Dagblaðið - 05.06.1981, Qupperneq 4
20 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ1981.
Hvrað er á seyöium helginal
Dagana 4.—17. júnl sýna þrir finnskir listmálarar
verk sin i Eden i Hverageröi.
Elina O. Sandström, sem nú sýnir i sjöunda
skiptið i Eden um hvitasunnuna, hefur verið búsett
hér 6 landi i 9 ár. Sýnir hún nú um 30 oUumálverk,
að mestu fslenzkt landslag og náttúru.
Juhani Taivaljarvi, mágur Elínar, sýnir nú 13 mál-
verk og eru fyrirmyndirnar að mestu finnskar.
Liisa Urholin- Taivaljarvi, systir Elínar, er með 34
„miniatyrer”-blómamyndir á sýningunni.
Sýning þessara þriggja fínnsku Ustmálara er sem
fyrr segir i Eden i Hveragerði dagana 4.—17. júní.
Grótar Ingimarsson
sýnir á Akureyri
Laugardaginn 6. júni kl. 16 opnar Grétar Ingimars-
son sýningu á málverkum og teikningum í Iðn-
skólanum á Akureyri. Þetta er fyrsta einkasýning
Grétars, en áður hefur hann verið á nokkrum
samsýningum.
Sigurflur örlygsson sýnlr i DJúpinu tUbrigfli sin um
eitt stef, lyftuhjól sem hann sá f Kaupmannahöfn
fyrir nokkrum mánuðum.
ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaflastrsetl 74: Ný sýning á
verkum Ásgrims. Opið þriðjud., fimmtud. & laugar-
dagkl. 13.30—16.
GALLERÍ KIRKJUMUNIR; Kirkjustreti 10:
Sigrún Jónsdóttir, batik, kirkjumunir. Opið 9—18
virka daga, 9—16 um helgar.
HÖGGMYNDASAFN Asmundar Sveinssonar:
Opið þriðjud., fimmtud., Iaugard. & sunnudag kl.
13.30—16.
LISTASAFN ÍSLANDS: Málverk, teikningar,
skúlptúr & grafik eftir innlenda og erlenda lista-
menn. Anddyri: Grafikgjafir til safnsins.
NORRÆNA HtJSIÐ: KJallari: Storm P. sýning.
Opin daglega kl. 14—19. Anddyri: Sigrid Valtin-
gojer, grafik.
GALLERl LANGBRÓK, Amtmuinntig 1:
Keramik eftir Rögnu Ingimundardóttur, Rósu Gfsla-
dóttur og Sóley Eiriksdóttur. Opiö til 12. júni kl.
12—18 virka daga, 14—18 um helgar.
NÝLISTARSAFNIÐ, Vatnsstig 3b: Biennale de
Paris: íslenzkir þátttakendur i alþjóðlegri sýningu
ungra myndlistarmanna í Paris 1980, Ámi Ingólfs-
son, Helgi Þ. Friöjónsson, Níels Hafstein. Opnar
laugardag kl. 16. Opiö 20—22 virka daga, 14—20
um helgar til 19. júni.
GALLERl SUÐURGATA 7: KANAL 2, danskir
myndlistarmenn sýna blönduð verk, málverk,
klippimyndiro.fi. Opnar laugardag kl. 16.
STÚDENTAKJALLARINN v/Hringbraut: Ljós-
myndasýning frá Albaníu. Stendur til 7. júni. Opiö
11—23.30 alla daga.
LISTASAFN ALÞÝÐU, Grensásvegl 16: Jakob
Jónsson, málverk, teikningar, vantslitamyndir.
Opið 14—22 alla daga.
KJARVALSSTAÐIR: Vestursalur: Hafsteinn Aust-
mann, ný málverk. Opið 14—22 alla daga.
DJÚPIÐ, Hafnarstrsetl (Hornifl): Sigurður örlygs-
son, málaðar mónótýpur. Stendur til 10. júni. Opið
11—23.30 alladaga.
Flnnsklr mólarar
•ýnafEden
Óvenjulegasta
sumarferðin:
/ algjörrí ró
á Amarvatnsheiði
—ekki lofað tómu Mallorkaveðri í sex daga hesta- og
veiðif erðum um Amarvatnsheiði
Það er sagt hafa færzt í vöxt á und-
anförnum árum, þessum árum sólar-
landaferða, að íslendingar ferðist um
eigið iand. Innlendi ferðamanna-
bransinn leggur nú á það mikla
áherzlu i auglýsingaherferð að for-
eldrar kenni börnum sinum að
þekkja landið.
Líklega bjóða fáir upp á skemmti-
legri tækifæri til þess en Arinbjörn
Jóhannsson frá Brekkulæk í Mið-
fíröi. Hann byrjaði í hittifyrrasumar
á að fara með túrista — bæði
islenzka og útlenda — i hesta- og
veiðiferðir um Arnarvatnsheiði.
Gerðu þær ferðir ágæta lukku og í
sumar hefur Arinbjörn fyrirhugað
niu slíkar feröir. Hefst sú fyrsta 27.
júnf næstkomandi og stendur i sex
daga, eins og raunar hinar ferðirnar
átta.
Arinbjörn heldur til á sumrin i
eyöibýlinu Aðalbóli i Miöfiröi. Þar
hittast menn eða þá að hann sækir
væntanlega ferðalanga, sem komið
hafa með Norðurleiðarrútunni frá
Akureyri eða Reykjavík, að Lauga-
bakka. Fyrstu tvo dagana er dvalið á
Aðalbóli við útreiðar og veiðar i
Austurá en á þriðja degi er lagt á
heiðina og stefnt aö Strípalóni, sem
þar heitir. Allur farangur er fluttur á
trússahestum en Arinbjörn leggur til,
auk reiðskjótanna, allan mat og
nauðsynlegan veiðiútbúnað. Þar á
heiðinni er siðan dvalið næstu þrjá
dagana við veiðar og útreiðar og gist i
leitarmannakofa.
Maturinn er ekki af verra taginu —
spriklandi silungur (nokkur mál, sem
þátttakendur i ferðinni veiða sjálfir,
og svo staðgóður islenzkur sveita-
matur. Trúlegast má búast við kraft-
mikilli kjötsúpu i fyrstu máltíð, við
komuna i Aðalból á fyrsta degi.
Á sjötta degi er haldiö niður af
heiðinni síödegis og gist á Aöalbóli.
Sitja menn gjarna uppi fram eftir
nóttu og ræða ævintýri vikunnar —
og liðka sára bossa eftir óteljandi út-
reiðartúra. Heim halda menn svo á
sjöunda degi eftir hádegismatinn.
Arinbjörn Jóhannsson dvelur i
Þýzkalandi á vetrum en heldur svo til
heiða á íslandi þegar bjart er orðið
allan sólarhringinn. Hann vill ekki
hafa nema 6—7 manns i hverri ferð,
svo hægt sé að sinna öllum, og leggur
á það áherzlu að menn kunni eitthvaö
að fara með hesta svo allir fái notið
ferðarinnar. Hann lofar góðum mat,
kyrrð og friðsemd fjaUanna, hreinu
lofti, góðum hestum, veiðileyfum og
nauösynlegum „græjum” og „ekki
alltaf góðu veðri”, eins og segir í
bæklingnum hans. Áætlað verð i
sumarer kr. 1.780.
Upplýsingar um ferðirnar gefa Úti-
vist, Lækjargötu 6 Reykjavik, sími
(91)14606, og Arinbjöm Jóhannsson,
AðalbóU Miðfirði, simi (95)1311.
-ÓV
Veitt i Arnarvatni stóra i hcsta- og veiðiferð um Arnarvatnsheiði. Einnig er veitt i Stripalóni og fleiri vötnum.
Svartifoss í Skaftafelli. Ferðafélag íslands er einmitt með skipulagða hópferð í
þann sælureit í fyrramálið kl. 8. DB-mynd Hörður.
Aðalferðastaðimir um hvftasunnuna:
Þórsnrörkin og
SnæfeHsnesið
Ætlar þú að vera á faraldsfæti um
hvítasunnuna, rýjan min? Ef svo er
þá er margt vitlausara en að bregða
sér til fjalla eða ferðast eitthvað um
landið. Ferðaklúbbar og stærstu
deildir Ferðafélags tslands bjóða upp
á hópferðir. Annars má ferðast
hvernig og hvenær sem menn lystir.
íbúar á Stór-Reykjavíkursvæðinu
eiga til dæmis kost á eftirtöldu:
Ferðafélag Islands býður Þórs-
merkurferð kl. 20 1 kvöld, föstudag.
Sumir ganga á Eyjafjallajökul, aðrir
láta sér nægja minna. Félagsmenn
borga kr. 380, utanfélagsmenn kr.
420.
Ferðafélagið er lika með ferð i
Skaftafell kl. 8 í fyrramálið sem
kostar kr. 380 (félagsmenn), kr. 420
(utanfélagsmenn). Og siöast en ekki
sízt er það SnæfeUsnes kl. 8 í fyrra-
máUð. Gengið er á SnæfeUsjökul og
margt annað sér til gamans gert.
Kostnaöur er kr. 345 (félagsmenn),
kr. 380 (utanfélagsmenn).
Á hvitasunnudag býður Ferða-
félagið dagsferð kl. 13. Gengið er á
Ásfjall i grennd við Hafnarfjörð.
Ánnan hvitasunnudag er önnur dags-
ferð kl. 13. Þá skal tölta upp á Stóra-
Meitil í Þrengslunum.
Utivist býður Snæfellsnesferð í
kvöld kl. 20. Gengið er á jökuUnr
eða meðfram ströndinni og búið í vel-
lystingum á Lýsuhóli. Kostnaöur er
kr. 460 (félagsmenn) og kr. 480
(utanfélagsmenn).
Þórsmerkurferð er lfka á dagskrá
Útivistar í kvöld kl. 20. Gist er i nýj-
um skála félagsins eða í tjöldum.
Kostnaður er kr. 340 (félagsmenn),
kr. 360 (utanfélagsmenn).
Þá má enn geta Þórsmerkurferðar
Farfugla. Lagt er af stað í fyrramálið
kl. 8 óg gist í tjöldum. Kostnaður er
kr. 280 (félagsmenn), kr. 300 (utan-
félagsmenn).
Eins og þú sérð, lesandi góður, er
úr nógu að velja. Búast má þó við að
uppselt sé i einhverjar af framantöld-
um ferðum. Nóg var a.m.k. ásóknin í
þær þegar DB haföi samband við
skrifstofur félaganna fyrir helgina.
Því má ekki dragast að hafa samband
við skrifstofurnar og kanna málið.
Hvað sem þú gerir af þér um helg-
ina þá er við hæfl að segja: gleðilega
og góða h vitasunnu I - ARH
Grétar sýnir um 20 oliumálverk og u.þ.b. 40
pastelmyndir og nokkrar tússmyndir. Myndirnar eru
flestar fráárinu 1981 en þær elztu fráárinu 1977.
Sýning Grétars Ingimarssonar veröur opin á
virkum dögum frá kl. 17 til 22 en um helgar milli kl.
16 og 22. Sýningunni lýkur sunnudaginn 14. þ.m.
Postulíns8ýning
íHamragörflum
Íjúnf1981
í tilcfni þess að félagsheimiliö Hamragarðar á 10 ára
afmæli hefur verið efnt til sýningar á postulinsmun-
um, sem nemendur á námskeiðum i postulínsmálum
1 Hamragörðum og PostuUnsstofunni hafa gert
undir leiðsögn Sólveigar Alexandersdóttur.
Hér er um að ræða um 200 muni, mjög fjölbreyti-
leg aö gerö, og mun þetta vera í fyrsta skipti sem slik
sýning er haldin hérlendis. Postulinsmálun hefur
öðlazt miklar vinsældir á siðustu árum sem
tómstundastarf og þcssi sýning er vitnisburður um
þaö sem hægt er að gera á þessu sviöi Ustsköpunar.
Sýningin á postuUnsmnnnnum l Hamragörflum
verflur opin almenningi um hvitasunnuna, sunnudag
og mánudag 7.—8. Júni þá ld. 15.00 tii 22.00.