hlustina. Kannski kemur bráðum
betri tíð með blóm í haga — og með
enn meira frikaðri og flippaðri ástar-
og saknaðarkveðjum. Eða þannig.
Skylduseta yfir sjónvarpi og útvarpi eitt kvöld getur tckið á taugarnar og höfuð-
kvarnirnar.
kaupendur ibúða til þess að afla fullnægjandi
upplýsinga um fjárhæðir áhvílandi lána framreiknað
samkvæmt verðtryggingarákvæðum skuldabréfanna.
Þá vill húsnæðismálastjórn jafnframt minna fast-
cignasala og aðra sem ar.nast gerð kaupsamninga á
skyldur þeirra til að afla nákvæmra upplýsinga um
núvirði þeirra lána. sem eru vcrðtryggð. þannig að
jafnt kaupanda og séljanda sé Ijósi. Iwersu há skuldin
er i raun.”
Fyrirlestur um
stærðarmun kynj-
anna í dýraríkinu
I kvðld. þriðjudaginn 10. marz kl. 20.30 heldur
Hrefna Sigurjónsdóttir erindi á vegum Líffræðifélags
islands. sem hún nefnir „Stærðarmunur kynjanna i
dýraríkinu” en um þetta efni fjallaði doktorsritgerð
Hrefnu við Háskólann í Liverpool.
Almennt gildir sú regla hjá dýrum að kvendýrið cr
stærra dýrið. Það er aðeins meðal fugla og spendýra
sem þessu er að jafnaði öfugt farið. Liklega er
svokallað kynval það afl sem viðheldur stærðunum
hjá mörgum spendýrum og fuglum, þar sem karldýrin
eru mun stærri en kvcndýrin og keppa um hylli
þeirra. Hjá þeim tegundum fugla þar sem hfutverka-
skipan við uppeldi ungviðis hefur snúizt við og kven
dýrin keppa um hyjli karldýranna kemur kynval
einnig töluvert við sögu. Aftur á móti eru aðrir
valkraftar líklega mikilvægari meðal þeirra dýra
tegunda. þar sem kvendýrið er bæði stærra og leggur
sig jafnframt meira fram við uppeldið en karldýrið.
í fyrirlestrinum verður gerð grein fyrir kenningum
sem uppi eru um þróun kynjamunar en síðan gerir
Hrefna grein fyrir helztu niðurstöðum rannsókna
sinna. sem annars vegar fjölluðu um stærðarmun
kynja meðal þriggja fuglahópa. þ.e. ránfugla, andfugla
og hænsnfugla. en hins vegar um kynatferli
mykjuflugna.
Erindið verður flutt i stofu 158 i húsi verkfræði og
raunvísindadeildar. Hjarðarhaga 2—4 og hefst kl.
20.30. Öllum er heimill aðgangur.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna-
NR. 47-9.MARZ1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 6,582 6,600 7,260
1 Sterlingspund 14,378 14,418 15,860
1 Kanadadollar 5,490 5,505 6,056
1 Dönsk króna 0,9818 0,9845 1,0830
1 Norsk króna 1,2103 1,2136 1,3350
1 Sœnskkróna 1,4112 1,4151 1,5566
1 Rnnsktmark 1,6073 1,6117 1,7729
1 Franskur franki 1,3082 1,3118 1,4430
1 Belg. franki 0,1881 0,1886 0,2075
1 Svissn. franki 3,3668 3,3760 3,7136
1 Hollenzk florina 2,7890 2,7966 3,4763
1 V.-þýzktmark 3,0835 3,0919 3,4011
1 (tölsk l(ra 0,00638 0,00640 0,00704
1 Austurr. Sch. 0,4359 0,4371 0,4808
1 Portug. Escudo 0,1155 0,1158 0,1274
1 Spánskurpeseti 0,0756 0,0758 0,0834
1 Japansktyen 0,03174 0,03183 0,03501
1 (rsktound 11,300 11,331 12,641
SDR (sórstök dráttarráttindi) 8/1 8,0396 8,0615
• Breyting frá siöustu skráningu. Simsvari vegna gengisskráningar 22190.