Dagblaðið - 10.03.1981, Page 27
[
vvipAc
Til notkunar í
báta og
vinnuvélar.
Varagler fyr-
irliggjandi.
ARAAULA 7 - SIMI 84450
MIÐDEGISSAGAN - útvarp kl. 15,20:
Opinská, ein-
læg og hlý
frásögn
—endurminningar þýzku leikkonunnar
Lilli Palmer
Fimmti lestur miðdegissögunnar,
Litlu vænu Lillí, er á dagskrá úvarps
í dag kl. 15.20. Guðrún Guðlaugs-
dóttir heldur áfram lestri sínum úr
minningum þýzku leikkonunnar Lilli
Palmer í þýðingu Vilborgar Bickel-
ísleifsdóttur. Samtals verða þættirnir
31.
Lilli Palmer er fædd í Posen í
Þýzkalandi árið 1914. Foreldrar
hennar voru bæði gyðingar, faðir
hennar skurðlæknir en móðir hennar
var frá Dresden.
Á menntaskólaárum sinum lagði
hún m.a. stund á leiklistarnám en
eftir að nasistar komust til valda í
Þýzkalandi og gyðingaofsóknir fóru
að magnast, flúði hún ásamt systur
sinni til Frakklands. Foreldrar
hennar urðu hins vegar eftir.
Frá Frakklandi hélt hún yfir til
Bretlands, þar sem hún fékk at-
vinnuleyfi sem leikkona. Árið 1941
kynntist hún Rex Harrison og tveim
árum seinna gengu þau i hjónaband
sem entist í 15 ár.
Að sögn lesarans, Guðrúnar
Guðlaugsdóttur, er frásögn Lilli
Palmer opinská, einlæg og hlý.
-KML.
VIDEO
Video — Tœki—Filmur
Leiga — Sala
Kvikmyndamarkaðurinn — ssimi 15480.
Skólavörflustig 19 (Klapparstigsmegin).
KVIKMYNDIR
GUMMÍKLÆDD - VATNSHELD
VINNUVELALJOS
Ljósmyndavélar frumherjanna voru ekki beinlinis handhægar. Þær voru fvrirferðarmiklar og stundum Itafðar á hjólum eins
og þessi.
LITIÐ Á GAMLAR UOSMYNDIR - sjónvarp kl. 20,40:
Fyrstu stríðs-
fréttamyndimar
Annar þáftur heimildamynda-
flokksins um upphaf ljósmyndunar
verður á dagskrá sjónvarps í kvöld.
Hann nefnist Skyggnzt bak við stríð.
í fyrsta þætti var fjallað um upphaf
og þróun þeirrar tækni sem ljós-
myndun byggir á og m.a. sýndar fyrstu
ljósmyndirnar, sem teknar voru. í
næstu þáttum verða sýndar flokkaðar
ljósmyndir — í kvöld fréttamyndir,
sem tengjast stríðsátökum, aðallega úr
bandarísku borgarastyrjöldinni, þræla-
stríðinu svokallaða. í því stríði hófust
stríðsfréttamyndatökur fyrir alvöru.
Guðni Kolbeinsson er þýðandi en
þulur Hallmar Sigurðsson.
-KMU.
Skógar undir Evjafjöllum. Þar er skóli og á sumrin er rekið þar hótel. Á Skógum er einnig bvggðasafn.
BYGGÐIN UNDIR BJÖRGUNUM - sjónvarp kl. 21,40:
EIN BLÓMLEGASTA
SVEIT LANDSINS
Myndin um byggðina undir Eyja-
fjöllum, sem frumsýnd var á páska-
dag í fyrra, verður sýnd í annað sinn í
sjónvarpinu í kvöld. Umsjón með
gerð hennar hafði Magnús Bjarn-
freðsson sem einnig er þulur. Sigur-
liði Guðmundsson annaðist kvik-
myndun, Sigfús Guðmundsson
hljóðupptöku og klippinguna sá
ísidór Hermannsson um.
Sveitin undir Eyjafjöllum
afmarkast af Markarfljóti að vestan
og Sólheimasandi að austan. Hún
hefur löngum verið talin ein búsæld-
arlegasta sveit landsins enda er
gróðursæld þar mikil. Aldrei hefur
þó náð að myndast þar þéttbýlis-
staður og er ástæðan liklegast
hafnleysan. Landbúnaður er því
nánast einaatvinnugreinin.
í þessari mynd er fylgzt með dag-
legu líFt heimamanna, svipmyndum
brugðið upp af starfi þeirra og einnig
tómstundum. Þá verða rifjaðar upp
gamlar sagnir úr sveitinni og staldrað
við á nokkrum merkum sögustöðum.
-KMU.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1981.