Dagblaðið - 27.03.1981, Síða 3

Dagblaðið - 27.03.1981, Síða 3
Messur Guðsþjónustur i Reykjavíkurprófastsdæmi sunnudaginn 29. marz 1981. ÁRBÆJARPRESTAtíALL: Barnasamkoma i safnaðarheimili Arbæjarsóknar kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta í safnaðarheimilinu kl. 2. Minnum á páskabingó fjáröflunarnefndar mánudagskvöldið 20. marz kl. 20.30 í Árbæjarskóla. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Messa að Norðurbrún 1 kl. 2. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Sunnudagaskólinn er kl. 10.30. Messa kl. 2.e.h. í Breiðholtsskóla. Almenn samkoma á vegum Breiðholtssafnaðanna miðvikudagskvöld kl. 20.30 að Seljabraut 54. Sr. Lárus Halldórsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasamkoma kl. ll.Guðs- þjónusta kl. 2. Organleikari Guðni Þ. Guðmunds- son. Sr. Ólafur Skúlason. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl^ 11. Fermingarguðsþjónusta i Kópavogskirkju kl. 10.30. Sr. Þorbergur Kristjánsson. DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Sr. Þórir Stephensen. Kl. 2 föstumessa. Dómkórinn syngur, organisti Marteinn H. Friðriksson. Sr. Hjalti Guð- mundsson. LANDAKOTSSPÍTALI: Kl. 10 messa. Organleikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Hjalti Guðmundsson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10 árd. í umsjá sr. Bjama Sigurðssonar frá Mosfelli. FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL: Laugardagur: Frumsýning helgarinnar—revían Skornir skammtar: LÍF 0G STARF Á FRÓN-GRILU Veitingahúsið Frón-grill er alltaf á hausnum, þrátt fyrir að eigandi þess, Jón Sigurðsson áhugavert, sé stöðugt að reyna að hifa það upp. Gestir á Fróni eru bæði þjóðkunnir borgarar og minna þekktir, sem koma saman til að rabba um lífsins gang og nauðsynjar, gefa tízkusýningum auga og fleira i þeim dúr. Frón-grill er rauði þráðurinn í gegnum revíuna Skornir skammtar sem Leikfélag Reykjavikur frumsýnir á sunnudagskvöldið. Að öðru leyti er stykkið sjálfstæðir bútar, eða skornir skammtar, eins og höfundarnir Jón Hjartarson og Þórarinn Eldjárn hafa kosið að kalla það. Skornir skammtar er þriðja revian sem Leikfélag Reykjavíkur setur á svið i Iðnó. Iðnó-revían var sýnd árið 1969 undir stjórn Sveins Einarssonar. Fimm árum 'síðar voru íslendinga- spjöll sett á svið. Leikstjóri þeirrar reviu var Guðrún Ásmundsdóttir, sem einnig stjórnar Skornum skömmtum. Jón Sigurðsson áhugavert á Frón- grilli er leikinn af Kjartani Ragnars- syni. Tvær gengilbeinur eru á grillinu. Helga Þ. Stephensen og Sigríður Hagalin fara með hlutverk þeirra. Átta leikarar til viðbótar koma fram í ýmsum hlutverkum. Tólfti maður sýningarinnar er Jóhann G. „ekki sá” Jóhannsson, sem sér um alla tónlistina. Meðal þess sem tekið er til umfjöllunar í Skornum skömmtum má nefna bókmenntaumræður. Bezta barnabókin, Jói eignast vanda- mál, er verðlaunuð. Höfundur hennar fær silfurskottuna í verðlaun. Þá fá stjórnmál sinn skammt, húsnæðisvandi ríkisútvarpsins, kvótakerfið og margt fleira. Uppselt er á frumsýningu Skorinna skammta á sunnudags- kvöldið. Önnur sýning er á þriðjudagskvöld og hin þriðja á fimmtudag. -ÁT- Meðal annars sem Jón Sigurðsson áhugavert á Frón-grilli býður gestum sínum uppá er tízkusýning. Hér stormar Guðmundur Pálsson inn á sviðið iklæddur búningi, sem fær fólk til að imynda sér að það sé rót- tækt, þó að það sé það í raun og veru alls ekki. DB-mynd: Sig. Þorri. Pólskt framúrstefnuleikrit, Vatzlav eftir Mrozek, í Menntaskólanum við Hamrahlíð f kvöld: Yfirstéttarhjón drekka blóð alþýðunnar Leikritið Vatzlav sem frumsýnt verður af nemendum Menntaskólans við Hamrahlíð i kvöld er eftir Slawomir Mrozek. Mrozek er fæddur 1930 og einna bezt þekktur pólskra framúr- stefnuskálda. Fyrsta leikrit hans, frumsýnt I Varsjá 1958, vakti mikið umtal. Það lýsir ríki þar sem leynilög- reglan hefur barið niður alla and- stöðumenn ríkisstjórnarinnar nema einn harðjaxl. Þegar hann loks er yfirunninn er grundvöllurinn fyrir starfi lögreglunnar brostinn, en fremur en að leggja sjálfa sig niður fær hún sína eigin menn til að fremja pólitíska glæpi. Þrjú leikrit Mrozeks hafa verið sýnd hér á landi, Tangó, Á rúmsjó og Meðgöngutími. Vatzlav verður það fjórða og fjailar það að sögn nemenda um úr- kynjun mannkynsins. Höfundurinn hæðist þar napurlega að valdinu og setur stór spurningamerki við hugtök eins og réttlæti, frelsi og vald. Aðalpersónan, Vatzlav, er galeiðurþæll, sem lendir í skipreika en bjargast upp á strönd ríkis sem gæti verið hvar sem er á hnettinum. Þar kynnist hann m.a. yfirstéttar- hjónum, sem drekka blóð alþýðunnar í bókstaflegri merkingu. Sonur þeirra er fullvaxta en barn í anda. Þegar hann kemst að athæfi þeirra breytist hann í bjarndýr og hvetur bændurna til að gera uppreisn. í ríkinu eru einnig snillingur, sem er leiðtogi mannkynsins af köllun, og dóttir hans, ung og saklaus, sem er tákn réttlætisins í leiknum. Ennfremur kynnist Vatzlav hers- höfðingjanum Barbaro, sem stýrir frelsissveitum, og grísku sagna- hetjunni Ödipusi Rex, sem telur sjálf- an sig vera ómissandi fyrirmynd mannkynsins, enda hvíli heims- skipulagið á herðum hans. Karl Ágúst Úlfsson hefur þýtt verkið á mjög skemmtilegt mál en leikstjóri er Andrés Sigurvinsson og hönnuður Ijósa Lárus Björnsson. Um fjörutíu nemendur hafa unnið að sýningunni. Sýningar eru i kvöld, sunnudags-, mánudags- og miðvikudagskvöld, alltaf kl. 20.30. Alla sýningardaga eru miðar seldir í anddyri skólans frá hádegi og tekið við pöntunum í síma 39010 frákl. 17—19. -IHH. Unga stúlkan, Sönn, tákn réttlætisins í lciknum, er svo saklaus, að hún trúir föður sínum, prófessornum, sem telur sig sjálfkjörinn leiðtoga mannkynsins, þegar hann segir henni að börn verði til með hjálp skynseminnar og stökkvi út úr höfðum foreldra sinna. DB-mynd: Einar Ólason. Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnudagur: Barnasamkoma í Fellaskola kl. 11 f.h, Guðsþjónusta í safnaðarheimilinu að Keilufelli 1 kl. 2. Sameiginleg samkoma safnaðanna í Breiðholti miðvikudag 1. apríl kl. 20.30 að Seljabraut 54. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSASKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Guðsþjónusta, altarisganga. örn B. Jónsson djákni predikar. Organleikari Jón G. Þórarinsson. Ahnenn samkoma nk. fimmtudag kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Altaris- ganga. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Fjölskyldumessa kl. 2. Óskað er eftir þátttöku fermingarbarna og for- eldra þeirra. Kvöldbænir á föstu eru kl. 18.15 á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum. Þriðjud. 31. marz kl. 10.30 fyrirbæna- guðsþjónusta. Beðið fyrir sjúkum. Föstumessa miðvikudaginn 1. aprtl kl. 20.30. Sr. Karl Sigur- björnsson. Kirkjuskóli barnanna kl. 2 á laugar- dögum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. lO.Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Arngrimur Jónsson. Messa kl. 2. Sr. Tómas Sveinsson. Föstuguðsþjónusta fimmtudag kl. 20.30 Organleikari Orthulf Prunner. Sr. Tómas Sveinsson. BORGARSPÍTALINN: Guðsþjónusta kl. 10 árd. Organleikari Jón G. Þórarinsson. Sr. Tómas Sveinsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Banasamkoma i Kárs- nesskóla kl. 11 árd. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Söngur, sögur, myndir. Guðsþjónusta kl. 2. Prestur sr. Sig. Haukur Guðjónsson. Organleikari Jón Stefánsson. Sóknarnefndin. LAUGARNESPRESTAKALL: Laugardagur: Guðsþjónusta að Hátúni lOb, níundu hæð kl. 11 árd. Sunnudagur: Barnaguðsþjónusta kl. 11 og messa kl. 2. Vænzt er þátttöku fermingarbarna og aðstandenda þeirra. Þriðjudagur: Bæna- guðsþjónusta á föstu kl. 18. Æskulýðsfundur kl. 20.30. Föstudagur: Síðdegiskaffi kl. 14.30. Sóknar- prestur. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs- son. Orgel og kórstjórn Reynir Jónasson. Föstuguðsþjónusta Fimmtudaginn 2. apríl kl. 20.30. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. SELJASÓKN: Barnaguðsþjónusta að Seljabraut 54 kl. 10.30. Barnaguðsþjónústa í ölduselsskóla kl. 10.30. Guðsþjónusta að Seljabraut 54 kl. 2. Miðvikudagur 1. apríl. Sameiginleg samkoma Breiðholtssafnaða að Seljabraut 54 kl. 20.30. Sóknarprestur. SELTJARNARNESSÓKN: Bamasamkoma kl. 11 árd. I Félagsheimilinu. Sr. Frank M. Halldórsson. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Messa kl. 2. Ferming. Organleikari Sigurður ísólfsson. Prestur sr. Kristján Róbertsson. •NÝJA POSTULAKIRKJAN, Háaleltisbraut 58: jMessa sunnudag kl. 11 og 17. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskólinn lýkur starfsemi sinni kl. 11. Munið skólabilinn. Ferming- arguðsþjónusta kl. 14. Altarisganga mánudag kl. ■20.30. Þorbjörg Höskuldsdóttlr sýnir að Kjarvalsstöðum ásamt Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur. Hér er Þor- björg ásamt einu málverka sinna. LISTASAFN ALÞÝÐU, Grensásvegi 16: Sýning á verkum í eigu safnsins. Opið 16—20 virka daga, 14—20 um helgar. GALLERÍ LANGBRÓK, Amtmannsstíg 1: Ingi- björg Sigurðardóttir, Ullarleikur: ullarskúlptúrar, ullarmyndir, ullarbelti. Opið til 3. april kl. 12—18 virka daga, 16—18 um helgar. ÁSGRtMSSAFN, BergslaOastræti 74: Ný sýning á verkum Ásgríms. Opið þriðjud., fimmtud. og laugard. kl. 13.30—16. GALLERÍ KIRKJUMUNIR, Kirkjustræti 10: Sig- rún Jónsdóttir, batik, kirkjumunir o.fl. Opið kl. 9— 18 virka daga, 9—16 um helgar. Kjarvalssýningin að Kjarvalsstöðum þykir einstakur listviðburður, enda hefur fólk fjölmennt á hana. Hér eru nokkrar mannamyndir listamannsins. KJARVALSSTAÐIR: Kjarvalssalur: Úr fórum Grethe og Ragnars Ásgeirssonar. Myndir eftir Kjar- val, Gunnlaug Scheving, Höskuld Björnsson, Ásgrím Jónsson, Guðmund Einarsson frá Miðdal o.fl. Vestursalur: Þorbjörg Höskuldsdóttir og Guðrún Svava Svavarsdóttir. Málverk 'og teikn- ingar. Opið til 29. marz kl. 14—22 alla daga. DJÚPIÐ, Hafnarstræti (Hornið): Frank van Mens, teikningar. Opið 11—23.30alladaga. GALLERÍ SUÐURGATA 7: Douwe Jan Bakker: Um sérstakt framlag íslands og íslenzks samfélags til sögu byggingalistarinnar. Ljósmyndir. Opnar laugardag kl. 16. Stendur til 12. april. Opið 16—20 alla daga vikunnar. , NORRÆNA HÚSIÐ: Engin sýning um helgina. LISTMUNAHÚSIÐ, Lækjargötu 2: Engin sýning um helgina. Douwe Jan Bakker er íslendingum að góðu kunnur enda óþreytandi við að ferðast hér og tjá sig um landið i list sinni. Á morgun (laugardag) opnar hann sýningu á myndum frá íslandi i Suðurgötu 7. ÁRBÆJARSAFN: Opið samkv. umtali. Simi 84412 kl. 9—lOalla virka daga. ÞJÓÐMINJASAFNIÐ v/Suðurgötu: Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 13.30-16. TORFAN, veitingahús: Messíana Tómasdóttir, leik- myndir, Ijósmyndir. GALLERÍ GUÐMUNDAR, Bergstaðastræti 15: Kristján Guðmundsson, ný málverk. Weissauer, grafik. Opið 14—18 virka daga. NÝLISTARSAFNIÐ, Vatnsstíg 3 b: Ólafur Lárus- son óg Þór Vigfússon, ný verk. Opið 16—20 virka daga, 14—20 um helgar. NÝJA GALLERÍIÐ, Laugavegi 12: Hreggviður Hermannsson, teikningar og olíumyndir. Opnar laugardag. MOKKA-KAFFI, Skólavörðustíg: Gunnlaugur Johnson, teikningar. Opið 9—23.30 alla daga. LISTASAFN ÁSMUNDAR SVEINSSONAR: Op- ið þriöjud., fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 13.30—16. Hollendingurinn Frank van Mens sýnir i Djúpinu fram yfir mánaðamót. Hér má sjá hann ásamt einni ,teikninga sinna.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.