Dagblaðið - 11.06.1981, Side 2
2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 11. JONÍ1981.
Pe/urwð/uu/i
Amerískt eikar parkett
PermaGrain er nýjasta nýtt
Það sem gerir PermaGrain frábrugðið öðru venjulegu gólf-
parketti er að:
Viðhald er ekki lengur vandamál því PermaGrain er
GEGNUMVÆTT með ACRYL, sem gerir óþarft að
lakkaeða bóna.
PermaGrain er einfalt í niðursetningu — handlaginn
annast það sjálfur.
PermaGrain er hljóðeinangrandi — ekkert hljóðglamur
þar sem PermaGrain er á gólfi.
Berið saman PermaGrain og venjulegt parkett og þér
munuð sannfærast um yfirburðina.
Fyrirliggjandi gerðin AMERICANA, stærð 12”xl2”x-
5/8 Fleiri gerðir væntanlegar. Einnig fyrirliggjandi tilheyr-
andi lím.
bb Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
CO Ármúla 16 — Sími38640.
Tráullsplattfabrikema
Sænskar sementlimdar TRÉULLAR-plötur i lol't frá verksmiöjunni t-
produkterna Tráullsplattíabrikcrna. NÝKOMIN SENDING. Plötu-
stærð 60 X 120 cm. 30 mm þykkt.
Einnig DONN, þýzk lofta-upphcngikerfi l'yrir plötur þessar.
&
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 16, sími 38640.
TWI rillITTTflHBllllllimiMBIS
FILMUR OG VELAR S.F.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.
Vemdare
TnakstursM'ar mc
*
kcppnikaPI’ ra„ýbíla a
* Meira en ^kONUiökSdc>'fa
hlandinota __ cínnig þif!-
. ««• •%£>’***>>- Z«-
**-'
þaö borxar sif!-
'l0WórtsnaVðar
ÖRYGGIS
SMYRILL HF.
Ármúla7 Reykjavík
Sfmi 84450
r
m
iyn||
— Þetta er alveg nógu hátt, gæti Sigmar B. Hauksson, útvarpsmaöurinn góökunni, verið að scgja, en bréfritari er á þeirri
skoöun að útvarpshúsið sé tveim til þrem hæðum of hátt.
ÚTVARPSHÚSIÐ ER 0F HÁTT
Guðrún Jacobsen skrlfar:
Reykvíkingar!
Fljótum nú ekki lengur sofandi að
feigðarósi. Stöndum nú einu sinni
allir saman. Mótmælum því ófyrir-
gefanlega slysi að einum bankanum
enn verði plantað niöur í miðborg-
inni og nú fyrir framan fegursta út-
sýnisstað borgarinnar, Arnarhól.
Það er meira en nóg að útvarpshús-
ið er einum tveim til þrem hæðum of
hátt. Ef þið trúið mér ekki góðii sam-
borgarar þá labbið bara sjálfir upp á
hólinn.
Loftleiðlr unnu brautryðjendastarf fyrir 12 árum seglr bréfritari.
Flugleídir í
blíðu og stríðu
Amerikufari skrifar:
Tæpast er ofmælt að sameining
flugfélaganna tveggja, Loftleiöa og
Flugfélags íslands, hefur dregið lif-
seigan og fóðurþungan dilk á eftir
sér, þann sem Flugleiðir heitir.
Sá timi er liðinn þegar flugfélögin
tvö kepptu um hylli farþeganna og
þeir (farþegarnir) sáu sjálfir um hólið
1 formi meðmæla þegar rætt var við
kunningja að ferð lokinni. Án efa eru
•slfk meðmæli beztu auglýsingarnar.
Nú hins vegar, undir sameiginlegri
stjórn, eða réttara sagt óstjórn, er fá-
títt að sjá þakkarbréf eða hólskrif í
fjölmiðlum frá farþegum um af-
bragðsþjónustu Flugleiða en kvart-.
anir farþega eru þeim mun tíðari og
þær í fjölbreyttara lagi.
Einn „ánægður Flugleiðafarþegi”
lét þó frá sér heyra í dálkum Velvak-
anda Morgunblaðsins fyrir nokkru.
Sá upplýsti landslýð um nýja tegund
þjónustu sem eftir því sem hann taldi
kæmi „óumbeðin” frá félaginu!
Hann gat sem sé hlustað á
„stereó”-tónlist að eigin vali án þess
að trufla næsta mann! — og þannig
styttist löng flugleið til muna, sagði
hann. — En hvaðan skyldi nú þessi
,,stereó”-tónlist vera tilkomin i flug-
vél Flugleiöa hf? Frá Dönum, sem
leigðu Flugleiðum hf. vél sumarlangt.
SAS hefur slíka afþreyingu á boð-
stólum fyrir sina farþega á lang-
leiöum, þótt Flugleiðir geri það ekki.
Þessi . „danska” flugvél Flugleiða
er þvi eina vélin, að þvi er Flugleiðir
upplýsa.sem hefur þennan útbúnaö.
— Þeir farþegar sem með öðrum vél-
um fljúga eiga ekki kost á þessari
þjónustu.
Fyrir meira en áratug buðu Loft-
leiðir farjvegum sinum upp á þessa
þjónustu og voru fyrstir til þess að
taka hana upp af fslenzkum flugfé-
lögum. En það var líka á tímum sam-
keppninnar sem nú má ekki minnast
álengur.
Það er því ekki Flugleiðum að
þakka að nú vill svo til að i leiguvél
þeirra, og henni einni, eru sæti sem
þeir SAS-menn telja sjálfsögð með
það fyrir augum að farjiegar geti not-
ið tónlistar, meðan á flugi stendur.
Hitt er svo annaö mál að „hól-
bréf” áðurnefnds farþega, sem birtist
í Velvakanda Morgunblaðsins, var
nafnlaust en slik tilskrif flokkar
blaöafulltrúi Flugleiða undir „at-
hafnir hálfvaxinna götustráka’ ’!
En ekki þurfti lengi að biða. Stuttu
seinna birtist i Velvakanda Morgun-
blaðsins annað bréf undir fullu nafni
— og var það ekki hólbréf, nema
síður væri.
Sá haföi verið farþegi Flugleiða og
kvartaði hann undan 6 klst. biö á
Akureyrarflugvelli meðan Flugleiðir
luku við æfmgaflug við flugvöllinn!
Og fleiri kvartanir berast um þjón-
ustu Flugleiða. Það er nánast orðið
daglegur viðburður að svo yfirbókað
sé í flugvélar félagsins að allt að 40
farþegar hafa þurft að horfa á eftir
þeirri flugvél sem þeir áttu bókað í.
Einnig eru dæmi um að farþegar,
fullborgandi og bókaðir, séu beðnir
að rýma sæti fyrir öðrum sem standa
fast á rétti sínum að fara með því
flugi sem þeir hafa borgað fyrir.
Svona atburðir gerast æ og aftur,
einkum á Atlantshafsleiðunum, sem
þó eru sem fyrr gullnáma félagsins,
þrátt fyrir „vantrú” forstjórans á
þessum fiugleiðum.
Það virðist ekki tekið út með sæld-
inni að stjórna samsteypumistökun-
um Flugleiðum, enda vart á færi
stjórnenda og forstjóra sem eru svo
vanhæfir sem raun ber vitni. — Að-
skilnaður flugfélaganna innan Flug-
leiða er enn sem fyrr brýnasta hags-
munamál islenzkra flugfarþega.