Dagblaðið - 20.05.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. MAl 1981
II
Smávegis hjálp þarf sfundum til að komast af stað en síðan er hjólað látlaust í hálfa
klukkustund og þar með er stig unnið. DB-mvnd Sig. Þorri.
Norræn trímmkeppni fatlaðra:
Hjólað á skólalóðinni
- hreyfihamlaðir nemendur í Hlíðaskóla stunda trimmið af kappi
Skólar landsins eru um þaö bil að
kveðja nemendur sína eftir langan og
strangan vetur. Þau voru ekki mörg,
börnin sem mættu okkur DB-mönnum
á lóð Hliðaskóla i gær, en ánægð voru
þau. Þetta voru 10 fötluð börn af 14
sem stunda nám i Hlíðaskóla. Þessi
börn hafa verið í hópi þeirra sem hvað
duglegastir hafa verið að safna stigum
fyrir ísland í norrænni trimmkeppni
fatlaðra sem stendur yfir þennan
mánuð.
Þau börn sem geta stundað hjólreið-
ar voru öll á nýlegum hjólum, sem eru
sérstaklega smiðuð fyrir hreyfi-
hamlaða. Hjólreiðar hálfa klukku-
stund á dag gefa þeim stig í keppnina.
Einnig hafa þau verið iðin við að ganga
ogsynda.
„Börnin hafa verið ákaflega
dugleg og stundað trimmið á hverjum
degi allan mánuðinn,” sagði Hanna
Ásgeirsdóttir, sjúkraþjálfari þeirra.
„Að vísu misstum við tvö gallhörðustu
vegna veikinda svo þau eru ekki með
núna,” sagði Hanna.
Sérdeild hreyfihamlaðra f Hlíðaskóla
var stofnuð 1974. Deildin er hjálpar-
bekkur fyrir fatlaða en þau blandast i
almennar deildir skólans. Skólabíll
kemur með bömin á morgnana og
sækir þau er skóla lýkur. „Þau sem eru
í hjólastólum eru keyrð þannig að allir
fá stig. Mér finnst þetta hafa gengið
mjög vel enda áhuginn mikill. Við
stefnum að sjálfsögðu að sigri íslands í
keppninni,” sagði Hanna.
-ELA
Börnin í sérdeild hreyfihamlaðra í Hliðaskóla ásamt starfsfólki dcildarinnar og Sigurði Guðmundssyni, framkvæmdasljóra
keppninnar.
Sóley Björk Axelsdóttir, 11 ára nemandi
Hlíðaskóla:
—ekki nægilegfræðsla ískólanum um
fötlun
,,Ég byrjaði í skólanum 9 ára og
líkar bara vel,” sagði Sóley Björk
Axelsdóttir, 11 ára, sem við hittum að
máli i Hlíðaskóla i gær. Sóley Björk
hjólaði af niiklum móð er okkur bar
að. „Ég er nú alltaf með hjólið heima
en kom með það hingað í dag. Mér
gengur ofsalega vel að safna stigum i
keppnina. Ég hjóla, syndi og fer i
göngutúra,” segir Sóley Björk.
„Maður vonar auðvitað að ísland
vinni þessa keppni. Mér finnst verst að
krakkarnir hér í skólanum, sem ekki
eru í sérdeildinni, sýna þessari keppni
okkar fatlaðra engan áhuga. Ég held
bara að þau viti ekki einu sinni um
hana. Kennararnir hafa heldur ekkert
verið að tala um hana, bara þeir sem
eru í sérdeildinni.
Annars tala ég mjög lítið við hina
nemendurna. Fatlaðir eru svolítið sér.
Kannski vegna þess að ég er svo feimin
og af því að ég er ekki alveg eins og
þeir.”
— Hvemig er að vera með hinum
krökkunum í bekk? Er nokkurn tíma
rætt almennt um fötlun í bekknum,
t.d. af kennurum?
„Það er allt í lagi að vera með þess-
um krökkum en það er aldrei nein
fræðsla um fötlun. Ef krakkarnir vilja
fræðast eitthvað um fðtlun verða þeir
að gera það heima hjá sér,” segir Sóley
Björk.
„Mér finnst að svona fræðsla ætti að
vera 1 öllum bekkjum. Ég ætti kannski
aö búa til ritgerð um lif mitt svo krakk-
arnir skilji það. Ég gæti svo sem gert
það í sumar,” sagði Sóley Björk og var
greinilega komin með allan hugann við
ritgerðina sem við vonum sannarlega
að verði til i sumar.
-ELA
„Krakkamlr i skólanum tala mjög litið
um landskeppnlna. Ég held bara að
þeir vlti ekki einu slnni um hana,”
sagði Sóley Björk Axelsdóttir, 11 óra.
DB-mynd Sig. Þorri.
ÉG Æni KANNSKI
AÐ BÚA TIL RIT-
GERÐ UM LÍF MITT
LIONSKLUBBURINN
NJÖRDUR
HJÓLREIÐAFÓLK
Takið þátt í hjólreiðadeginum sunnudaginn 24. maí.
Áheita- og þátttökukort fást á sundstöðunum, í sportvöru-
verzlunum og hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra að Háa-
leitisbraut 13.
Á sunnudaginn kl. 13.00 verður safnazt saman við eftir-
talda skóla:
Hagaskóla — Hvassaleitisskóla — Hlíðaskóla —
Langholtsskóla — Réttarholtsskóla — Laugarnesskóla —
Breiðholtsskóla — Árbæjarskóla — Seljaskóla —
Fellaskóla.
Frá þessum skólum hjóla allir inn á leikvanginn í Laugar-
dal. Þar afhenda þátttakendur þátttökukort og söfnunarfé og
fá afhent í staðinn viðurkenningarskjöl.
— Ýmis skemmtiatriði verða einnig á Laugardalsvellinum.
Hjólum í þágu þeirra sem ekki geta hjólað.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.