Dagblaðið - 20.05.1981, Blaðsíða 28
Frekar að veita meiri upplýsingar og aðvaranir en banna sölu á lími:
„SNIFFIД ER STÓR-
HÆTTULEGUR LEIKUR
—segir Hrafn V. Friðriksson, forstöðumaður Heilbrigðiseftirlits ríkisins
fijálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ1981.
Lokaðist inni
á flóamarkaði
FMikiíbrigð aðþvíað krakkar þefíaflími til að komast í vímu:
\„Fullfrískir krakkar eru að
skaða heilsuna varanlega”
—„geta kallað yfír sig taugaskemmdir, ” segir aöstoöarborgarlæknir
| I ..imffiiiu*'
,.f« Kfl lalaA «A af»rt ■AiUimtnn 1
ct Adýr o« hxtlulc|ur - o| Km
kai |da auSxklkia ntS I
'ldiai atuu aS Itlja t»S atyldu
ikaSacmi þcu aS þcfa af llmiMr
kallaS yfi. Uf varanlcgar la
<€
Frásögn DB af límþcfjandi unglingum í laugardagsblaöinu vakti mikla athygli.
„Á því leikur ekki minnsti vafi
að „sniffið”, það að þefa af lími, er
stórhættulegur leikur. Hér er um að
ræða upplausnarefni sem fara
auðveldlega í gegnum lungu og út í
blóðið. Þau sækja i taugavefi og
valda m.a. heilaskemmdum séu þau
notuð í ríkum mæli,” sagði Hrafn V.
Friðriksson yfirlæknir, forstöðu-
maður Heilbrigðiseftirlits ríkisins, í
samtali við DB í gær.
í forsíðufrétt blaðsins á laugardag-
inn var greint frá áhyggjum manna
vegna áráttu unglinga að þefa af alls
kyns límefnum í þeim tilgangi að
komast í vimu. Þar greindi Ólafur
Þórarinsson eftirlitsmaður í miðbæ
Kópavogs frá því að hann hefði
gengið á bensínstöðvar í bænum og
beðið afgreiðslumenn að afgreiða
ekki lím til unglinga. OLÍS-menn
hafi tekið erindinu vel en aðrir tekið
dræmar undir þá málaleitan.
Fundur var haldinn i vetur á skrif-
stofu landlæknis um límmálið. Hann
sátu, auk landlæknis, forstöðumaður
Heilbrigðiseftirlits, aðstoðarborgar-
læknir, fulltrúi lögreglunnar og fleiri.
„Rætt var meðal annars um að
setja ákveðnar reglur um sölu á lím-
inu. Til dæmis að banna sölu til
unglinga i sjoppum og á bensínsöl-
um,” sagði Hrafn V. Friðriksson.
„Meirihluti fundarmanna taldi slík
bönn hins vegar til lítils. Réttari leið
væri að upplýsa fólk um efnin og
gefa viðeigandi aðvaranir.
Heilbrigðiseftirlitið tók sýni af lím-
inu og kannaði merkingar á umbúð-
um. Allt eru þetta innfluttar vörur og
aðallega með enskum og þýzkum
áletrunum. Merkingarnar voru alla
vega og uppfylltu í heildina tekið
ekki ákvæði íslenzkrar reglugerðar
þar að lútandi. Það hefur staðið til að
taka þessa reglugerð sérstaklega fyrir
og gera úttekt á því hvernig verzlanir
fara með hættulegar vörur.
í sambandi við límið, þá stendur
ekki til að gera afgreiðslufólk ábyrgt
fyrir því að unglingar kaupi efnin og
misnoti. Hins vegar væri ástæða til
að gefa verzlunarmönnum meiri og
betri upplýsingar um vörur af þessu
tagi. Ég geri þó ráð fyrir að
verzlunarmenn hafi þá sómatilfinn-
ingu til að bera að selja ekki ungling-
um lím ef grur.ur leikur á að það
verði misnotað. Hver á að hafa vit
fyrir börnum ef ekki þeir fullorðnu?
Það hlýtur að vera skylda hvers og
eins,” sagði * forstöðumaður
Heilbrigðiseftirlits ríkisins.
-ARH.
Drengur fyrir
bfl og slasað-
ist alvariega
Alvarlegt umferðarslys varð á
Hafnarfjarðarvegi á öðrum tímanum
í gærdag. Ellefu ára gamall drengur á
reiðhjóli varð fyrir bíl og slasaðist
alvarlega. Slysið varð á Hafnar-
fjarðarveginum, skammt norðan
tengibrautar milli Hafnarfjarðar-
vegar og Kringlumýrarbrautar.
Drengurinn var í hópi barna úr
Snælandsskóla í Kópavogi en tveir
kennarar voru á leið í Nauthólsvík
með börnin á hjólum. Bíllinn kom
suður veginn og varð drengurinn
fyrir bílnum er hann fór yfir veginn.
Billinn var á talsverðri ferð og mæld-
ust hemlaför hans 35 metrar.
Drengurinn var þegar fluttur á
Borgarspítalann, þar sem hann gekk
undir mikla aðgerð. Hann var á
skurðarborði á 11. tíma. Hann var-
mikið slasaður á höfði, höfuðkúpu-
brotinn og kjálkabrotinn og auk þess
handleggsbrotinn.
Lögreglan hafði fréttir af drengn-
um í morgun og lá þá ekki fyrir hvort
drengurinn væri í lífshættu en þó
vonir um að aðgerðin hefði tekizt.
-JH.
Bíllinn var á talsverðri ferð og mœldust hemlaför hans 35 metrar. Höggið var
mikið og hjólið var gjörónýtt eftir. DB-myndir: Bjarnleifur.
Samkomulag um að Norðmenn og íslendingar
veiði 700.000 tonn af loðnu næsta árið:
ísiandfær 617.000
tonn i sinn hlut
Hlutur íslendinga i loðnuveiðum
næsta árið verður rúmiega 617.000
tonn. Norðmenn munu á sama tima
veiða tæplega 83.000 tonn. Samtals
verða því veidd 700.000 tonn af
loðnu á komandi sumri og vetri.
Samkomulag þar að lútandi náðist á
fundi aðila sem hófst i Osló í gær.
Jón Arnalds ráðuneytisstjóri er í for-
ystu íslenzku sendinefndarinnar en
forystu fyrir Norðmönnum hefur
kollegi hans úr norska sjávarútvegs-
ráðuneytinu, Gunnar Gundesen.
Loðnukvótinn í ár er nokkru hærri
en hann var í fyrra. Þá var leyft að
veiða alis 640.000 tonn. Norðmenn
hófu veiðar á undan íslendingum og
veiddu meira en sem nam þeirra um-
samda hluta. Af þeim sökum eru
nú dregin 22.000 tonn af þeirri kvóta
á komandi vertíð.
-ARH.
Einn af viðskiptavinum flóamarkaðs
Sambands dýraverndarfélaga íslands, í
Hafnarstræti 17, lokaðist inni á mánu-
dagskvöld er verzluninni var lokað.
Viðskiptavinurinn hafði fengið sér
sæti í svokölluðum „helli” sem er innst
í verzluninni og var þar að skoða blöð
þegar ljósin slokknuðu skyndilega og
allt datt í dúnalogn. — Viðskiptavinur-
inn sem var kona paufaðist þarna um
í myrkrinu nokkra stund, þar til hún
fann rofa og gat kveikt Ijós. Tókst
henni að gera vart við sig og starfs-
maður annars staðar í húsinu hafði
samband við formann Dýraverndunar-
sambandsins, Jórunni Sörensen, sem sá
til þess að konunni var hleypt úr prís-
undinni.
Ekki varð konunni meint af inniset-
unni og hló að öllu saman er hún var
komin út undir bert loft. -A.Bj.
Náttúruvemdarráð
athugar Ægissíðuna
Náttúruverndarráð hefur nú fengið
til umsagnar fyrirhugaða uppfyllingu
við Ægisíðu í Reykjavík. Fór ráðið
bréflega fram á það við borgarráð og
vitnaði i lög sem kveða á um að
Náttúruverndarráði sé skylt að fjalla
um allar breytingar á umhverfinu.
Árni Reynisson framkvæmdastjóri
Náttúruverndarráðs sagði í morgun að
málið yrði tekið fyrir á fundi í dag og
rætt um það hvernig umsögninni yrði
hagað. Ekki væri ljóst nú hversu
langan tíma þetta tæki. Óskað hefur
verið eftir því við ráðið að það hraði
umsögnsinnieftirmætti. -DS.
pr C T rr n TT
VIN NIN m
ÍVIKUHVERRI
ÍDAG
ER SPURNINGIN:
I hvaða dálki, á hvaða blaðsíðu er
þessi smáauglýsing i biaðinu í dag?
Til sölu Ford Cortina
árg. '71 og Hillman Hunter árg.
'71. Skoðaðir '81. Gotl verð. Uppl.
isima 43453 eftirkl. 18.
Hver er auglýsingasimi Dagblaös-
ins?
SJÁ NÁNAR Á BAKSÍÐU
BLAÐSINS Á M0RGUN.
Vinningurfyrstu
vikunnarer
Útsýnarferð til
ftalíu
Heppinn DB-áskrifandi verður
dreginn út 1 vikunni og svari hann
léttum spurningum um smiaug-
lýsingar DB hlýtur hann Lignano-
ferð að launum. Nýir vinningar
verða veittir vikulega næsta hálfa
árið i þessum leik Dagblaðsins.
Sanitas
drykkir
LÆKKAÐ
VERÐ