Dagblaðið - 27.03.1981, Blaðsíða 4
16
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981.
Hvað er á seyðium helgina?
Hretxviðar Hcrmannsson opnar sýningu um helKÍna
i Nýja Galleriinu, LauXave]{i 12.
I.ISTASAFN ÍSLANDS v/Suflurgötu: Málvcrk,
tcikningar, grafik og skúlptúr eftir innlenda og
crlenda listamenn. Opið þriðjúd., fimmtud.,
laugard. og sunnud. kl. 13.30—16.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR, Skólavörflu-
holti: Opið miðvikud. og sunnud. kl. 13.30—16. Ný
sýning á verkum Einars.
Tonleikar
Árnesingakórinn
í Reykjavfk
Sunnudaginn 29. marzeru fyrirhugaðir kaffitónleik-
ar í Félagsheimili Fáksmanna við Bústaöaveg. Á
boöstólum verður kaffi og kökuhlaðborð. Sungiö
veröur eftir þörfum frá kl. 14.30—17.30.
Árnesingakórinn hefur starfað af miklum krafti i
vetur og sungiö m.a. fyrir aldraða og sjúka.
Laugardaginn 4. apríl nk. heldur kórinná heima-
slóðir og heimsækir Samkór Selfoss. KalTisalau
verður með sönglegu ívafi og er til styrktar starfsemi
kórsins. Stjórnandi kórsins er Guðmundur ómar
óskarsson.
Til vinstri er Erpingham, eigandi sumarbúðanna, valdasjúkur stórlax með
mikla framtiðardrauma. Til hægri Kevin Riley, undirmaður hans, lævís og
framagjarn og svífst einskis til að ná hærra upp i valdastiganum.
Menntaskólinn við Sund frumsýnir Erpingham-
búðimar eftir Joe Orton annað kvöld:
Fríkað leikrit um
geggjaðan sumar
búðastjóra
Nemendur Menntaskólans við
Sund hafa lagt hart að sér síðustu
vikur og nætursvefninn hjá þeim
orðið i minnsta lagi, því oft hafa þau
ekki komizt í leikfimisalinn tii æfinga
fyrr en undir miðnætti. Saiurinn,
sem er gríðarstór og í tengslum við
gott leiksvið, er gjörnýttur af tveim
skólum á daginn og leigður iþrótta-
félögum á kvöldin. í vetur eru
leiksýningar nemenda í fyrsta sinn á
heimaslóðum, áður hafa þau leikið
ýmist uppi i Breiðholti eða úti á
Seltjarnarnesi.
Leikritið sem þau sýna heitir
Erpingham-búðirnar og er eftir Bret-
ann Joe Orton. Joe Orton fæddist
1933 — af brezku lágstéttarfólki, og
lagði gifurlega hart að sér til að vinna
sig upp í leikhúsheiminum. Hann
varð kynvillingur og kynntist öðrum
slíkum, Kenneth Halliwell, og urðu
þeir elskendur og sambýlismenn til
æviloka. Fyrir lítils háttar arf sem
Hallíwell hafði fengið og at-
vinnuleysisbætur drógu þeir fram
lifið við þröngan kost og skrifuðu
báðir leikrit í gríð og erg. Orton varð
skyndilega frægur 1964 með
leikritinu Að skemmta herra Sloane.
En þremur árum seinna leiddi af-
brýðisemi, bæði kynferðisleg og
metnaðarleg, til þess að Halliwell,
elskhugi hans, rotaði hann til bana
með hamri og batt síðan enda á sitt
eigið líf.
Orton hefur verið líkt við Oscar
Wilde, ekki einungis vegna
kynvillunnar, heldur vegna þess hve
stillinn er knappur og fyndinn og hve
óvægilega hann ræðst gegn allri
gervimennsku.
Erpingham-búðirnar er að sögn
nemendanna í M.S. ,,mjög fríkað og
hlægilegt”. Þar segir frá sumardval-
arbúðum fyrir lág- og miðstéttar-
fjölskyldur og eru þær reknar með
hálfklikkuðum en harðsnúnum
náunga. f þessum friðsælu búðum fer
allt í bál og brand út af smámunum
og sögðu nemendur að í leikritinu
sæist hvernig einn brjálaður maður í
stjórnunarstöðu gæti smitað allt
umhverfi sitt af geggjun.
Þýðing leiksins var gerð af
enskunemendum skólans fyrir
nokkrum árum undir leiðsögn Sverris
Hólmarssonar. Leikendur eru um
15 en alls vinna um þrjátíu
nemendur að sýningunni. Leikstjóri
er Rúnar Guðbrandsson.
Sýningar verða laugardags- og
sunnudagskvöld um þessa helgi og
þá næstu, og auk þess á þriðjudags-
og föstudagskvöld í komandi viku,
alltaf kl. 21.00 í leikfimisalnum við
Gnoðarvög/Skeiðarvog (leið 2).
Miðar kosta kr. 30 og fást á skóla-
tíma og við innganginn. -IHH.
Keppnin um fallið í 2. deild:
TAP í KVÖLD FELLIR KR
EÐA HAUKA í 2. DEILDINA
— jaf ntef li þýðir að öll liðin, Fram, KR og Haukar verða jöf n
Lokaleikur „fallkeppninnar”
illræmdu en umræddu er á dagskrá i
Laugardalshöllinni klukkan 20 i
kvöld og eigast þar við KR og
Haukar. Um líf eða dauða, ef svo má
að orði komast, er að tefla hjá
þessum liðum því tap í kvöld hefur í
för með sér fallið ógurlega í 2. deild.
Jafntefli mun hins vegar tryggja
báðum liðum gálgafrest, þvi þá eru
liðin þrjú sem um fallið berjast,
Fram, KR og Haukar, öll jöfn að
stigum. Það mundi þýða aðra auka-
keppni, takk fyrir.
Framan af virtist svo sem
Haukarnir myndu bjarga sér fyrst
eftir sigur á Fram og síðan jafntefli
við KR. Tap fyrir Fram sl. föstudag
setti hins vegar strik í reikninginn og
nú þurfa Haukarnir skyndilega að
berjast hatrammri baráttu við KR um
fallið. Leikir KR og Hauka í vetur í 1.
deildinni voru hnífjafnir en Haukar
höfðu sigur í báðum. Lengst af stefndi
einnig í sigur þeirra í Firðinum, er
liðin mættust fyrra sinni í fall-
keppninni, en KR tókst að jafna í
lokin.
Hér fylgja úrslitin úr fall-
keppninni með til gamans:
Fram-Haukar 22—23
Fram-KR 17—17
Haukar-KR
Haukar-Fram
KR-Fram
KR-Haukar
20—20
24—24
19—19
99_99
Eftir styrkleika liðanna sem koma
upp úr 2. deildinni í vor að dæma er
enn mikilvægara fyrir KR og Hauka
að forðast fallið. AUar líkur eru þá
á að þau sleppi einnig næsta vetur,
því eins og dæmið lítur út nú virðast
2. deildarliðin ekkert erindi eiga upp í
1. deild — ekkert þeirra. Leikirnir i
fallkeppninni hafa allir verið óhemju
jafnir til þessa og engin ástæða er til
annars en að ætla að svipað verði
uppi á teningnum í kvöld. -SSv.
Tónleikar Tónmennta-
skóla Reykjavfkur
Hljómsveit og lúðrasveit Tónmenntaskóla Reykja-
vikur halda tónleika i Háskólabiói nk. laugardag,
28. marz, kl. 2e.h.
Efnisskráin er fjölbreytt og er aðgangur ókeypis
og öllum heimill.
Gítartónleikar
á Akureyri
Laugardaginn 28. marz mun Pétur Jónasson halda
gitartónleika i Sjálfstæðishúsinu á Akureyri.
Pétur hóf gitarnám við Tónlistarskólann í
Görðum niu ára gamall og var kennari hans Eyþór
Þorláksson gitarleikari. Vorið 1976 lauk hann
einleikaraprófi frá sama skóla og burtfararprófi ári
síðar
Haustið 1978 hóf Pétur framhaldsnám við hinn
þekkta gítarskóla Estudio de Arte Guitarristico i
Mexicoborg og var einkakennari hans argentínski
gítarleikarinn Manuel López Ramos. BurtfararpróFi
lauk hann í ágúst 1980.
Pétur hefur haldiðeinleikstónleika í Mexicoborg,
Reykjavík, ísafirði, Akranesi og Höfn í Hornafirði
og hlotið lofsamleg ummæli gagrýncnda. Auk þess
hefur hann gert útvarpsþætti fyrir Radio Educación
í Mcxicoborg og íslenzka ríkisútvarpið.
Á efnisskránni eru verk eftir Luys de Narváez,
Manuel M. Ponce, J.S. Bach, William Walton, H.
Villa-Labos og Isaac Albéniz.
Tónleikarnir hefjast klukkan 14.00.
Leiklist
FÖSTUDAGUR
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ: Kóngsdóltirin scni kun.ii
ckki að tala kl. 15. Uppselt. Stjórnlcysingi t'ersl af
siysförum kl. 20.30.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR: Ótcmjan kl. 20.30.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Sðlumaður deyr kl. 20.
LAUGARDAGUR
ALÞYÐULEIKHÚSID: Kóngsdóttirin scm kunni
ckki að tala kl. 15. Kona kl. 20.30.
KÓPAVOGSLEIKHÚSIÐ: Þorlákur þreytti kl.
20.30.
LEIKFÉLAG REYKJ AVÍKUR: Rommi kl. 20.30.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Dags hriðar spor kl. 15.
Síðasta sinn. Súlumaður deyr kl. 20.
SUNNUDAGUR
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ: Kóngsdðttirin sem kunni
ekki að tala kl. 15. Stjórnleysingi ferst af siysförum
kl. 20.30.
KÓPAVOGSLEIKHÚSIÐ: Galdraland kl. 15.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR: Skornir
skammtar, frumsýning kl. 20.30. Uppselt.
NEMENDALEIKHÚSIÐ: Peysufatadagurinn kl.
20.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Oliver Twist kl. 15.Sölumaður
deyr kl. 20. Litla sviðið: Likaminn, annað ekki, kl.
20. Allrasíðastasinn.
Jóhanna Norðfjörð tekur við
af Herdísi Þorvaldsdóttur í
Dags hríðar spor
Síöasta sýningin á leikritinu Dags hriðar spor eftir
Valgarð Egilsson átti að vera miðvikudaginn 18.
marz sl. en fresta varð sýningunni vegna stórhríðar á
Norðurlandi. Og hvernig getur svo illviðri norðan-
lands stöðvað leiksýningu i Reykjavík? Jú, einn leik-
enda, Leifur Hauksson sem stundar búskap á
Ströndum, tepptist á Hólmavík og komst ekki
suður. En nú hefur veðrið gengiö niður og ekkert þvl
til fyrirstöðu að sýna leikritið. Ein breyting hefur
verið gerð á hlutverkaskipan, þar eð Herdis Þor-
valdsdóttir hefur fengið leyfi frá störfum, og mun
Jóhanna Norðfjörð taka við hlutverki prófessors
Þjóðlaugar i þcssari lokasýningu. Jóhanna lauk leik-
listarprófi frá leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1960
og er þetta fyrsta stóra hlutverkið hennar. Hún
hefur þó komið við sögu i Dags hríðar sporum þar
sem hún var aðstoðarmaður leikstjóra þar til hún
tók aö sér hlutverk prófessors Þjóðlaugar.
Siðasta sýning á Dags hriðar sporum verður
laugardaginn 28. marz kl. 15.
Músagildran
á Akranesi
Næstkomandi sunnudagskvöld þann 29. marz
verður frumsýnt hjá Leikklúbbi Nemendafélags
Fjölbrautaskólans á Akranesi leikritið Músagildran
eftir Agöthu Christie. Múagildan er þriðja verkefni
leikklúbbsins og er þetta einnig þriðja starfsár
hans. Leikstjóri er Auður Jónsdóttir og hafa æfing-
ar undir hennar stjórn staðið i um sex vikur. Alls
taka 17 manns þátt i sýningunni, þar af eru leikarar
8. Sýnt er i Fjölbrautaskólanum á Akranesi. önnur
sýning verður þriðjudag 31. marz kl. 21.00.
Galdraland sýnt í
Kópavogsleikhúsinu
Garðaleikhúsið hefur að undanförnu sýnt barna-
leikritið Galdraland eftir Baldur Georgs í Kópavogs-
leikhúsinu. Búið er að sýna það í Hafnarfirði, Hlé-
garði, Sclfossi, Akranesi og í Keflavik en þar var það
sýnt tvisvar fyrir fullu húsi. Einnig hafa tvær síðustu
sýningar i Kópavogsleikhúsinu verið fyrir fullu húsi
og er ætlunin að halda sýningum þar áfram um sinn.
Alls starfa átta manns við sýninguna og eru leikarar
þrir, þeir Aðalsteinn Bcrgdal, Randver Þorláksson
og Þórir Steingrimsson. Sýningarstjóri er örn
Gunnarsson og leikstjóri Erlingur Gislason.
Kvikmyndir
Solaris í MÍR-salnum
Laugardaginn 28. marz kl. 15 verður kvikmyndin
Solaris eftir hinn kunna sovézka leikstjóra Andrei
Tarkovskí (grein um hann birtist í febrúarhefti Kvik-
myndablaðsins) sýnd í MÍR-salnum, Lindargötu 48,
2. hæð. Myndin er byggð á vísindaskáldsögu eftir
Pólverjann Stanislaw Lem og gerist að mestu í
geimstöð fjarri jörðu. Tarkovskí lauk við Solaris
1972 og var hún næsta mynd hans á eftir Andrei
Rúbljov, hinni umtöluðu kvikmynd, sem sýnd var i
sjónvarpinu í vetur. Með aðalhlutverkin í Solaris
fara nokkrir af kunnustu kyikmyndaleikurum
Sovétrikjanna, m.a. Donatas Banionis, Natalja
Bondartsjúk, Anatolí Solonitsyn (sem lék Andrei
Rúbljov) og Júri Javert. — í myndinni er enskt tal.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Aðalfundir
Styrktarfélag vangefinna
Aðalfundur félagsins verður haldinn i Bjarkarási við
Stjömugróf Iaugardaginn 28. marz nk. kl. 14.
Venjuleg aðalfundarstörf. Eggert Jóhannesson, for-
maður Þroskahjálpar, kemur á fundinn. Kaffi-
veitingar.
Stjórnmálafundir
Alþýflubandalagsfólag
Setfoss og nágrennis
Opinn fundur með Svavari Gestssyni félagsmálaráð-
hcrra verður að Kirkjuvegi 7 Selfossi sunnudaginn
29. marz kl. 14 e.h. Allir velkomnir.
Menntskælingar á Akureyri: f rumsýna:
ER Á MEÐAN ER
— í samkomuhúsinu á sunnudaginn
Leikfélag Menntaskólans á
Akureyri frumsýnir bandaríska
gamanleikinn Er á meðan er eftir
Kaufman og Hart í Samkomuhúsinu
á Akureyri sunnudaginn 29. marz kl.
20.30. Leikstjóri er Guðrún Alfreðs-
dóttir. Næstu sýningar eru í Sam-
komuhúsinu á mánudags- og
þriðjudagskvöldið kl. 20.30.
Er á meðan er 'er ærslaleikur og
þekktur sem slíkur. Menntskælingar
á Akureyri hafa áður sviðsett verkið,
það var árið 1964. í því bregða
höfundar upp mynd af bandarísku
þjóðlífi á krepputímum á raunsæjan
en gamansaman hátt.
Leikararnir og starfsfólk við
uppfærslu á Er á meðan er eru allt
nemendur við Menntaskólann. Alls
taka 40 manns þátt í sýningunni, þar
af fara 19 með hlutverk.
Er á meðan er 34. verkefni
Leikfélags MA og jafnframt 2. leikrit
eftir Kaufman og Hart. Hitt var
Gestur til miðdegisverðar, sem var á
verkefnaskránni árið 1958. -ARH.