Dagblaðið - 22.05.1981, Síða 4

Dagblaðið - 22.05.1981, Síða 4
UÚF BLUESTONUST OGAFSLÖPPUÐ Flestar stefnur innan dægurtón- listarinnar eru i mikilli sókn hér á landi. Gróskan í jasslífi er öllum kunn. Margar hliðargreinar nýbylgjurokksins hafa á undan- förnum mánuðum eignazt sína full- trúa og almennt popp/rokk — stund- um nefnt skallapopp — nýtur stöðugrar hylli þó að ekki sé í tízku nú að meðganga að neinn hafi gaman af þeirri tónlist eins og er. Menn eru jafnvel að fikta við að spila country & western tónlist hér og þar. Hljómplata vikunnar: Shades-JJ. Cale Bluestónlistin hefur gjörsamlega orðið útundan á þessum gróskutím- um dægurtónlistar. Vonandi er siðasti blúeskjafturinn þó ekki endanlega þagnaður. Ég á voðalega erfitt með að trúa því að enginn hlusti lengur á slíka ágætis tónlist sem bluesinn er. Bandaríkjamaðurinn J. J. Cale hefur átt sívaxandi fylgi að fagna á undanförnum árum. Nafn hans vakti fyrst athygli er Eric Clapton valdi lag hans After Midnight á fyrstu sóló- plötuna sína. Hún kom út árið 1970. Fram til þess tíma hafði Cale streðað við að fá fólk til að hlusta á sig en með litlum árangri. Hann reyndi meira að segja fyrir sér sem country listamaður i Nashville. Nú orðið hefur hann það prýðilegt. Hver stór- stjarnan á fætur annarri velur lög hans á plötur sínar og álit hans meðal tónlistarmanna jafnt sem tónlistar- unnenda er mikið. J.J. Cale gerir þó fleira en að semja lög fyrir aðra. Hann hefur sent frá sér nokkrar LP plötur á undan- förnum árum. Sú nýjasta nefnist Shades og hefur að geyma tíu blues- lög. Óhætt er aö mæla kröftuglega með þessari plötu. Hún er einkar ljúf áheyrnar. Lög Cales eru einfaldar og snotrar melódíur og flutningur allur afslappaður eins og mest má verða. Það fer ekki á milli mála þegar hlustað er á J. J. Cale hvaðan sá ágæti Mark Knopfler stjórnandi Dire Straits sækir áhrif sín. Söngur hans, gítarleikur og jafnvel lagasmíðar minna æði oft á J. J. Cale. En skítt með allar samlíkingar. Þær koma málinu ekkert við. Aðalatriðið er að báðir eru þessir tónlistarmenn skemmtilegir á að hlýða. Og farið nú að drífa ykkur í að rifja upp blues- tónlistina. Hún á ekki skilið að falla alveg í gleymsku. -ÁT- „Dr. Jón Gálgan" í Valaskjálf Laugardaginn 23. maí kl. 18 mun Leikfélag Fljóts- dalshéraðs sýna leikrit Odds Björnssonar ,,Dr. Jón Gálgan” I allra slöasta sinn í Valaskjálf. Sýning þessi er í tengslum við aöalfund Bandalags íslenzkra leikfélaga sem haldinn er á Hallormsstað 22.-24. mai. Leikfélag Fljótsdalshéraðs er 15 ára á þessu ári og gcfur i því tilefni út vandað afmælisrit, einnig er að koma á markað snælda með söngvunum úr Dr. Jóni Gálgan. Lögin eru öll eftir heimamenn. 9. sýning á Morðið á Marat Nemendaleikhúsið mun á sunnudagskvöldið sýna leikritið Morðið á Marat eftir Peter Weiss í Lindar- bæ. Þetta verður 9. sýning en ekki er vitað hvort fleiri sýningar verða. Leikstjóri er Hallmar Sigurðs- son, leikmynd gerði Gréta Reynisdóttir og tónlistin er eftir Eggert Þorleifsson. Þeir nemendur sem taka þátt í þessari sýningu eru allir á síðasta ári og er þetta lokaverkefni þeirra. Á myndinni má sjá atriöi úr ein- um kafla leikritsins sem nefnist umræða um dauöa og líf, þar sem efni umræðnanna er jafnframt sýnt meö látbragösleik. Golf: ÞOTUKEPPNIA HVALEYRINNI —hart verður barizt um landsliðsstigin Tónleikar Ráðstefnur Ráðstefna skyndihjálparkennara Helgina 22.—24. maí verður haldin ráöstefna i Hrafnagilsskóla Eyjafiröi með skyndihjálpar- kennurum útskrifuöum frá Björgunarskóla Land- sambands hjálparsveita skáta. Markmið ráðstefnunnar er að efia samstöðu skyndihjálparkennara og leggja drög að félagi þeirra. Slíkt félag hefur ckki verið starfandi, þrátt fyrir mikinn fjölda kennara, og ennfremur að tryggja það að kennarar hafi aðgang að þeim nýjungum sem fram koma hverju sinni. Kynntur veröur Björgunarskóli LHS., er stofn aður var 30. sept. ’77. Thor B. Eggertsson hefur verið skólastjóri skólans frá upphafi og byggt hann upp eftir fyrirmynd Danska almannavarnaskólans. Markmið Björgunarskólans er m.a'. að þjálfa og út- skrifa leiðbeinendur á hinum ýmsu sviðum björgunarmála. Heiöursgestur ráöstefnunnar verður Jón Oddgeir Jónsson, sem manna mest hefur unniö aö kennslu í skyndihjálp. Einnig er öðrum gestum sem þesssi mál varða boðið. Fyrirlestrar Fyrirlestur um eldsneytisframleiðslu á íslandi Mánudaginn 25. mai kl. 17:15 mun dr. James H. Kelley frá Tækniháskólanum i Kaliforníu flytja fyrirlestur á vegum Verkfræði- og raunvisinda- deildar Háskóla íslands um hugsanlega framleiðslu eldsneytis á íslandi úr innlendri orku og innlendu hráefni. Fyrirlesturinn verður fiuttur á ensku og nefnist „Methanol from peat and hydrö-power as an energy independence approach for Iceland”. Fyrir- lesturinn er öllum opinn og verður haldinn í húsi Verkfræði- og raunvísindadeildar (VR II) stofu 158. Dr. Kelley er starfsmaður Jet Propulsion Laboratory, sem er hluti af Tækniháskólanum í Kalifomíu. Hann er jafnframt forstöðumaður fyrir deild sem fæst við rannsóknir á framleiðslu vetnis og notkun þess í afivélum, annaðhvort á þann hátt að brenna því beint eða breyta því fyrst í fijótandi elds- neyti, t.d. methanol. Erindi dr. Kelleys til íslands er meðal annars að kanna áhuga á slikri rannsóknarsamvinnu landanna. Tilkynningar Fyrsta opna golfmótið sem gefur stig til landsliðs verður haldið hjá Golfklúbbnum Keili á Hvaleyrinni laugardag og sunnudag. Er það Þotu- keppnin sem Flugleiðir standa að. Leiknar verða 36 holur með og án forgjafar. Búast má við mjög góðri þátttöku og verða örugglega allir beztu golf- leikarar landsins með. Má þar nefna Islandsmeistarann síðastliðin þrjú ár, Hannes Eyvindsson, en þetta er fyrsta opna mótið sem hann tekur þátt í þetta keppnistímabil. Verður skemmtilegt að fylgjast meö honum og Sigurði Péturssyni sem hefur sigrað í síðustu tveim opnum mótum. Þeim sem huga á þátttöku skal bent á að tilkynna þarf þátttöku í Hér má sjá hluta þeirra verfllauna sem veitt verða i Þotukeppninni síma 53360 fyrir kl. 19.00 í kvöld. Flugleiðir veita vegleg verðlaun og sá sem kemst næst holu á 5. flöt vallar- ins fær flugfar til Glasgow eða Luxemborgar eftir vali. -HK. Hljómleikar í Hafnarbfói Föstudaginn 22. maí kl. 20.30 halda hljómsveitirnar Orghestarnir, Tivolí og Jurkar hljómleika I Alþýðu- leikhúsinu í Hafnarbiói. Hljómsveitin Tivoli mun kynna lög af óútkominni hljómplötu og bárujárnsrokk. En Orghestamir og Jurkar munu eingöngu leika frumsamið efni. Kór Átthagafólags Stranda- manna í Reykjavík heldur tónleika laugardaginn 23. maí í Fóstbræðra- heimilinu Langholtsvegi 109 kl. 17. Á efnisskrá eru innlend og erlend lög. Söngstjóri kórsins er Magnús Jónsson og undirleikari Guðný Magnúsdóttir. Fundir Herstöðvaandstæðingar funda á Hornafirði Herstöðvaandstæðingar Austur-Skaftafellssýslu koma saman í húsi verkalýösfélagsins Höfn Horna- firöi föstudgaskvöldið 22. maí kl. 20.30. Böðvar Guðmundsson syngur þar söngva sína, Birgir Svan Símonarson les úr eigin verkum og heimamenn veröa með ýmiss konar efni. Á boðstólum verður kaffi og öl. Allir velkomnir. ísland úr NATO — herinn burt. Beltið getur bjargað þór Um helgina mun Byggðarlagsnefnd I, J.C. Vik, Reykjavík, hefja dreifingu límmiöa i bila sem hvetja til notkunar bilbeltanna. Á miöunum stendur „Beltið getur bjargaö þér”. Dreifing þessara miða tengist annars vegar áskorun Alfa-nefndar um fyrirbyggjandi aðgerðir gegn slysum á alþjóðaári fatlaðra og hins vegar frumvárpi á Alþingi um aö lögleiða notkun bílbelta. Byggðarlagsnefnd J.C. Víkur hefur undanfarið kynnt sér margvísleg gögn um bílbelti og notkun þeirra hérlendis og erlendis. I framhaldi af því hefur nefndin ákveðiö aö stuðla aö notkun bílbeltanna Vorverkin haf in af fullum krafti: Moldinni ekid heim £ LI^A — moldarsala um helginatil I nidU styrktarlíknarmálum Nú eru vorverk í görðum hafin af fullum krafti og um helgina má búast við því að margir taki til hendinni í görðunum viö hús sín. Um þessa helgi, laugardag og sunnudag, gengst Lionsklúbburinn Muninn í Kópavogi fyrir sölu á mold til styrktar liknarmálum. Moldin verður keyrð heim til kaupenda á öllu Stór-Reykjavíkursvæðinu og er kaupendum gefinn kostur á því að kaupa bæði stór og lítil hlöss þannig að flestir ættu að geta fengið moldarhlass við sitt hæfi. Eins og fyrr sagði verður moldar- salan bæði laugardag og sunnudag og hægt er að panta hana í símum 40314 og 44026.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.