Dagblaðið - 20.05.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. MAl 1981.
5
Vinnudeila tefur innanlandsf lugið
—eldsneytisaf greiðslumenn knýja á um endurskoðun á sérsamningi
Flugeldsneytisafgreiðslumenn á
Reykjavíkurflugvelli eiga nú í deilu
við vinnuveitanda sinn, Olíufélagið
Skeljung. Hafa þeir gripið til þess
ráðs að taka fulla matar- og kaffí-
tfma samkvæmt venjulegum Dags-
brúnarsamningum f stað þess að taka
þá þegar tími gefst til frá störfum eins
og áður hefur tfðkazt hjá þeim.
Þetta hefur haft þau áhrif að flug-
vélar Arnarflugs og Flugfeiða hafa
tafizt lftillega vegna þess að ekki
hefur verið unnt að afgreiða þær með
eldsneyti þegar afgreiðslumennirnir
hafa verið í mat eða kaffi.
Afgreiðslumennirnir vinna á vökt-
um og er deilt um ákvæði i sérsamn-
ingi. Þeir vilja að svokölluð sér-
hæfnisprósenta verði tvöfölduð en
afgreiðslumennirnir fá nú greitt 5%
ofan á kaupið fyrir að afgreiða flug-
vélaeldsneyti sem er vandmeðfarnara
en annað eldsneyti. Þeir vilja einnig
fá greiddan auka matartímaað lok-
inni vakt vinni þeir lengur en sem
vaktinni nemur. Hefur olíu félagið
falliztá þákröfu.
Sérsamningur afgreiðslumannanna
átti að endurskoðast við gerð síðustu
aðalkjarasamninga en þar sem sú
endurskoðun hefur dregizt mjög á
langinn ákváðu starfsmennirnir að
grípa til þessara aðgerða.
- KMU
Vegaáætlunin til 1984 ákveðin ífjárveitinganefnd:
411,4 MILUÓNIR
KRONA TIL VEGA-
MÁLA Á ÁRINU
—til nýrra þjóðbrauta á að verja 183 milljðnum og
17 milljónum til brúarsmíði
1981 um 52% í stað 42% sem gert var
411,46 milljónum króna á að verja til
vegamála á árinu 1981, samkvæmt
tillögum fjárveitinganefndar sem voru
til síðari umræðu í sameinuðu þingi f
gær. Er gert ráð fyrir að þessar tillögur
nefndarinnar nái samþykki Alþingis og
verði sendar ríkisstjórninni sem
ályktun Alþingis.
Þessar 411 milljónir skiptast svo í
aðalflokka, að 19,15 milljónir renna til
stjórnunar og undirbúnings, 103,7
milljónir eiga að fara í sumarviðhald
þjóðvega og 33 milljónir til vetrarvið-
halds. Til nýrra þjóðbrauta á að verja
samtals 183 milljónum króna, til brúa-
gerða alls tæplega 17 milljónum, til
fjallvega 4,5 milljónum króna, til sýslu-
vega 13 milljónum, til vega í
kaupstöðum og kauptúnum 29,72
milljónum króna, til vélakaupa og
áhaldahúsa 2,5 milljónum og 1,2
milljónum til tilrauna.
Vegaáætlunin nú nær til fjögurra
ára. í meðförum fjárveitinganefndar
hækkaði áætlunin milli áranna 1980 og
ráð fyrir í fjárlögum milli þessara ára.
Árið 1982 er áætlað að verja alls
582,3 milljónum króna til vegamála,
597,35 milljónum árið 1983 og 612,50
milljónum króna árið 1984.
í teknalið vegaáætlunar er gert ráð
fyrir að bensínverð hækki upp úr
miðjum maí og að þúngaskattur hækki
1. júnf til samræmis við byggingavísi-
tölu. Eins og kunnugt er frestaði ríkis-
stjórnin hækkun bensíns á dögunum.
Var hún þá borin þeim sökum að frest-
unin væri gerð til að bensínverðhækk-
un kæmi ekki fram í kaupgjaldsvísitölu
fyrr en 1. september.
í teknahlið vegaáætlunar er gert ráð
fyrir að bensíngjald, þungaskattur og
gúmmígjald til vegamála nemi 239,6
milljónum kr. 1981, ríkisframlag verði
31,66 milljónir króna, lánsfjáröflun
nemi 110 milljónum og önnur fjáröflun
30,2 milljónum króna.
Lárus Jónsson um vegáætlun ríkisstjórnarínnar:
„Stóru stökkin orð-
in að hænufetum”
Niðurskurður frá upphaflegum áætlunum um
6,8 milljarða gkr.
„Frá 1978 hafa skattar á bensín
hækkað um 115,4 milljónir króna,”
sagði Lárus Jónsson (S) sem harðlega
gagnrýndi það sem hann kallaði stefnu-
leysi ríkisstjórnarinnar i vegamálum, á
þingi igær.
„Sáralítið af þessum auknu skatt-
byrðum hefur runnið til vegamála og
ekkert til brúarsmíði. öll skattaaukn-
ingin hefur því farið í eyðsluhít ríkis-
stjórnarinnar,” sagði Lárus.
,,Ef sama hlutfall bensíngjalds hefði
runnið til vegaframkvæmda frá 1978
og gerði 1975 til 1978 væru 46 milljónir
króna komnar i vegakerfið, sem runnið
hafa í eyðsluhítina,” sagði Lárus.
Hann gagnrýndi og að lántökur til
vegamála hefðu aukizt um 105% frá
1980 til 1981 en þarna væri um að ræða
víxla sem falla myndu á skatt-
greiðendur.
Lárus bar fram að á árunum 1974—
1978 hefði (miðað við fast verðlag)
verið varið 177,3 milljónum kr. til
vega- og brúagerðar en á árunum
1979—1981 væri sú tala 181,6 milljónir
króna.
„Stóru stökkin sem gera átti í vega-
málum, og mikið var gumað af, eru
orðin að hálfgerðum hænufetum,”
sagði Lárus, „þvf sá niðurskurður sem
gerður hefur verið á upphaflegum áætl-
unum nemur 68 milljónum nýkr. eða
6,8 milljörðum gkr.”
- A.St.
Ekki færri en tvö
hundruð kflómetrar
— af bundnu slitlagi á árí hverju segir FÍB
„Félag íslenzkra bifreiðaeigenda
lýsir yfir ánægju með það átak sem
fyrirhugað er í vegagerð fram til ársins
1985. Félagið telur að með þvf átaki
náist mikilsverður árangur í gerð vega
með bundnu slitlagi.”
Svo hljóða upphafsorð ályktunar
sem vegamálanefnd FÍB sendi frá sér
fyrir nokkru. Þar segir ennfremur að
einungis sé viðunandi árangurs að
vænta í vegagerð verði ekki hvikað frá
þeirri stefnu að leggja slitlag á a.m.k.
tvö hundruð kflómetra af vegum á ári
hverju. Sættir FÍB sig ekki við minna
átak f þessum efnum. Félagið lítur svo
á að gerð vega með bundnu slitlagi sé
eini kostur f slendinga í vegagerð.
Itrekuð er sú þjóðhagslega hag-
kvæmni sem felist f lagningu slitlags.
Bent er á að aðeins lítill hluti af' því fé
sem tekið sé af bifreiðaeigendum, í
margháttuðum sköttum á ári hverju,
renni til lagningar bundins slitlags.
í lok ályktunarinnar segir að ekkert
þétti betur dreifða byggð í landinu en
góðir vegir, sem séu einnig ein megin-
forsenda velsældar þessarar þjóðar og
tryggi byggð landsins betur en flest
annað.
-KMU
Áskriftarsími
Eldhúsbókarinnar
24666
ELDHÚSBÓKIN
iri'iuentii 14
Til nýrra þjóðbrauta á að verja 183 milljónum króna f ár, samkvæmt tillögum fjárveitinganefndar Alþingis. Gert er ráð fyrir
að tillögurnar verði samþykktar. DB-mynd Magnús Karel.
Teg. 10 L Teg. 50 K
Tegund 10 L: 65% hómull, 35% polyester. Litur:
blátt. Stœróir: 4—14.
Tegund 30 Þ: Rifflað flauel. Litir: vlnrautt, miUibrúnt.
Ijóshlátt, drapp. Stœrðir: 1—6, sama snið og 10 L.
Tegund 80 D: 65% bómull, 35% polyester. l.itur:
hlátt. Starðir:4—14.
Tegund 70 S: 100% bómull. Litir: hvítt, karrygult,
bleikt, grwnt „army”og Ijósdrapp. Stwrðir: 4— 16.
PÖNTUNARSÍMI75253
Tegund 20 H: 100% bómull. Litir: bvítt, Ijósgult,
bleikt, grœnt „army ”og Ijósdrapp. Stierðir: 4—16.
Tegund 50 K: Stœrðir: 4—14 eru úr 65% bómull og
35% polyester. Litur: hlátt. Stœrðir: 28—40 eru úr
14 oz denim.
Tegund 60 F: Rifflað flauel. Litir: svart, navy hlátt,
kaffibrúnt og drapp. Stœrðir: 28—40, sama snið og 50
Á
SÚL- 0G SUMARTILBOÐ
Glœsilegar buxurfyrir allan aldur
Númer í barna- og unglingastærðum
Tegund 4 5 6 7 8 10 12 14 16
20H Kr. 142 145 148 152 156 160 164 169 174
70S Kr. 174 177 180 183 186 190 195 200 205
80D 50 Kr. 127 130 133 136 139 144 149 154 —
Númeri barnastærðum
Tegund Kr. 1 2 3 4 5 6
112
115
117
120
121
124
126
129
10 L Kr. 102 107
30 Þ Kr. 105 110
Tegund 50 K: Fullorðinsstærðir NR. 28—40 Kr. 188
Tegund 60 F: Fullorðinsstærðir NR. 28—40 Kr. 203
Sendum í
póstkröfu PÓSTVERZLUNIN
AKRAR
pöntun þinni utan skrifstofu-
tíma. Mundu að taka fram
stcvrð og lit.
Pósthólf 9140
129 Rvík. — Sími 75253