Dagblaðið - 11.06.1981, Síða 1
7. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981 - 128. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Engu logið um kínversku eldspýtumar:
Neisti af eldspýtunni
stórslasaöi afa minn”
—86 ára gamall maður liggur illa brenndur eftir að neisti úr eldspýtu kveikti
i fótum hans á sjúkrahúsi
„Það er sárt að horfa upp á þessar
kínversku eldspýtur fara svona með
manninn,” sagði Herdis Hjörleifs-
dóttir í morgun. Afi hennar, Berg-
steinn Hjörleifsson, brenndist illa
fyrir hálfri annarri viku er hann
kveikti sér í sígarettu með kin-
verskum eldspýtum sem hér eru á
markaði.
„Afi minn, sem er 86 ára gamall,
var á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði.
Hann var að horfa á fréttirnar í sjón-
varpinu og gekk siðan fram til þess
að reykja. Þegar hann kveikti á eld-
spýtunni, brotnaði hluti af brenni-
steininum og skauzt ofan i hálsmálið
ábol semhann vari.
Hann reyndi að klipa í brennistein-
inn og toga bolinn af sér, en það
skipti engum togum, að þegar í stað
kviknaði í bolnum og hann varð al-
elda. Afi minn kallaði á hjálp og
hjúkrunarkonur komu þegar í stað
honum til aðstoðar. Þær hlupu með
hann beint inn í baðherbergi og
sprautuðu á hann vatni og kældu
hann. Síðan var hann fluttur með
sjúkrabíl á slysadeild Borgarspitalans
og þaðan á Landspítalann.
12—14% af líkama hans er með
2.-3. stigs bruna og hann er brunn-
inn frá mitti upp að höku og eyrum.
Hann hefur verið svæfður tvisvar og
reynd ágræðsla húðar á brjóst. Eftir
fyrri svæfinguna ræddi ég við hann.
Þá bað hann mig að tala við Dag-
blaðið og vara við notkun á þessum
eldspýtum, þær eru stórhættulegar.
Síðari svæfingin var svo fullorðn-
um manni erfið, þannig að hann
þekkir ekki ættingja sina nú. Það er
sárt að sjá því hann var vel hress áður
en þetta geröist.”
-JH.
Herdís Hjörleifsdóttir með afa sínum Bergsteini Hjörleifssyni á Landspltalanum í Double Happiness, stórhœttulegar. Brennisteinninn skýzt i óliklegustu áttir og
morgun. Gamli maðurinn var heldur hressari I morgun og þekkti Herdlsi, þannig varðþað m.a. tilþess að hann brenndist illa.
að þau gátu skiptzt á nokkrum orðum. Bergsteinn telur kínversku eldspýturnar, DB-mynd: Einar Ólason.
Læknar höfnuðu drögum
að samningi við ríkið
Sjúkrahúslæknar höfnuðu i gær-
kvöldi samningsgrundvelli þeim er
fyrir liggur eftir viðræöur þeirra við
fulltrúa fjármálaráðuneytisins.
Samninganefnd lækna iagöi til að
efnisþættir samkomulagsins yrðu
samþykktir. Einn nefndarmanna
lagði þó til að þeim yrði hafnað. At-
kvæði voru ekki greidd um málið en
samþykkt dagskrártillaga þar sem
lýst er stuðningi við áframhaldandi
viðræður. Jafnframt lýstu fundar-
menn þeirri skoðun sinni að „ýmis
samningsatriði séu vanrædd og að
fullnægjandi árangur liggi ekki
fyrir.”
Einn fundarmanna orðaði það svo i
samtali viö DB að samningsdrögin
hefðu„kolfallið á fundinum”. Páll
Þórðarson framkvæmdastjóri
Læknafélags íslands sagðist i
morgun ekki vilja gera þá túlkun að
sinni. Hann sagðist álfta að fundar-
menn hafi „engum dyrum lokað á
rikið”. Einnig að iæknunum haft
þótt sem efnispunktarnir úr sam-
komulaginu væru ónógir til að taka
afstöðu td þeirra.
Niðurstaða sjúkrahúslækna er þvi
sú aö þeir hafna samningnum sem
fyrir iiggur og vilja áframhaldandi
viðræður viö ríkið. Hver viðbrögð
ríkisvaldsins verða er hins vegar
óljóst. Þorsteinn Geirsson, ráðu-
neytisstjóri fjármála, hefur látið hafa
eftir sér að samningaviðræöum væri
lokið ( bili, a.m.k. ef samkomuiagið
yröi feilt. Þá væri samkomulagið
ekki lengur i sjónmáli.
1 samningsdrögunum er eingöngu
fjaliað um ýmis réttindamál, svo sem
lffeyrissjóðamál o.fl. Á fundinum í
gærkvöldi heyrðust allháværar
óánægjuraddir vegna þess að ekki
hefur verið Ijallað um grunnkaups-
hækkanir til lækna i viðræöunum
undanfarið.
-ARH.
— sjá nánar á baksíðu
ÞEIR FÓRUST MED TF-ROM
Mognúa Indriflaaon kaup-
maflur, Lundahólum 8 í
Reykjavlk, 32 ára, leatur
aftir alg alglnkonu og
þrjú bflm.
Jóhann Kr. Brlam mat-
ralflalumaflur, Gyflufalll 6
I Reykjavlk, 22 ára,
ókvaantur og barnlaua.
HJÖrialfur Einaraaon
trygglngaatarfamaflur,
Langholtavagl 141
Raykjavlk, 26 ára, laatur
aftlr alg alginkonu
og þrjú bfim.
Rafn Haraldaaon tann-
amlflur og fyrrum hljófl-
faaraleikari, HJallabrakku
43 í Kópavogl, 33 ára,
laatur aftlr alg elglnkonu
og altt bam.