Dagblaðið - 10.03.1981, Side 28
Gráfeldur lokar saumastof unni:
Otryggt hráefnisverð og
vextimir óbærilegir
— „skinnaverð hækkar hér þegar það lækkar á heimsmarkaðnum,”
segir f ramkvæmdast jórinn
„Við höfum lokað saumastofunni.
Þetta ber sig ekki og þá er ekkert
annað að gera en hætta,” sagði
Agnar Fr. Svanbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Gráfelds hf. í viðtali
við DB í gær.
Gráfeldur hf. hefur að ýmsu leyti
verið brautryðjandi í ieður- og skinn-
fatagerð hér á landi. Svonefnd
mokkaskinnföt hefur fyrirtækið
framleitt um árabil og náð fót-
festu meða! annars á erlendum mark-
aði.
„Útflutningurinn í fyrra var um
100 milljónir króna,” sagði Agnar
Svanbjörnsson. ,,Nú er útilokað að
halda áfram útflutningi. Verðið er of
hátt,” sagði Agnar.
Hann kvað nokkra þætti hafa
megináhrif. Meðal þeirra mætti
nefna þá staðreynd, að á sama tima
sem hráefnin í skinnavöru lækkuðu á
heimsmarkaði, þá hækkaði þetta
hráefni hér.
Þá sagði Agnar, að ógerningur
væri að fá samninga um fast verð á
hráefni um tiltekinn tíma. Þetta hefði
þau áhrif, að ekki væri heldur hægt
að gera samninga um sölu framleiðsl-
unnar erlendis fram í tímann. Þar
sem verðið væri þannig með öllu
óþekkt, væri yfirleitt tilgangslaust að
tala um sölusamninga.
Til framleiðslunnar væru í raun
engar reglur um lánafyrirgreiðslur.
Ekki væri ástæða til að kvarta yfir
Landsbankanum, þar sem fyrirtækið
hefði haft sín viðskipti. Þar hefði það
yfirleitt mætt skilningi. Hins vegar
væru engar reglur gildandi um rekstr-
arlán fyrir þennan iðnað og þvi væri
staðan á því sviði ævinlega ótrygg.
Af þessu leiddi og að þau Ián sem
fáanleg væru á annað borð bæru
vexti sem þessi iðnaður stæði ekki
undir. „Vextirnir eru orðnir hærri en
heildarlaunagreiðslur,” sagði Agnar
Fr. Svanbjörnsson, framkvæmda-
stjóri Gráfelds hf.
Á saumastofu Gráfelds hafa unnið
12 menn að jafnaði. Svo til allt þetta
fólk missir nú sina fyrri atvinnu, en
fyrirtækið hefur starfað í rúm lOár.
Skinnaframleiðandinn sem Grá-
feldur hefur nær eingöngu keypt af er
skinnavörudeild Sambands íslenzkra
samvinnufélaga. Saumastofa Sam-
bandsins er jafnframt stærsti sam-
keppnisaðilinn hérlendis.
„Bæði Sláturfélag Suðurlands og
Loðskinn hf. á Sauðárkróki fram-
leiða nú stöðugt betri skinn til þeirrar
framleiðslu sem við höfum stundað.
Við munum fylgjast með þróuninni á
skinnamarkaðnum hér og erlendis,”
sagði Agnar, „og enn er það spurn-
ing hvað gert verður í haust.”
-BS.
Eldur íbíl
Eldur kviknadi í liilum Renault-bll ú bifreiðaverkslœði Kristins
Guðnasonar I gcerdag. Slökkviliði var tilkynnt um eldinn kl.
15.53. Mikill og þykkur reykur var á verkstœðinu en eldur hafði
borizt í bensln sem lak úr bllnum. Þrír reykkafarar voru sendir inn
á verkstceðið og slógu þeir á eldinn innan dyra en bíllinn var
slðan dreginn út.
Skemmdir urðu litlar á verkstœðinu, nema af sóti og reyk, en blll-
inn er talsvert skemmdur. Slökkvistarfiðgekk hratt og vel.
JH/DB-mvnd: EÓ.
Akureyri:
lláragutti
stal vélsleða
— upplýst þrjú innbrot
samaaðilans
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
hcfur upplýst þrjú innbrot sama
aðilans og standa nú yfir yfirhcyrslur i
málinu. M.a. var brotizt inn tvisvar á
sama staðinn, reiðhjólaverzlun og
verkstæði og stolið þaðan tveimur
hjólum og ýmsum búnaði. Brotizt
var inn í verzlunina með tveggja daga
millibili, 5. og 7. marz. Verzlunareig-
andinn saknaði þó aðeins annars
hjólsins, en þau reyndust tvö er að
var gáð.
Þá gómaði Akureyrarlögreglan 11
ára gutta í gær sem stolið hafði vél-
sleða frá Rafmagnsveitum rikisins.
Stráksi réð við gripinn þótt ungur
væri, en lögregla kom þó í veg fyrir
frekari ökuferðir. Þá hafði einnig
verið brotizt inn hjá Hjólbarðaþjón-
ustunni og reynt að koma vélsleða í
gang. Það tókst þó ekki. Ekki liggur
enn fyrir hvort þar var sami drengur
aðverki. *JH.
Valþór EA-210 sökk við Grímsey:
Tveimur mönnum
bjargað snarlega
— aðeins sex mínútum ef tir að Valþór sendi út neyðarkall
Valþór EA 210 fórst í gær við
Grímsey en tveimur mönnum sem
voru á var bjargað um borð í Magnús
EA 25. Samkvæmt upplýsingum til-
kynningarskyldunnar í morgun kall-
aði Valþór Siglufjarðarradíó upp kl.
21.28 í gærkvöldi, en þá hafði bátur-
inn tekið niðri rétt utan við höfnina í
Grímsey.
Siglufjarðarradíó kaliaði upp báta
á þessu svæði og náði m.a. sambandi
við Magnús EA, sem var að landa í
Grímsey. Magnús hélt þegar til móts
við Valþór og var kominn að bátnum
kl. 21.34, þannig að aðeins liðu sex
mínútur frá því að Valþór sendi út
kallið.
Það kom sér vel hve Magnús var
snar í snúningum, því Valþór var
hálfsokkinn er að var komið og hvarf
alveg kl. 21.45 eða 11 mínútum síðar.
Svo virðist sem botninn hafi rifnað
undan Valþóri, en báturinn festist
ekki. Hann var þvi keyrður áfram í
átt til hafnar.
Leiðindaveður var á slysstaðnum í
gærkvöldi, hríðarkóf og vaxandi
vindur. Valþór EA 210 var 11 tonna
bátur, svonefndur Bátalónsbátur, úr
eik og furu, smíðaður árið 1974. -JH
frjálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1981.
Einvígi Karpovs og
Kortsnojs:
Enn von um að
Reykjavík
verði valin
— þótt hvorugur
keppandinn hafi hana
efstáblaði
Framámenn íslenzkrar skáklistar
gera sér enn góðar vonir um að Reykja-
vík verði fyrir valinu fyrir heims-
meistaraeinvígið í skák í sumar eða
haust. Hvorki heimsmeistarinn Ana-
toli Karpov né áskorandinn Viktor
Kortsnoj hafá að vísu sett Reykjavík
efst á sinn óskalista en íslenzka tilboðið
gæti orðið málamiðlun.
Friðrik Ólafsson forseti FIDE segir að
enn komi allir þrír staðirnir til greina —
þ.e. Reykjavik, Merano á Ítalíu og Las
Palmas á Kanríeyjum — en það verður
nú hlutverk Friðriks að samræma
sjónarmið skákmeistaranna. Takist
það ekki mun Friðrik ákveða sjálfur
hvar heimsmeistaraeinvígið í skák ’81
fer fram. Áður mun hann væntanlega
fara til bæði Merano og Las Palmas til
að kynna sér allar aðstæður.
Fulltrúi Kortsnojs var hérlendis um
og fyrir helgi til að líta á aðstæður í
Reykjavík og var hann að sögn
ánægður með staðinn. *ÓV.
menn haf na
ASÍ-aðild
Nýstofnað Félag bókagerðarmanna
hefur ákveðið að ganga ekki í Alþýðu-
samband íslands. Var tillaga þar um
felld með miklum meirihluta atkvæða í
allsherjaratkvæðagreiðslu, eða 386 at-
kvæðum gegn 180.
Félagið var stofnað um siðustu ára-
mót, þegar Hið íslenzka prentarafélag,
Bókbindarafélag íslands og Grafíska
sveinafélagið voru lögð niður. Tvö
fyrrnefndu félögin voru í ASf og prent-
arafélagið meðal stofnfélaga sam-
bandsins. _óv
Reynt verður
að bjarga
Sigurbáru
— skipið hugsanlega
seltástaðnum til
björgunar
„Það verður gert út um það í dag á
hvaða hátt reynt verður að bjarga
Sigurbáru af strandstað á Skógar-
sandi,” sagði Gunnar Felixson hjá
Tryggingamiðstöðinni í morgun.
„Meiningin er að reyna að bjarga skip-
inu en hér er um mjög kostnaðarsamt
fyrirtæki að ræða og því kemur til
greina að selja skipið á staðnum til
björgunar. Þá yrði samið um það hvern
hlut Tryggingamiðstöðin ætti í
skipinu,’” sagði Gunnar.
Skipið er mjög illa farið og því mun
erfiðara að standa að björgun þess.
Smíða þarf bráðabirgðabotn í skipið og
þétta það áður en hægt verður að huga
að því að draga það á flot. -JR.
diet pepsi
MÍNNA I N I IN
KAl.ÓRÍAÍ 1 IÖSKU
Stinilas